Vísir - 13.09.1980, Blaðsíða 21
21
%• *
vtsm
Laugardagur
*
13. september 1980
sandkasslnn
Gisli Sigur-
geirsson,
biaöamaður
Visis á Akur-
eyri, skrifar.
•Ævinlegamargblessuð
og sæl.
//Framsókn í
Afganistan".
segir Mogginn. Var ekki
nóg á Afgani lagt, að fá
Rússana yfir sig, þó
framsóknarmenn bætt-
ust ekki við líka?
•r,Flugliðum á útleið
bönnuð áfengiskaup",
segir Vísir. Þeim veitti
þó ekki af einhverju
hjartastyrkjandi núna,
blessuðum, en hvað þá
með heimleiðina?
•„Á sjöunda þúsund
manns fengu bita",
segir Dagblaðið og á við
eigin afmælisveislu og
stóru tertuna. í hlutfalli
við þetta geta menn séð,
hvað mikið er að marka
Dagblaðið, því alla síð-
ustu viku hamraði
blaðið á því, að tertan
væri fyrir 5.000 manns.
• Hér er svo ein gáta.
Maður fæðist á Græn-
landi, elst upp til tvítugs
á íslandi, f lytur síðan til
Færeyja, en deyr loks í
Englandi. Semsagt:
Grænlendingur, íslend-
ingur, Færeyingur, en
hvað var hann að lokum.
— Svar: Dauður.
• „Stjórnin tilbúin til
ákvörðunar",
segir Svavar Gestsson,
félagsmálaráðherra, í
Vísi. Ætli það sé eitthvað
svipað því að vera tilbú-
in til afhendingar, slátr-
unar, eða því um líkt.
Eitt er þó víst, að stjórn-
in er ekki tilbúin undir
dóm þjóðarinnar, þar
sem skorið yrði úr um
hvort stjórnin á að sitja
eður ei.
•„Vegið að starfsemi
bakara með fóðurbætis-
skatti"
segir Alþýðublaðið. (Já,
þetta var rétt lesið hjá
ykkur, Alþýðublaðið,
það er til ennþá.) En
þetta með bakarana:
hverskonar fóður er
þetta sem þeir lifa á?
•Eftirfarandi klausu
mátti einnig lesa í Al-
þýðublaðinu: „Það er
ekki nema eðlilegt og
sjálfsagt, að saklaus al-
múgi þessa lands velti
því fyrir sér á stundum,
hvað í ósköpunum sumir
menn eru að gera á
þingi, og hvernig þeir
komust þangað".......
„ Þetta er ekki neitt nýtt.
Þingmenn hafa árum
saman, af mismunandi
ástæðum, sýnt þröng-
sýni/fordóma og hreina
heimsku þegar mikil-
væg mál voru til um-
fjöllunar". Það er ekki
að undra, þótt Alþýðu-
blaðinu séu þessi mál-
efni ærið áhyggjuefni.
• Gildur bóndi hér fram í
Eyjafirði hefur, að því
er trúverðugur sagði
mér, ræktað upp hænsni,
sem verpa svo stórum
eggjum, að það þarf
ekki nema 7 í dúsínið. Er
nú mikil eftirspurn eftir
ungum af þessum stofni
og mun Búnaðarþing
hafa ályktað um málið á
dögunum.
•„Auglýsingabrella sem
byggð er á fölsunum",
segir ölafur Ragnar
Grimsson í Vísi og á við
skýrslu Flugleiða. Síðar
kom í Ijós að upphlaup
Ólafs var „auglýsinga-
brella" sem byggð var á
vanþekkingu". Menn
geta svo velt því fyrir
sér, hvers vegna skoðun
Ólafs Ragnars hefur
fengið alla þessa um-
f jöllun í f jölmiðlum.
•„Höfðum ekki einu sinni
tíma til að bjarga pen-
ingaveskjunum"?
segir í Vísi. Ég kalla það
nú hámark bjartsýninn-
ar á þessum síðustu og
verstu tímum, að fjár-
festa í peningaveski.
• Lárus Jónsson, alþingis-
maður, skrifar leiðara
íslendings i sl. viku.
Tvær fyrirsagnir voru á
leiðaranum: „Fjórð-
ungsþing Norðlendinga"
og „Leikfélag Akureyr-
ar". Hef ég Lárus grun-
aðan um að vilja sam-
eina þessi tvö fyrirbæri,
í hagkvæmis og sparn-
aðarskyni.
• Og svo var það einkarit-
arinn sem eignaðist þrí-
burana. Forstjórinn
heimtaði nefnilega allt í
þríriti.
•„Heill bekkur fluttur i
Barnaskóla Akureyr-
ar",
segir rauði Dagur á Ak-
ureyri. Ætli það verði þá
eini heili bekkurinn í
skólanum í vetur?
Skelfing að vita hvað
börnin fara iila með
húsgögnin.
•„40 milljónir í veislur
hjá borginni: Sjaldnast
að frumkvæði borgar-
stjórnar sjálfrar",
segir Þjóðviljinn um
veislukostnað borgar-
innar. Á að skilja þetta
svo, að borgarfulltrúar
séu orðnir svo sljóir af
veislugleði, að þeir séu
sjálfir ófærir um að
hafa frumkvæði að
veislunum.
•„Greind mæld með raf-
magnsbylgjum",
segir í Mogganum. —
Halló — Halló, Ólafur
Ragnar Grímsson hér,
viljiði senda mér eitt
svona greindarmæl-
ingatæki strax. Látið
skrifa það hjá Flugleið-
um.
