Morgunblaðið - 25.07.2002, Qupperneq 12
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
12 FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Í SVÖRUM við umsögnum og at-
hugasemdum frá bæjaryfirvöldum í
Garðabæ og Hafnarfirði sem Vega-
gerðin hefur sent Skipulagsstofnun
vegna áforma um tvöföldun Reykja-
nesbrautar kemur meðal annars
fram að það skilyrði er sett af hálfu
Vegagerðarinnar að skipulag Hafn-
arfjarðar geri ráð fyrir að öll gatna-
mót við Reykjanesbraut verði byggð
mislæg í framtíðinni.
Eins og fram kemur í umsögn
bæjarstjórnar Hafnarfjarðar og
greint hefur verið frá hefur núver-
andi meirihluti aðrar áherslur varð-
andi breytingar á Reykjanesbraut-
inni en fyrri bæjarstjórn hafði.
Skipulagsstofnun hefur þegar
fengið sendar greinargerðir frá
Vegagerðinni um mat á umhverfis-
áhrifum vegna tvöföldunar Reykja-
nesbrautar frá Fífuhvammsvegi að
Álftanesvegi og frá Álftanesvegi að
Ásbraut og eru umrædd svör í
tengslum við umsagnir sveitarfélag-
anna vegna fyrirhugaðra fram-
kvæmda á brautinni.
Í bréfi sem Jónas Snæbjörnsson,
umdæmisstjóri Reykjanesumdæmis
Vegagerðarinnar, ritar undir segir
að Reykjanesbraut frá Mjódd að
Kaplakrika hafi verið lögð fram sem
skipulag í byrjun áttunda áratugar
síðustu aldar og ekki sé ágreiningur
við sveitarfélögin um að gert hafi
verið ráð fyrir stofnbraut með a.m.k.
tveimur akreinum í hvora átt. Þá
geri vegstaðall Vegagerðarinnar ráð
fyrir að hægt sé að breikka brautina
í þrjár akreinar í hvora átt. Bent er á
að vegurinn sé eini samfelldi stofn-
vegurinn sem liggur norður-suður
um höfuðborgarsvæðið og skipulag
hvers sveitarfélags svo og nýtt svæð-
isskipulag hafi gengið út frá Reykja-
nesbraut sem samfelldri stofnbraut
um svæðið. Með vísan til þessa setur
Vegagerðin það skilyrði að Hafnar-
fjörður geri ráð fyrir mislægum
gatnamótum við öll gatnamót
Reykjanesbrautar í framtíðinni.
Samstaða um breytingar
sunnan Lækjargötu
Fram kemur í bréfinu að í viðræð-
um við fulltrúa núverandi meirihluta
hafi komið fram að samstaða sé um
breytingar sunnan Lækjargötu, þ.e.
útfærslu vegarins suður fyrir kirkju-
garð.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur
óskað eftir endurskoðun á hönnun
vegarins frá Fjarðarhrauni að Lækj-
argötu og mun Vegagerðin í sam-
vinnu við bæjarstjórn fara yfir til-
lögur sem gerðar hafa verið og
leiddu til þeirrar niðurstöðu sem
matsskýrslan byggist á, að því er
segir í bréfi til Skipulagsstofnunar.
Bent er á að tillögur hafi meðal
annars verið gerðar um gatnamót
Lækjargötu og Reykjanesbrautar
þar sem Reykjanesbraut lá yfir
Lækjargötu. Einnig hafi verið gerð-
ar tillögur um tímabundnar lausnir
þar sem gatnamótin voru áfram í
plani. Þá segir að verði niðurstaða
yfirferðar sú að breytt verði frá til-
lögu matsskýrslu verði hún lögð fyr-
ir Skipulagsstofnun með fyrirspurn
um nauðsyn endurtekningar á mats-
ferlinu.
Mótmælt að sveitarfélög greiði
kostnað vegna hávaðavarna
Í svari við umsögn Garðabæjar
vegna lagningar vegarins er ítrekað
að kostnaður sem sérstaklega er til
kominn vegna þéttbýlis greiði við-
komandi sveitarfélag og er vísað í því
sambandi til vegalaga frá árinu 1994.
Í bréfi Vegagerðarinnar segir að
mótvægisaðgerðir vegna hávaða frá
umferðinni teljist til kostnaðar sem
sérstaklega sé til kominn vegna þétt-
býlis. Vegagerðin bendir á að hún
muni í samráði við Garðabæ skipu-
leggja framkvæmdina þannig að allt
jarðefni sem fellur til nýtist sem
best, t.d. í hljóðmanir.
