Morgunblaðið - 05.06.2002, Page 26

Morgunblaðið - 05.06.2002, Page 26
26 MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. HAGFRÆÐISTOFNUNHáskóla Íslands hefurlagt mat á kostnað Ís-lands við aðild að Evr- ópusambandinu að beiðni forsætis- ráðuneytisins. Greinargerð Hagfræðistofnunar fer hér á eftir í heild sinni: ,,Í bréfi dagsettu 9. maí 2002 fór forsætisráðuneyti Íslands fram á það við Hagfræðistofnun að sér- fræðingar hennar: 1. Endurreikni og uppfæri mat á hreinum framlögum Íslands til Evrópusambandsins sem Hag- fræðistofnun reiknaði árið 1994 að beiðni utanríkisráðuneytisins og birtist í skýrslu fjögurra stofn- ana Háskóla Íslands til ríkis- stjórnar Íslands árið 1995. 2. Leggi mat á hvað hrein framlög Íslands samkvæmt 1. lið gætu breyst við fyrirhugaða stækkun bandalagsins til austurs. Þessu verki er nú lokið og sendist ráðuneytinu hér með umbeðin greinargerð. A. Framlög Íslands Við inngöngu Íslands í Evrópu- sambandið þyrfti landið, eðli máls samkvæmt, að taka þátt í fjármögn- un sambandsins. ESB hefur tekjur sínar af nokkrum stofnum og er mis- erfitt að meta hugsanlegan hlut Ís- lands í þeim. Ef yfirstandandi ár er notað til viðmiðunar má þó áætla til- tölulega vel hve mikið Ísland þyrfti að borga. Hugsanlegu framlagi má í meginatriðum skipta í þrennt:  Tollar og innflutningsgjöld. ESB er tollabandalag. Við inngöngu í ESB þyrfti Ísland að hætta að innheimta tolla og innflutnings- gjöld samkvæmt eigin tollskrá. Þess í stað yrði tekin upp sam- ræmd tollskrá bandalagsins. All- ar tekjur rynnu til fjármögnunar sambandins að undanskildri 10% þóknun sem Ísland fengi í sinn hlut fyrir innheimtu. Samkvæmt fjárlögum 2002 eru tollar og inn- flutningsgjöld á þessu ári talin nema 2.840 milljónum króna og myndu Íslendingar missa um það bil 90% þessa tekjustofns til bandalagsins, eða sem nemur 2.556 milljónum króna. Þá renna til ESB sérstakt sykurgjald og tollar á innfluttar landbúnaðar- vörur sem eru meðtalin í fyrr- nefndri tölu.  Virðisaukaskattstofn. Aðildar- lönd ESB greiða hluta af virðis- aukaskatti til sambandsins, 1% af samræmdum skattstofni. Ekki liggur fyrir hve stór samræmdi skattstofninn er á Íslandi, en í Danmörku, Finnlandi og Svíþjóð er hann á bilinu 40% til 44% af þjóðarframleiðslu. Þar sem neysla er nokkuð meiri hér á landi sem hlutfall af þjóðarframleiðslu en á öðrum Norðurlöndum má ætla að 0,045% af VÞF séu neðri mörk virðisaukaframlags Íslend- inga. Efri mörkin eru nákvæm- lega skilgreind í reglum ESB sem 0,05% af VÞF. Um það bil þriðj- ungur aðildarríkjanna greiðir samkvæmt þessu hámarki.  Þjóðartekjustofn. Þeim halla sem eftir stendur á milli fjárheimilda ESB og markaðra tekna er skipt á milli aðildarríkjanna með eftir- farandi hætti. Fyrst er hlutfall ófjármagnaðra útgjalda af vergri þjóðarframleiðslu sambandsins reiknað. Síðan er þetta hlutfall af vergri þjóðarframleiðslu hvers aðildarríkis fyrir sig innheimt. Á landbúnaðar. Til dæmis er því að hlutdeild landbúnað í heildarútgjöldum ESB læ í 46%, samanborið við 49 Nánari útlistun á áhrifum opinberan stuðning við eins greinar má finna í skýrsl fræðistofnunar frá 1995 og isráðuneytisins frá árinu 20 Uppbyggingarstyrkir Fjórir sjóðir veita styrki velli uppbyggingarstefnu sambandsins: Evrópski sjóðurinn, Landbúnaðar (uppbyggingarhlutinn), vegssjóðurinn og Félagsm Evrópu. Styrkjum úr öllum sjóðum er úthlutað eftir markmiðum eða málaflokk eru: 1. Aðstoð við svæði sem dre aftur úr efnahagslega. við svæði samkvæmt N skilgreiningunni sem haf framleiðslu undir 75% a tali ESB.1 Svæði með fæ íbúa á ferkílómetra í A Svíþjóð og Finnlandi fa undir 1. markmið.2 Um fjármunum uppbyggin unnar fara til að uppfy markmið. 