Morgunblaðið - 30.04.2002, Qupperneq 44
44 C ÞRIÐJUDAGUR 30. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir
HVAÐ tekur bíll mikiðpláss? Hvað þarfgöngustígur að verabreiður? Hvar á ég að
geyma barnavagninn? Þetta eru
nokkrar af þeim spurningum sem
koma upp þegar verið er að skipu-
leggja innkeyrslu fyrir framan
hús.
Svörin við þessum spurningum
eru teygjanleg en hér á eftir fara
nokkrar stærðir sem hægt er að
hafa til viðmiðunar. Lengd bíla-
stæðis þarf að vera 5 metrar
þannig að bíllinn sjálfur komist
fyrir. Með 6 til 7 metrum er hægt
að athafna sig bæði fyrir framan
og aftan bílinn.
Sumir bílar eru það langir að
taka þarf sérstakt tillit til þess og
þá er besta ráðið að mæla bílinn
og bæta við því sem þarf fyrir
framan og aftan. Góð breidd fyrir
einn bíl eru 3 metrar en þá er
hægt að opna hurðir og ganga
fram hjá bílnum.
Þannig verður bílastæði fyrir 2
bíla að vera 6 metrar á breidd og
fyrir þrjá bíla 9 metrar. Ef um
bílastæði fyrir marga bíla hlið við
hlið er að ræða þá dugar að hafa
þau 2,5 metra á breidd.
Svæðin við
útidyrnar
Hellulagt svæði nálægt útidyr-
unum þarf að vera rúmgott, sér-
staklega ef þar nýtur sólar og
skjóls. Við útidyr sumra húsa er
upplagt að grilla á kvöldin. Þau
svæði sem notuð eru á þennan
hátt þarf að skipuleggja með tilliti
til þess að grillið, borð, stólar og
annar nauðsynlegur búnaður kom-
ist vel fyrir.
Til þess að ákvarða stærðir á
dvalarsvæðum við útidyrnar er
ágætt að hafa svæði innandyra til
viðmiðunar. Þannig getur svæði
þar sem koma þarf fyrir mat-
arborði og 4–6 stólum verið svipað
stórt og borðkrókur í eldhúsi, t.d.
tveggja metra langt og þriggja
metra breitt eða alls sex fermetr-
ar.
Síðan gæti þurft að bæta við
tveimur fermetrum fyrir grill og
enn fleiri fermetrum til að auka
notkunarmöguleika enn meira. Oft
gleymist að hugsa fyrir geymslu-
svæðum fyrir reiðhjól og barna-
vagna, en það getur verið þægi-
legt að þessir hlutir hafi sinn
frátekna stað nálægt útidyrunum.
Þá er hægt að mæla vagninn og
hjólið til að ákvarða það pláss sem
þarf. Algeng breidd á barnavagni
er um 50 cm og lengdin rúmir 150
cm. Fyrir eitt reiðhjól þarf að
gera ráð fyrir 50 cm breidd á
hvert hjól og lengdin er um 180
cm.
Ef hjólin eru fleiri er svæðið
einfaldlega breikkað um 50 cm
fyrir hvert hjól. Við heildarbreidd-
ina má bæta við tæpum metra
þannig að gott sé að athafna sig í
kringum bæði hjólin og vagnana.
Útivistarsvæði
fjölskyldunnar
Þar eru ýmsir kostir við það að
helluleggja sólbaðssvæðin og að-
aldvalarsvæði fjölskyldunnar. Val-
ið stendur yfirleitt á milli trépalls
eða hellulagnar þótt vissulega geti
vel undirbyggt gras sem þornar
fljótt einnig nýst sem prýðis úti-
vistarsvæði. Hvert þessara efna
hefur sína kosti og galla.
Einn kostur við hellulagnir er
að viðhaldið er tiltölulega auðvelt
(þó sérstaklega hjá þeim sem
kunna að meta smámosavöxt í fúg-
um). Ef koma á fyrir heitum potti
á svæðið gefa hellurnar möguleika
á að vera með snjóbrædda göngu-
leið út að pottinum því heitir pott-
ar eru ekki síður notaðir á vet-
urna en á sumrin.
Til samanburðar við trépall þarf
ekki að bera fúavörn á hellulagt
svæði á hverju sumri og ending-
artími hellulagnar er talsvert
lengri en furuklæðning á trépalli.
Á móti kemur að pallurinn er
mýkri þegar gengið er um ber-
fættur eða ef einhver hrasar og
dettur. Varðandi stærðir á þessum
aðaldvalarsvæðum þá veitir ekkert
af 10 fermetrum fyrir 2–3 sólstóla,
aðra 12 fyrir matarborðið og að
lokum 6 fermetra fyrir grillmeist-
arann og grillið. Þannig gæti lág-
marksstærðin verið að nálgast 30
fermetra.
