Morgunblaðið - 25.07.2002, Qupperneq 37
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2002 37
framt telur Fjármálaeftirlitið að
stjórn sparisjóðsins beri við ákvörð-
un um framsal á stofnfjárhlutum að
gæta hagsmuna sparisjóðsins um-
fram hagsmuni stofnfjáreigenda.
Meðal annars beri stjórn að hafna
framsali á stofnfjárhlutum ef ekki er
sýnt fram á að sparisjóðurinn, þ.e. sá
hluti hans sem ekki er stofnfjáreign,
muni njóta þeirrar verðmætisaukn-
ingar sem í áformunum felast.“
Nokkur orð skulu höfð um þessa
liði.
Nýjar víglínur
Um 1. Hér tekur Fjármálaeftirlitið
afstöðu til þess atriðis sem megin-
þungi málflutnings stjórnar SPRON
hafði lotið að, þ.e. hvort heimilt væri
að lögum, að eiga viðskipti með stofn-
fjárhluti á hærra verði en framreikn-
uðu nafnverði. Svarið er afdráttar-
laust. Slík viðskipti eru talin heimil og
tekið fram að með þeim sé ekki geng-
ið á eigið fé sparisjóðsins, en stjórn
SPRON hafði haldið allt öðru fram
um þetta. Það er svo einkennandi fyr-
ir þann, sem hefur rýran málstað, að
leita alltaf að nýjum víglínum, þegar
hann hefur hrakist úr þeim fyrri.
Þess vegna byggist málflutningur
stjórnar SPRON ekki lengur á þessu
fyrrverandi aðalatriði, heldur nýjum
atriðum sem greinir í 2. og 3. tl. að
framan. Um þá er eftirfarandi að
segja.
Nýtt mat mun fara fram
Um 2. Í þessum lið telur eftirlitið,
að nýtt mat á markaðsvirði spari-
sjóðsins verði að fara fram verði hon-
um breytt í hlutafélag eftir að Bún-
aðarbankinn verður orðinn eigandi
meirihluta stofnfjár í sjóðnum. Ekk-
ert er við þetta að athuga. Af hálfu
bankans liggur fyrir, að slíkt mat
muni fara fram við breytinguna, þeg-
ar að henni kemur. Það mat verður
að sjálfsögðu byggt á forsendum í
rekstri sparisjóðsins við hinar
breyttu aðstæður. Komi þá upp álita-
efni um sjónarmið við mat á markaðs-
virði sparisjóðsins verða þau að sjálf-
sögðu afgreidd, þegar að því kemur.
Ekkert í þessu hefur minnstu áhrif á
gildi eða lögmæti samnings fimm-
menninganna við bankann.
Samþykkis stjórnar
verður aflað
Um 3. Það veldur engum vanda í
framkvæmd samkomulagsins, að
Fjármálaeftirlitið telji ekki unnt að
gera almenna samþykkt á fundi
stofnfjáreigenda um, að stjórn spari-
sjóðsins eigi ekki að leggjast gegn
sölusamningum um stofnféð. Verði
tilskilinn meirihluti fyrir hendi á
fundi stofnfjáreigenda, getur hann
vikið stjórninni frá og kosið nýja.
Þetta verður því aðeins nauðsynlegt
að gera ef sú stjórn sem nú situr lýsir
yfir því að hún vilji ekki hlýða vilja 2⁄3
hluta stofnfjáreigenda, sem hún þó
sækir umboð sitt til. Það er reyndar
tilgreind forsenda í samningnum að
þetta gangi eftir. Öll viðskiptin, sem
fyrirhuguð eru, virða hagsmuni
sparisjóðsins til fulls. Þeir hagsmunir
felast í því, að sparisjóðurinn verði
vel rekinn þannig að fé hans ávaxtist
eins vel og kostur er. Við breytingu á
sparisjóðnum í hlutafélag, þegar til
hennar kemur, verður að sjálfsögðu
farið í einu og öllu eftir lögunum um
þetta efni frá 2001, og eigið fé sjóðs-
ins lagt í sjálfseignarstofnun til ráð-
stöfunar í þágu menningar- og líkn-
armála.
Samningurinn stenst lög
Af framansögðu ættu allir læsir
menn að sjá vel, að engir annmarkar
eru á að framfylgja samningi fimm
stofnfjáreigenda við Búnaðarbanka
Íslands hf. allt til enda. Það er sama
hversu oft stjórn SPRON reynir að
endurtaka fullyrðingar sínar um að
samningurinn standist ekki lög.
Hann heldur áfram að standast þau.
Höfundur er hæstaréttarlögmaður.
4 stk. í pakka verð kr. 2.300.
Kanna í stíl kr. 2.995.
5 mismunandi gerðir.
PIPAR OG SALT
Klapparstíg 44 Sími 562 3614
DARTINGTON GLÖS
Til að auglýsa á þessari síðu hafðu
samband við okkur í
síma 569 1111 eða sendu okkur
tölvupóst á augl@mbl.is