Morgunblaðið - 05.06.2002, Blaðsíða 46
FÓLK Í FRÉTTUM
46 MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
LOKAHÁTÍÐ LEIKÁRSINS 01/02
Leikur, söngur, dans, uppistand ofl.
Listamenn í Borgarleikhúsinu gleðjast með
áhorfendum eftir velheppnað leikár
Fi 6. júní kl 20
KRYDDLEGIN HJÖRTU e. Laura Esquivel
Leikgerð: Guðrún Vilmundard. og Hilmar Jónss.
Fö 7. júní kl 20
Fi 13. júní kl 20
ATH: Síðustu sýningar í vor
MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney
Lau 8. júní kl 20 - AUKASÝNING
Ath: ALLRA SÍÐASTA SÝNING
DÚNDURFRÉTTIR - THE WALL
Í kvöld kl. 22:00
COSI FAN TUTTE - W.A. Mozart
Óperustúdíó Austurlands
Stjórnandi Keith Reed
Lau 15. júní kl 20 - Frumsýning í Rvík
Su 16. júní kl 17 - Síðasta sýning
AND BJÖRK OF COURSE ...
e. Þorvald Þorsteinsson
Lau 8. júní kl 20
Síðasta sýning í vor
JÓN GNARR
Fi 6. júní kl 20
Ath. Afsláttur sé greitt með MasterCard
PÍKUSÖGUR Á VOPNAFIRÐI
þri 11. júní kl 20:30 í Miklagarði
Stóra svið
Nýja sviðið
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu
sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
LEIKFERÐ
3. hæðin
!
!
! "# $
"# $
# $
#
$
% # '
Vesturgötu 2, sími 551 8900
júní
7. og 8. Papar
14. og 15. Sixties
21. og 22. Hunang
RÚM ÁTTA ár eru síðan þunga-
rokkararnir í hljómsveitinni X-izt
komu saman og spiluðu fyrir al-
menning. Nú verður þó gerð
breyting á og hyggjast þeir fé-
lagar leika fyrir gesti Gauks á
Stöng í kvöld og ætla að sýna og
sanna að þeir hafi engu gleymt.
Að sögn Guðlaugs Falk, for-
sprakka sveitarinnar, er tilefni
tónleikanna 10 ára afmæli fyrstu
plötu þeirra félaga, After Mid-
night.
„Í dag eru líka tíu ár upp á dag
síðan við hituðum upp fyrir Iron
Maiden í Laugardalshöllinni,“
sagði Gunnlaugur.
Tveimur árum síðar, eða árið
1994, gaf X-izt svo út seinni plötu
sína, Giants of Yore, og hafa að
sögn Gunnlaugs ekki spilað saman
síðan.
Gunnlaugur segir X-izt þó bara
ætla að koma saman í þetta eina
skipti. „Já, allavega til að byrja
með. Tilgangurinn er bara að
koma saman og spila mikið þunga-
rokk,“ segir hann.
X-izt ætla í kvöld að flytja efni
af plötunum sínum tveimur.
„Það er svo langt síðan við kom-
um fram svo það eru örugglega
allir búnir að steingleyma þessum
lögum. Við ætlum því að gera okk-
ar besta í að rifja lögin upp fyrir
fólki,“ segir Gunnlaugur og bætir
við: „Þetta verður allavega mikið
rokk og það verða mjög mikil læti
í okkur.“
Hljómsveitin Dust hitar upp fyr-
ir kappana og hefjast tónleikarnir
klukkan 22.
Miðaverð er 700 krónur, eða
eins og Gunnlaugur segir sjálfur:
„Miðaverðið er hóflegt fyrir rokk-
arann.“
Tíu árum
eftir miðnætti
Morgunblaðið/Þorkell
Gunnlaugur Falk. „Tilgangur-
inn er bara að koma saman og
spila mikið þungarokk.“
Hljómsveitin X-izt rokkar saman á ný
ATVINNA
mbl.is
BORGARLEIKHÚSIÐ Dúndurfréttir
halda sigurgöngu sinni áfram með
flutningi á The Wall eftir Pink Floyd,
í heild sinni. Tónleikarnir verða
tvennir, fyrri kl. 19.30 og seinni kl.
22. Þess má geta að sama dagskrá -
The Wall - verður flutt í KA-
heimilinu á fimmtudagskvöld kl. 21.
HÁSKÓLABÍÓ Japanskt kvikmynda-
kvöld haldið á vegum sendiráðs Jap-
ans á Íslandi. Sýndar verða tvær jap-
anskar kvikmyndir. Sú fyrri er sýnd
kl. 18 og nefnist I Are You, You Am
Me og sú síðari verður sýnd kl. 20.30
og nefnist Nowhere Man. Aðgangur
er ókeypis.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
Morgunblaðið/Þorkell
Það eru dúndurfréttir fyrir
Pink Floyd-unnendur að Dúnd-
urfréttir endurtaki The Wall.
