Morgunblaðið - 25.07.2002, Qupperneq 49
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2002 49
Hrabbý opnaði kvenfataverslunina
sína „Hjá Hrafnhildi“ fyrst í Sævar-
landi þar sem hún bjó og síðar þegar
plássið varð of lítið flutti hún á Engja-
teig þar sem hún hefur rekið eina
glæsilegustu kvenfataverslun lands-
ins. Það var svo gaman að sjá fyr-
irtækið stækka og blómstra og sjá
gleðina hjá henni yfir því hversu vel
gekk enda lagði hún sig alla fram og
uppskar eftir því. Þannig var allt sem
hún tók sér fyrir hendur enda var ég
oft búin að segja við hana að það væri
alveg sama hvernig fyrirtæki hún
hefði stofnað þá hefði það gengið vel,
hún hafði þessa meðfæddu „busi-
ness“-hæfileika sem ekki eru öllum
gefnir og þessa ómældu orku til að
vilja vinna verk sitt vel og gera alltaf
betur næsta dag.
Það eru svo margar minningar sem
koma upp í hugann þegar hugsað er
til baka og svo ótal margt sem við
gerðum saman. Allar gönguferðirnar
okkar, gamlárskvöldin sem ég og fjöl-
skylda mín fengum að njóta í Sæv-
arlandinu o.fl. Hún hélt svo vel utan
um allt og alla, það var svo gott að
koma til hennar, alltaf var sama hlýj-
an.
Hún var mér sem besta systir, við
töluðum saman daglega og eins og
hún sagði við mig þá vorum við báðar
heppnar að eiga skilningsríka eigin-
menn sem gátu unnt okkur þess.
Hún Hrabbý mín var svo mikil
mamma og það dýrmætasta í lífi
hennar voru börnin hennar, Tony og
barnabörnin og oft talaði hún um það
að hún hefði ekki getað fengið betri
tengdason en hann Hjört. Hún var
stöðugt að hugsa um þau og gaf þeim
allt það besta sem hún gat. Hún var
svo lánsöm að fá að halda á yngsta
barnabarni sínu henni Hrafnhildi
Maríu undir skírn hinn 11. júlí sl. og
það var mikið stolt amma sem stóð
þar með fjölskyldu sína sér við hlið.
Það er víst þannig að manni er ekki
ætlað að skilja þetta líf. Það er alltaf
jafnóréttlátt þegar lífið er tekið af svo
ungu fólki í blóma lífsins. Það er aldr-
ei hægt að sætta sig við það, það er
aðeins hægt að læra að lifa með því.
Ég og fjölskylda mín vonum að guð
gefi Toný, Ingu Rós og fjölskyldu,
Ásu Björk, Braga, foreldrum hennar
þeim Ingu og Sigurði, systkinum og
öðrum ættingjum styrk til þess að
komast í gegnum þessa miklu sorg.
Megi góður guð blessa minningu
hennar.
Guðlaug Nielsen.
Ég er þakklát fyrir að hafa notið
vináttu Hrafnhildar Sigurðardóttur
síðan á unglingsárum. Við vorum
bekkjarsystur frá fyrsta ári okkar í
Verzló haustið 1967. Hún skar sig dá-
lítið úr hópnum, nýkomin heim frá út-
löndum þar sem hún hafði alist upp –
klæðnaðurinn var nokkuð sérstæður,
kjólarnir litskrúðugri en algengast
var, og háttvísin áberandi. Þrátt fyrir
að Hrabbý héldi sérkennum sínum
alla tíð féll hún fljótlega mjög vel í
hópinn og eignaðist ákaflega marga,
góða og trygga vini.
Hrabbý átti einkar auðvelt með að
laga sig að aðstæðum og skynja hvað
var við hæfi hverju sinni. Hún naut
þess að umgangast fólk og það fann
fólk og sótti í félagsskap hennar. Allt
sem hún fékkst við fannst henni
spennandi og skemmtilegt og hún
hellti sér út í leik og starf af eðlislæg-
um ákafa og krafti. Frá fyrstu stundu
fannst henni svo gaman að þeim störf-
um sem hún tók sér fyrir hendur að
hún sinnti þeim vakin og sofin.
