Morgunblaðið - 05.06.2002, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 05.06.2002, Blaðsíða 17
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 2002 17 Gylltur sólarkoss á allan líkamann N Ý T T STAR BRONZER SÓLARFÖRÐUNARVÖRUR Lancôme hefur hannað „eins dags sólar- brúnku“: Star Bronzer, heila línu sólarförðunar- vara fyrir andlit og líkama. Vörurnar draga fram náttúrulegan lit húðarinnar sem verður geislandi, gyllt og falleg. Fast púður fyrir andlit og líkama, laust púður í bursta, litað andlitsgel. ÁRANGUR: Húð með fallega, gyllta bronsáferð. TRÚÐU Á FEGURÐ FRÁBÆRAR VÖRUR - FALLEG HÚÐ Þú hreinlega verður að prófa. Velkomin á LANCÔME kynningar í Lyf og heilsu í dag, Mjódd og Melhaga, á morgun, fimmtudag Austurstræti og Austurver, og föstudag Kringlunni. Glæsilegir kaupaukar í boði, m.a. falleg armbandsúr. w w w .la nc om e. co m FORSVARSMENN Sementsverk- smiðjunnar hf. eru komnir út fyrir öll velsæmismörk með tilhæfulaus- um og röngum fullyrðingum gagn- vart keppinaut, að sögn Bjarna Ó. Halldórssonar, framkvæmdastjóra Aalborg Portland Íslandi hf. Ítrekaður rógburður í fjölmiðlum Hann sagði á blaðamannafundi sem fyrirtækið boðaði til í gær að forsvarsmenn Sementsverksmiðj- unnar hefðu ítrekað verið með róg- burð í fjölmiðlum að undanförnu gagnvart Aalborg Portland Íslandi. Í því sambandi nefndi hann sérstak- lega Guðjón Guðmundsson, varafor- mann stjórnar Sementsverksmiðj- unnar og alþingismann, og Gunnar Örn Gunnarsson, nýskipaðan stjórn- arformann Sementsverksmiðjunnar og starfsmann Iðnaðar- og við- skiptaráðuneytisins. Þá sagði Bjarni að þar sem iðnaðarráðherra skipaði stjórn Sementsverksmiðjunnar gæti ráðherrann ekki vikist undan því að bera á endanum ábyrgð á hinni póli- tísku stjórn og þeim tilhæfulausu og röngu ummælum sem stjórnarmenn og helstu forsvarsmenn fyrirtækis- ins hefðu ákveðið að hafa uppi gagn- vart samkeppnisaðila. „Það er óþolandi með öllu að forsvars- menn Sementsverk- smiðjunnar geti hagað ummælum sínum í um- boði ráðherra með þeim hætti sem þeir hafa gert,“ sagði Bjarni. Lægri framleiðslu- kostnaður í Danmörku Sem dæmi um röng og meiðandi ummæli forsvarsmanna Sem- entsverksmiðjunnar í garð Aalborg Portland Íslandi nefndi Bjarni að haft hefði verið eftir Guðjóni Guðmundssyni í Morgun- blaðinu sunnudaginn 2. júní síðast- liðinn, að augljóst væri að um und- irboð væri að ræða hjá dönsku verksmiðjunni, þ.e. Aalborg Port- land, í þeim tilgangi að knésetja Sementsverksmiðjuna. Bjarni sagði að í þessum ummælum fælust stórar og meiðandi ásakanir sem ættu ekki við nokkur rök að styðjast. Það sama ætti og við um þau ummæli sem höfð hefðu verið eftir Guðjóni þess efnis að ef danska fyrirtækið næði að bola Sem- entsverksmiðjunni af markaði myndi það hækka verð í skjóli þess. Um fullyrðingar þess efnis að Aalborg Portland Íslandi sé að undirbjóða sement hér á landi með vísan til hærra verðs Aal- borg Portland á sem- enti í Færeyjum en hér, segir Bjarni að ekki sé verið að bera saman rétta hluti. Ekki megi rugla sam- an innflutningsverði annars vegar, og út- söluverði hins vegar. „Íslenski markaðurinn er spenn- andi og það verður aldrei afturhvarf til þess tíma sem var áður en sam- keppni í sementssölu komst á hér á landi fyrir tveimur árum. Ástæðan fyrir því að Aalborg Portlandi getur boðið sement á lægra verði en Sem- entsverksmiðjan hefur gert er sú að framleiðslukostnaðurinn í Dan- mörku er mun lægri en hér á landi vegna hagstæðari skilyrða þar en hér,“ sagði Bjarni Ó. Halldórsson. Framkvæmdastjóri Aalborg Portland Íslandi hf. Rangar fullyrðingar forsvarsmanna Sem- entsverksmiðjunnar Bjarni Ó. Halldórsson MARKAÐSVERÐMÆTI deCODE er um 16,5 milljarðar íslenskra króna sé miðað við lokagengi hlutabréfa í félaginu á mánudag. Gengi bréfanna var þá 4,05 dollarar á hlut en það endaði í 4,09 dollurum í gær. Til sam- anburðar má geta þess að hæst hefur markaðsvirði félagsins, síðan hluta- bréf þess voru opinberlega skráð, farið í 106,5 milljarða króna um miðj- an september 2000 (m.v. þáverandi gengi dollars). Munurinn á hæsta og lægsta verðmati á félaginu á þessum 20 mánuðum er samkvæmt þessu um 90 milljarðar króna. 