Morgunblaðið - 05.06.2002, Síða 52

Morgunblaðið - 05.06.2002, Síða 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. VEÐRIÐ lék svo sannarlega við landsmenn í gær og í Hjarðarlandi í Biskupstungum fór hitinn upp í 21 gráðu. Veður á suðvesturhorninu var sömuleiðis gott líkt og stúlk- urnar á myndinni bera glöggt vitni um. Létu þær sig ekki muna um að henda sér út í fyssandi Elliðaárnar í veðurblíðunni í gær. Morgunblaðið/Jim Smart Út í fyssandi Elliðaár  Slakað á/6HAGFRÆÐISTOFNUN Háskóla Íslands telur í nýrri skýrslu fyrir forsætisráðuneytið að hreint framlag Íslands myndi væntanlega meira en tvö- faldast við fulla stækkun Evrópusambandsins, ESB, eða frá því að vera um 3,7 til 5,6 milljarðar á ári fyrir stækkun í 8,3 til 10,1 milljarð eftir stækk- un. Með bréfi dagsettu 9. maí sl. fór forsætisráðu- neytið fram á það við Hagfræðistofnun að sér- fræðingar hennar endurreiknuðu og uppfærðu mat á hreinum framlögum Íslands til ESB sem stofnunin reiknaði árið 1994 að beiðni utanríkis- ráðuneytisins og birtist í skýrslu fjögurra stofn- ana Háskóla Íslands til ríkisstjórnarinnar árið 1995. Stofnunin var einnig beðin að leggja mat á hvað hrein framlög Íslands gætu breyst við fyr- irhugaða stækkun sambandsins til austurs. Davíð Oddsson forsætisráðherra segir við Morgunblaðið að skýrsla stofnunarinnar sé mjög vel unnin og niðurstöðurnar komi ekki á óvart. „Ég tel afar þýðingarmikið fyrir þá sem eru allt- af að tala um að þeir vilji umræðu um Evrópusam- bandið, að þeir hafi gögnin og réttar forsendur fyrir hendi í þeirri umræðu. En á daginn kemur að þeir vilja helst ekki hafa neinar staðreyndir, held- ur bara tala um skýjafarið og óskhyggju. Það er því afar þýðingarmikið að þetta liggur núna fyrir og er vel unnið af hálfu Hagfræðistofnunar Há- skólans,“ segir Davíð. Ekki tekið tillit til breyttra forsendna, segir utanríkisráðherra Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra segir að skýrslan sé innlegg í umræðuna um Evrópumál en hann gagnrýnir hana jafnframt og átelur vinnu- brögð Hagfræðistofnunar. Hún hafi t.d. ekki leitað eftir upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu eða sendiráði Íslands í Brussel. „Hagfræðistofnun er með þessari skýrslu að framreikna tölur sem hún reiknaði árið 1995 og mat það svo þá að nettókostnaður yrði á bilinu 2 til 3 milljarðar króna. Nú reiknar hún kostnaðinn fyrir stækkun upp á 3,7 til 5,6 milljarða. Við í utan- ríkisráðuneytinu gerum margar athugasemdir við þennan framreikning því stofnunin tekur ekki til- lit til breyttra forsendna nema að litlu leyti,“ segir Halldór. Endurskoðunarfyrirtækið Deloitte & Touche er að vinna skýrslu að beiðni utanríkis- ráðuneytisins þar sem meta á kostnaðinn við aðild að Evrópusambandinu og vonast Halldór til að raunsannara mat fáist með þeirri skýrslu en feng- ist hefur til þessa. Bryndís Hlöðversdóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, gagnrýnir einnig skýrsluna og telur niðurstöður hennar vera byggðar á hæpn- um grunni. Hún segir það líka grátbroslegt að fylgjast með hvaða