Morgunblaðið - 05.06.2002, Blaðsíða 48
48 MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
VINIR blússins fjölmenntu á
Gauki á Stöng á mánudagskvöldið
og áttu „tregafulla“ stund saman
í þeim tilgangi að safna fé til
handa Geðhjálp, stuðnings-
samtökum fyrir fólk sem á við
geðræna sjúkdóma að glíma.
Blúsinn var heitasta heitt fyrir
áratug eða þar um bil og í þá tíð
mátti sækja blústónleika nánast
öll kvöld vikunnar. En síðan virð-
ist blúsbólan einhverra hluta
vegna hafa sprungið og slíkir tón-
leikar orðið æ sjaldgæfara fyr-
irbæri. Fyrir vikið var viðburð-
urinn á mánudag þeim mun
girnilegri enda sýndu þeir sig
margir fastagestirnir frá blóma-
skeiði blússins. Og þeir fengu
sannarlega blúsfylli sína því á
svið Gauksins steig hið óumdeilda
íslenska blúslandslið skipað And-
reu og blúsmönnum hennar, Vin-
um Dóra, Centár, Magnúsi Eiríks-
syni, Blúsþrjótunum og fleiri
góðum.
Allir gáfu blúsararnir vinnu
sína í þágu Geðhjálpar.
Blúsað fyrir Geðhjálp
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Vinir Dóra og blússins létu vel af tregaveislunni sem í boði var.Halldór Bragason, Dóri, er ennþá sami blúsarinn og hann var í gær.
SÍFELLT fleiri nýta sér þann öfluga
miðil sem Netið er orðið til að koma
hinum fjölbreyttasta fróðleik og upp-
lýsingum á framfæri. Ásgrímur
Sverrisson kvikmyndagerðarmaður
er þar engin undantekning. Á dög-
unum opnaði hann vefinn asgrimur.is
en þar er fjallað um kvikmyndir og
sjónvarp frá ýmsum hliðum.
„Þetta er hugsað sem vettvangur
fyrir fjölbreytta og frjóa umræðu um
kvikmyndir og sjónvarp,“ sagði Ás-
grímur um vefinn nýopnaða.
Ásgrímur er enginn nýgræðingur
þegar kemur að umfjöllun um kvikmyndir. Hann
hefur fjallað um kvikmyndir og sjónvarp í hinum
ýmsu miðlum undanfarin tuttugu ár, var t.a.m.
kvikmyndagagnrýnandi Dagsljóssins sáluga í
Sjónvarpinu og DV og pistlahöfundur fyrir tímarit-
in International Film Guide og Variety, svo fátt
eitt sé nefnt.
Auk þess er Ásgrímur stofnandi og ritsjóri tíma-
ritsins Land og synir, málgagns kvikmyndagerð-
armanna sem kemur reglulega út.
Ásgrímur segir fjölda fólks koma að skrifum á
asgrimur.is:
„Það er hópur sem hefur unnið með mér við
Land og syni auk ýmissa annarra sem tengjast
þessu. Þetta er reyndar enn í mótun en það verður
gott fólk úr ýmsum áttum sem skrifa mun á vef-
inn.“
Auk þess að fylgjast með því sem er að gerast
hverju sinni í heimi kvikmyndanna er búið að koma
upp gagnasafni sem hefur að geyma greinar um
viðfangsefnið sem Ásgrímur hefur safnað saman.
„Það var líka hugmyndin með vefnum. Ég hef
skrifað í gegnum tíðina alveg óskaplega mikið um
kvikmyndir og langaði að koma þessu öllu á einn
stað þar sem hægt væri að ganga að því,“ segir Ás-
grímur.
„Þetta er því líka hugsað sem allsherjar gagna-
banki um kvikmyndir og sjónvarp.“
Ásgrímur segir óhætt að segja asgrimur.is
fyrsta vefinn sinnar tegundar hér á landi.
