Morgunblaðið - 05.06.2002, Blaðsíða 22
ERLENT
22 MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
EGYPTAR vöruðu stjórnvöld í
Washington við því viku fyrir
hryðjuverkaárásirnar á Bandaríkin
11. september sl. að al-Qaeda
hryðjuverkasamtökin væru að und-
irbúa hryðjuverk. Þetta kemur fram
í viðtali við Hosni Mubarak, forseta
Egyptalands, sem birt var í The
New York Times í gær. Fulltrúi
leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA)
sagði hins vegar að frá Egyptum
hefði aðeins borist almenn viðvörun
og það mun fyrr á árinu.
Mubarak, sem mun eiga fund með
George W. Bush Bandaríkjaforseta í
Camp David síðar í vikunni, segir í
viðtalinu að egypskur leyniþjónustu-
maður hafi átt náin samskipti við al-
Qaeda samtök Sádí-Arabans Osama
bin Laden. Reyndi hann án árangurs
að stuðla að því að ekkert yrði af
árásunum, en ekki var vitað á þeim
tíma hvar hryðjuverkamennirnir
myndu láta til skarar skríða, eða
hvert umfang og eðli hryðjuverk-
anna yrði.
„Við vissum ekki að atburður á
borð við þennan gæti verið í bígerð,“
sagði Mubarak og vísaði til árásanna
11. september. „Við héldum að um
væri að ræða árás gegn [bandarísku]
sendiráði, flugvél eða eitthvað annað
þess háttar; þetta venjulega.“
Segja CIA hafa deilt tiltækum
upplýsingum með FBI
Fulltrúar CIA báru í gær til baka
fregnir þess efnis, að þeim hefði
láðst að deila upplýsingum um dvöl
tveggja liðsmanna al-Qaeda hryðju-
verkasamtakanna í Bandaríkjunum
með bandarísku alríkislögreglunni
(FBI), en báðir mennirnir tóku þátt í
flugránunum 11. september sl.
Fréttin um yfirsjón CIA birtist í
nýjasta hefti Newsweek. Háttsettur
fulltrúi CIA segir hins vegar að gögn
stofnunarinnar sýni að öllum tiltæk-
um upplýsingum um mennina tvo,
Nawaf al-Hazmi og Khalid al-Midh-
ar, hefði verið komið á framfæri við
tiltekna fulltrúa FBI strax í janúar
2000.
The New York Times segir þó að
CIA hafi láðst að deila með FBI upp-
lýsingum sem komu fram í dagsljós-
ið talsvert síðar, nefnilega að menn-
irnir hefðu þegar verið í
Bandaríkjunum, og að þeir væru
taldir tengjast mönnum sem grun-
aðir voru um að hafa staðið fyrir
árásinni gegn bandaríska herskipinu
USS Cole í Jemen í október 2000.
Egyptar vöruðu við yfir-
vofandi hryðjuverkum
Washington. AFP.
Reuters
Liðsmenn hálf-sjálfstæðs ættbálks í héraðinu Miranshah í Pakistan, sem liggur að Afganistan, munda skotvopn
sín í gær og mótmæla veru bandarískra hermanna á svæðinu. Bandaríkjamenn og bandamenn þeirra í barátt-
unni gegn hryðjuverkum hjálpa Pakistönum við að leita uppi talibana og al-Qaeda-menn á svæðinu.
Samvinna og
samskipti CIA
og FBI áfram
í brennidepli
„Dæmdur
búðar-
þjófur“
Lebanon í Pennsylvaníu. AP.
BANDARÍSK kona sem
fundin var sek um búðaþjófn-
að og gert að bera barmmerki
sem á stóð „dæmdur búða-
þjófur“ í hvert sinn sem hún
fór inn í verslun þarf ekki að
sæta þessari refsingu, sam-
kvæmt úrskurði hæstaréttar
Pennsylvaníuríkis. Refsingin
var kveðin upp yfir konunni,
Reginu Zimmerman, í janúar
sl., en í síðustu viku ógilti
hæstirétturinn þann úrskurð
og vísaði málinu aftur til und-
irréttar.
Zimmerman hefur fengið
fólk til að fara fyrir sig í
verslanir síðan í janúar, og
aldrei borið merkið, sem er
rautt að lit og um tíu cm
langt. En mál hennar hefur
vakið athygli um öll Banda-
ríkin og víðar. Hafa t.d. fjöl-
miðlar í Kólombíu haft sam-
band við opinberan verjanda
konunnar, Scott Stein, og
hans hefur verið getið í gam-
an- og spjallþáttum í banda-
rísku sjónvarpi.
Zimmerman viðurkennir að
hún hafi „verið með stæla“
þegar hún kom fyrir dómar-
ann sem ákvað refsinguna,
Bradford Charles. Hún er
fyrrverandi heróínfíkill og
viðurkenndi á mánudaginn að
sennilega hefði hún „þurft að
fá þessa refsingu“. Hún bæri
engan kala til dómarans. „Ég
er edrú. Mér gengur allt í
haginn.“
„Rauði
bókstafurinn“
Zimmerman á fimm börn á
aldrinum 10 mánaða til 11 ára
og hefur afplánað fangelsis-
vist og er nú laus á skilorði.