2. Stuðningur við efnahag lagslega endurskipu svæða sem eiga við ker atvinnuleysisvandamál a Um 11,5% af fjármun byggingarstefnunnar þessa markmiðs. 3. Almennur stuðningur v markaðsverkefni, s.s. st un. Svæði sem falla undir mið hafa ekki rétt á samkvæmt þessu markm 12,3% af fjármunum upp arstefnunnar fara til þes miðs. Til viðbótar styrkir S sjóðurinn (e. cohesion fund umfangsmikil uppbyggin efni – fyrst og fremst í sa málum – í fátækustu ríkj bandsins. Ef gert er ráð fyrir a verði skipt í tvö NUTS II s höfuðborgarsvæði annars landsbyggð, hins vegar, vera að landsbyggðin með þúsund íbúa hefði rétt á samkvæmt 1. markmiði. Hu er að réttur til styrkja á gru og 3. markmiðs gæti sk staðbundið atvinnuleysi muna frá því sem nú er. Ein frumkvæðisverkefni framk stjórnar ESB: LEADER ERREG, hugsanlega nýs ingum að einhverju leyti. Í skýrslu Hagfræðistofn 1995 var áætlað að uppby styrkir til Íslendinga gæt um 1,2 til 1,5 milljörðum kr Þetta samsvarar u.þ.b. 1 milljörðum á verðlagi dags Styrkirnir krefjast þó, næ tekningalaust, mótframla nemur að minnsta kosti heildarkostnaðar og er þe að stofna til nýrra verkefna yfirtaka eldri verkefni s voru fjármögnuð af Ísle sjálfum. Inni í þessum up eru framlög til uppbyggin arútvegs. Hlutur sjávarútv byggingarstyrkjum í D voru um 17% árið 2000. Ve hve sjávarútvegur leikur s verk í atvinnulífi hérlendis þess hve lítill tekjumunur landsvæða á Íslandi er varlegt að áætla að sambær þessu ári er þetta hlutfall 0,4539015%. Samkvæmt þjóð- hagsáætlun Þjóðhagsstofnunar er áætlað að verg þjóðarframleiðsla Íslendinga árið 2002 verði rúmir 759 milljarðar króna og yrði þjóð- arframleiðsluframlag Íslendinga því 3.448 milljónir króna sam- kvæmt fyrrgreindum reglum, ef miðað er við yfirstandandi ár. Þegar hefur verið ákveðið að lækka virðisaukaframlagið niður í 0,5% af samræmdum skattstofni í tveimur áföngum fram til 2004. Þessari breytingu verður mætt með samsvarandi hækkun þjóðarfram- leiðsluframlags. Engin veruleg breyting á hreinu framlagi aðildar- ríkjanna er því fyrirsjáanleg vegna þessa. Auk þessara útgjalda Íslands er reiknað með að önnur framlög, s.s. til evrópska fjárfestingarbankans, nemi á bilinu 200 til 400 milljónum króna árlega. Þá mun kostnaður vegna EES-samningsins og EFTA sparast við inngöngu í bandalagið. Í skýrslu utanríkisráðherra er þessi kostnaður sagður nema um 430 milljónum árið 1999, eða um 500 milljónum á núgildandi verðlagi. Þessi kostnaður er hér notaður sem neðri mörk á kostnað vegna EES- samnings. B. Mótframlög ESB Hugsanleg mótframlög ESB til Íslands er mun erfiðara að meta þar sem niðurstaðan myndi ráðast í að- ildarviðræðum. Í skýrslu Hagfræði- stofnunar til ríkisstjórnar Íslands var sérstaklega fjallað um styrkja- kerfi ESB og hvað Íslendingar mættu búast við að fá til baka af framlagi sínu til fjárlaga ESB vegna þess. Í þessari greinargerð er stuðst við þessa mun ítarlegri úttekt, en reynt er eftir fremsta megni að taka tillit til helstu breytinga sem orðið hafa frá þeim tíma er hún var gerð. Landbúnaðarstyrkir Innganga í ESB myndi hafa um- talsverð áhrif á opinberan stuðning við landbúnað. Styrkir til landbún- aðar eru hlutfallslega lægri í Evr- ópusambandinu en á Íslandi, en