Hrabbý var ákaflega fjölhæf og
góður námsmaður. Hún hefði vafalít-
ið getað lagt fyrir sig störf á fjölmörg-
um sviðum og hvarvetna vegnað vel.
Á æskuárunum átti hún sér þann
leynda draum að verða söngkona.
Vegna langvarandi búsetu erlendis
hafði hún fylgst með Eurovision-
söngkeppninni frá upphafi, löngu áð-
ur en þorri Íslendinga vissi um hana –
og hún kunni flest vinningslögin og
textana utan að. Ég minnist þess þeg-
ar ég var nýbúin að fá bílpróf, þá
rúntuðum við gjarnan um miðborgina
og Hrabbý söng fyrir mig vinningslög
á ýmsum tungumálum – ensku,
frönsku og þýsku. Mér fannst hún
alltaf syngja betur en nokkur vinn-
ingshafanna.
Í sjötta bekk í Verzló höfðu stúd-
entsefnin allar klær úti til að afla
nægilegs fjár til útskriftarferðarinn-
ar. Við lögðum ýmislegt á okkur en
sjoppan í skólanum stóð þó undir
drýgstum hluta tekna. Þar var
Hrabbý verslunarstjóri og veltan og
gróðinn meiri en dæmi voru um áður.
Hagnaðurinn dugði ekki aðeins til að
greiða fargjaldið okkar allra heldur
verulegan hluta ferðamannagjaldeyr-
isins sem við máttum taka með okkur.
Það kom því ekki á óvart að Hrabbý
lagði fyrir sig verslun og viðskipti. Í
rekstri verslunarinnar „Hjá Hrafn-
hildi“ komu glöggt fram einstakir
hæfileikar hennar á þessu sviði. Þar
munu margir sakna viðmóts og þjón-
ustu eigandans.
Fimmtugsafmæli Hrafnhildar lýsti
henni sennilega betur en flest annað.
Veislan var í ætt við það sem lýst er í
ævintýrum og ekkert til sparað. Sjálf
talaði hún um vinafagnað þar sem
vinir frá ýmsum skeiðum ævi hennar
og mismunandi löndum komu saman
og gerðu sér glaðan dag í boði þeirra
hjóna. Hver hlutur var hugsaður út í
æsar, gestum raðað til borðs þannig
að góðir vinir sátu saman og nutu
endurfunda, matseðill og drykkjar-
föng eins og best getur orðið, Bjarni
Ara söng vinsælu lögin frá æskuárum
okkar og hljómsveit spilaði „okkar
tónlist“ undir fjörugum dansi fram á
rauðan morgun. Þarna mátti glöggt
heyra og sjá hversu mikils virði
Hrabbý var mörgum. Hún var kjöl-
festa í fjölskyldu, í vinahópi, í fyrir-
tækinu sínu – og ég veit að ótrúlega
stór hópur missir ótrúlega mikið við
andlát Hrafnhildar.
Hrafnhildur kom frá einstöku
menningarheimili. Þar var ekkert
kynslóða- eða kynjabil. Báðir foreldr-
arnir, Inga og Sigurður, sýndu vin-
konunum áhuga og yngri systkinin
voru velkomin í hópinn með okkur. Í
kvöldkaffinu var að jafnaði sest að
veisluborði þar sem spjallað var um
heima og geima. Iðulega var þar stór
hópur saman kominn, því að fjöl-
skyldan var samheldin og gestrisin.
Ekki veit ég hvort það tengdist
löngum fjarvistum þeirra frá heima-
landinu en sem gestur á heimilinu
skynjaði maður sterkt hversu vel-
kominn maður var. Húsráðendur
voru ávallt þakklátir fyrir að fá gesti í
heimsókn, þótt sennilega væru þeir
dagar fáir sem enga gesti bar að
garði.
Úr þessum jarðvegi spratt Hrabbý
og þegar þau Tony giftust og eign-
uðust eigið heimili bar það sama brag
myndarskapar, hlýju og gestrisni.
Þau hjónin voru samvalin enda bera
börnin þeirra öll einkenni háttvísi og
heimsbrags. Þau eru að verulegu leyti
alin upp erlendis eins og móðir þeirra,
tala mörg tungumál en eiga rætur í
fjölskyldu og vinum hér heima.