FIMMTA stjörnustríðsmyndin,
Árás klónanna, var tekjuhæsta
mynd kvikmyndahúsanna þriðju
helgina í röð – nokkuð sem aðeins
þrjár aðrar myndir hafa afrekað á
árinu, Ísöld, Skrímsli hf. og
Hringadróttinssaga. Að sögn Guð-
mundar Breiðfjörð hjá Skífunni sáu
um 3 þúsund manns myndina yfir
helgina og féll aðsóknin frá þeirri
síðustu um 24% sem hann segir
fremur lítið fall. Alls hafa nú um 30
þúsund manns sótt Árás klónanna
og gerir Guðmundur sér vonir um
að myndin endi einhvers staðar í
kringum 40 þúsund manna markið.
Guðmundur segir gengi mynd-
arinnar hafa verið mjög áþekkt því
sem hefur verið vestanhafs. Skýr-
inguna á því að viðtökur við mynd-
inni hafi kannski ekki verið eins
góðar og búist var við segir Guð-
mundur liggja í augum uppi. „Mér
sýnist sem rífandi gengi Spider-
Man hafi eftir allt saman haft skað-
leg áhrif á Árás klónanna,“ segir
hann. „Það sést kannski best á því
að Árás klónanna hefur gengið til-
tölulega betur í þeim löndum þar
sem Spider-Man hefur enn ekki
verið frumsýnd, eins og t.a.m. í
Bretlandi.“ Spider-Man verður
ekki frumsýnd fyrr en um miðjan
júnímánuð í Bretlandi og verður
fróðlegt að sjá hvort áhrifin verði
víxlverkandi þar, þ.e. að Klónin
skemmi fyrir Köngulóarmanninum.
Hvað sem því líður þá hefur sá síð-
arnefndi unnið hug og hjörtu lands-
manna en nú hafa alls 45 þúsund
manns sótt myndina og má búast
við því að aðsókn endi í hálfum
hundrað þúsundum.
Grallarinn Ali G hefur líka sett
svolítið strik í reikninginn hér á
landi – eins og kannski við mátti
búast. Þessi kynlegi kvistur hefur
náð miklum vinsældum meðal ung-
viðisins og hefur myndin hans Ali G
Indahouse hlotið jafna og þétta að-
sókn síðan hún var frumsýnd fyrir
tveimur vikum síðan, að sögn
Christofs Wehmeiers hjá Ice kvik-
myndadreifingu, sem bætir við að
myndin sé komin í 9 þúsund
manns.
Fjórar myndir voru frumsýndar
á föstudaginn og af þeim hlaut
besta aðsókn spennutryllirinn High
Crimes með Ashley Judd og Morg-
an Freeman sem dró að 1500
manns og reyndist þriðja tekju-
hæsta mynd helgarinnar. Hinar,
The Queen of the Damned með
Aaliyuh heitinni, Dragonfly með
Kevin Costner og All About The
Benjamins með Ice Cube fylgdu þó
fast á hæla hennar og skipuðu sér í
fimmta til sjöunda sæti íslenska
bíólistans.
!
!"#
$ %
&
&
!"#
' () &
*
*+,-.-
' ) /&0! 1
!
"
#
$
%&
" !
&
(
)*
& $+( ,
*
%&-
.
/0
)
2
!
3
!
!
!
4
5
22
2
2
6
7
8
9
24
26
!
1,
3
:
4
:
:
:
3
8
22
4
2
7
7
8
3
8
29
4
:
+.-;< ; .-$, .-=0,,;$, ;>01.,;*+,-.-
+.-;< ; .-$, +.-;< ;# +.-; $,;
+,;*?1;$, .-=0,,;>;$, *+,-.-
# +.-
.-
.-=0,,;$, ;# +.-;, +.-;< ; .-$, .-=0,,;>;$, ;>01.,
.-=0,,;> .-=0,,;$, .-=0,,;>;$, ;
# +.-;!A.->01.,
*+,-.-
*+,-.-
.-=0,,;> *+,-.-
*+,-.-
Stríðið
heldur
áfram
High Crimes með Morgan Freeman og Ashley Judd gekk best nýju
mynda helgarinnar, dró að 1.500 manns og reyndist þriðja tekjuhæst.
skarpi@mbl.is
Árás klónanna stenst atgang Ali G
ATGANGUR fréttaljósmyndara var
slíkur, þegar bandaríska kvik-
myndaleikkonan Winona Ryder
kom fyrir rétt í Los Angeles síðast-
liðinn þriðjudag, að hún meiddist á
olnboga er aðgangsharður ljós-
myndari rak myndavél sína í hana.
Sagðist Ryder þurfa að fara til
læknis og var réttarhöldunum því
frestað um sinn. Stjarnan er ákærð
fyrir að hafa stolið fötum í verslun í
borginni að verðmæti um 4.800 dal-
ir, um 450 þúsund krónur.
Ryder kom of seint til réttarhald-
anna. Fyrst kom Mark Geragos lög-
maður Ryders einn og vildi freista
þess að fá réttarhöldunum frestað í
fimmta sinn en Elden Fox dómari
skipaði Geragos að sjá til þess að
skjólstæðingur hans mætti fyrir
réttinn til að hægt væri að leggja
mat á hvort næg sönnunargögn
lægju fyrir til að rétta í málinu.
Ryder hefur sagst vera miður sín
vegna ákærunnar sem hún segir til-
efnislausa og að málið hafi verið
blásið upp úr hófi fram.
Meiddist á
myndavél
Winona Ryder