Morgunblaðið - 05.06.2002, Síða 12

Morgunblaðið - 05.06.2002, Síða 12
FRÉTTIR 12 MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ PÁLL Pétursson félagsmálaráð- herra segir að mögulegt sé að útiloka nektardansmeyjar frá Austur-Evr- ópu frá störfum hérlendis með því að stöðva útgáfu atvinnuleyfa handa þeim. Þetta segir Páll í kjölfar frétta um að eistneska og lettneska lögregl- an telji sig hafa öruggar upplýsingar um að þarlendar nektardansmeyjar hafi stundað vændi hérlendis. Páll segir hins vegar að ekki sé hægt að hefta innflutning á erlendum nektardansmeyjum með þessum ráð- stöfunum, enda þurfi konur innan EES ekki atvinnuleyfi til fá að dansa á nektarstöðum hérlendis. Verði at- vinnuleyfisskyldir dansarar stöðvað- ir, megi búast við að eigendur nekt- arstaðanna ráði í staðinn til sín dansara innan EES. Aðspurður hvort til álita komi að stöðva útgáfu atvinnuleyfa til nektardansara utan EES bendir Páll á að Vinnumála- stofnun hafi raunar verið treg til að veita þeim atvinnuleyfi. „Fjölda- mörgum þeirra hefur verið vísað frá,“ segir hann. Páll segir samt óhjá- kvæmilegt að að skoða betur meint tengsl vændis og nektarstaðanna með nýjum hætti. „Við höfum aldrei fengið neinar sannanir um vændi á þessum stöðum. Við höfum heyrt slúður, en engar sannanir og mér finnst nauðsynlegt að fá nákvæmari upplýsingar um þetta en koma fram í Morgunlaðinu [1.júní].“ Í frétt blaðsins var greint frá ráð- stefnu Norðurlands- og Eystrasalts- þjóðanna um baráttu gegn verslun með konur, sem lauk á föstudag. Ell- isif Tinna Víðisdóttir, fulltrúi sýslu- mannsins á Keflavíkurflugvelli, sat ráðstefnuna og sagði við Morgun- blaðið að mikla athygli hefði vakið á ráðstefnunni að íslensk stjórnvöld skyldu veita nektardansmeyjum at- vinnuleyfi. Hún sagði ennfremur að íslenska lögregla hefði haft grun um að vændi færi fram á nektarstöðun- um eða í tengslum við þá og upplýs- ingar eistnesku og lettnesku lögregl- unnar staðfesti þann grun. Páll segist munu kalla eftir nánari upplýsingum frá ráðstefnunni en um hana segist hann ekki hafa vitað. „En ég vil gjarnan kynna mér það sem þar hef- ur komið fram og láta meta hvað það er trúverðugt.“ Málflutningur skaðar orðspor Lögmaður Veitingahússins Aust- urvallar ehf. sem rekur nektarstað- inn Óðal hefur skorað á embætti sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli að gera nánari grein fyrir málflutn- ingi fulltrúa hans um tengsl vændis og nektarstaða. Í bréfi til sýslu- mannsins segir að einungis tveir rekstraraðilar næturklúbba fái út- gefin atvinnuleyfi til handa dönsur- um sínum og er Óðal annar þeirra. Eigendur Óðals séu ósáttir við að vera settir í þá stöðu að vera sakaðir um tengsl við vændi. Slíkur málflutn- ingur sé augljóslega til þess fallinn að skaða rekstur Óðals og orðspor þeirra kvenna sem þar starfa. Óðal hafi í hvívetna farið eftir gildandi lög- um og reglum og aldrei komist í kast við yfirvöld vegna rekstrarins og fer lögmaðurinn fram á að það sé upplýst við hvaða staði sé átt og þeir nafn- greindir, eða a.m.k. upplýst hvort Óð- als sé getið í