Morgunblaðið - 25.07.2002, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 25.07.2002, Qupperneq 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2002 11 SKIPTA þurfti yfir á gamla vara- kerfi Flugmálstjórnar á sunnudag, þar sem nýja kerfið vann ekki eðli- lega. Greint var frá því fyrir helgina að hið nýja fluggagnakerfi, sem tekið var í notkun í vor í flugstjórnarmið- stöðinni í Reykjavík, hafi nokkrum sinnum frosið. Heimir Már Pétursson, upplýs- ingafulltrúi Flugmálastjórnar, segir að þetta hafi gerst annað slagið en menn telji það hins vegar ekki vera óeðlilegt. „Kerfið er auðvitað ungt en það er fullt af öðrum varakerfum sem við höfum, þannig að við lítum ekki á þetta sem sérstakt vanda- mál.“ Nýja flug- gagnakerfið vann óeðlilega SAMKVÆMT skoðanakönnun sem Gallup gerði fyrir Sparisjóð Reykjavíkur og nágrennis hefur bæði ímynd Sparisjóðsins og Bún- aðarbankans skaðast við umræðu um yfirtökutilboð hins síðarnefnda. Meirihluti, eða 52%, er andvígur sameiningu Búnaðarbanka og SPRON, 24% eru hlynnt samein- ingu SPRON og Búnaðarbanka en 24% eru á báðum áttum. Ástæður þess að SPRON bað Gallup að gera könnunina eru fyrst og fremst þær, að sögn Hebu Soffíu Björnsdóttur hjá markaðs- sviði SPRON, að rannsaka hvort umræðan og umfjöllun í fjölmiðlun hafi skaðað ímynd Sparisjóðsins. Að sama skapi lék stjórnendum forvitni á að vita hvar hugur al- mennings stæði gagnvart stöðu mála. Sigríður Margrét Oddsdóttir, ráðgjafi og verkefnisstjóri hjá Gall- up, kynnti könnunina á blaða- mannafundi í gær. Könnunin var framkvæmd 2.–14. júlí 2002, og var svarhlutfall tæp 60%, sem telst lágt. Ástæður þess eru taldar árs- tíminn þegar könnunin er gerð. Þrátt fyrir að úrtakið sé lítið end- urspeglar það þjóðina og gefur á þann hátt raunhæfar niðurstöður að mati Gallup. Könnun leiðir í ljós að 86,9% svarenda hafa orðið vör við um- ræðuna sem átt hefur sér stað vegna SPRON og yfirtökutilboðs- ins. Hlutfallslega flestir þeirra sem hafa orðið varir við umræðuna telja hana vera neikvæða fyrir bæði Sparisjóðinn og Búnaðarbankann. Einnig kom í ljós að svarendur töldu SPRON ekki verða rekinn með sama sniði ef Búnaðarbankinn myndi taka yfir reksturinn. Það endurspeglar áhyggjur viðskipta- vina og stofnfjáreigenda af breyt- ingu á Sparisjóðnum, sem starfs- menn hans hafa fundið fyrir, að sögn Hebu Soffíu Björnsdóttur. Þeir sem lýstu sig fylgjandi sam- einingu töldu flestir að um hagræð- ingu yrði að ræða. Þeir sem voru andvígir sameiningu töldu að minnkandi samkeppni væri óheppi- leg. Sameining SPRON við annan sparisjóð fær mest fylgi Meirihluti svarenda, 59%, var andvígur sameiningu SPRON og annars fjármálafyrirtækis, spari- sjóðs eða banka, en ef þeir sem voru sameiningu fylgjandi voru spurðir hvaða fyrirtæki helst ætti að sameinast kom í ljós að flestir eru fylgjandi sameiningu SPRON við annan sparisjóð, 43,6%, en fæstir fylgjandi sameiningu við Búnaðarbankann, 5,1%. Heba Soffía Björnsdóttir vakti sérstaka athygli á síðastnefndu nið- urstöðunum. Þær sýndu að fæstir þeirra sem á annað borð voru sam- þykkir sameiningu SPRON við annað fyrirtæki vildu sameina Sparisjóðinn og Búnaðarbankann. Andstaða við yfirtöku Búnaðarbankans Gallup gerði