Morgunblaðið - 30.04.2002, Blaðsíða 12
12 C ÞRIÐJUDAGUR 30. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir
Runólfur Gunnlaugsson, viðskiptafræðingur,
lögg. fasteigna- og skipasali
Ásmundur Skeggjason. lögg. fasteigna- og skipasali.
Kríuás Hf. - Endaíbúð sem var
að losna!
Vorum að fá aftur á sölu 130 fm endaíbúð á
2.hæð. 4 svefnherb. Stór stofa. V. 14,7 millj.
(1602)
SÉRHÆÐ
Suðurgata Hf. - „Klassísk“ eign
Glæsileg 4ra herb. rishæð. Lofthæð allt að 3,4
m. Kíktu á þessa í hvelli! V. 12,5 millj. (2447)
Laufás Gbæ - Glæsileg sérhæð
- gryfja í skúr!
Björt og rúmgóð 115 fm sérhæð ásamt 30 fm
skúr innst í botnlanga í rólegu hverfi í Garðabæ.
Er þessi ekki ekta fyrir þig? (2432)
Norðurbraut Hf. - Gott fm-
verð!
140 fm efri sérhæð m. sér inngangi á fínum
stað. Fallegur garður og stutt í góðan skóla. V.
12,9 millj. (2441)
RAÐ- PARHÚS
Ásbúð Gbæ
Mikið endurnýjað raðhús á tveimur hæðum
ásamt tvöf. bílskúr. Útsýni af efri hæð. Skipti á
minni eign möguleg. (1993)
EINBÝLI
Víðiberg Hf. - 1. FLOKKS!
Fallegt einbýlishús á einni hæð ásamt stórum
bílskúr. Fallegur garður með verönd. ALLT NÝTT
INNI! (eða svo gott sem). V. 22,5 millj.(2313)
Álfaskeið Hf. - Glæsilegt hús!
Rúmlega 330 fm glæsilegt einbýlishús á besta
staðnum í bænum. Möguleiki á aukaíbúð í kj.
Nýr skúr. Hafðu samband.
2JA HERB.
Maríubakki Rvík - Björt og
rúmgóð!
Nýtt á skrá - sérlega björt og rúmgóð 2ja herb.
70 fm íbúð á 3. hæð í fjölbýli. Óvenju stór stofa.
Eign í mjög góðu viðhaldi. (2507)
Þrastarás Hf. - Sérgarður!
2-3ja herb. íbúð á jarðhæð með sérinngangi og
sérverönd út í garð í 3ja hæða fjölbýlishúsi. V.
10,6 millj. (2181)
Miðsvæðis í Hf.
Lítil 2ja herb. íbúð á jarðhæð með sérinngangi.
V. 6,2 millj. (2315)
Sléttahraun Hf. - Björt og
skemmtileg!
Vorum að fá á skrá bjarta og skemmtilega 2ja
herb. íbúð á 1. hæð í fjölbýli. Parket og flísar á
gólfum. V. 8,4 millj. (2501)
3JA HERB.
Miðbær Hf. - Kemur á óvart!
80 fm 3ja herb. efri sérhæð. Björt og góð stofa,
nýlegt baðherb. Þessi kemur á óvart. V. 8,9 millj.
(2448)
Þrastarás Hf. - Nýtt hús!
Skemmtilega skipulögð 3ja herb. íbúð á jarðhæð
með sérinngangi og sérgarði í nýju 3ja hæða
fjölbýlishúsi á góðum stað í Þrastarásnum. Alno
innréttingar. V. 11,5 millj. (2211)
4-6 HERB
Laufvangur Hf.
Rúmgóð og björt 4-5 herbergja íbúð á 3. hæð.
Góð staðsetning, stutt í góða skóla og alla þjón-
ustu. (2073)
Kríuás Hf.
Eigum eftir tvær 4ra herb. 100 fm íbúðir á 2.
hæð. Afhendast fullbúnar án gólfefna í maí. V.
12,8 millj.
Álfaskeið Hf. - Stórar suð-
ursvalir með útsýni!
