Morgunblaðið - 05.06.2002, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 05.06.2002, Blaðsíða 32
UMRÆÐAN 32 MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ AÐEINS tveimur dögum fyrir nýaf- staðnar sveitarstjórn- arkosningar birti Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík heilsíðu- auglýsingu í Mbl. sem ástæða er til að fjalla um. Í auglýsingunni er stór mynd af Birni Bjarnasyni frambjóð- anda flokksins og undir henni þessi texti: „Við þekkjum störf Björns Bjarna- sonar í íþróttamálum og treystum honum best til að stýra þeim málaflokki í borginni.“ Þar fyrir neðan er svo listi með nöfnum 76 forystumanna innan ÍSÍ og íþróttakappa. Forystumennirnir eru 23 að tölu og við nafn hvers þeirra kemur fram hvaða embætt- um þeir gegna innan ÍSÍ. Fjórtán þeirra eru formenn sérsambanda, fjórir eru framkvæmdastjórar hjá sérsamböndum, einn ritari sér- sambands, einn for- maður Afrekssjóðs ÍSÍ og þrír sagðir eiga sæti í fram- kvæmdastjórn ÍSÍ. Forystumenn í ÍSÍ og íþróttakappar hafa að sjálfsögðu rétt til þess að láta sínar per- sónulegu stjórnmála- skoðanir í ljós. Það er hins vegar fremur óalgengt að forystu- menn íþróttasamtaka geri það með þessum hætti, þ.e. með því að lýsa opinberlega yfir stuðningi við tiltekinn frambjóðanda (eða flokk) í kosn- ingum í nafni þeirra íþróttasam- taka sem þeir veita forstöðu. Slíkt háttalag er á skjön við markaða stefnu ÍSÍ. Berlega hafa þessir forystumenn gleymt því að íþróttahreyfingin hefur reynt að halda sig utan við átök stjórn- málaflokka, í orði kveðnu a.m.k. Getum má að því leiða hvernig staðið hefur verið að því að fá við- komandi forystumenn og íþrótta- kappa til að lýsa yfir stuðningi við Björn Bjarnason. Það er t.d. lík- legt að Sjálfstæðisflokkurinn hafi óskað eftir þessum stuðningi og þóst eiga hann inni hjá ÍSÍ vegna framgöngu Björns í íþróttamálum á undanförnum árum. Hafi svo verið er ástæða til að minna á að í lögum ÍSÍ stendur að sambandið hafni öllum þrýstingi, hvort sem hann er af pólitískum, trúarlegum eða efnahagslegum toga. Það er sama hvaðan sá þrýstingur kemur! Það gengur heldur ekki að þakka fyrir sig á þennan máta! Stjórn ÍSÍ hefur ærna ástæðu til að taka þetta mál til athugunar. Hún getur varla látið það afskipta- laust að íþróttasamtökin (ÍSÍ) séu notuð í pólitískum tilgangi eins og gert er í þessu tilfelli. Þvert á móti verður hún að girða fyrir það að svona framferði umræddra for- ystumanna innan ÍSÍ verði öðrum til eftirbreytni. Slæmt for- dæmi forystu- manna Ingimar Jónsson ÍSÍ Íþróttahreyfingin, segir Ingimar Jónsson, hefur reynt að halda sig utan við átök stjórnmálaflokka. Höfundur er dósent við KHÍ. SJÚKRAHÓTEL eru ákveðið millistig milli sjúkrahúss og hótels. Megintilgang- ur þeirra er að draga úr þörf og eftirspurn eftir sjúkrahúspláss- um. Þar geta sjúkling- ar dvalist þann tíma sem þeir fá göngu- deildarþjónustu, s.s. lyfjagjafir eða geisla- meðferð, eða eru að að jafna sig eftir aðgerð- ir. Það er ljóst að kostnaður á dag á sjúkrahóteli er marg- falt minni en kostnað- ur við legupláss á sjúkrahúsi. Sjúkrahótel geta þann- ig leyst úr brýnni þörf, ekki síst sjúklinga sem þurfa að leita heil- brigðisþjónustu utan heimabyggð- ar. Það