Morgunblaðið - 25.07.2002, Síða 22
ERLENT
22 FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Allar vörur í þessum
bæklingi eru einnig
fáanlegar ípóstkröfu.Sími 750 7000
www.rumfatalagerinn.is
-30%
útsala á plasthúsgögnum
Jóhannes Páll II páfi kom í gær til
Toronto í Kanada en þar hyggst
hann taka þátt í heimsmóti kaþ-
ólskra ungmenna sem tugþúsundir
manna frá um 170 löndum sækja.
Páfi hvíldist í gær á Strawberry Isl-
and í stöðuvatninu Simcoe eftir
flugferðina vestur um haf. Hann er
orðinn 82 ára gamall og mjög
heilsuveill, aðstoðarmaður sést hér
hjálpa honum niður landgang flug-
vélarinnar. Útbúin hafði verið lyfta
handa kirkjuhöfðingjanum en hann
kaus að nota fremur þrepin og kom
seigla hans jafnt aðstoðarmönnum
hans sem áhorfendum á óvart.
Jóhannes Páll var áður fyrr mik-
ið fyrir langar gönguferðir, og átti
hann það til að fara í langar göngur
í ítölsku Ölpunum. Hann þurfti hins
vegar að láta af þessari dægradvöl
sinni eftir því sem heilsa hans fór
hrakandi upp úr 1990. Lét hann sér
því nægja að ferðast um eyjuna á
golfkerru. Þá fór hann í stutta sigl-
ingu í kringum Strawberry Island
og nærstaddar eyjar.
Blaðamenn fá ekki að koma á eyj-
una, en fjórtán ungmenni munu
snæða hádegisverð með páfanum á
föstudag. Reuters
Páfinn
heimsækir
Toronto
BANDARÍSKA hátæknifyrirtækið
Boeing hefur gert samning við
evrópsku flug- og geimvarnasam-
steypuna EADS um samstarf við
gerð varnarkerfa með gagnflaug-
um til að nota gegn langdrægum
óvinaeldflaugum og var skýrt frá
viðræðunum á flugsýningunni í
Farnborough í Bretlandi í vikunni.
Talið er að samstarfið geti orðið
grundvöllur að bandarísk-evr-
ópskri geimvarnaáætlun.
„Með þessu samstarfi er lagður
grunnur að samskiptum okkar á
sviði hnattrænna gagnflaugavarna
sem munu þegar upp er staðið
verja Bandaríkin og bandamenn
þeirra fyrir hnattrænum hættum,“
sagði í sameiginlegri yfirlýsingu
EADS og Boeing á þriðjudag. Bo-
eing er öflugasti framleiðandinn í
Bandaríkjunum á búnaði til smíði
gagnflaugavarnakerfa. EADS er
stærsta fyrirtækið í geimflug-
stækni í Evrópu og annað í röðinni
á heimsvísu. Boeing sagðist einnig
hafa gert svipaða samninga um
samvinnu við hátæknifyrirtækið
BAE Systems í Bretlandi og
Alena-Spacio, sem er deild í
ítalska stórfyrirtækinu Finmecc-
anica.
Talið draga úr andstöðu við
áætlunina
Stjórn George W. Bush Banda-
ríkjaforseta mun hafa hvatt Bo-
eing til samstarfsins við evrópsku
fyrirtækin með það í huga að
draga úr andúð í Evrópu við geim-
varnaáætlunina. Rússar voru lengi
mjög andvígir hugmyndunum um
geimvarnir en hafa látið af and-
stöðunni. Bush segir áætlunina
nauðsynlega vegna hættu frá „út-
lagaríkjum“ á borð við Írak, Íran
og Norður-Kóreu sem hafa reynt
að koma sér upp langdrægum eld-
flaugum og gereyðingarvopnum.
Phil Conduit, aðalframkvæmda-
stjóri Boeing, sagði að samkomu-
lagið markaði þáttaskil. „Við álít-
um að öflugt samstarf yfir
Atlantshafið sé lykillinn að geim-
varnaáætlunum og við getum
byggt brú og ýtt undir tilfinn-
inguna fyrir því að hagsmunir
Evrópu og Bandaríkjanna fari
saman,“ sagði hann á fréttamanna-
fundi. Rainer Hertrich, aðalfram-
kvæmdastjóri EADS, bætti við að
Evrópumenn gerðu sér æ betur
ljóst hver verkefnin væru á sviði
varnarmála og hver hættan af ger-
eyðingarvopnum væri. „Við teljum
að mikilvæg rök hnígi að því að
Bandaríkin og Evrópulöndin vinni
saman að því að takast á við sam-
eiginlega hættu,“ sagði hann.