Gullfalleg 4ra herb. 111 fm íbúð á 3. hæð í mjög
vel viðhöldnu fjölbýlishúsi í Álfaskeiðinu í Hafn-
arfirði. Íbúðin er í toppstandi m.a. nýuppgert
baðherbergi, björt og rúmgóð stofa, stórar svalir
til suðurs þaðan sem er ágætis útsýni. Hafðu
samband og fáðu að skoða! (2521)
Átt þú eign?
Guðjón Guðmundsson,
viðskiptafræðingur,
sölustjóri.
Guðmundur Karlsson,
sölumaður.
Þórey Thorlacius,
skjalavarsla.
Hafnarfjörður
Aratún Gbæ - Mikið endurnýj-
að!
Mikið endurnýjað einbýli á einni hæð ásamt 50
fm skúr. Timburverönd út í suðurgarð. Skipti á
minni eign möguleg. V. 21,0 millj.(2404)
Hraunhvammur Hf. - Drauma-
húsið!?
Kósí og töluvert endurnýjað einbýlishús á tveim-
ur hæðum í götu sem lokuð er í annan endann á
góðum stað í Hafnarfirði. V. 15,0 millj.(2359)
NÝBYGGINGAR
Hamrabyggð Hf. - Lóðin fyrir
golfarann!
Huggulegt 168 fm einbýlishús á einni hæð
ásamt 35 fm bílskúr. Glæsileg lóð fyrir framan
nýja hluta golfvallarins hjá Keili. V. 13,9 millj.
Erluás Hf.
Glæsilegt 187 fm (þar af 23 fm innbyggður bíl-
skúr) miðraðhús á góðum stað við Erluás í Ás-
landinu. V. 13,3 millj.
Kríuás Hf. - Afhendast fullein-
angruð!
Fallegt 240 fm miðraðhús á tveimur hæðum í
fjögurra húsa raðhúsalengju innst í efsta botn-
langanum í Kríuásnum í Hafnarfirði. V. 13,3
millj.
Þrastarás Hf.
Parhús á flottum ÚTSÝNISSTAÐ á besta stað í
Áslandinu í Hafnarfirði. Útsýni frá efri hæð vest-
ur yfir Hafnarfjörð og norður til höfuðborgarinn-
ar.
Erluás Hf.
Sérlega glæsilegt einbýlishús á einni hæð á góð-
um stað í vesturhlíðinni í Áslandinu. (2433)
Svöluás Hf.
Fallegt 208 fm parhús á tveimur hæðum á góð-
um stað í Áslandinu íHafnarfirði. V. 13,7 millj.
(2420)
Kríuás Hf.
Fallegt 218 fm miðjuraðhús á tveimur hæðum,
þ.a. 36,5 fm bílskúr, í fjögurra húsa raðhúsa-
lengju í efsta botnlanganum í Kríuásnum í Hafn-
arfirði. V. 12,8 millj.
Svöluás Hf. - Raðhús.
Sérlega huggulegt og vel skipulagt 155 fm (þ.a.
24 fm bílskúr) endaraðhús á frábærum útsýnis-
stað í vesturhlíð Áslandsins. V. 12,9millj.
BYGGINGALÓÐIR
Gauksás Hf. - Glæsileg einbýlis-
húsalóð!
Einbýlishúsalóð innst í botnlanga á frábærum
stað í suðurhlíð í Áslandinu í Hafnarfirði. Kominn
er sökkull og plata á lóðina.
ATVINNUHÚSNÆÐI
Bæjarhraun Hf.
Gott 136 fm skrifstofuhúsn. á 2. hæð. Góður
staður. Gott verð! (2053)
Flatahraun Hf. - Til leigu!
Glæsilegt nýtt 546 fm atvinnuhúsnæði til leigu
við Flatahraun í Hafnarfirði. Lyfta. Húsnæðið er
nýtt og allur frágangur mjög vandaður. Hiti í
gangstétt, næg bílastæði. (2398)
Gjótuhraun Hf.
Iðnaðar- og/eða lagerhúsnæði (einnig hægt að
nýta sem verslunarhúsnæði) á mjög góðum stað
miðsvæðis í Hafnarfirði. Frá 2-600 fm bil.
Miðvangur Hf. - Til leigu!
