Morgunblaðið - 25.07.2002, Qupperneq 18
KÁTIR dagar báru nafn með rentu
síðastliðna helgi en veðrið átti stóran
þátt í því hve vel hátíðin heppnaðist,
svo og undirbúningur og stjórnun.
Dagskráin hófst á föstudegi með
kassabílakeppni þar sem ungir öku-
menn sýndu listir sínar og myndlist-
arsýningar voru opnaðar. Í félags-
heimilinu Þórsveri var fullt hús en
dagskrá þar hófst með því að Þuríður
Vilhjálmsdóttir og Þórarinn Hjartar-
son fluttu íslenska tónlist frá ýmsum
tímum. Heimamenn voru einnig með
söng og grín svo mikil kæti ríkti í fé-
lagsheimilinu en í tjaldi á útimarkaðs-
svæðinu hélt yngri kynslóðin sig og
unglingahljómsveit spilaði þar af
krafti.
Eftir skemmtunina í Þórsveri lá
leiðin á Hafnarbarinn þar sem tónlist-
armaðurinn Viðar Jónsson frá
Reykjavík sá um fjörið.
Einstök veðurblíða var á laugar-
daginn en hitinn fór þá yfir 20 stig svo
fjölmennt var við höfnina í dorgveiði-
keppni þar sem verðlaun voru veitt
fyrir þyngstu fiskana. Seglskútan
Haukur frá Húsavík kom í opinbera
heimsókn til Þórshafnar á laugar-
dagsmorgni og boðið var upp á
skemmtisiglingar með henni allan
laugardaginn.
Kajakasiglingar voru líka í boði og
reyndust vinsælar.
Útimarkaðssvæðið var vel sótt og
sólarlandayfirbragð við sölutjöld og
útigrill. Þar var allt til sölu milli him-
ins og jarðar; margs konar handverk,
harðfiskur, brauð, kúfiskur frá Hrað-
frystistöðinni að hætti Sigga Hall og
það var heitt í kolunum á Fjallalambs-
grillinu. Börnin gátu farið á hestbak
og teymt var undir þeim um svæðið.
Í Þórshafnarkirkju voru klassískir
tónleikar þar sem ÞuríðurVilhjálms-
dóttir sópransöngkona söng sig inn í
hjörtu áheyrenda, ásamt Helgu
Bryndísi Magnúsdóttur píanóleikara
og Eydísi Fransdóttur óbóleikara, en
allur aðgangseyrir rann til kirkjunn-
ar.
Í „fitnesskeppninni“ var hörð bar-
átta en handhafar titilsins frá síðasta
ári mættu til að verja hann – og tókst
það. Knattspyrnan var með í spilinu
en hraðmót UNÞ var haldið við
íþróttahúsið. Að því loknu stökk ofur-
hugi úr flugvél í fallhlíf og lenti á vell-
inum en útsýnisflug var í boði allan
laugardaginn.
Skemmtilegt innlegg í hátíðahöldin
var þegar TF-Líf, þyrla Landhelgis-
gæslunnar, lenti á vellinum við Haf-
liðabúð, hús björgunarsveitarinnar,
og var fólki boðið að skoða hana en
síðan var flogið með tvo björgunar-
sveitarmenn frá Hafliða á haf út og
þeir látnir síga í sjóinn við mikinn
fögnuð áhorfenda.
Um kvöldið var kveikt í brennu við
gömlu hjallana en síðasta notagildi
þeirra var að kveikja í þeim, fólki til
skemmtunar. Þar var glatt á hjalla,
spilað og sungið og verðlaun veitt í
minjagripasamkeppni þar sem þær
Gréta Bergrún Jóhannesdóttir og
Hrafngerður Ösp Elíasdóttir urðu
hlutskarpastar. Þegar síðustu glæður
eldsins kulnuðu var brennugestum
ekið í bæinn á heyvagni, dregnum af
forláta dráttarvél.
Prestsbústaður
endurbyggður
Góður sólardagur endaði með
dansleik í félagsheimilinu þar sem
hljómsveitin PKK lék fyrir dansi
fram eftir nóttu. Á sunnudaginn hófst
dagskráin með því að messað var í
Sauðaneskirkju og síðan var athöfn í
gamla prestsbústaðnum á Sauðanesi
en endurbygging hússins hefur staðið
yfir í nokkur ár og er henni nú að
mestu lokið.
Gönguferð með leiðsögn var síðan
farin um Rauðanesið í Þistilfirði en
það var endapunkturinn á Kátum
dögum á Þórshöfn. Merkt gönguleið
er um Rauðanesið og þar er mikil
náttúrufegurð en sérkennilegar
klettamyndanir eru þar í sjó. Að-
standendur hátíðarinnar segja hana
hafa farið vel fram með fjölmenni og
ekki spillti einstök veðurblíða.
Veðurblíða á
„Kátum dögum“
Þórshöfn
Kátar Þórshafnarmeyjar í sölutjaldi.
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Út við ysta haf
þessa eyju vor skapari gaf.
