Morgunblaðið - 11.07.2002, Side 19
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 2002 19
Sæktu um talhólf fyrir heimilissímann á fiínum
sí›um á siminn.is, í fljónustuveri Símans 800 7000
e›a í verslunum Símans um allt land.
Talhólf er símsvari heimilisins
Ef flú sækir um fyrir 12. ágúst 2002 gætir
flú unni› fer› fyrir tvo til útlanda.
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
IY
D
D
A
•
N
M
0
6
6
2
2
/s
ia
.is
Panta›u talhólf fyrir 12. ágúst
Ertu a› fara í frí?
Ekki missa af símtölum, fá›u flér talhólf.
Kynntu flér máli› á innkápu
símaskrárinnar e›a á siminn.is
Stærðfræðinámskeið
fyrir þá sem eru að byrja í háskóla
Tilgangur námskeiðsins er að undirbúa þátttakendur undir
árangursríkt háskólanám. Farið er vandlega yfir öll mikilvægustu
atriðin í námsefni framhaldsskólanna og algeng verkefni leyst.
Námskeiðið hefst laugard. 13. júlí og lýkur laugard. 17. ágúst.
Kennt er alla laugardaga frá kl. 13-16.30.
Nánari upplýsingar og skráning í síma 551 5593.
Tölvu- og stærðfræðiþjónustan
Brautarholti 4a, Reykjavík.
Vertu með og tryggðu þér forskot!
Vel menntaðir og vanir kennarar.VERSLUNIN Bónus var með
lægsta verðið á drykkjarvörum í
verðkönnun ASÍ sem gerð var 19.
júní síðastliðinn í 18 matvöruversl-
unum víðs vegar um landið. Þar
kostaði vegin karfa 1.678 kr. en verð-
ið er reiknað út frá raunverulegri
neyslu þar sem sett er saman karfa
með mest notuðu tegundunum í
landinu og er farið eftir neysluupp-
lýsingum frá Hagstofu Íslands.
Næst ódýrust var karfan í Krón-
unni á 1.807 kr., þar á eftir í Nettó á
1.814 kr. og í Kaskó á 1.830 kr.
Dýrust reyndist karfan vera í 11-
11 og kostaði hún 2.232 kr. Munur á
dýrustu og ódýrustu körfunni var
því 33%. Fimm aðrar verslanir voru
með körfu sem var yfir 30% dýrari
en í Bónus, þær voru Nóatún Sel-
fossi, Strax, 10-11 og Sparkaup á
Seyðisfirði og í Stigahlíð.
Um 75% verðmunur á tei
í 100 poka pakkningum
Verð var kannað á 50 drykkjar-
vörum og var Bónus oftast með
lægsta verðið eða 29 sinnum af þeim
31 vörum sem þar fengust. Kaskó
var með lægst verð í 8 tilvikum og
Krónan 7 sinnum.
Skagfirðingabúð var oftast með
hæsta verðið, 18 sinnum, en næst-
oftast eða í 16 tilvikum var verðið
hæst í Sparkaupum á Seyðisfirði, 11-
11 og 10-11. Mesti munur á hæsta og
lægsta verði eða 75% var á Melrose’s
tei í 100 poka pakkningum, dýrast
var það á 698 kr í Hlíðarkaupum á
Sauðárkróki en ódýrast á 329 kr. í
Nóatúni. Næst mestur munur, eða
69%, var á tei af sömu tegund í 50
poka pakkningum.
9 verslanir af 16 lækkað
verð síðan í apríl
Alls höfðu 9 verslanir af þeim 16,
sem einnig tóku þátt í könnun í apríl,
lækkað verð síðan þá og ein verslun
var með sama verðið. Karfan í Bónus
lækkaði mest eða um 3,7% og í Krón-
unni um 2,7%. Sex verslanir hækk-
uðu verð en hækkunin var óveruleg í
fjórum þeirra. Mest var hækkunin í
Fjarðarkaupum eða 3,6% en megin-
hluta hennar má skýra með því að
3% flatur afsláttur á kassa sem var
veittur í apríl hefur nú verið afnum-
inn. Hagkaup hækkuðu næstmest
eða um 1,7%. Hér er eingöngu um
verðsamanburð að ræða en ekki var
lagt mat á gæði vara eða þá þjónustu
sem veitt er í verslununum.
Verðkönnun ASÍ á drykkjarvöru í 18 verslunum
Bónus í flestum tilvik-
um með lægsta verðið
FYRSTU íslensku kartöflurnar á
þessu sumri komu í verslanir Nóa-
túns í dag. Þær koma frá Guðmundi,
bónda á Eyrarbakka, og verða til
sölu í öllum Nóatúnsbúðunum, að því
er fram kemur í fréttatilkynningu
frá Nóatúni. Um er að ræða nokkur
tonn en framboð gæti þó verið tak-
markað fyrstu dagana, síðan mun
það aukast. Um er að ræða premier
kartöflur og kostar kílóið 359 krón-
ur.
Nýjar kart-
öflur komn-
ar í hús
Morgunblaðið/Arnaldur