Morgunblaðið - 05.06.2002, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 2002 45
DAGBÓK
Árnað heilla
90 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 5.
júní, er níræð Lilja Ólafs-
dóttir frá Vík í Mýrdal,
Vogatungu 99, Kópavogi.
Lilja er að heiman í dag.
50 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 5.
júní, er fimmtug Aldís Jón-
ína Höskuldsdóttir, útgerð-
armaður, Laugarásvegi 31,
Reykjavík. Eiginmaður
hennar er Aðalbjörn Jóa-
kimsson. Þau verða með op-
ið hús á heimili sínu á af-
mælisdaginn milli kl. 17–20.
LJÓÐABROT
STÖKUR
Inn í mína eigin sál
ótal skína geislabál,
við það dvínar tregi og tál,
trú fær sýn og hressist mál.
Nætur langar færast fjær,
frerar strangir dvína.
Vors með angan blíður blær
baðar vanga mína.
Í annarra og eigin sál
öllu ljós að glæða,
láttu ekki tímans tál
trufla þig né hræða.
Guðjón Þorsteinsson.
SEX lauf er allgóð slemma
í NS, en ekki auðveld í
sögnum – allar leiðir virð-
ast liggja í fjóra spaða:
Suður gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ ÁD9543
♥ 8
♦ Á2
♣Á1073
Vestur Austur
♠ 6 ♠ G872
♥ D9643 ♥ KG1052
♦ DG84 ♦ 763
♣D95 ♣K
Suður
♠ K10
♥ Á7
♦ K1095
♣G8642
Á æfingu landsliðsins
um helgina voru Þröstur
Ingimarsson og Bjarni
Einarsson með spil NS á
móti Birni Theódórssyni
og Páli Bergssyni. Bjarni
vakti létt á einu Standard-
laufi í upphafi og sló svo
hvergi af í framhaldinu:
Vestur Norður Austur Suður
Páll Þröstur Björn Bjarni
– – – 1 lauf
Pass 1 spaði Pass 1 grand
Pass 2 tíglar * Pass 3 tíglar
Pass 4 lauf Pass 4 tíglar
Pass 4 hjörtu Dobl Redobl
Pass 4 spaðar Pass 5 lauf
Pass 6 lauf Allir pass
Endursögn Bjarna á
einu grandi takmarkaði
höndina við 11–13 punkta í
þeirra kerfi. Þröstur krafði
í geim með tveimur tíglum
og Bjarni sýndi skipt-
inguna með hækkun í þrjá
tígla. Þá tók Þröstur undir
laufið og auglýsti eftir fyr-
irstöðusögn. Margur hefði
látið nægja að lyfta í fimm
lauf með þessa lágmarks-
opnun, en Bjarni sýndi tíg-
ulfyrirstöðuna og síðar
hjartaásinn með redobli.
„Það þýðir ekki að sjá eftir
því að hafa opnað,“ sagði
Bjarni og það er alveg hár-
rétt athugað.
Slemman var auðunnin.
Bjarni fékk út hjarta, sem
hann tók og spilaði strax
trompi á ás og meira laufi.
Spaðann gat hann svo frí-
að með trompun síðar.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
1. d4 d5 2. c4 c6 3. e3 Rf6
4. Rf3 Bf5 5. Rc3 e6 6. Bd3
Bxd3 7. Dxd3 Bb4 8. Bd2
O-O 9. O-O Rbd7
Staðan kom upp í úrvals-
flokki II á minningarmóti
Capablanca sem lauk fyrir
skömmu í Havana. Mauri-
cio Vassallo (2438) hafði
hvítt gegn Silvinho Garcia
(2395). Sá síðar-
nefndi féll í
þekkta byrjunar-
gildru og sá sig
tilneyddan til að
gefast upp eftir
10. Rxd5! Upp-
gjöfin er
snemma á ferð-
inni en svartur
tapar óhjá-
kvæmilega peði
og fær í kjölfarið
óteflandi stöðu.
Lokastaða
flokksins varð
þessi: 1. Salva-
dor Del Rio
(2495) 8½ vinning af 11
mögulegum. 2. Sergio
Cacho (2469) 7 v. 3.-4.
Mauricio Vassallo (2438) og
Zenon Franco (2510) 6½ v.
5.-7. Rodney Perez (2425),
Juan Borges (2438) og
Aryam Abreu (2480) 5 ½ v.
8. Helgi Áss Grétarsson
(2521) 5 v. 9. Yuri Gonzalez
(2444) 4½ 10.-11. Jose Al-
varez (2403) og Silvinho
Garcia (2395) 4 v. 12. Rene
Alonso (2398) 3½ v.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
AFMÆLI
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
TVÍBURAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert stríðin(n) og fyndin
(n). Þú býrð yfir mikilli orku
og nýtur þess að stússast í
hinu og þessu.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þar sem tunglið er í stjörnu-
merkinu þínu ætti þér að
reynast auðvelt að fá þínu
framgengt í dag. Ekki láta
þetta tækifæri renna úr
greipum þér.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú skalt sinna málum er
varða samskipti þín og opin-
berra stofnana. Ekki stinga
þeim lengur undir stól því þau
hverfa ekki.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Gefðu vini þínum aukalega af
tíma þínum í dag. Ef þú hefur
samband við hann eða hana
með heimsókn eða með sím-
tali verður það til að gleðja
báða aðila.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Sama hversu annríkt þú átt,
þá skaltu gefa þér 15 mínútur
í einrúmi. Best væri ef þú
gætir gefið þér klukkustund
til að ná í skottið á sjálfri/sjálf-
um þér.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú skalt leggja á ráðin með
vini um ferð út úr bænum á
næstunni. Ekki hætta við
ferðalög á þeim forsendum að
þú getir farið seinna. "Seinna"
er mjög skammur tími.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Talaður við foreldra þína, eða
einhvern sem þú berð virð-
ingu fyrir, um það hvernig þú
getir dregið úr skuldasöfnun.
