Morgunblaðið - 25.07.2002, Side 27
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2002 27
asta tónskáldið sem Frakkar áttu á
fyrri hluta 20. aldar en hann lést
aðeins 29 ára gamall árið 1940. Síð-
asta verk tónleikanna var samið í
minningu hans.
Ágúst starfaði sem kantor og
organisti við St. Jósefskirkju í
Hafnarfirði á árunum 1993–2000.
Jafnframt hefur hann starfað við
afleysingar, aðallega í Hallgríms-
kirkju. Veturinn 2000–2001 stund-
aði Ágúst nám í orgelleik hjá pró-
fessor Hans-Ola Ericsson í Piteå í
Svíþjóð.
Á HÁDEGISTÓNLEIKUM í Hall-
grímskirkju í dag, kl. 12–12.30,
leikur Ágúst Ingi Ágústsson frönsk
lög á Klais-orgelið. Ágúst Ingi er
einn nemenda Harðar Áskelssonar
og lærði á Klais-orgel Hallgríms-
kirkju eins og allir hinir organist-
arnir sem koma fram á fimmtu-
dagstónleikum tónleikaraðarinnar
„Sumarkvöld við orgelið“.
Efnisskráin einkennist af því að í
ár eru hundrað ár liðin frá fæðingu
franska tónskáldsins Maurice Dur-
uflé. Eftir Duruflé leikur Ágúst
Ingi fyrst Prelúdíu úr Svítu op. 5,
þá Fúgu um stef tímaslaganna í
dómkirkjunni í Soisson op. 12 og að
lokum Fúgu úr Prelúdíu og fúgu
um nafn Alains op. 7.
Inn á milli leikur hann verk eftir
tvö önnur þekkt frönsk tónskáld 20.
aldar. Joi et clarté des corps glor-
ieux er 6. þáttur verks Oliviers
Messiaens Les corps glorieux sem
hann skrifaði 1939. Hitt verkið er
Tilbrigði um stef eftir Clément
Jannequin eftir Jehan Alain. Alain
var af mörgum talinn eitt efnileg-
Morgunblaðið/Golli
Ágúst Ingi Ágústsson við Klais-orgelið í Hallgrímskirkju.
Frönsk lög í
Hallgrímskirkju
SÝNINGUM á leikritinu Johnny
Casanova í uppfærslu Ofleiks fer nú
fækkandi og eru síðustu sýningar í
Tjarnarbíói í dag og á sunnudag,
báðar kl. 20. Höfundur og leikstjóri
er Jón Gunnar Þórðarson. Sýningin
er styrkt af Reykjavíkurborg, Hinu
húsinu og Ungu fólki í Evrópu.
„Fulltrúar frá framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins voru á ferð um
Evrópu að skoða þau verkefni sem
Ungt fólk í Evrópu styrkir og var
lokaverk þeirra að skoða fram-
kvæmd og sýningu verksins Johnny
Casanova í Tjarnarbíói. Fulltrúarnir
voru mjög hrifnir af sýningunni og
hvöttu Ofleik til þess að fara með
sýninguna víðar um Evrópu og
nefndu í því sambandi England og
Brussel þar sem höfuðstöðvar Evr-
ópusambandsins eru. Ýmsir mögu-
leikar eru fyrir ungmenni að fá
styrki frá Ungu fólki í Evrópu og
töldu fulltrúar þeirra mikla mögu-
leika á að Ofleikur fengi meira fjár-
magn til þess að fara víðar með sýn-
inguna,“ segir Jón Gunnar, leikstjóri
sýningarinnar.
Johnny
Casanova
á förum
alltaf á föstudögum