skilaboð berist frá ríkisstjórn- inni til þjóðarinnar í Evrópumálum. Það sé ekki langt síðan Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra hafi kynnt að hann væri að láta reikna út kostnað við Evrópusambandsaðild fyrir utanríkisráðu- neytið. „Þær niðurstöður eru ekki komnar eftir því sem ég best veit og þá ryðst forsætisráðherra fram á völlinn með sína prívatkönnun, sem hann lætur gera á meðan Halldór er í útlöndum,“ segir Bryndís. Skýrsla Hagfræðistofnunar HÍ fyrir forsætisráðuneytið um ESB-aðild Kostnaður 8–10 milljarð- ar á ári eftir stækkun  Áhrif aðildar/26–27  Viðbrögð/10 GENGI hlutabréfa í líftæknifyrir- tækinu deCODE hækkaði um 0,95% á bandaríska Nasdaq-hlutabréfa- markaðinum í gær. Gengi bréfanna var 4,09 Bandaríkjadalir þegar markaðinum var lokað. Gengi bréfanna á mánudag var 4,05 dalir sem er lægsta gengi þeirra frá upphafi. Miðað við það var mark- aðsvirði deCODE um 16,5 milljarðar íslenskra króna. Markaðsvirði fé- lagsins fór hæst í 106,5 milljarða króna eftir að hlutabréf þess voru opinberlega skráð fyrir um 20 mán- uðum. Hlutabréfaverð deCODE hefur lækkað um tæp 60% frá síðustu ára- mótum. Bandarísku verðbréfafyrir- tækin JP Morgan og Robertson Stephens mæla enn með kaupum á hlutabréfum í félaginu. Fyrirtækið Shapman Advisory Group leggur hins vegar til að fjárfestar hinkri lít- ið eitt við og sjái hver framvindan verður. Gengi deCODE hækkaði í gær  deCODE/17 ÍBÚÐAVERÐ í Skuggahverfi í Reykjavík verður á bilinu 11,3–40 milljónir króna, að sögn Einars Inga Halldórssonar, framkvæmdastjóra fyrirtækisins 101 Skuggahverfi hf., en sala á íbúðunum er hafin. Ráð- gert er að fyrstu íbúðirnar verði af- hentar snemma árs 2004. Einar segir verðið fara eftir stærð og staðsetningu íbúðanna en þær verða á bilinu 54 til rúmlega 200 fer- metra að stærð. Auk þess sé um margar mismunandi gerðir íbúða að ræða. Alls verða byggðar 250 íbúðir í 18 íbúðabyggingum á svæðinu. Morgunblaðið/Arnaldur Byrjað að selja íbúðir í Skuggahverfi Verð íbúða allt að 40 milljónum  Íbúðaverð/13 SPJÖLL voru unnin á kirkjugarðin- um í Gufunesi í gærkvöldi en tilkynnt var um skemmdirnar til lögreglunnar í Reykjavík um áttaleytið. Skemmdir voru unnar á um 50 leið- um þar sem bæði var búið að sparka upp blómum, róta í leiðum og traðka á þeim. Ekki er vitað hverjir voru að verki, að sögn lögreglu sem þiggur allar upplýsingar um mannaferðir við kirkjugarðinn síðdegis í gær. Lög- reglan lítur málið alvarlegum augum þar sem um tilfinningalegt tjón er að ræða í mörgum tilvikum. Spjöll unnin á 50 leiðum í Gufunesi SIGURÐUR Grétar Ottósson, bóndi á Ásólfsskála, hóf slátt í gær á um 5 hektara túni fyrir sunnan bæinn. Aðspurður sagði hann að vorið hefði verið mjög gott. Kýrnar hefðu verið settar út 16. maí í góðan kúa- haga og núna 4. júní þegar hann hæfi slátt í sérstöku blíðviðri og 18 stiga hita vænti hann að sumarið yrði gott. Sláttur hefst að þessu sinni nokkru fyrr hér í sveit en í fyrra. Sláttur er hafinn undir Eyjafjöllum Holti. Morgunblaðið. ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.