Þetta svæði er aðalsvæðið og
þess vegna má segja því stærra
því betra. Best er að svæðið sé
skipulagt þannig að það sé í
nokkrum hólfum eða herbergjum.
Herbergin snúa þá á mismunandi
hátt gagnvart sólu og nýtast því á
mismunandi tímum dags auk þess
sem hvert svæði getur haft sinn
tilgang. Eitt fyrir sólböð, heiti
potturinn á öðru, leiksvæði, mat-
arsvæði og svo framvegis.
Stígar um garðinn
Breidd stíga getur verið afar
mismunandi. Frá mjóum skóg-
arstígum sem eru varla meira en
30 cm og allt upp í breiða borg-
arstíga sem eru 2–3 metrar, enda
gerðir fyrir blandaða umferð fót-
gangandi og hjólandi. Við einka-
heimili er þó hægt að miða við
minni umferð.
Stígar sem liggja upp að að-
aldyrum frá gangstétt eða bíla-
stæði gætu verið um 150 cm á
breidd. Þetta er nokkurn veginn
sú breidd sem venjuleg manneskja
með úttroðna innkaupapoka í báð-
um höndum þarf til þess að kom-
ast leiðar sinnar.
Stígar sem liggja um garðinn
geta verið um 90 cm en þeir þurfa
að vera breiðari ef tveir eiga að
geta gengið hlið við hlið og má
breiddin þá ekki vera minni en
130 cm. Stígar sem eru uppi við
húsveggi þurfa helst að vera lág-
mark 120 cm breiðir en þeir geta
auðveldað viðhald á húsi eins og
t.d. málningarvinnu, viðgerðir á
múrverki eða þvott á gluggum.
Ef gras á að liggja alveg upp að
húsi er upplagt að setja 20–30 cm
breiða hellurönd fast við húsið til
að auðvelda garðsláttinn. Þá þarf
ekki að klippa grasið upp við húsið
með handklippum eða orfi.
Í mörgum görðum er eins konar
afgangssvæði norðaustan við hús-
ið. Yfirleitt eru einbýlishús stað-
sett þannig í lóðinni að þessi
svæði verða frekar lítil. Á þessi
svæði skín sólin aðeins eldsnemma
á morgnanna eða nánast aldrei
vegna skugga frá húsi, nærliggj-
andi mannvirkjum eða stórum
trjám.
Hér er upplagt að vera með
ódýrari lausnir heldur en alls-
herjar hellulagnir. Ein slík er að
nota möl sem aðalefni og síðan
hellur sem stiklur. Með stiklum er
átt við að hellur séu staðsettar
þannig í mölinni að þægilegt sé að
ganga eftir þeim án þess að stíga
út í mölina.
Oft minna þessar stiklur á fót-
spor. Hvert fótspor er gert úr
einni stórri hellu eða nokkrum
minni sem raðað er saman. Í mal-
arsvæðin er hægt að setja stakar
plöntur sem gefa þessu svæði eins
konar japanskan blæ. Nokkrar
plöntutegundir sem hægt er að
nota eru himalayjaeinir, stóri-
burkni og jafnvel skriðmispill.
Þríhjólin og körfuboltinn
Í lokin eru nokkur smáatriði
sem þó eru mikilvæg, sérstaklega
fyrir íþróttafólkið í fjölskyldunni.
Fyrir yngstu meðlimi fjölskyld-
unnar sem aka um á þríhjólum er
gott að hægt sé að hjóla í hringi.
Þetta gæti átt við sem stuttar
hringleiðir í baklóðinni en einnig
gæti verið spennandi að komast
hringinn í kringum húsið.
Stígur sem gerður er í þessum
tilgangi aðallega þyrfti ekki að
vera breiðari en 70 til 90 cm.
Löglegur körfuboltavöllur fyrir
svokallaðan götubolta (streetball)
með einni körfu er 9 metrar á
hvern kant. Þar sem erfitt getur
reynst að finna svo stórt svæði
innan venjulegrar lóðar er yfirleitt
minna svæði látið duga fyrir
óformleg mót og félagsmót í götu-
bolta haldinn annars staðar.
Óreglulegur stígur sem liggur í gegnum malarsvæði líkt og lækur gefur þessu svæði japanskt yfirbragð.
Með rúmgóðri hellulögn er hægt að gera svæðið við útidyrnar að sælureit fyrir fjölskylduna.
Skipulagning hellu-
lagðra svæða í garðinum
Gróður og garðar
eftir Björn Jóhannsson landslags-
arkitekt/landslagsarkitekt@lands-
lagsarkitekt.is