•„Kom upp um flokk 10-
12 ára þjófa",
segir Mogginn. Það er
nú eitthvað bogið við
kerfið þegar þessi at-
vinnustétt getur náð
svona háum aldri.
•Og svo að lokum þessi af
stráknum sem kom til
pabba sins og sagði:
„Strákurinn í næsta húsi
sagði að ég væri í öllu
eins og þú". „Nú, hvað
sagðir þú þá", svaraði
faðirinn. „ Ég gat ekkert
gert, strákurinn er svo
miklu stærri en ég",
svaraði sá stutti.
Veriði sæl og blessuð og
stressuð
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu Tollstjórans i Reykjavik, Gjaldheimtunnar,
skiptaréttar Reykjavikur, ýmissa lögmanna, banka og
stofnana o.fl., fer fram opinbert uppboö I uppboössal Toll-
stjóra i Tollhúsinu viö Tryggvagötu (hafnarmegin) laug-
ardaginn 20.september 1980oghefst þaökl. 13:30.
SELDAR VERÐA VMSAR ÓTOLLAÐAR OG UPPTÆK-
AR VÖRUR OG MUNIR ÚR DANAR- OG ÞROTABÚUM
SVO OG FJARMUNIR OG LÖGTEKNIR HLUTIR SVO
SEM: kven-, karla- og unglingafatnaöur, húsgögn ný og
notuö svo sem, skrifborö, hillur, skápar úr tekki, sófasett,
borö og stólar, tágavörur, boröbúnaöur, gólfteppi i rúll-
um, Ijósaperur, hljómburöartæki, hljómplötur, reiötygi,
sjónvörp, útvörp, slökkvitæki, ýmsir varahlutir I bifreiö
ar og skip, orgel, hitablásarar, postulfnstyttur, kæliborö,
blöndunartæki, veggflisar, mótorar, magnarar, garn,
plastbakkar, ieiktæki, skrifstofutæki, Isskápar, þvottavél-
ar, hreinsi- og þvottalögur (ca. 10 þús. kg.), húsgagna-
áklæöi, garöáhöld, tölvur, snyrtivara, mikiö magn af bók-
um og tfmaritum, oliumálverk eftir Kristinu Jónsdóttur,
Jón Jónsson o.fl. og margt fleira.
Þá veröa einnig seldar bifreiöarnar R-706, R-57016,
R-58979, R-64115, R-68827, ótollaöar bifreiöar Renault árg.
1969, Saab árg. 1970 og 1974, Peugeot árg. 1970, Ford Pinto
árg. 1976, V.W. árg. 1976, 1972 og 1970, Volvo árg. 1962 og 2
stk. mótorhjól og fleira.
Avísanir ekki teknar gildar sem greiösla nema meö sam-
þykki uppboöshaldara eöa gjaldkera.
Greiösla viö hamarshögg.
Uppboöshaldarinn I Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annaö og sföasta á hluta í Völvufelli 44, þingl. eign Guö-
mundar Sigurössonar fer fram á eigninni sjálfri miöviku-
dag 17. september 1980 kl. 16.15.
Borgarfógetaembættiö i Reykjavfk.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var f 29., 31. og 33. tbl. Lögbirtingablaös 1979 á
hluta I Njálsgötu 102, þingl. eign Valentinusar Valdimars-
sonar fer fram eftir kröfu Búnaöarbanka Islands á eign-
inni sjálfri þriöjudag 16. september 1980 kl. 14.30.
Borgarfógetaembættiö i Reykjavfk.
Nauðungaruppboð
annaö og siöasta á hluta I Alftamýri 38, þingl. eign Finns
A. Karlssonar fer fram á eigninni sjálfri þriöjudag 16.
september 1980 kl. 15.45.
Borgarfógetaembættiö i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annaö og sföasta á Karlagötu 11, þingl. eign Ingiveigar
Eyjólfsdóttur fer fram á eigninni sjálfri þriöjudag 16.
september 1980 kl. 14.45.
Borgarfógetaembættið i Reykja vik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var 160., 63. og 65. tbl. Lögbirtingabiaðs 1979 á
hluta i trabakka 30, þingl. eign Inga Ingvarssonar fer
fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar i Reykjavik á eigninni
sjálfri miövikudag 17. september 1980 kl. 14.00.
Borgarfógetaembættiö i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annaö og siöasta á hluta I Hjaltabakka 6, þingl. eign Gylfa
Þ. Sigurðssonar fer fram á eigninni sjálfri miövikudag 17.
september 1980 kl. 13.45.
Borgarfógetaembættið I Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annaö og siöasta á hluta i löufelli 8. talinni eign Kristjáns
Jónassonar fer fram á eigninni sjálfri miövikudag 17.
september 1980 kl. 15.30.
Borgarfógetaembættið I Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annaö og siöasta á hluta i Kötlufelli 11, þingl. eign Ragn-
ars G. Guöjónssonar fer fram á eigninni sjálfri miöviku-
dag 17. september 1980 kl. 15.45.
Borgarfógetaembættiö i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var f 98., 101. og 104. tbl. Lögbirtingablaös
1979 á hluta i Iðufelli 4, þingl. eign Jóhannesar Kjartans-
sonar fer fram eftir kröfu Veödeildar Landsbankans,
Sigurmars K. Albertssonar hdl., Landsbanka íslands og
Gjaldheimtunnar I Revkjavik á eigninni sjáifri miöviku-
dag 17. september 1980 kl. 15.15.
Borgarfógtetaembættið i Reykjavik.