óvíst er hvort innganga í ESB hefði umtalsverð áhrif á heildarstuðning til greinarinnar hér á landi. Í aðild- arsamningum Austurríkis, Svíþjóð- ar og Finnlands eru sérákvæði sem heimila sérstaka innlenda styrki til landbúnaðar á norðlægum slóðum, umfram það sem sameiginleg land- búnaðarstefna ESB gerir ráð fyrir. Eðlilegt er að gera ráð fyrir því að innganga í ESB, sem slík, muni ekki hafa áhrif á heildarstuðning við ís- lenska bændur. Í ljósi framan- greinds sérákvæðis um norðlægan búskap má skoða ákvörðun um breytingar á heildarumfangi stuðn- ings við bændur sem sjálfstæða ákvörðun. Það er því aðeins hlut- deild ESB í kostnaði vegna sameig- inlegu landbúnaðarstefnunnar sem reikna skal þegar styrkir vegna landbúnaðar á Íslandi er skoðaðir. Ef tölur úr skýrslu Hagfræðistofn- unar frá 1995 eru uppfærðar til nú- verandi verðlags má ætla að framlag ESB til landbúnaðar á Íslandi yrði á bilinu 3 til 3,6 milljarðar króna á ári. Gera má ráð fyrir einhverjum samdrætti styrkja til landbúnaðar innan ESB á næstu árum og áratug- um, ekki einungis í tengslum við stækkun ESB til austurs, heldur einnig á grundvelli þeirrar langtíma- stefnu sambandsins að draga jafnt og þétt úr framleiðslustyrkjum til Greinargerð sem Hagfræðist Áhrif aðild Íslands að E á ríkisfjárm VANDI BUGL OG OPIN UMRÆÐA VÆNDI Á ÍSLANDI Upplýsingar um vændi á Ís-landi, sem fram komu á ráð-stefnu Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna um baráttu gegn verzlun með konur í síðustu viku, hafa vakið talsverða athygli. Tinna Víð- isdóttir, lögfræðingur hjá sýslumann- inum á Keflavíkurflugvelli, sat ráð- stefnuna og greindi frá því í fjölmiðlum, m.a. hér í blaðinu sl. laug- ardag, að eistneska og lettneska lög- reglan teldi sig hafa öruggar upplýs- ingar um að þarlendar nektardansmeyjar hefðu stundað vændi hér á landi. Fram kom að vinnuveitendur stúlknanna á Íslandi hefðu lagt að þeim að stunda vændi og hótað þeim ofbeldi ef þær segðu frá. Þá hefðu stúlkurnar verið beittar blekkingum til að fá þær til að stunda vændi. Þessar upplýsingar koma því miður ekki á óvart, en þær eru enn frekari staðfesting á margs konar vísbend- ingum og grunsemdum, sem fram hafa komið á undanförnum misserum um að vændi sé stundað hér á landi. Slíkar vísbendingar hafa borizt lög- reglu, heilbrigðisstarfsfólki, starfs- mönnum Stígamóta og fleiri aðilum. Í samtali Morgunblaðsins við Tinnu Víðisdóttur kom fram að von væri á nánari upplýsingum frá eistnesku og lettnesku lögreglunni um þessi mál. Það er full ástæða til þess fyrir ís- lenzk löggæzluyfirvöld að fylgja þessu máli fast eftir og jafnvel leita eftir milliliðalausum viðtölum við stúlkurnar, sem um ræðir, til að kom- ast að hinu sanna í málinu. Það er ólöglegt að hvetja til eða standa fyrir vændi og nýta sér þannig oft og tíðum neyð þeirra, sem leggjast svo lágt að selja líkama sinn. Lögreglan á að leggja áherzlu á það að koma höndum yfir þá, sem kunna að hafa hvatt til slíks. Þær umræður um veitingu atvinnu- leyfa til nektardansara frá löndum ut- an Evrópska efnahagssvæðisins, sem fram fóru á ráðstefnunni og Tinna Víðisdóttir greindi frá hér í blaðinu, eru umhugsunarverðar. Fram kom að hennar sögn að slíkt tíðkist ekki ann- ars staðar á Norðurlöndum. Sú skoð- un kom fram á ráðstefnunni að með því að veita dansmeyjum atvinnuleyfi væru stjórnvöld að búa í haginn fyrir menn og samtök sem hagnast á verzl- un með konum. Þannig væru „íslenzk stjórnvöld í hlutverki