Ég verð ætíð þakklát fyrir að föstu-
daginn fyrir andlát Hrabbýjar kom
allt í einu yfir mig mikil löngun til að
líta inn til hennar og ég gerði það. Þá
hittist þannig á að kvöldið áður hafði
verið skírnarveisla, litla dótturdóttir-
in var skírð í höfuðið á ömmu sinni og
Hrabbý geislaði þegar hún bar í mig
veitingar og sýndi mér myndir úr
skírnarveislunni. Við áttum einstak-
lega gott og einlægt spjall um lífs-
hamingjuna og að ekkert jafnaðist á
við góða fjölskyldu. Hún talaði um
manninn sinn, börnin sín, tengdason
og barnabörn, foreldra sína, starfið
sitt og samstarfsmenn af einstakri
ástúð og hlýju. Þegar við kvöddumst
föðmuðumst við og hétum hvor ann-
arri því að láta ekki langt líða milli
næstu endurfunda.
Það er sár tilhugsun að eiga ekki
fleiri fundi og meira spjall í vændum.
En umfram allt býr mér nú í huga
þakklæti fyrir að hafa átt vináttu
Hrabbýjar öll þessi ár. Við hjónin og
fjölskylda mín öll sendum ástvinum
Hrafnhildar okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur. Guð blessi minningu
hennar.
Helga Jónsdóttir.
Þín óvænta náfrétt við hjarta mér hneit
og hljóður í geiminn ég starði. –
Nú drúpa hér blómin í drengskaparreit,
og dimmt er í vandfylltu skarði.
(Jón Guðmundsson.)
Á Rauðalæk 44 var æskuheimili
Hrafnhildar og foreldra hennar og
systkina. Á efri hæðinni bjó undirrit-
uð ásamt foreldrum og systkinum.
Feður okkar voru vinir og skólabræð-
ur og foreldrar okkar byggðu saman
þetta hús, sem við fluttum í 1957.
Fjölskyldurnar voru eins saman sett-
ar, þ.e.a.s. tvær systur og tveir bræð-
ur. Milli fjölskyldnanna myndaðist
einstakt samband vináttu og tryggðar
sem haldist hefur alla tíð þó að á
löngu árabili umgengjumst við nánast
ekkert. Ávallt urðu fagnaðarfundir
þegar við hittumst. Á seinni árum
hefur það verið Hrafnhildur, eða
Hrabbý eins og hún var ávallt kölluð,
sem ég hitti oftast af þessu góða fólki.
Hún var alltaf einstaklega hress og
skemmtileg og skapaði góða stemn-
ingu hvar sem hún var.
Við fráfall móður minnar, en for-
eldrar mínir voru þá nýfluttir heim
eftir níu ára dvöl í Bandaríkjunum,
var eins og meiri þörf skapaðist hjá
mér og systur minni (sem búsett er í
Bandaríkjunum) til að rifja upp æsku-
minningar frá Rauðalæknum. Við
drifum í 1999 að halda systraboð fyrir
systrapörin sem ólumst upp í næsta
nágrenni við okkur; Helgu Björgu og
Guðríði á númer 50, Öggu og Dídu á
númer 67, Hrabbý og Gurrý og okkur
Önnu Siggu á númer 44. Þessi endur-
fundur okkar tókst með eindæmum
vel og urðum við, allar löngu ráðsett-
ar frúr og margra barna mæður,
barnungar um stund og gátum hlegið
að bernskubrekunum. Í glæsilegri 50
ára afmælisveislu Hrabbýar í febrúar
sl. fengum við svo að hitta fjölskyld-
una; eiginmann, börnin, tengdason,
foreldra, systkini, frændfólk og vini,
sem öll umvöfðu hana á þessum
merkisdegi. Stuttu eftir það áttum við
systurnar og Inga yndislega sam-
verustund hjá Gurrý, en þá lagði
Hrabbý á sig að koma þó hún hefði
fáum klukkustundum áður komið til
landsins úr erilsamri innkaupaferð í
Þýskalandi. Hver hefði getað ímynd-
að sér að þetta myndi verða síðasta
samvera okkar allra fimm.