200 fm verslunarrými (á móti Samkaup) með
mikla möguleika.
Bæjarhraun Hf. - Til leigu!
Tvö skrifstofuherb. til leigu í nýju 140 fm skrif-
stofurými á 2. hæð. Móttaka og kaffiaðstaða.
Hvaleyrarbraut Hf.
105, 210 og 600 fm bil eftir í nýju atvinnuhúsn.
Stórarinnkeyrsludyr. V. 65 þús. per fm
Lækjargata Hf. - Fjárfestar
ath.!
150 fm verslunarhúsn.á jarðhæð í fastri leigu.
K í k t u á h e i m a s í ð u n a o k k a r w w w . h o f d i . i s
Bæjarhraun 22
Fax 565 8013 Sími 565 8000
Opið kl. 9-17 virka daga www.hofdi.is
Fyrir fólk í Firðinum
• Leitum að nýlegri eign miðsvæðis í Hf. -
jarðhæð eða húsn. með lyftu- 3-4ra herb.
- skipti á einbýli á einni hæð í Hf.
• Sigurður er að leita að litlu sérbýli á einni
hæð helst í Gbæ - má einnig vera stór
íbúð í lyftuhúsi eða á jarðhæð - getur
skipt á einbýli á einni hæð í Gbæ.
• Erum að leita að stórri 120-140 fm íbúð í
fjölbýli ásamt bílskúr í Hf. - Góðar greið-
slur í boði!
Skráðu eign þína hjá okkur!
Mikil sala!
NÝBYGGINGADAGAR Í HAFNARFIRÐI!
Það standa enn yfir nýbyggingadagar í Hafnarfirði hjá okkur. Komdu við á
skrifstofu okkar og fáðu teikningar, söluyfirlit og allar nánari upplýsingar af
einbýlum, raðhúsum, parhúsum og fjölbýlum. Erum með ás krá yfir 50 nýbygg-
ingar í Hafnarfirði, Garðabæ og Kópavogi.
Ígegnum aldir bjuggu Íslend-ingar í torfbæjum, íveruhúsbyggð úr varanlegu efni mjögfá. Hins vegar voru þau fáu
steinhús, sem hér voru byggð, svo
vönduð að þau hafa staðið um aldir
og má þar nefna Viðeyjarstofu og
Nes við Seltjörn, auk nokkurra
kirkna svo sem á Þingeyrum, í Innri-
Njarðvík og á Stafnesi.
Það er ekki fyrr en undir miðja
síðustu öld sem bygging íveru-
húsnæðis tekur mikinn kipp og það
var „blessað“ stríðið, heimsstyrj-
öldin síðari 1939–1945, sem hafði
þessa blessun í för með sér fyrir
okkur hérlendis. Stríðsgróðinn sog-
aði fólk úr sveitum til þéttbýlis, af-
leiðingarnar mikil húsnæðisekla.
Og þá fórum við Íslendingar að
byggja.
Svo var flutt inn í öll nýju flottu
húsin og á seinni hluta aldarinnar
var jarðhitinn virkjaður víðs vegar
um landið, hitaveitur lagðar sem
skiluðu rennandi heitu vatni inn í
hvert hús árið um kring, víðast hvar
á lágu verði.
Og öllum leið vel.
Það var aðeins eitt sem gleymdist,
eða líklega gleymdist það ekki, við
Íslendingar þekktum það ekki og
vissum ekki að þess gerðist þörf.
Það sem gleymdist var að halda
húsunum við, þau voru að vísu flest-
öll máluð að utan og innan, annars
voru þau svo ljót, en oft var það eina
viðhaldið sem húsin fengu.
Og þau dröbbuðust niður, oft þó
þannig að enginn varð var við það.
Huldar lagnir
Það var hefð allt fram undir síð-
ustu aldamót að allar lagnir væru
huldar, sjáanleg rör voru eitthvað
það skelfilegasta sem Íslendingar
gátu hugsað sér. Auk þess fluttu
menntaðir menn inn frá útlöndum
ýmsar „endurbætur“ svo sem að
leggja öll rör fyrir hita- og neyslu-
vatnskerfi í raufar í neðstu plötu,
einhver dýrasta villigata sem fetuð
hefur verið í lagnamálum hérlendis.
