Vísir - 09.08.1980, Qupperneq 12
vtsm Laugardagur 9. ágúst 1980
12
Gunnar
Salvarsson
skrifar.
helgarpopp
ary
man
fyrir sjónir sem hálf geimlegur,
enda virðist hann leggja nokkra
áherslu á þaö að líta út sem vera
utan úr geimnum. „Mig hefur
alltaf langað til að vera popp-
stjarna, það er augljóst”, segir
hann. „Mig hefur alltaf langað til
að lita ekki út á svivirðilega
undarlegan hátt, heldur aðeins
venjulegan undarlegan óeöli-
legan hátt. Svo nú klæðist ég
venjulegum fötum, en klæðist
þeim þó á þann hátt að eftirtekt
vekur”. Það var og.
Þrjár plötur og sú f jórða á
leiðinni
Gary Numan heitir i raun og
veru Gary Webb, en eftirnafnið
Numan vekur meiri athygli. Gary
Numan hefur gefið út þrjár breið-
skifur og kom sú fyrsta út að vor-
lagi i fyrra og hét „Tubeway
Army” og hljómsveit með sama
nafni var skrifuð fyrir henni. t
hljómsveitinni voru þrir menn,
Gary Numan, Paul Gardiner og
Jess Lidyard. önnur platan hét
„Replicas” og nú var flytjenda-
nafnið, Gary Numan og Tubeway
Army. A þriðju plötunni,
„Plesure Principal” steig Numan
skrefið til fulls og skráður flytj-
andi var Gary Numan. Tubeway
Army tilheyrir þvi fortiöinni, en
Paul Gardiner var endurráöinn
og þeim Cedric Sharpley og
Christopher Payne bætt við.
Ný plata er væntanleg frá Gary
Numan i næsta mánuði og mun
hún nefnast „Telekon”. Sumir
biöa hennar meö óþreyju, aörir
vona að hún komi aldrei út.
—Gsal
Gary Numan
er ákaflega
umdeildur tón-
listarmaður,
ýmist hrifast
menn mjög af
tónlist hans ell-
egar fúlsa við
henni og segja
hana kalda og
steinrunna. En
þvi verður ekki
á móti mælt að
Gary Numan
vakti mikla og
almenna at-
hygli með sinni
fyrstu plötu og
vinsældir hans
voru strax slik-
ar að undrun
sætti. Hafa fá-
ir hin síðari ár
slegið jafn eft-
irminnilega i
gegn og Gary
Numan fyrir
rösku ári síðan.
Fyrstu mánuðina voru vinsæld-
ir hans einvörðungu bundnar viö
Bretland, hans heimaland, en á
siðustu misserum hefur Gary lagt
leiö sina um viða veröld, m.a.
dvaliö langdvölum i Bandarikj-
unum og haldiö hljómleika, og
árangur þeirra ferða er nú aö
koma i ljós. Bæði i Bandarikj-
unum og Kanada hefur lag hans
„Cars” frá siðasta ári komist hátt
á vinsældalista og sömu sögu er
aö segja frá Astraliu og fleiri
löndum.
efnum og geti ekki troðið upp
hvar sem er. A hinn bóginn segist
hann lita svo á, aö eðlilegt sé að
vera svolitið rausnarlegur og
gefa áheyrendunum eitthvað
meira i aöra hönd en tónlistina.
„1 Bretlandi er lenska að vera á
móti stórum sýningum”, segir
Numan. „Það er ætlast til þess af
þér aö þú sért ginnkeyptur fyrir
klúbbhljómleikum og nánum
tengslum viö hljómsveitina. Og
hljómsveitin á að virka mjög eöli-
leg og fara á barinn og tala við
aðdáendurna, en ég er þeirrar
skoðunar að þó flestir aödáendur
kjósi að hitta goðin sina, þá hrifist
þeir engu að siöur að þessari
ósnertanlegu tilfinningu, sem er
ámóta og „hetjudýrkun”.
Þeir vilja sjá vel skipulagða
sýningu, það kostar ekki formúu
að sjá slikt. Ég skil ekki af hverju
sumir kjósa að fara i klúbb þar
sem þrengli eru mikil, hitinn
óbærilegur, drykkirnir lemjast i
gólfiö i kösinni og einstaka menn
verða árásargjarnir vegna þess
hve óþægilegt er þar inni. Þeir
geta valið um þetta eða komiö til
min, þar sem þeir geta setið i
notalegu leikhúsi eða hljómleika-
höll og andað rólega. Fyrir utan
hvað tónlistin kemur miklu betur
til skila.