skoðanakönnun fyrir SPRON Í GÆR lauk fyrri hluta eðlisfræði- leikanna en þá sátu keppendurnir, sem allir eru framhaldsskólanem- endur, í 5 stunda glímu við þrjú eðlisfræðidæmi sem öll voru að hluta á háskólastigi. Nokkuð var um að fararstjórar keppnisliðanna mótmæltu dæmunum á þeirri for- sendu að þau væru utan efnis- skrár eðlisfræðileikanna. Indónes- ísku höfundar dæmanna léttu þá nokkuð eitt dæmið en juku skýr- ingarnar við annað. „Okkur fannst flestir liðirnir í fyrri tveimur dæmunum vera bara auðreiknanlegir,“ sögðu Kristján og Sigurður, nemendur við Menntaskólann á Akureyri. „Ef dæmin eru álitin þung þá erum við líklega að gera tóma vitleysu.“ Það kemur hins vegar ekki í ljós fyrr en í kvöld þegar fararstjór- arnir fá ljósrit af úrlausnum þeirra til yfirferðar. Leið- sögumaður íslenska liðsins, Nelda Riskawati, 21 árs gömul, ensku- stúdent við háskólann í Denpasar, ber drengjunum vel söguna og segir þá vera bæði skemmtilega og kurteisa. Fyrsta verkefni keppninnar fjallaði um jarðsjá, upplausnar- getu hennar og langdrægni miðað við mismunandi vinnutíðnir. Ann- að verkefnið fjallaði um raf- strauma í dýri sem grefur sig í sjávarbotn og skynjun rándýrs á sundi á rafboðunum. Þriðja verk- efnið var hefðbundið aflfræði- dæmi um vagn sem ýmist rúllar eða rennur niður eftir skábretti. Í dag sitja fararstjórarnir ein- angraðir við að ræða tilrauna- verkefni morgundagsins og þýða þau á móðurmál keppendanna. Keppendurnir eru líka einangr- aðir á hóteli sínu og hafa farsímar þeirra verið teknir af þeim til að koma í veg fyrir hugsanlegt svindl. Fyrri keppnisdegi lokið á ólympíuleikunum í eðlisfræði Framhaldsskólanemar leysa verkefni á háskólastigi Morgunblaðið/Viðar Ágústsson Dr. The Houw Liong, prófessor við Tækniháskólann í Bandung, leiddi hóp eðlisfræðinga sem samdi öll verkefni 33. Ólympíuleikanna í eðlisfræði. Hann kynnti fararstjórunum fræðilegu verkefnin 3 og mátti í 8 klst. taka við gagnrýni og laga verkefnin að óskum fararstjóranna. „UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ for- dæmir harðlega eldflaugaárás Ísr- aelsmanna á íbúðablokk í Gaza þar sem á annan tug manna lét lífið, þar á meðal konur og börn, og yfir hundrað manns særðust,“ segir í ályktun sem Morgunblaðinu hefur borist. Þar segir einnig: „Íslensk stjórnvöld hafa skilning á nauðsyn þess að stöðva hryðjuverk framin af Palestínumönnum. Hins vegar er ekki réttlætanlegt að beita til þess aðferðum á borð við aftökur án dóms og laga. Slíkar aðferðir eru óafsakanlegar og dráp á saklausu fólki á heimilum sínum er aldrei rétt- lætanlegt. Íslensk stjórnvöld eru þeirrar skoðunar að hvorki hernað- arlegt ofbeldi né sjálfsmorðsárásir séu til þess fallnar að leysa þann vanda sem við er að glíma fyrir botni Miðjarðarhafs. Eina leiðin er með samningum sem fela í sér stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínumanna og að öryggi Ísraels verði tryggt innan alþjóðlega viðurkenndra landa- mæra.