því sambandi. Þá kalli sú fullyrðing, að útgáfa atvinnuleyfa frá ríkisvaldinu sé ávísun á vændi í stað þess að vera ákveðin trygging fyrir réttarstöðu dansmeyjanna og for- senda faglegra vinnubragða, á nánari rökstuðning. Í fréttatilkynningu frá Jóhanni Benediktssyni, sýslumanni á Kefla- víkurflugvelli, segir að Tinna Víð- isdóttir eigi sæti f.h. embættisins í ráðherraskipaðri nefnd til að fylgja eftir sameiginlegu átaki Norður- landanna og Eystrasaltsríkjanna um að koma í veg fyrir að konur frá Eystrasaltsríkjunum séu beittar kúgun og misnotaðar kynferðislega í ábataskyni. Á ráðstefnunni hafi kom- ið fram hörð gagnrýni á íslensk stjórnvöld varðandi veitingu atvinnu- leyfa til nektardansmeyja og hafi Tinna komið þeim upplýsingum á framfæri. Einnig hafi vakið verð- skuldaða athygli upplýsingar frá lög- reglunni í Eistlandi og Lettlandi um að umrædd ríki hafi undir höndum vitnisburði kvenna sem starfað hafa hjá næturklúbbum á Íslandi um að þær hafi verið látnar stunda vændi. Þessum upplýsingum hafi fulltrúi embættisins komið á framfæri. Þrátt fyrir það sé það ekki hlutverk sýslu- mannsins að ganga úr skugga um sannleiksgildi þess sem fram kemur hjá lögreglunni í þessum ríkjum. Það hlutverk verði væntanlega í höndum nýskipaðs átakshóps stjórnvalda. Í yfirlýsingu frá framkvæmda- stjóra Óðals f.h. hönd eigenda og starfsfólks, segir m.a. að með einni undantekningu hafi engir dansarar frá Eystrasaltsríkjunum starfað á Óðali. Öllum ásökunum um vændi innan veggja Óðals er algjörlega vís- að á bug. „Nektardansmeyjar um all- an heim líta á atvinnu sína sem skýrt afmarkaða þjónustu sem á ekkert skylt við vændi eða mansal. Í þeirra huga eru tengsl á milli vændis og nektardans álíka mikil og á milli myndlistar og knattspyrnu eða snyrtifræði og sjómennsku,“ segir í yfirlýsingunni. Kappkostað verði að hreinsa Óðal af ásökunum um vændi. Segir í yfirlýsingunni að einmitt vegna atvinnuleyfa ríkisins og vand- aðs reksturs þeirra staða sem grund- valla starfsemi sína á slíkum leyfum sé Ísland eftirsóttur áfangastaður nektardansmeyja í fremstu röð og sækist dansmeyjarnar eftir því að koma hingað aftur, ár eftir ár. Ekki í fyrsta skipti Þetta er ekki í fyrsta skipti sem upplýsingar koma fram að vændi tengist rekstri nektarstaða hér á landi. Í maí í fyrra leituðu fjórar eist- neskar nektardansmeyjar til lögregl- unnar í Reykjavík og sögðu að rek- staraðilar nektarstaðarins Bóhems hefðu óbeint hvatt þær til að stunda vændi til að drýgja umsamin mán- aðarlaun. Þá létu þær að því liggja að vændi væri stundað á staðnum. Stuttu síðar birtist viðtal við dönsku nektardansmeyna Mariu Fiskar á netútgáfu danska Extra-blaðsins þar sem hún sagði að fjöldi vændis- kvenna starfaði á Bóhem. Egill Stephensen, saksóknari hjá lögreglu- stjóranum í Reykjavík, segir rann- sókn málsins á lokastigi og málsgöng verði fljótlega send til ríkissaksókn- ara. Samdráttur í útgáfu atvinnuleyfa Aðeins nektardansmeyjar frá löndum utan Evrópska efnahags- svæðisins þurfa atvinnuleyfi og gilda þau yfirleitt í þrjá mánuði en aldrei lengur en í