Hún viðurkennir að hafa stol-
ið hár- og andlitssnyrtivörum
að verðmæti sem svarar um
sex þúsund krónum úr ný-
lenduvöruverslun í maí 2000.
Dómarinn dæmdi hana í eins
árs skilorðsbundið fangelsi og
fyrirskipaði henni að gangast
undir mat vegna fíkniefna- og
áfengissýki.
Stein líkti merkinu, sem
Zimmerman var gert að bera,
við „Rauða bókstafinn“ í
áfrýjun sinni, og skírskotaði
þar til frægrar skáldsögu
bandaríska rithöfundarins
Nathaniels Hawthornes um
konuna Hester Prynne, sem
er dæmd til að hafa á föt-
unum sínum stórt, rautt A,
fyrir „adultery“, eða „hór-
dóm“. Hæstiréttur byggði
niðurstöðu sína á því, að „við
teljum að engin skynsamleg
tengsl séu á milli þess að bera
barmmerki og endurhæfingar
Zimmermans“.
inu, en að sögn lögreglu lék grunur á að skriðufall
væri orsökin. Alls voru um tuttugu manns um borð í
lestinni.
Reuters
Lestarslys á Norður-Írlandi
NÍU slösuðust, enginn alvarlega, þegar lest á leið frá
Belfast til Londonderry á Norður-Írlandi fór út af
sporinu í gær. Ekki er fyllilega ljóst hvað olli slys-
TVÖ börn létust og þrettán slös-
uðust, þar af fjögur lífshættulega,
eftir að þrír menn hófu skothríð
að skólabíl í Taílandi í morgun.
Atvikið átti sér stað í Ratchaburi-
héraði, sem er nærri landamær-
um Búrma, öðru nafni Myanmar.
Tuttugu og fimm börn á aldr-
inum 13-17 ára voru í bílnum.
Ekki er vitað hvað árás-
armönnunum gekk til með athæfi
sínu, en þeir komust undan. Hins
vegar gerðu róttækir stuðnings-
menn uppreisnarhreyfingar í
Búrma óskunda í Ratchaburi fyr-
ir þremur árum og í síðustu viku
sendi hreyfingin frá sér yfirlýs-
ingu þar sem hótað var frekari
ofbeldisaðgerðum ef herfor-
ingjastjórnin í Búrma sleppti ekki
þegar öllum pólitískum föngum í
landinu.
AP
Ráðist á
skólabíl í
Taílandi
BRESKIR kjósendur hafa glatað
þeirri tiltrú og því trausti sem þeir
hafa fram að þessu borið til ríkis-
stjórnar Verkamannaflokksins. Þetta
kemur fram í nýrri könnun sem gerð
var fyrir breska ríkisútvarpið, BBC.
Verkamannaflokkurinn komst til
valda í Bretlandi árið 1997 og vann
síðan enn sigur í þingkosningum sem
haldnar voru fyrir ári síðan. Sagðist
meira en helmingur aðspurðra í
könnuninni, eða 54% bera minna
traust til ríkisstjórnarinnar nú en fyr-
ir ári.
Spurt var hvort ríkisstjórnin hefði
staðið undir þeim væntingum sem til
hennar voru gerðar í ýmsum málefn-
um. Sagði 81% að stjórnin hefði ekki
staðið við gefin loforð í samgöngu-
málum, 65% að aðgerðir í heilbrigð-
ismálum hefðu valdið vonbrigðum og
loks var 51% aðspurða óánægt með
stöðuna í menntamálum. Flestir voru
þó sáttir við frammistöðu stjórnar-
innar í efnahagsmálum.
Þá nýtur Verkamannaflokkurinn
minnsta trausts allra stjórnmála-
flokka. 36% kjósenda telja nú að
Verkamannaflokkurinn sé sá flokkur
sem síst sé hægt að treysta á en 29%
töldu að síður væri hægt að treysta á
Íhaldsflokkinn.
Bretar tapa tiltrú
á stjórn Blairs
BANDARÍSKA leyniþjónustan,
CIA, hefur stofnað nýja og afar leyni-
lega sérsveit, vel vopnaða og er henni
ætlað að herja á þekkta hryðjuverka-
hópa og leiðtoga þeirra. Nýja sveitin
verður undir beinni stjórn deildar
sem reynir að uppræta hermdar-
verkahópa um allan heim.
Embættismaður í Washington
skýrði fréttamanni AFP-fréttastof-
unnar frá tilvist sveitarinnar en ekki
er látið uppi hve margir liðsmenn
hennar eru. Bandaríkjamenn og
bandamenn þeirra hafa að undan-
förnu hert mjög leitina að talibönum
og félögum í al-Qaeda, samtökum
Osama bin Ladens. Ekki er vitað
hvort hann er á lífi en embættismað-
urinn, sem ekki vildi láta nafns síns
getið, virtist þó viss í sinni sök. „Talið
er að hann sé á lífi og feli sig einhvers
staðar í grennd við landamæri Afgan-
istans og Pakistans,“ sagði maðurinn.
Ný sérsveit
gegn hryðju-
verkahópum
Washington. AFP.