Vísir - 11.08.1980, Síða 2

Vísir - 11.08.1980, Síða 2
Mánudagur 11. ágúst 1980. 2 / / / / / Nafn. f Heimilisfang Sími, Svör berist skrifstofu Vísis, Síöumúia 8/ Rvík/ i siðasta lagi 27. ág. í umslagi merkt KOLLGATAN Dregið verður 28. ág. og | nöfn vinningshafa birt dag- í smáauglýsingum VÍSIS í dag er auglýsing frá FLUGLEIÐUM undir hvaða haus? __________ Ef þú átt Kollgátuna átt þú möguleika á Flugferð um landið fyrir þig og þína að eigin vali fyrir kr: 120.000.- með Flugleiðum. LANDSMENN Víða um land eru vel búin hótel. Þú getur farið í Helgarferð með Flugleiðum í hópi, með fjölskylduna, eða bara þið tvö Athugaðu þá ferðamöguleika sem við bjóðum FLUGLEIÐIR Innanlapdsflug Hann er kraftaverk 99 i*_______________________________________________________ - segir læknlr um Russell. mlnnsia barn sem fæðst heiur I Bandaríkiunum Hvað finnst þér um það að birta myndir af beru ' kvenfólki á forsiðum dagblaðanna? Gu&jón H. Guðjónsson, nemi: Ég er mjög ánægður með það. Unnur Baldursdóttir, húsmóöir: Mér finnst það asnalegt. Jón Sigurðsson, húsvörður: Æ, ég vil nú heldur haia þaö einhver- staöar annarsstaðar. En ég vil meira af uppboðum eins og var um daginn. Jórunn llilmarsdóttir, verka- kona: Ég sé ekkert athugavert við þaö, en af hverju ekki alveg eins karlmenn. Gylfi Dýrmundsson, sumarmaö- ur I löggunni: Nú þaö er náttúru-, lega allt i lagi. Lesendur eiga aö fá aö dæma um það. Unga móðirin táraðist þegar hún leit nýfætt barnið sitt — svo litið, að það komst fyrir i lófa hennar. Læknarnir sögðu: Það er engin von. Hussell Ordell Williams vó aðeins eitt pund, þegar hann fæddist, 14 vikum fyrir timann. Hann var 25 sentimetra langur og skömmu eítir fæðinguna létt- ist hann og varð aðeins 300 grömm. Það voru engar likur til þess að hann myndi liía. En Russell litli kom öllum á óvart. Hann er nú sex mánaða gamall og vegur átta pund. Hann er kraftaverk, segir lækn- ir hans, og minnsta barn sem fæöst hefur i Bandarikjunum og haldið hefur lifi. „Læknarnir sögöu mér, að likurnar á þvi að hann lifði væru mjög litlar”, sagði móðir Russ- ells, Pamela Williams, 25 ára gömul Kaliforniustúlka. „Þeir sögðú mér að hann væri of litill ogveikburða til að geta varist sjúkdómum. Lungun voru ekki fullþroskuð svo hann varð að liggja i súrefnistjaldi. Russell myndi ekki einu sinni lifa af litilsháttar kvef. Ég varð móðursjúk, þvi ég vildi að barnið mitt lifði. Ég ákallaði Gúð og sagði: Þetta er ekki sanngjarnt, Guð, gerðu okkur ekki þetta! Ég vildi fá að halda á barninu minu og lofa þvi að finna ást mina — aö ég berðist fyrir lifi hans — og að hvorugt okkar mætti gefast upp”. Pamela mun aldrei gleyma þvi er hún hélt á barni sinu i fyrsta skipti. „Mér fannst ég ekki halda á neinu, hann var ekki eins og barn. örlitill likaminn komst fyrir i lófum minum. En ég vissi að það bærðist lif i þessum litla likama”. Næstu mánuðina heimsótti Pamela barnið sitt daglega á sjúkrahúsið. „Hann var svo hjálparvana þar sem hann lá i súrefnistjaldinu meö súrefnis- og næringarslöngur i munnin- um. Fyrsta vikan var hræðileg, ég var svo hrædd og bað til Guðs á hverjum degi”. Og Pamela var bænheyrð. Russell fór smám saman að þyngjast og styrkjast. Fljótlega fékk Pamela að taka son sinn úr súrefnistjaldinu og halda á hon- um i fimm minútur dag hvern. Þegar Russell varð fjögurra mánaða fékk hann að fara heim með móöur sinni og þar hefur hann verið i tvo mánuði og vaxið og dafnað. Dr. Nasir Tejani, sem annað- ist Russell fjóra fyrstu mánuði ævi hans, sagði: „Ég veit ekki hverju má þakka að Russell lifði. Þetta er ekkert annað en kraftaverk”.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.