fjóra. Frá því Vinnumála- stofnun hóf að veita nektardansmeyj- um atvinnuleyfi um mitt ár 2000 hafa verið veitt samtals 425 slík leyfi. Árið 2000 voru veitt 176 atvinnuleyfi, í fyrra voru þau 208 en það sem af er þessu ári hafa aðeins verið veitt 41 at- vinnuleyfi vegna nektardansmeyja. Fækkunin stafar af því að frá ára- mótum hefur langflestum nektar- stöðunum verið synjað um atvinnu- leyfi fyrir dansmeyjar utan EES. Vinnumálastofnun hefur ekki upplýs- ingar um fjölda dansmeyja sem starfa hér á landi og eru frá ríkjum EES enda þurfa þær ekki atvinnu- leyfi. Með lagabreytingu árið 2000 var nektardansmeyjum frá löndum utan EES gert að sækja um atvinnuleyfi en fyrir þann tíma féllu þær undir þá- gildandi undanþáguákvæði um að út- lendingar sem gegndu ákveðnum störfum mættu starfa hér án atvinnu- leyfis í allt að fjórar vikur á ári. Átti það m.a. við um listamenn og fengu nektardansmeyjarnar undanþágu sem þær væru listamenn. Með breyt- ingu á lögunum var undanþágu- ákvæðið þrengt þannig að það tók ekki lengur til þeirra sem koma fram á næturklúbbum, þ.m.t. nektarklúbb- um. Var þetta gert til að auðvelda eft- irlit með a.m.k. hluta þeirra nektar- dansmeyja sem hingað koma árlega. Mögulegt að útiloka nektardansmeyjar frá löndum Austur-Evrópu LÚÐVÍK Geirsson, oddviti Samfylkingar- innar í Hafnarfirði, verður næsti bæjar- stjóri Hafnfirðinga. Fé- lagsfundur Samfylking- arinnar í Hafnarfirði samþykkti einróma til- lögu stjórnar félagsins í fyrrakvöld um að Lúð- vík yrði ráðinn bæjar- stjóri. Hann mun taka við starfinu á bæjar- stjórnarfundi 11. júní nk. Eitt af fyrstu verk- efnum hins nýja meiri- hluta í Hafnarfirði verður að hrinda í framkvæmd upp- stokkun í nefndum og ráðum innan stjórnsýslu bæjarins. ,,Þar er um verulegar breytingar og uppstokkun að ræða til að gera þetta kerfi mark- vissara, skilvirkara og einfaldara,“ segir Lúðvík. ,,Áhersla er lögð á að hlutur bæjarfulltrúanna verði skýrari og þeir komi meira að hinni faglegu umræðu og vinnu í lyk- ilráðum bæjarfélags- ins,“ segir hann. Þessar tillögur koma til síðari umræðu og afgreiðslu á bæjarstjórnarfundinum næstkomandi þriðju- dag. Nýi meirihlutinn mun strax hefja undir- búning að því að koma í framkvæmd ýmsum fleiri málum strax í upp- hafi nýs kjörtímabils. Að sögn Lúðvíks verða á næsta bæjarstjórnar- fundi einnig teknar fyr- ir og afgreiddar til frek- ari vinnslu ýmsar af þeim tillögum sem Samfylkingin lagði áherslu á í kosningabaráttunni. Þar er m.a. um að ræða tillögur um endurgreiðslu fasteignagjalda, um gjaldfría þátt- töku barna upp að tíu ára aldri í íþrótta- og æskulýðsstarfi og tillögur um breyttar niðurgreiðslur á dagvist- argreiðslum foreldra. Eitt af fyrstu verkum nýs meiri- hluta í Hafnarfirði verður að efna kosningaloforð um lækkun launa bæjarstjóra. ,,Við sögðum í kosninga- baráttunni að við ætluðum að lækka þau laun frá því sem þau eru í dag. Við leggjum áherslu á að ná fram hagræðingu og sparnaði í kerfinu og þetta er kannski táknrænt dæmi um það. Við viljum sýna gott fordæmi með því að byrja á toppnum. Það mun koma