er nauðsynlegt að þeir geti búið við góðar aðstæður á meðan á meðferð stendur. Sjúkrahótel Rauða kross Íslands Frá árinu 1974 hefur Rauði kross Íslands starfrækt sjúkrahót- el við Rauðarárstíg í Reykjavík. Húsnæðisvandi landsbyggðarfólks sem þurfti að sækja heilbrigðis- þjónustu á höfuðborgarsvæðinu var hvatinn að rekstri sjúkrahót- elsins. Í dag eru um 65% gesta frá landsbyggðinni en 35% af höfuð- borgarsvæðinu og er þeirra þörf engu minni, þótt hún sé af öðrum toga en þess fólks sem ekki kemst heim til sín meðan á meðferð stendur. Mjög gott starf hefur ver- ið unnið á sjúkrahótelinu og starf- semin sannað gildi sitt. Rauði kross Íslands hefur borið bæði fag- lega og fjárhagslega ábyrgð á rekstrinum. Krabbameinsfélag Ís- lands hefur brugðist við neyð krabbameinssjúklinga af lands- byggðinni með því að kaupa nokkr- ar íbúðir í samvinnu við Rauða krossinn og standa þær krabba- meinssjúklingum til boða gegn vægu gjaldi. Fram að síðustu áramótum féllu sjúkrahótel undir skilgreiningu sjúkrahúsa en þá var sú skilgrein- ing felld niður með lögum um ráð- stafanir í ríkisfjármálum svo hægt væri að innheimta þjónustugjald. Þessi breyting kallar á nýja skil- greiningu svo að þessi mikilvægi rekstur standi á öruggum lagaleg- um grunni innan heilbrigðisþjón- ustunnar. Starfsemi sjúkrahótela á Norðurlöndunum Sjúkrahótel eru rekin með ólíku sniði á Norðurlöndum, sum eru hluti af sjúkrahúsrekstri eða heil- brigðisþjónustu en önnur eru sjálf- stæðar einingar, en alls staðar hafa sjúkrahótel sannað gildi sitt innan heilbrigðisþjónustunnar. Við ríkisspítalann í Kaupmanna- höfn er sjúklingahótelið t.d. nýtt sem viðbót við legurými sjúkra- hússins, þ.e. að sjúklingar eru færðir á sjúklingahótelið en án útskriftar af sjúkradeild. Í Lundi eru sjúklingarnir hins vegar ekki innskrifaðir á sjúkrahúsið á meðan þeir dvelja á sjúklingahótelinu. Rekstrarform og fjármögnun sjúk- lingahótelanna eru með mismunandi hætti en ávallt sem hluti eða á ábyrgð op- inberrar heilbrigðis- þjónustu. Vannýtt þjónustuform Umræðan um að auka þetta þjónustu- form hér á landi hefur farið vaxandi í tengslum við leit að nýjum og ódýrari úr- ræðum í heilbrigðis- þjónustu og betri nýt- ingu fjármagns sem fer til rekstrar bráða- sjúkrahúsa. Stefnumótun og ákvarðanataka hefur þó látið á sér standa. Fyrir sjö árum kom fram í könn- un landlæknisembættisins vísbend- ing um að 22,4% af inniliggjandi sjúklingum (Bsp., Lsp. og Landa- koti) gætu nýtt sér dvöl á sjúk- lingahóteli í stað vistunar á sjúkra- húsi og í könnun sem gerð var á staðsetningu sjúklinga á SHR í janúar 2000 kom fram að af 372 inniliggjandi sjúklingum voru alls 152 rangt staðsettir að mati deild- arstjóra eða 41%. Hluti þessara sjúklinga hefði getað legið á hjúkr- unarheimilum og aðrir á sjúkrahót- eli. Það hefur sýnt sig að með rekstri sjúklingahótels má auka þjónustu til muna fyrir 25% af sól- arhringskostnaði á bráðasjúkra- húsi. Líkt og aðrir nýir valkostir í heilbrigðiskerfinu, svo sem dag- deildarþjónusta, fimm daga þjón- usta, þjónusta í heimahúsum o.fl. sem hefur miðað að því að sjúkling- ar liggi sem skemmst inni á legu- deildum má vænta þess að sjúk- lingahótel sé vænlegur kostur á Íslandi. Af