Morgunblaðið - 25.07.2002, Page 2
FRÉTTIR
2 FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isSkagamenn úr leik í
Evrópukeppninni / C2
Erlendum leikmönnum fjölgar
stöðugt í Noregi / C1
4 SÍÐUR12 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á FIMMTUDÖGUM
VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS
S É R B L A Ð Á F I M M T U D Ö G U M U M V I Ð S K I P T I , S J Á V A R Ú T V E G & A T H A F N A L Í
HORFUR á byggingamarkaði eru
óljósar um þessar mundir, að sögn
verktaka. Víkurfréttir greindu frá því
í fyrrakvöld að Keflavíkurverktakar
sæju fram á að þurfa að segja upp 70
iðnaðarmönnum vegna verkefna-
skorts hjá félaginu. Róbert Trausti
Árnason, forstjóri fyrirtækisins, vildi
ekki tjá sig um málið þegar eftir því
var leitað, en sagði málið verða tekið
fyrir á starfsmannafundi á mánudag.
Kristján Gunnarsson, formaður
Verkalýðs- og sjómannafélags Kefla-
víkur, gat ekki staðfest að uppsagn-
irnar væru á döfinni, þar sem ekki
hefði komið formleg tilkynning um
það frá Keflavíkurverktökum. Hann
sagðist hins vegar hafa frétt af þeim
frá nokkrum starfsmönnum fyrir-
tækisins.
Um næstu áramót lýkur einokun
Keflavíkurverktaka og Aðalverktaka
á Keflavíkurflugvelli, en fyrirtækin
hafa undanfarna hálfa öld setið ein að
öllum framkvæmdum á vellinum. Síð-
astliðin fjögur ár hefur einokuninni
verið aflétt í áföngum og við síðustu
úthlutun verkefna á vellinum fengu
Keflavíkurverktakar engin verkefni.
Kristján Gunnarsson segir atvinnu-
ástandið erfitt á Suðurnesjum og
uppsagnir sem þessar séu mjög
slæmar fyrir atvinnulífið.
Í samtali við Morgunblaðið í gær
töldu nokkrir verktakar framtíð iðn-
aðarins óljósa sem stendur. Fyrir ári
hafi verktakar getað séð fyrir verk-
efni næstu mánuði, en nú sé óvíst
hvert stefni. Eyjólfur Bjarnason,
byggingatæknifræðingur hjá Sam-
tökum iðnaðarins, telur að of mikið
ójafnvægi sé á markaðinum.
„Íslenskur byggingaiðnaður hefur
þurft að þola miklar sveiflur í verk-
efnaframboði og af þeim sökum er
iðnaðurinn óstöðugur. Skortur á
framtíðarsýn vekur ugg hjá mörgum
og framkvæmdir hins opinbera hafa
ekki komið á nógu góðum tíma fyrir
iðnaðinn.“ Að mati Eyjólfs væri betra
ef opinberum framkvæmdum væri
úthlutað þegar fyrirséð væri að fram-
kvæmdir á almennum markaði væru
minni, við það skapaðist aukið jafn-
vægi sem yrði greininni til góðs.
Stóriðja og hálendis-
framkvæmdir
Framkvæmdir í óbyggðum eða
vegna stóriðju hafa eðlilega mikil
áhrif á byggingaiðnaðinn. Beðið er
eftir ákvörðunum um framkvæmdir á
þessu sviði og töldu verktakar sem
Morgunblaðið ræddi við, að það
myndi skipta sköpum í náinni fram-
tíð. Fjöldi verktaka á suðvesturhorn-
inu leitar eftir sömu verkefnunum og
hálendisverkefni losa um þá spennu
sem myndast þegar fátt er um verk-
efni.
Keflavíkurverktakar þurfa að segja upp 70 iðnaðarmönnum
Verktakar óvissir
um framtíðina
ELLEFU ára drengur fótbrotn-
aði og lemstraðist illa við Land-
mannalaugar um hádegisbil í gær.
Hann hugðist fara af hestbaki, en
ekki vildi betur til en svo að hann
flæktist í öðru ístaðinu. Hesturinn
fældist við þetta og drengurinn
dróst með honum eina 50 metra.
Drengurinn, sem er af erlendu
bergi brotinn, var fluttur með
sjúkrabifreið til Reykjavíkur.
Læknir sem kvaddur var á slys-
stað taldi að hann hefði ekki hlotið
innvortis meiðsl.
Drengur slasaðist við
Landmannalaugar
TÖLVU, myndavélum og gsm-síma
var stolið í innbroti í Ármúla í gær-
morgun. Þá var einnig brotist inn í
íbúð á Neshaga og nokkru stolið,
meðal annars geislaspilara.