Það er nöturlegt þegar ung sterk
kona er hrifsuð úr faðmi fjölskyld-
unnar án nokkurrar miskunnar, með
engum fyrirvara, löngu áður en hún
hefur lokið hlutverki sínu hér á jörðu.
Maður skilur illa tilgang almættisins
við slíkar aðstæður. Það sem eftir
stendur eru minningarnar um þessa
einstöku konu, brosmilda, glæsilega,
drífandi og gefandi manneskju.
Fjölskylda mín; faðir minn, Anna
Sigga, Gunnar Þór og Atli Steinarr,
sendum eiginmanni hennar, börnum
og barnabörnum, foreldrum hennar
og systkinum okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur. Við munum ávallt minn-
ast Hrabbýar fyrir hjartahlýju henn-
ar, einlægni og tryggð. Blessuð sé
minning hennar.
Ása St. Atladóttir.
Hrafnhildur kunni að þakka fyrir
sig. Líka þegar hún var fimmtán ára
og jafnöldrum hennar þótti „etikett-
ur“ af því taginu alla jafna til óþurft-
ar. Jafnvel skaða ímyndina, sem átti
að endurspegla frelsi frá hvers kyns
gamaldags gildum og hefðum. En
Hrafnhildur þakkaði, allsendis ófeim-
in, fyrir samveruna, símtalið, heim-
sóknina og allt hvaðeina, sem okkur
stelpunum sem tengdust vináttu-
böndum í VÍ veturinn 1967–8 þótti
ástæðulaust að þakka sérstaklega.
Þetta rifjast upp fyrir mér núna
vegna þess að áratuga vinátta Hrafn-
hildar gaf mér svo margt sem ég er
þakklát fyrir. Samt sagði ég henni
það áreiðanlega aldrei almennilega.
Eftir því sem árin liðu varð mér æ
ljósara að þakklæti var einn af mörg-
um eðliskostum Hrafnhildar og fjarri
því að vera orðin tóm. Hún var ein-
lægt og opinskátt þakklát fyrir sitt
góða líf, góðu fjölskyldu og mörgu
vini. Ég og efalítið allir sem þekktu
Hrafnhildi vita að sjálfri er henni
mest fyrir að þakka.
Eftir á að hyggja er eins og hún
hafi skynjað að henni yrði skammt-
aður naumur tími. Þessum dýrmæta
tíma varði hún í miklum mæli til að
rækta vináttuna. Taka þátt í annarra
manna gleði og sorgum. Ég naut góðs
af.
Ég minnist Hrafnhildar, vinkonu
minnar, fyrir góðmennsku, um-
hyggju, samkennd, örlæti, lífsgleði,
glaðværð og svo margt annað, sem
orð fá ekki lýst en aldrei gleymist.
Ég minnist Hrafnhildar með þakk-
læti.
Guð blessi minningu hennar.
Hugheilar samúðarkveðjur til eig-
inmanns hennar, barna, barnabarna,
foreldra, systkina og annarra að-
standenda.
Valgerður Þ. Jónsdóttir.
Ofurkona og eldhugi er látin, en
eftir sitja hnípnir ættingjar, vinir,
samstarfsmenn og viðskiptavinir.
Sterk og hrífandi persóna sem skilur
eftir endalausar minningar og sögur
sem hægt væri að segja út í eitt, en
aðeins örfá atriði eru rifjuð upp hér.
Nafngiftin ofurkona átti vel við
Hrabbý, því af dugnaði, krafti, fram-
sýni og væntumþykju rak hún stórt
og vaxandi fyrirtæki samhliða því að
umvefja fjölskylduna ástúð. Ekki
nægði henni nánasta fjölskylda held-
ur bar hún stórfjölskylduna og vinina
á höndum sér og naut þess fram í
fingurgóma að bjóða til veglegra
veislna, hvort sem tilefnið var stórt
eða smátt. Þar nutu skipulagshæfi-
leikar hennar sín út í ystu æsar, svo
að jafnvel undrun sætti meðal fag-
fólks sem hún leitaði til. Einnig var
hún pottþétt í öllu sem hún tók sér
fyrir hendur og ávann sér þannig
traust þeirra sem hún skipti við.