Mörgum kemur Gary Numan
„Uppfundin imynd"
Gary Numan hefur verið harö-
lega gagnrýndur, einkum af
bresku popppressunni, fyrir þaö
að vera „fundinn upp” i þeirri
merkingu að hafa hreinlega lagt á
ráöin og skipulagt út i æsar
hvernig Imynd hann ætti að skapa
sér. Hann sé með öðrum orðum
einhvers konar vélræn mann-
eskja bundinn i fyrirfram ákveðin
mót. Vélmenni hafa margir nefnt
hann. Aðdáendur hans spyrja á
móti hvað sé rangt við það, hvort
skemmtanabransinn gangi ekki
útá slika hluti? Og auðvitað er
Gary Numan i skemmtanabrans-
anum.
Hljómleikar hans eru griðar-.
lega miklar sýningar þar sem
fjallháir gervimenn lýsast upp og
snúast á vixl. Þá er oft með i för
tölva Gary Numans, sem hann
nefnir „Newsreader” eða
„Fréttaþul” og sjálfur er hann
ákaflega upp meösér af þvi appa-
rati. En dýrt hlýtur þetta aö vera.
„Ég held aö öll tækin og tólin
sem ég nota á hljómleikum, séu á
milli 40 og 50 þúsund pund aö
þyngd”, segir Numan i viðtali við
bandariskt blaö nýveriö. Hann
segir að sökum þess mikla viö-
búnaöar sem til þurfi vegna
hljómleikahalds séu honum
nokkrar skorður settar i þeim
Live Wire — No
Fright
A&M AMLH 64814
Alltaf annað veifið skjóta
upp koilinum athyglfsverðar
hljómsveitir, þó auðvitað ger-
ist það alltof sjaldan. Mörgum
þessara hljómsveita endist þvi
miður ekki lif og heilsa til að
standa uppi i hárinu á söiutón-
listinni. Ein af merkilegustu
hljómsveitum, sem ég hef
heyrt f það sem af er árinu, er
hljómsveitin á bak við þessa
plötu, Live Wire heitir hún.
Um hljómsveitina veit ég ekk-
ert utan upplýsinga á
plötuumslagi sem rýrar eru,
en tónlist þessara fjögurra
bresku pilta er sérdeilis
áhugaverð og minnir oft á
Dire Straits, án þess að gerður
sé nokkur samanburður á
þessum hljómsveitum. Þetta
er hávaöalaust millirokk, ein-
lægt og væmnislaust og án
nokkurs Iburöar. Skráöur höf-
undur laganna er Mike Ed-
wards og hann er jafnframt
aðalsöngvari og gftarleikari,
en aörir meðlimir eru Simon
Boswell, Jeremy Meek og
German Gonzales. Vonandi
falla þeir ekki i dá.
Gunnar Salvarsson skrifar.
Diana Ross — Diana
Motown STMA 8033
Margir kunnir og ágætir
tónlistarmenn hafa hin siðari
ár snúið sér að diskótónlist og
er nærtækt að minnast á
Gunnar Þórðarson I þvi sam-
bandi. Mörgum hefur fundist
þetta ljóður á ráði virtra tón-
listarmanna, enda andstæð-
ingar diskótónlistarinnar fjöl-
margir. Bandariska söngkon-
an Diana Ross er ein af mörg-
um sem hafa tekið diskóið I
þjónustu slna, eöa eigum við
heldur aö segja ein af mörgum
sem diskóið hefur tekiö I sina
þjónustu. Nýjasta plata henn-
ar, „Diana”, er fyrst og
fremst diskóplata, enda eru
þaö tveir af kóngum diskósins
sem stýra henni inn á braut-
ina, þeir Bernard Edwards og
Nile Rogers, höfuöpaurar
Chic-flokksins og sömu út-
gáfu. Þaö veröur aldrei skafið
af Diönu Ross aö hún er góö
söngkona og mörg laganna á
þessari plötu eru ekki eins ein-
hæf og fyrrnefndir gaurar
hafa oft boöiö uppá, en snilli er
þaö tæpast.