„Það eru auðvitað til margir gagnlegir bæði upp-
lýsinga- og gagnrýnisvefir um kvikmyndir. Þessi
er þó svona meira sambland af umræðu, greinum,
fréttum og gagnrýni. Allt á sama stað,“ sagði Ás-
grímur að lokum.
Nýr kvikmyndavefur
Ásgrímur Sverrisson, ritstjóri asgrimur.is.
TENGLAR
........................................................................
asgrimur.is
Vettvangur
frjórrar umræðu SÖNGVARINN Lance Bass,einn fimmmenninganna ístrákasveitinni ’N Sync, gæti
orðið fyrsta poppstjarnan
sem ferðast út í geiminn.
Bass fór á dögunum í smá-
vægilega hjartaaðgerð til að
ráða bót á óreglulegum
hjartslætti sem hefur angrað
hann lengi. Eftir aðgerðina
hafa læknar staðfest að hann
sé við hestaheilsu og ætti vel að þola ferða-
lag út í himingeiminn.
Bass segist vilja slást í för með rússneskri
geimflaug sem skotið verður af stað í haust.
Babb kom þó í bátinn í síðustu viku þegar
Geimvísindastofnun Rússlands kannaðist
ekkert við að Bass ætlaði að sitja í þriggja
sæta flauginni.
Bass hefur því sett sig í samband við stofn-
unina og segist vilja gera hvað sem þarf til
að hann fái að sitja í flauginni. Fari svo að
bónin verði samþykkt kemst Bass í flokk
með þeim Dennis Tito og Mark Shuttleworth
sem gerðust brautryðjendur á sviði ferða-
laga út í geiminn, en þeir greiddu hvor um
sig litla tvo milljarða íslenskra króna fyrir
ferðalag sitt.
Bass sagði á þéttsetnum blaðamannfundi í
Moskvu á dögunum að hann væri sann-
færður um að hann gæti látið þennan draum
sinn rætast.
Ef það gengur eftir hjá honum verður
Bass yngsti maðurinn sem nokkurn tíma
hefur verið skotið út í geiminn, en hann er
23 ára, og sannarlega fyrsti geimpopparinn.
Fyrsti geim-
popparinn?
Lance Bass
langar í geim.
Naked Pictures of Famous People eftir
Jon Stewart. 176 síðna kilja. Perennial
gefur út 2001. Keypt á Netinu.
JON Stewart heitir gamanleikari
bandarískur sem er með daglegan
gamanþátt í sjónvarpi, The Daily
Show. Bókin sem hér er gerð að um-
talsefni er þó ekki bara niðurskrifað
það sem hann hefur sagt í sjónvarp-
inu heldur er megnið skrifað sérstak-
lega fyrir bókina.
Stewart á fyrirtaks spretti í bók-
inni, sjá til að mynda viðtal við þjón-
inn sem var á vakt þegar síðasta
kvöldmáltíðin var
borin fram („Leið-
inlegt hvað kom
fyrir Jesú, hann gaf
alltaf vel í þjórfé“),
viðtal Larry King
við Adolf Hitler
(„Sko, ég var vond-
ur, ekki spurning.
Ég hata þann Hitl-
er. Öskrin, handa-
patið, ég veit ekki hvað“) og jólakveðj-
ur frá Hanson-fjölskyldunni, sem
verður geggjaðri eftir því sem dreng-
irnir verða frægari, peningarnir
streyma inn og kristileg fyrirmynd-
arfjölskylda leiðist út í svínarí.