framangreindu má ráða að kostir sjúkrahótela verða vart eða ekki dregnir í efa. Uppbygging Við fyrirhugaða uppbyggingu Landspítala – háskólasjúkrahúss við Hringbraut gefst kærkomið tækifæri til uppbyggingar sjúkra- hótels í nánum tengslum við spít- alann en algjör forsenda þess að sjúklingahótel nýtist til fullnustu er að það sé á sjúkrahúslóðinni, stutt frá göngudeildum og bráða- móttöku og jafnframt má telja nauðsynlegt að sjúkrahótel sé und- ir stjórn sjúkrahússins eða í nánum stjórnunartengslum við það. Þetta tvennt er fosenda þess að hægt sé að ná fram þeirri hagræðingu og sparnaði sem sjúkrahótel bjóða upp á. Fjórðungssjúkrahúsið á Akur- eyri er annað stærsta sjúkrahús landsins og gegnir mikilvægu hlut- verki í heilbrigðisþjónustu lands- manna. Verið er að styrkja sér- greinaþjónustu og bráðamóttöku sjúkrahússins auk margvíslegrar göngudeildarþjónustu. Þar sem sjúkrahúsið þjónar að mestu Norð- ur- og Austurlandi og vegalengdir eru miklar er ljóst að margir sjúk- lingar þurfa á gistingu að halda ut- an sjúkrahússins. Ef stuðla á að samsvarandi þróun í þjónustu Fjórðungssjúkrahússins á Akur- eyri og að er stefnt á Landsspítala – háskólasjúkrahúsi, þ.e. að fækka innlagningardögum og auka göngudeildarþjónustu, þá þarf að reka sjúkrahótel við FSA. Bygg- ingu sjúkrahótels ætti að finna stað innan framtíðarskipulags FSA- svæðisins. Bætum þjónustu bráðasjúkra- húsanna með uppbyggingu sjúkra- hótela. Sjúkrahótel – brýn þörf Þuríður Backmann Höfundur er þingmaður Vinstri- hreyfingarinnar – græns framboðs. Heilbrigðisþjónusta Með rekstri sjúklingahótels, segir Þuríður Backman, má auka þjónustu til muna fyrir 25% af sólarhringskostnaði á bráðasjúkrahúsi. Kennaraháskólinn býður nú upp á nátt- úrufræðimenntun til diplómagráðu. Þetta er fjarnám sem skipt- ist í tvo hluta, hvor um sig 15 einingar og geta þátttakendur valið hvort þeir taka einungis fyrri hlutann eða báða. Hér er um nýjung að ræða, nám sem í enskumælandi löndum kallast „sci- ence education“. Meg- inmarkmið þessarar nýju námsbrautar er að koma til móts við starfandi grunn- og framhalds- skólakennara, gefa þeim tækifæri til að styrkja starfsleikni sína og dýpka skilning sinn bæði á nátt- úrufræðum og stöðu nemenda gagnvart þessum fræðum. Undan- farna tvo áratugi eða svo hafa fjöl- margar rannsóknir verið gerðar á hugsun barna og unglinga á þessu sviði, með þeim árangri að við höf- um nú mun skýrari mynd af því hvernig nemendur læra náttúru- fræði en einnig þeim vandamálum sem þeir geta lent í þegar þeir eru að læra greinar sem falla undir þessi fræði. Einkanlega hefur at- hygli rannsakenda beinst að per- sónulegri hugmyndasmíð nem- enda. Þegar börn mæta til leiks í skólanum hafa þau iðulega gert sér ýmsar hugmyndir um fyrir- bæri náttúrunnar. Þau hugsa m.