Fyrirhugað var að danskir og
bandarískir embættismenn hittust
í Kaupmannahöfn í gær til að ræða
geimvarnaáætlun Bandaríkjanna.
Bandaríkjamenn reka mikilvæga
ratsjárstöð í Thule á Grænlandi
sem gæti orðið mikilvæg ef búið
verður til gagnflaugakerfi. Danir
fara með utanríkis- og varnarmál
fyrir Grænlendinga en talsmaður
danska utanríkisráðuneytisins
sagði að ríkisstjórnin myndi ekki
fitja að fyrra bragði upp á málinu,
fyrst yrði að koma „bein umleitun“
frá Bandaríkjamönnum.
Þáttaskil í varnarsamstarfinu yfir Atlantshafið
Samstarf um þróun
geimvarnaáætlunar
Farnborough í Bretlandi. AFP.
Boeing og evrópsk hátæknifyrirtæki
hyggjast vinna saman að gerð varnarkerfa
DEILA um fram-
leiðslu erfðabreyttra
matvæla er skyndi-
lega orðin helsta
kosningamálið á
Nýja-Sjálandi en
þingkosningar fara
fram í landinu nk.
laugardag. Þykir
líklegt að deilan
verði til þess að
Helen Clark, for-
sætisráðherra og
leiðtoga Verka-
mannaflokksins,
mistakist það ætlun-
arverk sitt að
tryggja sér hreinan
meirihluta á þingi.
Sex ár eru liðin síðan Nýsjá-
lendingar tóku upp hlutfallskosn-
ingakerfi en breytingin hefur vald-
ið því að engum einum flokki hefur
frá þeim tíma tekist að tryggja sér
hreinan meirihluta á þingi. Fram
að síðustu helgi bentu skoðana-
kannanir þó sterklega til þess að
Verkamannaflokknum, sem farið
hefur fyrir tveggja flokka sam-
steypustjórn undanfarin þrjú ár,
myndi takast það að þessu sinni.
Niðurstöður könnunar sem birt
var á mánudag benti hins vegar til
að Clark fengi 41% atkvæða, sem
einungis myndi tryggja Verka-
mannaflokknum 50 af 120 þingsæt-
um.
Ástæða þessara sviptinga er sú
yfirlýsing græningja, sem vörðu
ríkisstjórn Verkamannaflokksins
og Samfylkingar vinstri manna
falli á liðnu kjörtímabili, að þeir
myndu fella hverja þá stjórn sem
hygðist leyfa dreifingu og sölu
erfðabreyttra landbúnaðarafurða.
Clark svaraði því til að hún gæti
ekki sætt sig við hótanir sem þess-
ar frá samstarfsflokkum en svo
virðist sem græningjum hafi tekist
að koma róti á fylgið. Engu að síð-
ur er talið líklegt að Clark verði
áfram forsætisráðherra en hún
gæti þó þurft að sætta sig við að
þurfa enn að leita eftir samstarfi
við 2–3 minni flokka.
Kosningar á Nýja-Sjálandi
Erfðabreytt
matvæli helsta
hitamálið
Auckland. AFP.
Helen Clark, forsætisráðherra Nýja-Sjálands.
Reuters
KÓLUMBÍSK yfirvöld segja
Uppreisnarher Kólumbíu
(FARC) hafa lagt á ráðin um að
gera sjálfsmorðsárás með flug-
vél á forsetabústaðinn eða þing-
húsið á þjóðhátíðardaginn þann
20. júlí eða þegar Alvaro Uribe,
nýkjörinn forseti landsins tekur
við embætti þann 7. ágúst.
German Gustavo Jaramillo,
yfirmaður heraflans, segir yfir-
völd hafa komist að þessum fyr-
irætlunum eftir að herinn hand-
samaði Jorge Enrique
Carvajalino, einn af leiðtogum
FARC, þann 18. júlí og að þau
hafi upplýsingar um að árásinni
hafi verið aflýst í kjölfar hand-
tökunnar. Þá segir hann upp-
reisnarmenn hafa hugsað sér að
stela flugvél til verksins og að
flugmaður hafi þegar verið ráð-
inn.
Kólumbía hefur farið fram á
aðstoð Bandaríkjanna við að
koma í veg fyrir hugsanlegar
hryðjuverkaárásir er Uribe tek-
ur við embætti en hann hefur
heitið því að ráðast af fullri
hörku gegn skæruliðum FARC.
Komið í veg
fyrir sjálfs-
morðsárás
Bogota. AFP.
Nýjar
línur
á
nýjum stað
undirfataverslun
Síðumúla 3-5
Trúlofunar- og giftingahringir
20% afsláttur
www.gunnimagg.is