Best eru bréfin sem Díana prins-
essa af Wales skrifaði móður Teresu,
því þar tekst Stewart á flug: „Hæ, þú
þekkir mig ekki en ég heiti Díana og
ég er mesti aðdáandi þinn ... því meira
sem ég heyri um þig því meira finnst
mér eins og við séum eins og systur
eða eitthvað svoleiðis þar sem önnur
systirin er reglulega falleg prinsessa
en hin ekki.“ Einnig tekst Stewart vel
upp í vangaveltum um hvernig verði
að breyta gyðingdómnum í takt við
nýja tíma. Þannig muni hinn „nýi gyð-
ingdómur“ byggjast á trú á „Jóa
frænda“, en ekki Jahve, því sá síð-
arnefndi sé of fjarlægur („Jói frændi“
er viðkunnanlegur karl á fimmtugs-
aldri, 1,60 á hæð, þó það standi 1,80 í
ökuskírteininu, og lyktar af epla-
böku). Einnig sé það ekki eins eftir-
sóknarvert og áður að tilheyra guðs
útvalinni þjóð, en framvegis fái allir
sem tilheyri henni afsláttarmiða hjá
fjölda fyrirtækja, gyðingar komi sér
upp lukkudýri, Jewey, sem verður
Joe Camel, auglýsingatákn fyrir Ca-
mel sígarettur, aðeins endurbættur
og svo má telja.
Fjölmargt í bók Stewarts er því
skemmtilegt að lesa, en inn á milli lak-
ari þættir eins og gengur. Það er
nokkur galli á bókinni hve margt er
handritskennt, þ.e. ekki skrifað til
þess að það sé lesið, heldur ætlað til
flutnings.
Forvitnilegar
bækur
Naskur
spaugari
Árni Matthíasson
Fyrir 1250 punkta
færðu bíómiða.
Sýnd kl. 4 og 6. Ísl tal. Vit nr. 370.
kvikmyndir.is
MBL
Sýnd kl. 4. Ísl tal. Vit 358. Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i.12 ára. Vit 375.
Sýnd kl. 4, 6 og 8. Vit 379. Sýnd kl. 10. B. i. 16. Vit 377.
Sýnd Kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 12 ára Vit 382.
Sýnd kl. 8 Sýnd í lúxus kl. 6 og 9. B. i. 16. Vit 380.
1/2 Kvikmynd-
ir.is
Sánd
RadioX
/ i
i i
i
STUART TOWNSEND AALIYAH
Frá Anne Rice,
höfundi Interview
with a Vampire,
kemur þessi magnaða
hrollvekja með
Stuart Townsend og
Aaliyah í
aðalhlutverki, en
þetta var jafn-
framt
hennar seinasta
mynd.
150 kr. í boði VISA ef greitt er með VISA kreditkorti
This time there are no interviews
kvikmyndir.is
J I M C A R R E Y
T H E M A J E S T I C
1/2kvikmyndir.is ÓHT Rás 2
Sýnd Kl. 3.45, 5,50, 8 og 10.10. B.i. 16 ára Vit 385.
Sýnd kl. 10.15. Bi 16.
HK DV
HJ Mbl
JOHN Q.
Sýnd kl. 6.
Hér er hinn nýkrýndi Óskarsverðlaunahafi Denzel Was-
hington kominn með nýjan smell. Hér leikur hann JOHN Q,
föður sem tekur málin í sínar hendur þegar sonur hans
þarf á nýju hjarta að halda og öll sund virðast lokuð.
MULLHOLLAND
DRIVE
Sýnd kl. 5.45 og 8.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Treystu mér
Sýnd kl. 9. B. i. 16. Sýnd kl. 10.30.
1/2 Kvikmynd-
ir.is
Sánd
RadioX
/ i -
ir.i
i
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
Óskarsverðlaunahafarnir
Kevin Costner og Kathy
Bates fara á kostum í
dularfullum og yfirnátt-
úrulegum trylli í anda
THE SIXTH SENSE.
ÞEGAR ÁSTVINUR DEYR... ER HANN ÞÁ HORFINN AÐ EILÍFU?
Ó.H.T Rás2
SK RadioX
SV. MBL
. .
i
SV. BL
Ég er þú, þú ert ég
kl. 6.
Einskisnýtur maður
kl. 8.30.