ö.o. sitt um fyrirbæri eins og vatn, loft, eld, krafta, himingeim- inn, vistkerfi og erfðir. Yfirleitt er ekkert nema gott um þetta að segja. Börn verða jú að fá að fikra sig áfram í flókinni veröld. Á hinn bóginn kemur fyrir að persónuleg þekkingarsmíð barna leiðir þau af- vega miðað við það sem náttúru- vísindin telja góða og gilda þekk- ingu. Það er jú einatt svo að við skiljum „hið nýja“ í ljósi þeirra hugmynda sem fyrir eru hjá okk- ur. Ef „grunnurinn“ er skakkur er auðvitað hætt við því að „húsið“ – þekking manns – verði það líka. Og þetta er alltaf að gerast í náttúru- fræðikennslu og ein- att án þess að kenn- arinn verði þess var. Nemendur eru sífellt að villast í þessum fræðum, íslenskir nemendur og nem- endur í öðrum löndum líka. Afleiðingin verð- ur slakur námsárang- ur alls þorra nemenda eins og alþjóðlegar kannanir gefa vís- bendingu um. Í raun er þetta ekk- ert skrítið eða óeðlilegt. Náttúru- fræði eru alls ekki auðlærð. Tungutak þeirra er sérstakt og mjög frábrugðið tungutaki daglegs lífs. Það gefur því auga leið að það er afar vandasamt að kenna þessi fræði svo vel fari, þannig að börn- in villist ekki. Ef það gerist er hætt við því að vanmáttartilfinn- ingin og áhugaleysið nái yfirtök- unum – jafnvel að brestir komi í sjálfsmyndina. Náttúrufræðikennari sem vill ná árangri verður ekki einasta að kunna fagið, hann þarf líka að átta sig á þeim sérstöku vandamálum sem nemendur hans þurfa að glíma við í þekkingarsmíð sinni. Diplómanámið við KHÍ má skoða sem viðleitni til að hjálpa kenn- urum að ná betri tökum á nátt- úrufræðikennslu. Þetta er alhliða nám sem gefur kennaranum færi á því að afla sér þekkingar á kennslugeininni (líffræði, eðlis- fræði, efnafræði eða jarðfræði), dýpka skilning á námsvanda nem- enda, læra til verka í skólastofu og (einkum í seinni hlutanum) læra að rannsaka og þróa sitt starf í sam- vinnu með öðrum með það að markmiði að efla skólastarfið. Engum dylst að náttúrufræðin eru orðin snar þáttur í menningu okk- ar. Samfélag okkar verður í æ rík- ara mæli tækni- og vísindasam- félag. Það gefur því auga leið hvað náttúrufræðimenntun er mikilvæg. Þegar ég segi þetta er ég ekki ein- asta að hugsa um þörf samfélags- ins fyrir sérfræðinga á þessu sviði heldur líka um fólk almennt. Öll hneigjumst við til að lifa merking- arbæru lífi og þróa skilning okkar á sjálfum okkur og umhverfi okk- ar. Þekking er forsenda þess að geta ratað í samfélaginu og hún verður æ mikilvægari eftir því sem samfélag okkar verður marg- slungnara. Náttúrufræðikennsla í skólum landsins er viðleitni í þá átt að hjálpa fólki að rata og verða virkir þátttakendur í samfélaginu. Eins og er stendur þessir þáttur í skólastarfinu höllum fæti. Það hef- ur sigið á ógæfuhliðina. Megin- vandinn er skortur á kennurum með góða menntun á þessu sviði. Nýgerð Aðalnámskrá gerir ráð fyrir aukinni náttúrufræðikennslu. Náttúrufræði skulu nú kennd frá upphafi skólagöngu. Þetta er gott markmið. Gallinn er bara sá að við getum ekki, að óbreyttu, fylgt því eftir. Þekkinguna vantar. Diplóma- námið í náttúrufræðimenntun í KHÍ er viðurkenning á þessari staðreynd, tilraun til að snúa við blaðinu, tilraun til að koma til móts við kennara sem finna sig vanbúna til að kenna náttúrufræði en líka tilraun til að mæta þörfum þeirra kennara sem telja sig vera „á góðri siglingu“ en langar til að efla sig enn frekar sem fagmenn. Eflum náttúru- fræðikennslu í íslenskum skólum! Hafþór Guðjónsson Þekking Þekking er forsenda þess, segir Hafþór Guðjónsson, að geta rat- að í samfélaginu. Höfundur er kennari við HÍ og KHÍ.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.