Af sér fékk hún fætt
okkar fjölmennu, skrautlegu ætt.
Þegar júlísól
geisla sendir um lautir og hól
eyjan mín og eyjan þín
okkur kallar til sín.
Þessar ljóðlínur Iðunnar Steinsdóttur ómuðu undir
harmonikkuspili þegar afkomendur sómahjónanna El-
ínar Þóru Sigurbjörnsdóttur, 93 ára, og Óla heitins
Bjarnasonar útgerðarmanns, sem hefði orðið 100 ára
29. ágúst, komu saman fyrir utan æskuheimilið,
Sveinsstaði, til að afhjúpa stein þar í túninu til heiðurs
þeim hjónum og til minningar um ættarmótið. Ætt-
móðirin, Elín Þóra, geislaði af gleði innan um hvorki
meira né minna en 5 ættliði sem alls eru 100 manns.
Yngsti afkomandinn, sá hundraðasti, fæddist 16. júní
sl. og heitir Vilberg Elí Dagbjartsson.
Ævintýrið byrjaði fyrir 75 árum þegar þau gengu í
hjúskap Elín Þóra og Óli. Elín Þóra er fædd og uppalin
í Grímsey en Óli Bjarnason kom hingað unglingur með
móður sinni og stjúpa frá Þorgeirsfirði.
Saman eignuðust þau 7 börn, 3 dætur og 4 syni og
lifa 6 þeirra.
Elín Þóra hefur dvalið síðastliðin 14 ár í Grindavík
og búið þar í skjóli dætra sinna, Ingu og Birnu. En
hjartað slær fyrir Grímsey og Grímseyinga.
Elín Þóra, þessi bjarta og fallega ættmóðir, sagði
þegar hún horfði yfir stóra hópinn sinn: „ Ef þetta er
ekki ríkidæmi, þá er ríkidæmi ekki til.“
Morgunblaðið/Helga Mattína
Ættmóðirin og afkomendur hennar stilltu sér upp fyrir framan Félagsheimilið Múla í Grímsey.
Morgunblaðið/Helgi Daníelsson
Elín Þóra með 100. afkomandann,
Vilberg Elí Dagbjartsson. Með á
myndinni er systir hans Nína Marín.
Morgunblaðið/Helga Mattína
Hér er Elín Þóra með börnum sínum. Frá vinstri
Inga, Birna, Sigrún, Óli, Garðar og Willard.
Ef þetta er ekki ríkidæmi…
Grímsey
Héldu fjölmennt ættarmót út við ysta haf
LANDIÐ
18 FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HÁTÍÐIN „Á góðri stund“ í
Grundarfirði var í fyrsta sinn haldin
árið 1998 en árið áður hafði verið
haldin hátíð vegna 100 ára afmælis
verslunar í Grundarfirði. Sú hátíð
þótti takast svo vel að ákveðið var að
taka frá síðustu helgina í júlí til
slíkra hátíða. Það er FAG (Félag at-
vinnulífsins í Grundarfirði) sem hef-
ur haft veg og vanda af hátíðarhöld-
unum frá árinu 1998. Æ fleiri hafa
heimsótt Grundarfjörð þessa hátíð-
ardaga og hefur veðrið aldrei brugð-
ist þrátt fyrir að veðurspár hafi ekki
alltaf verið hliðhollar. Það kennir
margra grasa í dagskrá hátíðarinnar
í ár sem hin fyrri. Á föstudegi er m.a.
á dagskrá opnun sýningarinnar
„Koníak og kartöflur“ þar sem
fjallað er um Frakka í Grundarfirði,
þá verður haldin hin víðfræga grill-
veisla Árna í Tanga, opið töltmót,
skoppugjarðakeppni og suðræn tón-
listarsveifla í samkomuhúsinu um
kvöldið. Á laugardegi er Sumarmót
Bylgjunnar með öllu tilheyrandi s.s
golfmóti, sundmóti, skemmtidagskrá
og tónlistarflutningi. Ýmis skemmti-
atriði heimamanna verða á hátíðar-
svæði við höfnina, söngsveitin Sex í
sveit heldur útgáfutónleika á veit-
ingahúsinu Krákunni en um kvöldið
verður bryggjuball og einnig stór-
dansleikur í samkomuhúsinu. Hátíð-
inni lýkur síðdegis á sunnudag. Alla
dagana bjóða veitingahús staðarins
upp á dagskrá af ýmsu tagi, þá verða
gönguferðir í boði og margt fleira en
nánari dagskrá má finna á slóðinni
http://www.grundarfjordur.is.
„Á góðri stund“ í Grund-
arfirði um helgina
Grundarfjörður
Bómullar-satín
og
silki-damask
rúmföt
Skólavörðustíg 21,
sími 551 4050
Ertu
að f
ara
í frí
?
Panta›u
Frífljónustu
Morgunbla›sins
á
e›a í síma 569 1122...í útileguna
N
O
N
N
I O
G
M
A
N
N
I I Y
D
D
A
/ sia
.is / N
M
0
6
8
2
1