Á fundi bæjarráðs Garðabæjar
sem haldinn var fyrr í vikunni mót-
mælti bæjarráð þeim skilningi Vega-
gerðarinnar að það sé hlutverk sveit-
arfélaga að greiða kostnað vegna
framkvæmda við hávaðavarnir sem
nauðsynlegt er að gera við stofn-
brautir. Bent er á að mælt sé fyrir
um framkvæmdirnar í reglugerð um
hávaða til að tryggja hljóðvist.
„Vegagerðinni, sem veghaldara og
ábyrgðaraðila vegarins, hlýtur að
vera skylt að sjá svo um að við fram-
kvæmd á tvöföldun Reykjanesbraut-
ar verði tekið tillit til þess réttar sem
fyrrgreind reglugerð tryggir íbúum
Garðabæjar. Við mat á umhverfis-
áhrifum vegna framkvæmdarinnar
ber að setja sem skilyrði fyrir fram-
kvæmdunum að þessara sjónarmiða
sé gætt.“
Vísar bæjarráð í því sambandi til
bréfs bæjarins til Vegagerðarinnar
frá í fyrra þar sem krafist var að-
gerða af hálfu Vegagerðarinnar til
varnar umferðarhávaða frá Hafnar-
fjarðarvegi.
Vegagerðin svarar umsögnum vegna fyrirhugaðrar stækkunar Reykjanesbrautar
Morgunblaðið/Jim Smart
Eins og fram hefur komið hefur meirihluti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar lýst því yfir að hann hafi aðrar áherslur varðandi breytingar á Reykjanes-
brautinni en fyrri bæjarstjórn hafði. Fram kemur í bréfi Vegagerðarinnar að samstaða sé um breytingar sunnan Lækjargötu, þ.e. útfærslu vegarins
suður fyrir kirkjugarð. Vegagerðin mun í samvinnu við bæjarstjórn fara yfir aðrar tillögur. Myndin er tekin við Reykjanesbraut og Ásbraut.
Öll gatnamót við Reykjanes-
braut verði mislæg í framtíðinni
Hafnarfjörður/Garðabær
HIN ÁRLEGA sumarhátíð Æskulýðs- og
tómstundaráðs Hafnarfjarðar var haldin á
Thorsplani í gær. Að sögn Árna Guð-
mundssonar, æskulýðs- og tómstundafull-
trúa Hafnarfjarðarbæjar, voru á bilinu
1000–1500 manns samankomin í bænum í
tilefni dagsins, bæði börn af leikja-
námskeiðum sumarsins, unglingar úr
vinnuskólanum, systkini og foreldrar.
Margt var gert til skemmtunar en eflaust
voru þeir sem eldri voru áhugsasamastir
um knattspyrnuleik milli bæjarstjórn-
armeðlima og úrvalsliðs ÆTH. Að sögn
Árna fóru bæjarstjórnarmeðlimir með sig-
ur af hólmi í leiknum og voru skiptar skoð-
anir meðal áhorfenda um hvort hlutdrægni
hefði gætt í dómgæslu, sem var í höndum
Árna sjálfs. Dómarinn bætti hins vegar
fyrir syndir sínar með því að gefa sleiki-
brjóstsykur á báða bóga.
Boðið var upp á ýmsa leiki og þrautir,
s.s. ratleik, víðavangshlaup og stígvéla-
hlaup að ógleymdu hinu árlega kassabíl-
aralli sem Hafnfirðingar hafa haldið í
heiðri svo áratugum skiptir, að sögn Árna.
Árni nefnir að áður fyrr hafi kassabíla-
rallið jafnan verið haldið á Linnetsstíg,
sem er ein brattasta gata bæjarins. Nú hafi
hins vegar verið brugðið á það ráð að færa
rallið niður á Strandgötu og reyndi þá ekki
síður á þann sem ýtti bílnum en leikni öku-
manna.
Fram kom einnig á hátíðinni hafnfirska
rappsveitin Diplomatics sem skipuð er 17
og 18 ára ungmennum og leiklistarhópur
vinnuskólans sýndi leikþátt. Þá sýndi
Bjarni töframaður listir sínar.
Börn og fullorðnir skemmta sér á sumarhátíð Æskulýðs- og tómstundaráðs Hafnarfjarðar
Morgunblaðið/Jim Smart
Þessar stúlkur kunnu augljóslega vel að meta veitingarnar sem á boðstólum voru. Ekki
spillir fyrir að vera með málningu sem hæfir deginum áður en tekið er til við að snæða.
Morgunblaðið/Jim Smart
Bjarni töframaður sýndi listir sínar sem virtust falla í góðan jarðveg hjá viðstöddum.
Meðferðis hafði hann m.a. þvottabjörn úr gervi sem hann notaði í nokkrum atriða sinna.
Á bilinu 1.000–1.500 manns á Thorsplani
Hafnarfjörður