Hlýddu á þá sem eru reynsl-
unni ríkari.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Einhver er tilbúinn til að að-
stoða þig í málefnum er varða
ferðalög, lögin eða menntun á
háskólastigi. Skynsöm mann-
eskja þiggur ráð sem gefin
eru af góðum ásetningi.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Einhver gæti gefið þér eða
lánað þér eitthvað sem verður
þér heilsubætandi. Ef þetta
er tækifæri til að komast í
gott form, þá skaltu grípa það.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Einhver kann að vera tilbúinn
til að taka þátt í skapandi
verkefni eða fjármálaævin-
týri. Þú nýtur þess þegar
langsóttir hlutir ganga upp.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Veittu beina aðstoð við verk-
efni heima fyrir. Afraksturinn
verður skilvirkara kerfi sem
þú getur reitt þig á varðandi
stuðning í framtíðinni.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Hafðu samband við ættingja
eða systkini og bjóddu í heim-
sókn. Njóttu þess að hitta við-
komandi í þægilegu umhverfi.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Kauptu eitthvað til heimilis-
ins sem færir þér og fjölskyld-
unni gleði. Þú ert í stríðnis-
skapi þessa dagana.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
60 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 5.
júní, er sextugur Haraldur
Sigurðsson, Spóahólum 14,
Reykjavík. Hann og eigin-
kona hans, Ragnhildur
Ólafsdóttir, taka á móti
gestum föstudaginn 7. júní í
Garðaholti, Garðabæ, frá kl.
19-22.
80 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 5.
júní, er áttræður Ingibergur
E.S. Jónsson húsasmiður,
Kirkjuvegi 12, Keflavík.
Eiginkona hans er Elín Guð-
rún Ingólfsdóttir. Þau dvelja
í sumarhúsi sínu við Þing-
vallavatn á afmælisdaginn.
Smælki
Hvernig viltu fá kók-
oshnetuna þína á
morgun?
Guðsþjónusta aldraðra í Grensáskirkju.
Í dag kl. 14 fer fram í Grensáskirkju
guðsþjónusta eldri borgara á vegum Elli-
málaráðs Reykjavíkurprófastsdæma.
Guðsþjónustan er liður í árlegum Sum-
ardögum aldraðra í kirkjunni. Við þessa
guðsþjónustu þjónar sóknarprestur
Grensáskirkju, sr. Ólafur Jóhannsson.
Kvenraddir úr Kirkjukór Grensáskirkju
syngja og leiða almennan söng við org-
elleik Árna Arinbjarnarsonar, organista
kirkjunnar. Að guðsþjónustu lokinni er á
boðstólum í safnaðarheimili kirkjunnar
kaffi og meðlæti í boði sóknarnefndar
Grensássafnaðar en reitt fram af konum
úr Kvenfélagi Grensássóknar. Verum öll
velkomin í Grensáskirkju í dag.
Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10.
Léttur málsverður á eftir. Prestarnir taka
við fyrirbænum í síma 520 9700.
Grensáskirkja. Foreldramorgunn kl. 10–
12.
Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir foreldra
ungra barna kl. 10–12.
Háteigskirkja. Morgunbænir kl. 11.
Súpa og brauð kl. 12 í hádegi í Setrinu
á neðri hæð safnaðarheimilis. Brids kl.
13 fyrir eldri borgara. Kvöldbænir kl. 18.
Neskirkja. Bænamessa kl. 18. Sr.
Frank M. Halldórsson.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund í dag kl.
12.10. Tónlist, altarisganga, fyrirbænir.
Léttur málsverður í safnaðarheimilinu
eftir stundina.
Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar kl. 10.
Kópavogskirkja. Starf með 8–9 ára
börnum í dag kl. 16.45–17.45 í safn-
aðarheimilinu Borgum. Starf með 10–12
ára börnum (TTT) á sama stað kl.
17.45–18.45.
Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund í dag
kl. 18. Beðið fyrir sjúkum, allir velkomn-
ir. Tekið á móti fyrirbænaefnum í kirkj-
unni og í síma 567 0110.
Vídalínskirkja. Foreldramorgnar verða í
sumar í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli kl.
10–12. Við hittumst og spjöllum. Heitt á
könnunni og djús fyrir börnin. Öll foreldri
velkomin með eða án barnanna.
Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund í kirkj-
unni kl. 12, íhugun, altarisganga, fyr-
irbænir. Léttur hádegisverður kl. 13 í
Ljósbroti Strandbergs.
Víðistaðakirkja. Foreldramorgnar á
fimmtudögum kl. 10–12.
Lágafellskirkja. Foreldramorgnar í safn-
aðarheimili frá kl. 10–12.
Þorlákskirkja. Barna- og foreldramorgn-
ar í dag kl. 10-12.
Kletturinn, kristið samfélag. Kl. 20.30.
Bænahópar í heimahúsum. Upplýsingar
í síma 565 3987.
Kefas. Samverustund unga fólksins kl.
20.30. Orð guðs rætt og mikil lofgjörð.
Allt ungt fólk velkomið.
Glerárkirkja. Hádegissamvera kl. 12.
Safnaðarstarf
Hjartans þakkir sendi ég öllum þeim sem glöddu
mig með heimsóknum, gjöfum, skeytum og sím-
tölum í tilefni af 70 ára afmæli mínu 25. apríl sl.
Einnig öllum þeim sem hjálpuðu mér á einn eða
annan hátt þá og síðustu tvö ár.
Guð blessi ykkur öll.
Lóa Jónsdóttir frá Árbæ,
Hólavangi 4, Hellu.