“ Eldflaugaárás Ísraelsmanna fordæmd Utanríkisráðuneytið BORIST hefur kæra til samgöngu- ráðuneytisins vegna þeirrar ákvörðunar trúnaðarlæknis Flug- málastjórnar að veita ekki Árna G. Sigurðssyni flugstjóra flugskírteini á ný í kjölfar veikinda. Ráðuneytið undirbýr skipan kærunefndar, en þetta er í annað sinn sem kæru- nefnd er skipuð vegna máls hans. Lögmaður Árna G. Sigurðssonar hefur kært þá ákvörðun trúnaðar- læknis Flugmálastjórnar að Árna skuli ekki veitt flugskírteini á ný en hann missti skírteinið tíma- bundið vegna veikinda. Honum var veitt skírteini að nýju með tak- mörkunum, en hefur ekki flogið síðustu mánuði eftir að skírteinið rann út. Hægt er að skjóta ákvörðun trúnaðarlæknis til samgönguráðu- neytisins sem skipar þriggja manna kærunefnd til að taka málið upp. Auk fulltrúa ráðuneytisins til- nefna landlæknir og Félag ís- lenskra atvinnuflugmanna hvor sinn fulltrúa í nefndina og er nú beðið tilnefninga frá þeim. Mál Árna G. Sigurðs- sonar flugmanns Skipan kæru- nefndar undirbúin FRÉTTALJÓSMYNDASÝNING- IN World Press Photo hefst í Kringlunni 26. júlí og stendur til 6. ágúst. Sýningin er virtasta frétta- ljósmyndasýning í heimi og árlega er atvinnuljósmyndurum víða að úr heiminum boðið að taka þátt í ljós- myndasamkeppni sem tekur til frétta, málefna líðandi stundar, fólks, vísinda og tækni, íþrótta, lista, umhverfis og náttúru. Vinningsmyndirnar eru settar upp á sýningu World Press Photo og eru gefnar út í árbók sýningarinnar. Sýningin verður í yfir 70 listasöfn- um, galleríum og opinberum bygg- ingum í 40 löndum víðsvegar um heiminn. Það eru Kringlan, Hans Petersen, Íslenska auglýsingastof- an, Morgunblaðið og Jónar flutn- ingsfyrirtæki sem standa að sýning- unni á Íslandi. Samhliða sýningunni verður ljós- myndasýning á úrvali ljósmynda ljósmyndara Morgunblaðsins frá sama ári. Fréttaljósmyndara- sýning í Kringlunni AÐALFARGJALDAFLOKKUM Flugfélags Íslands hefur verið fækkað úr fjórum í þrjá og hækkuðu þeir fargjaldaflokkar sem eftir eru að meðaltali um 4,5% á þriðjudag. Árni Gunnarsson, sölu- og mark- aðsstjóri FÍ, segir að með þessum breytingum sé verið að gera far- gjaldaskrána gegnsærri og leggja jafnframt meiri áherslu á nettilboð en fleiri sæti verða nú til boða í hverju nettilboði. Hækkanirnar ganga jafnt yfir alla áfangastaði FÍ innanlands, verðskrá millilandaflugs félagsins er óbreytt en nú eru nettilboð einnig í boði til Færeyja og Grænlands. Árni bendir á að verðskrá félagsins hafi verið óbreytt í rúmlega eitt ár eða frá því í maí 2001. „Það sem við erum að gera er að breyta áherslum í verðskránni. Það er alltaf að aukast að viðskiptavinir okkar notfæri sér nettilboðin,“ sagði Árni og segir breytingarnar fela í sér aukið frelsi fyrir viðskiptavini flugfélagsins. Nýju fargjaldaflokkarnir þrír eru allir bókanlegir aðra leiðina gagn- stætt því sem áður var. Það sem af er árinu hafa 11.000 farþegar nýtt sér nettilboð og er að sögn Árna áætlað að sala á Netinu verði 500 milljónir króna á þessu ári. Sala á Netinu á fyrstu sex mánuðum ársins nam 250 milljónum króna. Þetta er meira en í fyrra þegar selt var á Netinu fyrir 200 milljónir en hægt hefur verið að bóka ferð á Netinu hjá félaginu frá því í febrúar 2001, að sögn Árna. Heildarsala á Netinu, bæði nettilboð og önnur sala, er 25% af heildarsölu fyrirtæk- isins. Almenn flugfargjöld Flugfélagsins hækka Meiri áhersla lögð á nettilboð ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.