Enn þann dag í dag notum við
sömu tækni og Rómverjar til að
losna við skólp, aðdráttarafl jarðar
sér um að það renni sína leið ef á
annað borð er halli á rörum, réttur
halli.
Skólplagnir í grunnum undir
neðstu plötu, undir neðstu hæð eða
kjallara, voru nær alltaf úr stein-
rörum og þess vegna þótti það sjálf-
sagt að múrarar legðu þau rör,
þannig var það fram yfir 1960 þegar
það varð verkefni pípulagninga-
manna.
Nú fyrst stöndum við frammi fyrir
þeirri staðreynd að heilu hverfin
með öllum sínum húsum eru að
verða 40 ára og þaðan af eldri. Í
þessum húsum hafa menn búið sælir
með sitt og þó dyttað hafi verið að
hinu og þessu hafa menn ekki leitt
hugann að skólplögnum sem eru í
grunnum, þau hafa skilað sínu fram
að þessu og verður svo ekki áfram?
En nú eru þessi skólprör að gefa
sig mjög víða og auð-
vitað er það sá sem
býr á neðstu hæð eða í
kjallaranum sem fær
fyrstu váboðana.
Málning fer að flagna
neðst á veggjum, ekki
ólíklegt að fúkkalykt
finnist og svo fer jafn-
vel að fjölga í íbúðinni.
Lítil kvikindi sjást
skoppa á gólfum,
örsmá skordýr sem
hafa sloppið úr sínum
eiginlegu heimkynn-
um sem þau deila með
stærri og loðnari kvik-
indum.
Allt bendir þetta að-
eins á eitt; skólplögnin
í grunninum er farin
að gefa sig og þessi
skólplögn er sameig-
inleg eign allra íbúðar-
eigenda, sama á hvaða
hæð þeirra eign er.
En þá byrjar vanda-
málið stóra, barátta
íbúans í kjallaranum að fá aðra eig-
endur hússins til að viðurkenna
vandamálið og axla ábyrgð.
Það eru engar ýkjur að segja að
þetta er að verða útbreitt og mikið
vandamál.
Eigandi jarðhæðar eða kjallara er
að verða fórnarlamb, aðallega í litlu
fjöleignarhúsunum sem í eru 2 –4
íbúðir. Oft er það með ólíkindum
hvað þessir eigendur mæta litlum
skilningi annarra eigenda á vand-
anum, vanda sem þeim ber ekki
minni skylda til að leysa en þeim
sem neðstur býr.
Hvað er til ráða?
Það verður að vekja fólk af þeim
dvala sem margir virðast vera í.
Steinröralögn í grunnum húsa, sem
eru orðin 40 ára og eldri, er einfald-
lega komin á tíma. Umfram allt; ekki
byrja á „skóbótarviðgerðum“, þetta
er vandamál sem krefst heild-
arlausnar. Það þarf að endurnýja
gömlu skólplagnirnar 100%, ekki
endilega að elta þær, oft er best að
gleyma þeim, finna nýjar lagnaleiðir
út úr húsi sem valda minnstu raski.
innanhúss.
Og ekki gleyma jarðvatnslögninni
í kringum húsið, þörf á slíkri lögn er
mismunandi eftir staðsetningu húsa
en oftast er hún nauðsyn. Við flest
hús á fyrrnefndum aldri er engin
jarðvatnslögn, og hafi hún verið lögð
á sínum tíma er hún nánast örugg-
lega orðin óvirk og stífluð.
Það er lagaleg skylda allra eig-
enda viðkomandi húss að kosta þess-
ar endurbætur. Það verða þeir sem
eiga efri hæðirnar að skilja, þetta er
ekki einkamál fórnarlambsins í kjall-
aranum.
Og umfram allt; það kemur ekkert
annað til greina en heildarlausn,
hálfkák verður alltaf dýrast þegar
upp er staðið.
Fórnarlömb í fjöleignarhúsum
Lagnafréttir
eftir Sigurð Grétar Guðmundsson
pípulagningameistara/
sigg@simnet.is