77% lækkun frá skráningargengi Verð hlutabréfa í deCODE náði sögulegu lágmarki á bandaríska Nasdaq-hlutabréfamarkaðinum á mánudag. Lokagengi bréfanna var 4,05 dollarar á mánudag, sem þýðir að markaðsverðmæti félagsins fór í 183,5 milljónir dollara, sem svarar til um 16,5 milljarða íslenskra króna. Verðlækkun bréfanna frá áramót- um nemur tæpum 60% og lækkunin frá skráningargengi bréfanna fyrir tæpum tveimur árum nemur rúmum 77% en skráningargengið var 18 dollarar. Hæsta lokagengi bréfanna á Nasdaq er skráð 11. september 2000 og var það 28,75 dollarar. Lækkunin þar í frá nemur tæpum 86%. Hríðlækkað frá áramótum Hlutabréfaverð í deCODE hefur farið hríðlækkandi frá síðustu ára- mótum en lokaverð ársins 2001 var 9,8 dollarar. Fyrsta viðskiptadag ársins 2002 endaði verðið í 10 doll- urum en hefur meira og minna farið lækkandi eftir það. Var verðið komið niður fyrir 9 dollara 22. janúar, niður fyrir 8 dollara 6. febrúar, niður fyrir 7 dollara 19. febrúar og niður fyrir 6 dollara 28. febrúar. Þess má geta að verðið hefur nokkrum sinnum áður farið svo lágt og gerðist það fyrst í apríl í fyrra. Lokaverð fór hins vegar í fyrsta skipti frá upphafi niður fyrir 5 dollara 28. maí sl. Sem fyrr segir náði lokaverð bréfanna enn einu lág- markinu á sl. mánudag, þ.e. 4,05 doll- urum, en innan dagsins fóru lægstu viðskipti fram á genginu 3,5. Það eru lægstu skráðu viðskipti með bréf í deCODE frá skráningu þeirra á Nasdaq-hlutabréfamarkaðinn hinn 18. júlí 2000. Þann dag var einmitt hæsta verð bréfanna skráð innan dags en það var 31,5 dollarar. Verð- munurinn á því hæsta og lægsta er því nífaldur. Enn mælt með kaupum Bandarísku verðbréfafyrirtækin JP Morgan og Robertson Stephens mæla enn með kaupum á hlutabréf- um í félaginu en Chapman Advisory Group leggur til að fjárfestar hinkri lítið eitt og sjái hver framvindan verður. Chapman Advisory Group segir enn fremur í ráðleggingum sín- um mestar líkur vera á að bréfin lækki enn og verðið fari niður í 3,62 dollara en sennilega ekki lægra en 3,1 dollar. Góðar líkur eru einnig taldar á því að verð bréfanna hækki og fari í u.þ.b. 6,34 en ekki yfir 6,64 dollara. DeCODE met- ið á 16,5 millj- arða króna                              OPIN kerfi hf. seldu í gær allan eign- arhlut sinn í AcoTæknivali hf., eða 25,5%. Kaupandi hlutarins er Fjár- festingarfélagið Straumur hf., sem eftir kaupin á 26,23% í AcoTækni- vali. Fyrir gærdaginn átti Straumur engin hlutabréf í félaginu. 25,5% hlutur jafngildir 89,25 milljóna króna hlutafé og miðað við gengið í við- skiptunum, 1,45, er markaðsverð við- skiptanna um 130 milljónir króna. Í fréttatilkynningu frá Opnum kerfum segir að nettó söluhagnaður vegna sölunnar sé um 52 milljónir króna. Frosti Bergsson, stjórnarformaður Opinna kerfa, er stjórnarformaður AcoTæknivals, en hann mun víkja úr stjórninni í framhaldi af sölunni. „Við eigum hlutabréf í allmörgum fyrirtækjum og þau hlutabréf eru til sölu ef hagstætt tilboð berst. Við fengum tilboð í þessi bréf og mátum það svo að hagstætt væri að selja þau,“ segir Frosti Bergsson, stjórn- arformaður Opinna kerfa, spurður um söluna á hlut félagsins í Aco- Tæknivali. Inntur eftir því hvort eitthvað kæmi í staðinn fyrir fjárfestinguna í AcoTæknivali segir Frosti að Opin kerfi hafi verið að fjárfesta mikið er- lendis, bæði í Svíþjóð og Danmörku, og það hafi gengið vel. Í bili séu að mati Opinna kerfa meiri sóknarfæri fyrir félagið þar en hér heima. Þórður Már Jóhannesson, fram- kvæmdastjóri Straums, segir að ástæðan fyrir kaupunum sé sú að Straumur sjái ákveðin tækifæri í rekstri og framtíð félagsins. Verðfall á upplýsingatæknimarkaðnum sé orðið mjög mikið og þar sem Aco- Tæknival virðist komið fyrir vind í þeim erfiðleikum sem það hafi geng- ið í gegnum telji hann verðið hag- stætt. Opin kerfi selja hlut sinn í AcoTæknivali Fjárfestingarfélagið Straumur á nú ríflega fjórðung

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.