Morgunblaðið - 05.06.2002, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 05.06.2002, Qupperneq 15
SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 2002 15 GRASIÐ á hinum nýja Grindavíkur- velli er illa farið. Segir vallarstjórinn að sérfræðingar telji að undirlagið sé ekki rétt og að grasþökurnar sem lagðar voru á völlinn fyrir síðasta sumar séu auk þess ekki nógu góðar. Verða þökurnar rifnar upp úr meg- inhluta beggja vítateiganna og af hluta miðjuhringsins og svæðin tyrfð að nýju. Grindavíkurvöllur er glæsilegur völlur sem tekinn var í notkun fyrir tæpu ári. Segir Gylfi Halldórsson vallarstjóri að völlurinn hafi verið lagður samkvæmt ráðleggingum sér- fræðinga, undirlagið verið sérstak- lega blandað og torfurnar átt að vera sérvaldar. Hann hafi hins vegar ekki reynst vel. Strax í fyrstu leikjum síð- asta sumars hafi komið í ljós að þök- urnar spændust upp við tæklingar og órækt hafi komist í hluta grassins. Hann segir að alúð hafi verið lögð við umhirðu vallarins og menn vonast til að ástandið myndi lagast en það hafi ekki gengið eftir. Völlurinn hafi farið illa í vor, sérstaklega uppi við mörkin. Segir Gylfi að þetta gangi ekki lengur og ákveðið hafi verið að taka upp teigana og hluta miðjunnar. Segir hann að sérfræðingar segi nú að undirlagið sé ekki rétt blandað, í því sé of lítið af mold en of mikill sandur. Það valdi því að torfurnar nái ekki að bindast undirlaginu og spænist upp við tæklingar. Þá segir hann ljóst að þökurnar séu of þunnar og ekki nógu gott gras í þeim, sér skiljist að enginn bóndi vildi fá slíkt gras í túnin hjá sér. Segir Gylfi að ekki sé hægt að sætta sig við að nýr grasvöllur endist ekki árið og einhver hljóti að bera ábyrgð á mistökunum sem til þess hafa leitt. Reynt að fá þykkara torf Völlurinn fór illa um helgina þegar Grindvíkingar fengu lið ÍBV í heim- sókn og unnu. Talið var að þúfur á vellinum hefðu átt þátt í tveimur markanna sem Eyjamenn fengu á sig, því hélt þjálfari gestanna meðal ann- ars fram eftir leikinn. Gylfi segist vel geta skilið óánægju Vestmannaey- inga með aðstæðurnar, svona eigi vellir ekki að vera. Hins vegar sé of- mælt að torfið eigi sök á mörkunum sem þeir fengu á sig, slík ummæli verði að skoða með hliðsjón af sár- indum þeirra sem töpuðu leiknum. Að sögn vallarstjórans verður í dag hafist handa við að skipta um torf í báðum vítateigunum og á hluta miðj- unnar. Reynt verði að fá þykkara torf og betra en það sem fyrir er. Gylfi segir ekki koma til greina að sinni að taka allan völlinn upp, það kosti margar milljónir. Vonast hann til að völlurinn verði kominn í lag fyrir næsta heimaleik Grindvíkinga, gegn Fylki 19. júní. Ef það takist ekki verði að fá heimild til að leika á gamla gras- vellinum sem er við hliðina á þeim nýja eða reyna að skipta á heimaleikj- um við þau lið sem næst eiga að koma í heimsókn. Þá segir hann að kvenna- liðið hafi þurft að leika á gamla vell- inum og ekki sé skemmtilegt að þurfa að bjóða stúlkunum upp á það til lengdar. Nýi grasvöllurinn í Grindavík að verða ónothæfur innan við ári eftir að hann var tekinn í notkun Skipt um torf- ur á teigunum og miðjunni Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Gylfi