Morgunblaðið - 25.07.2002, Síða 25
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2002 25
Sæktu um talhólf fyrir heimilissímann á fiínum
sí›um á siminn.is, í fljónustuveri Símans 800 7000
e›a í verslunum Símans um allt land.
Talhólf er símsvari heimilisins
Ef flú sækir um fyrir 12. ágúst 2002 gætir
flú unni› fer› fyrir tvo til útlanda.
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
IY
D
D
A
•
N
M
0
6
6
2
2
/s
ia
.is
Panta›u talhólf fyrir 12. ágúst
Ertu a› fara í frí?
Ekki missa af símtölum, fá›u flér talhólf.
Kynntu flér máli› á innkápu
símaskrárinnar e›a á siminn.is
ÍSRAELSKA þingið festi á þriðju-
daginn í lög þá hefð að strangtrúað-
ir gyðingar væru undanþegnir her-
skyldu. Þeir sem telja þetta
misrétti mótmæltu lagasetningunni
harðlega. Lögin voru naumlega
samþykkt í þinginu, en samkvæmt
þeim eiga strangtrúaðir rétt á að
taka sér árs frí frá trúarfræðaiðkun
þegar þeir eru 22 ára til þess að
hugleiða hvort þeir vilji snúa aftur
til trúaríhugunar eða þjóna í hern-
um í skemmri tíma en þau þrjú ár
sem öllum ísraelskum ungmennum
er skylt að gegna herþjónustu.
Hvort heldur hinir strangtrúuðu
velja verða þeir undanþegnir fullri
herskyldu.
Með samþykkt þingsins lauk
hörðum umræðum er staðið hafa í
tvö ár og enn aukið bilið á milli
hinna trúuðu og hinna veraldlegu í
Ísrael, en einn þingmaður lýsti
þeirri skiptingu sem „tveim heim-
um, tveim pólum; himni og jörð“.
Strangtrúaðir gyðingar segja að
rannsóknir sínar á Tórunni, helgi-
riti gyðinga, séu nauðsynlegar til
þess að tryggja að gyðingdómur
haldi áfram að blómstra og að Guð
haldi áfram að veita gyðingum
vernd. Þeir óttast líka að þurfi þeir
að blanda geði við gyðinga sem ekki
iðka trúna, einkum konur, muni
þeir þurfa að takast á við freist-
ingar heimsins.
Umdeild hefð lögfest á ísraelska þinginu
Strangtrúaðir und-
anþegnir herskyldu
Jerúsalem. The Los Angeles Times.
NÝ RÍKISSTJÓRN sem Jacques
Chirac Frakklandsforseti hefur
skipað hefur rekið yfirmann að-
gerða leyniþjónustunnar utan
Frakklands (DGSE), Jean-Claude
Cousseran. Fyrir um það bil mán-
uði skýrði dagblaðið Le Monde frá
því að Chirac teldi Cousseran hafa
annaðhvort staðið fyrir eða leyft
að gerð væri með ólögmætum
hætti könnun á fjármálum forset-
ans.
Nýr yfirmaður DGSE verður
Pierre Brochand sem er reyndur
stjórnarerindreki, að sögn BBC.
Le Monde sagði að Chirac teldi
einnig að yfirmaður deildar gagn-
njósna innanlands (DST), Jean-
Jacques Pascal, hefði leyft eða fyr-
irskipað rannsókn á meintum fjár-
málatengslum Chiracs við Rafiq
Hariri, auðkýfing og forsætisráð-
herra Líbanons, og Shoichi Osada,
fyrrverandi kaupsýslumann í Jap-
an. Pascal var rekinn fyrr í mán-
uðinum. Francois Hollande, for-
maður Sósíalistaflokksins, fullyrðir
að ríkisstjórn flokksins hafi aldrei
reynt að misnota leyniþjónustuna
til að grafa upp meint hneyksli
andstæðinga sinna.
Orðrómur hefur lengi verið á
kreiki um að árið 1988 hafi líb-
önskum herflokkum, er njóta
stuðnings Írana, verið með leynd
greitt lausnargjald til að frelsa
fimm franska gísla þeirra en
franskir stjórnmálamenn hafi stol-
ið hluta fjárins. Chirac var for-
sætisráðherra árið 1988.
Njósnaforingi rekinn