Á svipuðum slóðum, eða við Mel-
haga, var brotist inn í verslun og síg-
arettum, rafhlöðum, filmum og smá-
mynt stolið. Þá var brotist inn í
hesthús í Fjárborgum og verkfær-
um, hnökkum og göllum stolið.
Lögreglan hafði ekki haft hendur í
hári innbrotsþjófanna í gær.
Innbrot víða
um borg
ÞEIM nemendum frá Suðureyri sem
stunduðu nám í Grunnskóla Ísafjarð-
ar í fyrravetur verður leyft að halda
námi sínu áfram þar, en málefni
grunnskólanemenda á Suðureyri
hafa verið í sviðsljósinu undanfarið.
Þorleifur Pálsson, bæjarritari Ísa-
fjarðarbæjar, segir að þetta sé nið-
urstaða bæði bæjarráðs og fræðslu-
nefndar sem hafa fundað um málið.
„Þetta var rætt í bæjarráði á mánu-
dag þar sem lögð voru fram bréf frá
aðstandendum barna frá Suðureyri
sem hafa gengið í grunnskóla á Ísa-
firði,“ bætir hann við og bendir á að í
raun hafi ætlunin ekki verið að
hreyfa þá nemendur sem þegar
stunduðu nám í Grunnskóla Ísafjarð-
ar.
Hann leggur áherslu á að haft
verði samband við aðstandendur
þessara barna en fundi fræðslu-
nefndar lauk um miðjan dag í gær
þannig að ekki hafði náðst í alla for-
eldrana.
Hvert mál skoðað fyrir sig
Aðspurður hvað gerðist með þá
nemendur sem stunduðu nám á Suð-
ureyri en sótt hafa um skólavist á
Ísafirði á komandi skólaári, segir
Þorleifur að rætt verði sérstaklega
við foreldra þeirra og leitað eftir því
hvaða orsakir séu til grundvallar því
að þau sæki um skólavist á Ísafirði.
„Það geta komið upp eðlilegar
ástæður fyrir því að fólk sæki um
skólavist annars staðar. Hvert mál
verður því skoðað fyrir sig. Það get-
ur vel verið að barn þurfi sérkennslu
sem ekki er hægt að veita á minni
stöðum og þá vil ég ekki einangra
Suðureyri,“ undirstrikar hann og
leggur áherslu á að þegar foreldrar
frá Flateyri og Þingeyri sæki um
skólavist fyrir börn sín á Ísafirði þá
fái þeir sömu meðferð og þeir frá
Suðureyri.
„Það er náttúrlega komin og hefur
kannski alltaf legið fyrir lausn fyrir
þau börn sem hafa verið í Grunnskól-
anum á Ísafirði. Það stóð aldrei til
annað en að þau lykju námi sínu í
skólanum hér,“ ítrekar Þorleifur.
Grunnskólanemendur á Suðureyri
Leyft að halda
áfram námi
á Ísafirði
þremur. Þau heita Anton, Andri
og Aldís Sveinsbörn. Þau voru
ánægð með langafa og Guð-
mundur var ekki síður ánægður
ÞAÐ VAR sannkölluð ísveisla á
Vesturgötunni í gær þegar Guð-
mundur Kristinsson fór út í búð
með barnabarnabörnum sínum
með lífið. Það var „þurrt að kalla“
í Reykjavík í gær eins og þeir
segja á Veðurstofunni og að-
stæður til að borða ís því góðar.
Ís með langafa
Morgunblaðið/Golli
MITSUBISHI-JEPPI fór út í Jök-
ulsá í Lóni rétt fyrir klukkan 11 í
gærmorgun og rak bifreiðina um
sjö til átta hundruð metra niður
ána. Tveir hollenskir ferðamenn
voru þarna á ferð. Ók annar þeirra
bílnum út í ána og hugðist kanna
hvort hún væri fær en hinn mynd-
aði ferðalagið af bakkanum. Öku-
maðurinn ók bílnum yfir dýpi og
komst að grynningum en stökk síð-
an úr bílnum og mátti ekki tæpara
standa áður en áin hrifsaði bílinn
með sér. Bifreiðina rak síðan niður
ána en var loks dregin á þurrt með
hjálp Björgunarfélagsins á Horna-
firði sem kallað hafði verið til. Hol-
lendingarnir voru á leið inn í Lóns-
öræfi en villtust af leið. Jökulsá er
ófær á þessum stað á þessum tíma.
Jeppinn er gerónýtur eftir fang-
brögðin við ána.
Að sögn Sveinbjörns Steinþórs-
sonar hjá Björgunarfélaginu hefur
sveitin þurft að sinna þremur til
fjórum útköllum á ári af þessu tagi
og þá einkum við Skyndidalsá, sem
fellur í Jökulsá í Lóni, en þar er
farið yfir þegar ekið er í Lóns-
öræfi.
Jeppi lenti í Jökulsá
♦ ♦ ♦