Halldórsson vallarstjóri sýnir hvað þökurnar eru lausar. Á bakvið sést stúkan góða. Grindavík ÞRJÚ félög í Garði afhentu í gær Gerðaskóla sjúkrarúm til afnota fyr- ir fatlaða nemendur. Kemur rúmið í góðar þarfir því einn nemandi skól- ans er fjölfatlaður og fær hann rúm- ið fyrstur til afnota. Fleiri gjafir voru afhentar við sama tækifæri. Lionsklúbburinn Garður, Kiw- anisklúbburinn Hof og Kvenfélagið Gefn, öll í Garði, keyptu sjúkrarúm- ið og afhentu það skólastjóra Gerða- skóla í gær. Verðmæti gjafarinnar er um 400 þúsund krónur. Er þetta í fyrsta skipti sem félögin standa saman að verkefni sem þessu. Gjöfin var afhent í tíma hjá fjórða bekk en einn nemandi hans, Ari Páll Vignisson, er fjölfatlaður og var til- gangur gefenda að auðvelda honum að vera með jafnöldrum sínum en að það gæti síðar nýst öðrum. Fram kom við athöfnina að tvær stúlkur úr fyrsta bekk höfðu haldið hluta- veltu og safnað þannig fyrir púðum í rúmið. Við sama tækifæri var tilkynnt að kiwanisklúbburinn myndi veita æskulýðsnefnd Gerðahrepps mynd- bandsupptökuvél og stafræna myndavél fyrir allt að 200 þúsund. Vélarnar eru ekki síst ætlaðar til að nota í félagsmiðstöðinni Truflaðri tilveru í Garði. Loks voru nemendum annars bekkjar afhentir hjólahjálmar sem Lionsklúbburinn Garður gaf. Lög- reglumenn voru viðstaddir afhend- inguna og kenndu þeir börnunum að setja hjálmana saman og leiðbeindu um notkun þeirra. Erna M. Sveinbjarnardóttir, skólastjóri Gerðaskóla, tók við gjafabréfi frá fulltrúum félaganna og þakkaði gjöfina. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Lionsmaður hjálpar einum nemanda að setja á sig reiðhjólahjálminn. Gáfu sjúkrarúm fyrir fjölfatlaðan nemanda Garður FULLTRÚAR flutningabílstjóra í Reykjanesbæ fóru í gær á fund Ell- ert Eiríkssonar bæjarstjóra til að ræða möguleika á bílastæðum fyrir flutningabíla og vinnuvélar. Lögregl- an hefur að undanförnu aðvarað marga bílstjóra og sektað fyrir að leggja í íbúðahverfum og fjölmenntu bílstjórarnir að lögreglustöðinni í fyrrakvöld til að mótmæla því. Ellert Eiríksson bæjarstjóri segir að samkvæmt lögreglusamþykkt Reykjanesbæjar sé óheimilt að leggja stórum flutningabílum og vinnuvélum í íbúðahverfum. Hann segist hafa sýnt bílstjórunum af- mörkun þessarra hverfa. Ekki hafi verið gerð sérstök krafa um að bær- inn færi að útbúa stæði fyrir þessa bíla enda sé það hlutverk fyrirtækj- anna sjálfra. Hann rifjaði þó upp gamla hug- mynd, að komið yrði upp sérstöku svæði til að geyma flutningabíla og tæki. Mikilvægt sé að hafa þar gæslu til að koma í veg fyrir skemmdar- verk. Telur Ellert að slík starfsemi stæði varla undir sér nema hún væri rekin í tengslum við eitthvað annað. Segist Ellert hafa ráðlagt bílstjór- unum að senda bæjaryfirvöldum formlegt erindi með óskum sínum í þessu efni og þau gætu hugsanlega komið að lausn þess. Samkvæmt upplýsingum lögregl- unnar er töluvert um að íbúar kvarti undan stórum bílum sem lagt er ólög- lega í hverfunum. Lögreglan reyni að hafa eftirlit með þessu og hafi það úr- ræði að sekta eigendur tækjanna. Kvarta undan aðstöðuleysi Reykjanesbær

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.