Fyrstu minningarnar eru úr
Versló, þar sem fimmtán ára vin-
kvennahópur dáðist hver með sínum
hætti að heimskonunni Hrabbý. Hún
bar þess þá þegar merki að hafa alist
upp hjá fágaðri fjölskyldu, þar sem
kurteisi og alúð var alltaf í fyrirrúmi.
Ekki urðum við lítið undrandi þegar
við hrósuðum henni fyrir eitthvað, að
hún svaraði alltaf: „Takk!“ Af henni
lærðum við að taka hrósi með ánægju
en ekki að byrja á því að afsaka okkur
að íslenskum sið.
Með gáfum sínum og samvisku-
semi tókst henni einnig að skara fram
úr í námi. Sem dæmi má nefna, að
hún hafði aldrei gengið í íslenskan
skóla fyrr en í Versló, en þrátt fyrir
það var hún mörgum okkar fremri í
móðurmálinu. Dönskuna hafði hún
aldrei lært eins og við hin, en með
þrautseigju tókst henni jafnvel að ná
ágætis tökum á henni.
Hrabbý, eða öllu réttara Inga
mamma hennar, átti frumkvæði að
stofnun saumaklúbbsins þegar við
vorum í 2. bekk. Ennþá hlæjum við
dátt þegar við hugsum til baka til
fyrsta saumaklúbbsins, því það var
ekki eins og verið væri að taka á móti
sjö stelpum. Kaffiborðið minnti frek-
ar á að minnsta kosti hálfa ferming-
arveislu, svo glæsilegt var það. Þá
þegar var Hrabbý og fjölskylda henn-
ar höfðingjar heim að sækja og eru
enn.
Ekki verður nafn Hrabbýjar nefnt
án þess að nafn Tónýs, eiginmanns
hennar, komi strax í hugann, svo náin
voru þau. Þrátt fyrir að lönd og höf
skildu þau að, jafnvel svo vikum skipti
vegna vinnu Tónýs, hringdust þau
alltaf á, ef ekki tvisvar á dag þá að
minnsta kosti einu sinni.
Börnin og barnabörnin áttu jafn
stóran sess í huga Hrabbýjar og var
hún óspör á að deila gleði sinni og
áhyggjum þeirra vegna með okkur.
Að kvöldi þess dags sem hún lést
hafði hún til dæmis hlakkað til að
koma í saumaklúbb og sýna okkur
fjölskyldumyndir úr skírn dótturdótt-
ur sinnar og nöfnu.
Við vottum fjölskyldu hennarog öll-
um þeim sem eiga um sárt að binda
vegna ótímabærs fráfalls hennar okk-
ar dýpstu samúð.
Hneig eyra þitt, Drottinn,
og bænheyr mig,
því að ég er hrjáður og
snauður.
(Davíðssálmur 86,1)
Alma, Áslaug, Guðlaug,
Hildur, Kristín og Margrét.
Nú er komið að kveðjustund, allt of
fljótt. Þegar mamma færði mér sorg-
artíðindin sl. mánudag fannst mér
sem tíminn stöðvaðist. Upp í huga
mér spruttu fram fallegar minningar
um dugmikla og yndislega kjarna-
konu.
Ég kynntist Hrafnhildi og fjöl-
skyldu fyrir um 15 árum, rétt áður en
þau fluttu út til Þýskalands. Ég og
Ása dóttir hennar urðum perluvin-
konur og hefur sú trygga vinátta
haldist alla tíð síðan. Ég man vel þau
tvö skipti sem ég kom í heimsókn til
fjölskyldunnar í Þýskalandi. Hlýjar
móttökur og einstök væntumþykja
einkenndu Hrafnhildi, sem og alla
hennar fjölskyldu. Eitt besta sum-
arfrí sem ég hef upplifað var þegar
fjölskylda mín og Ásu ákvað að hittast
á Mallorca. Þrátt fyrir mikla rigningu
og flóð skemmtum við okkur hreint
konunglega saman.
