Morgunblaðið - 05.06.2002, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 05.06.2002, Blaðsíða 21
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 2002 21 JORGE Batlle, forseti Úrúgvæ, hefur valdið miklu fjaðrafoki með ummæl- um sínum um Eduardo Duhalde, for- seta Argentínu, og Argentínumenn yfirleitt. Kallaði hann þá „þjófalýð“. Batlle lét þessi ummæli falla í við- tali, sem einnig var sjónvarpað vítt um Argentínu. Þar sagði hann, að Du- halde væri algerlega valdalaus og vissi heldur ekkert hvað hann væri að gera. Sagði hann síðan og lagði á það áherslu með því að banka í borðið, að Argentínumenn væru „þjófalýður út í gegn“. Sagðist stundum ganga of langt „Það þekkja allir spillinguna í Arg- entínu,“ sagði forsetinn. Kom þetta fram á vefsíðu BBC, breska ríkisút- varpsins. Fátítt er, að þjóðhöfðingi taki svona djúpt í árinni en viðtalið snerist annars um þau áhrif, sem kreppan í Argentínu hefur haft á efnahagslífið í Úrúgvæ. Eru íbúar landsins mjög háðir argentínskri bankastarfsemi og ferðamönnum þaðan en segja, að í Argentínu heyri hvort tveggja sög- unni til. Duhalde, forseti Argentínu, ætlaði að ræða þessi mál við Batlle í gær en hann boðaði aftur til fréttamanna- fundar þar sem hann kvaðst styðja Argentínustjórn heilshugar í erfið- leikunum. Sagði hann við fréttamenn, að sér hætti stundum til að ganga of langt. Kallaði Argentínu- menn „þjófalýð“ AP Eduardo Duhalde (t.v.) forseti Argentínu, og Jorge Batlle, forseti Úrúgvæ. Mannfall á Madag- askar Antananarivo. AFP. TÓLF manms að minnsta kosti hafa fallið á Madagaskar í átökum milli stuðningsmanna þeirra tveggja manna, sem gera tilkall til forsetaembætt- isins í landinu. Hafa talsmenn Einingarsamtaka Afríku skor- að á báðar fylkingar að slíðra sverðin í þessu stríði, sem hef- ur alvarleg áhrif á efnahags- lífið og valdið upplausn í land- inu. Talið er víst og raunar stað- fest af hæstarétti Madagask- ars, að Marc Ravalomanana, borgarstjóri í Antananarivo, höfuðborg landsins, hafi sigrað í forsetakosningunum í desem- ber en Didier Ratsiraka, sem gegnt hefur embættinu, vildi ekki fallast á það. Þeir segjast nú báðir vera forseti landsins og stuðningsmenn þeirra ber- ast á banaspjót víða um landið. Í fjórum héruðum landsins hefur verið brugðist við ástandinu og upplausninni með því að lýsa yfir aðskilnaði frá öðrum héruðum þess. Stærstur hluti hersins hefur lýst yfir hollustu við Ravalom- anana og mesta mannfallið varð þegar hann fyrirskipaði stórsókn gegn stuðningsmönn- um Ratsiraka um síðustu helgi en þeirra sterkasta vígi er í norðausturhluta landsins. Einingarsamtök Afríkuríkja hafa ákveðið að efna til fundar um ástandið á Madagaskar. UNG stúlka í Hong Kong heldur á kerti til minningar um þá sem féllu í uppreisn stúdenta og verkamanna gegn kommúnistastjórninni á Torgi hins himneska friðar í Peking 4. júní 1989. Talið er að þúsundir manna hafi fallið þegar stjórnvöld beittu hernum til að bæla uppreisn- ina niður. Stjórn kommúnista of- sækir enn þá sem vilja heiðra minn- ingu hinna látnu en í Hong Kong, sem varð hluti Kína 1997 eftir að hafa verið lengi bresk nýlenda, njóta íbúar meiri réttinda en þeir sem búa á meginlandinu. Reuters Uppreisn- ar minnst

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.