fram með skýrum hætti þegar lagður verður fyrir ráðningarsamn- ingur við bæjarstjóra,“ segir Lúðvík. Lúðvík lætur af starfi fram- kvæmdastjóra Blaðamannafélags Ís- lands er hann tekur við starfi bæj- arstjóra og mun ganga frá starfslokum hjá félaginu á næstu dögum. Lúðvík Geirs- son bæjarstjóri í Hafnarfirði Lúðvík Geirsson VERIÐ er að bora fyrir háhitaholu í landi Orkuveitu Reykjavíkur í Sleggjubeinsdal við Kolviðarhól á Hengilssvæðinu og er vatni dælt úr affalli við tjörn, sem er þar skammt frá, svokallaðri Draugatjörn, og það notað til að kæla borinn vegna fram- kvæmdanna. Að sögn Einars Gunnlaugssonar, jarðfræðings hjá Orkuveitu Reykja- víkur, var samið við Jarðboranir hf. um að bora tvær holur með mögu- leika á þriðju holunni á þessu ári. Skipulagsstofnun úrskurðaði í fyrra að framkvæmdin væri ekki mats- skyld en tvær holur höfðu verið bor- aðar á svipuðum slóðum í fyrra þar sem úrskurður Skipulagsstofnunar fór á sömu leið. Nýju holurnar eru stefnuboraðar og hvor um sig 2.000 metrar á lengd. Í úrskurði Skipu- lagsstofnunar kemur fram að vatn verði leitt að borstæði frá læk og skolvatnsholu í grennd borstæðisins. Framkvæmdir hófust í maí og var vatn úr annarri holu notað til að kæla borinn. Fyrir helgi var ljóst að vatn úr þeirri holu og nærliggjandi lækj- um dugði ekki til og var þá gripið til þess ráðs að dæla upp úr affalli við Draugatjörn. Haft var samband við byggingafulltrúa í Ölfusi sem gaf leyfi fyrir framkvæmdinni. Að sögn Einars er gripið til þessa ráðs sökum þurrka að undanförnu, sem valda því að lítið vatn er í bor- holunni. „Við þurfum að hafa vatn upp á að hlaupa ef við hittum á æð og verðum fyrir skoltapi,“ segir Einar. Hann segir ekki hafa verið kannað nákvæmlega hversu mikið yfirborðið hafi lækkað í tjörninni en segir að um óverulegt magn sé að ræða. Ráð- gert er að framkvæmdum við fyrri borholuna ljúki eftir tvær vikur. Að sögn Jóhanns Óla Hilmarsson- ar, formanns Fuglaverndarfélags Ís- lands, er forkastanlegt að hans mati að Orkuveitan skuli dæla vatni upp úr tjörninni jafnvel þótt fuglalíf á svæðinu sé ekki meira en gengur gerist annars staðar. Á svæðinu verpa bæði mófuglar og endur. Sveiflur í vatnsyfirborði geta, að sögn Jóhanns Óla, haft keðjuverk- andi áhrif á fuglalíf, einkum á varp- tíma. Meðal annars getur smádýralíf í vatninu minnkað, en smádýr eru ein aðalfæða fuglsins. Morgunblaðið/Ingólfur Orkuveitan ákvað fyrir helgi að byrja að dæla vatni upp úr Draugatjörn sem nota á til að kæla borinn. Orkuveitan borar fyrir háhitaholum á Hengilssvæðinu Dæla vatni úr affalli tjarnar á varpsvæði fugla FORSÆTISRÁÐHERRA Lett- lands, hr. Andris Berzins, kemur ásamt eiginkonu sinni, frú Daina Berzina, og öðru föruneyti í opinbera heimsókn til landsins í dag. Í heimsókn sinni mun ráðherra eiga viðræður við Davíð Oddsson forsætisráðherra, heimsækja Bessa- staði, alþingishúsið og Ráðhús Reykjavíkur, eiga fund með við- skiptamönnum og fjárfestum í Lett- landi og fara í skoðunarferðir. Forsætisráð- herra Lettlands í heimsókn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.