Ég beið alltaf með mikilli eftir-
væntingu öll jól og sumur eftir að fjöl-
skyldan kæmi til Íslands. Alltaf var
glatt á hjalla í Kjalarlandi hjá Ingu og
Sigurði, foreldrum Hrafnhildar. Ekki
má heldur gleyma skemmtilegum
verslunarmannahelgum á Stóra-
Vatnshorni þar sem ég var ávallt vel-
komin og mér fannst ég næstum til-
heyra þessari stóru samheldnu fjöl-
skyldu.
Það voru miklar gleðifréttir þegar
Hrafnhildur og Tony festu kaup á
húsi hér í Fossvoginum. Við Ása urð-
um bekkjarsystur og gátum þá alltaf
rölt hvor yfir til annarrar. Gaman
þótti mér einnig að fylgjast með
Hrafnhildi vinna að uppbyggingu
verslunar sinnar. Fljótlega fluttist
starfsemi búðarinnar úr Sævarlandi
yfir í stærra húsnæði og varð að einni
vinsælustu kvenfataverslun borgar-
innar. Hrafnhildur var mikil smekk-
manneskja og hafði einstaklega næmt
auga fyrir því sem var að gerast í
tískuheiminum.
Við Ása lögðum land undir fót sl.
sumar og fórum saman í spænsku-
skóla til Spánar. Ég man að Hrafn-
hildur hringdi oft til að athuga hvort
okkur vanhagaði um eitthvað og
hvort allt væri ekki örugglega í lagi.
Móðurtilfinningin og umhyggjan var
svo sannarlega ríkjandi hjá henni og
hafði hún líðan annarra ávallt í fyr-
irrúmi.
Þegar Hrafnhildur varð fimmtug í
febrúar á þessu ári var haldin mikil
veisla. Fjölskylda og vinir samglödd-
ust henni á þessum merku tímamót-
um. Við áttum saman ógleymanlega
kvöldstund og gleðin skein úr andliti
Hrafnhildar. Hún hafði einstaka út-
geislun og var sönn vinkona allra.
Fáguð framkoma einkenndi hana og
var greinilegt að þarna fór glæsileg
kona í blóma lífsins.
Ég kveð Hrafnhildi með miklum
söknuði en minningin um yndislega
konu lifir að eilífu.
Elsku Ása, Bragi, Inga Rós, Tony,
Inga, Sigurður og allir ættingjar.
Megi góður Guð styrkja ykkur og
leiða í þessari miklu sorg.
Sigríður Friðriksdóttir.
Með mikinn harm í hjarta skrifa ég
minningarorð um mína kæru sam-
starfskonu og ástkæru vinkonu. Við
kynntumst á unglingsárum og eftir
margra ára vináttu gerðumst við líka
samstarfskonur er Hrabbý réð mig
sem verslunarstjóra í verslun sína.
Samvinna okkar var einstök, og stend
ég ríkari á eftir af þeirri reynslu sem
hún veitti mér í verslunarrekstri.
Hrabbý var einstök kaupkona, hafði
óbrigðulan smekk á því sem hún var
að selja og segja vinsældir verslunar-
innar, hlýhugur og samúð viðskipta-
vina undanfarna daga meira en nokk-
ur orð þar um.
Hrabbý var líka einstakur vinnu-
veitandi. Hún var vinkona okkar
allra, starfsstúlkna sinna, lét sér annt
um okkur og studdi okkur í gleði og
sorg. Hún hafði lag á að skapa góðan
vinnuanda og laða fram allt það besta
í okkur. Við stelpurnar hennar í búð-
inni söknum hennar óendanlega og
þökkum um leið fyrir að hafa fengið
að vera henni samferða um lengri eða
skemmri tíma.
Við göntuðumst með það, við
Hrabbý, að við ætluðum að verða
gamlar saman í búðinni. Enda síðan
ferilinn sem dömur á „besta aldri“, og
taka þá til við að dekra við karlana og
barnabörnin, drekka sérrí í sauma-
klúbbum og sækja kaffihús, og það
áttu að líða mörg ár þar til af þessu
yrði og við þá búnar að selja einhver
býsn af kjólum og drögtum. En margt
fer öðru vísi en ætlað er.
Ég kveð mína elskulegu vinkonu.
Guð geymi hana.
Alma Möller.
Fleiri minningargreinar
um Hrafnhildi Sigurðardóttir bíða
birtingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.