melludólgs“ eins og það var orðað. Það er rétt sem fram kemur hjá Páli Péturssyni félagsmálaráðherra í Morgunblaðinu í dag, að það tekur ekki fyrir innflutning erlendra nekt- ardansara að hætta útgáfu atvinnu- leyfa til dansmeyja frá ríkjum utan EES. Hins vegar er ljóst að veiting slíkra leyfa orkar tvímælis og það get- ur þjónað ákveðnu markmiði að tak- marka þau. Í fyrsta lagi koma þessar stúlkur margar hverjar frá löndum í Austur-Evrópu, þar sem órækar sannanir eru fyrir skipulagðri glæpa- starfsemi, sem meðal annars gengur út á mansal og kynlífsþrælkun. Get- um við lokað augunum fyrir þeim möguleika að slík starfsemi teygi anga sína hingað til lands? Í öðru lagi er vitað að víða erlendis hefur þróunin orðið sú að hefðbundin vændishús hverfa, en í staðinn koma nektardans- staðir og nuddstofur, þar sem vændið er falið innan um löglega starfsemi, m.a. í skjóli svokallaðs einkadans, sem borgaryfirvöld í Reykjavík hafa nú góðu heilli bannað á nektardans- stöðum. Í þriðja lagi er óneitanlega styttra frá þeirri markaðssetningu og sölu mannslíkamans, sem felst í nekt- ardansi, yfir í hreinræktað vændi en á við um flesta aðra atvinnu sem er- lendir borgarar stunda hér sér til lífs- viðurværis. Vændi er samfélagsmein. Ef sann- anir fást fyrir því að það sé stundað hér með skipulögðum hætti, eiga stjórnvöld að gera allt, sem í þeirra valdi stendur, til að uppræta það. Vandamál í rekstri heilbrigðiskerf-isins varða heill almennings og myndu seint teljast einkamál stjórn- enda og yfirmanna. Þegar upp koma vandamál innan ákveðinna sviða í heilsugæslu er það skylda þeirra, sem best þekkja til, að láta í sér heyra og benda á brestina. Þess vegna vekur furðu að Magnús Pétursson, forstjóri Landspítala – háskólasjúkrahúss, skuli bregðast við ummælum Ólafs Ó. Guðmundssonar, yfirlæknis barna- og unglingageðdeildar (BUGL) Land- spítala, um vanda deildarinnar með því að segja að það sé ekki hlutverk Ólafs á spítalanum að senda út frétta- tilkynningar. Þessi orð bera vitni hugsunarhætti, sem á ekkert erindi í stjórnsýslu opins lýðræðisríkis í upp- hafi 21. aldarinnar. Ólafur Ó. Guðmundsson greindi frá því eins og fram kom í Morgunblaðinu á laugardag að fyrirskipað hefði verið að draga úr þjónustu deildarinnar og hafist hefði verið handa um helgina. Ástæðan væri sú að heilbrigðis- og fé- lagsmálaráðuneyti hefði ákveðið að segja upp þjónustusamningi milli BUGL, Barnaverndarstofu og SÁÁ, sem hefði í för með sér 43 milljóna króna samdrátt í þjónustu BUGL á ári og þýddi uppsagnir 7 til 15 starfs- manna. Almenningur reiðir sig á heilbrigð- isþjónustuna í landinu og hún þarf að vera í lagi þegar mest ríður á. Fáir vita betur hvað þarf til að halda uppi þeirri þjónustu, sem almenningur gerir kröfu til, en sérfræðingarnir, sem sjá um sjúklingana. Þeir vita hverjar þarfirnar eru og hvað ber að gera til að þeim sé fullnægt. Ef það er ekki hlutverk þeirra að benda á þegar þeim þykir að skera eigi niður þjón- ustu með þeim hætti að vegið sé að hagsmunum sjúklinganna má spyrja hvers hlutverk það sé eiginlega. Í raun má snúa forsendunum við og segja að það sé einmitt þeirra hlut- verk – og þeirra skylda – að stíga fram, en ekki að sitja og þegja og þeg- ar það gerist á að svara því með þeim hætti að almenningur verði upplýstur um hvað sé á ferðinni, í stað þess að snupra lækna eða aðra, sem sinna þessari sjálfsögðu upplýsingaskyldu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.