Morgunblaðið - 25.07.2002, Qupperneq 51
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2002 51
LEGSTEINAGERÐIN Engla-
steinar var opnuð nýlega að
Helluhrauni 10, Hafnarfirði.
Englasteinar selja bæði legsteina
og englastyttur sem hannaðar
eru af Lárusi Einarssyni. Að sögn
aðstandenda Englasteina er
framleiðsluaðferðin sem notuð er
mjög svo óvenjuleg og í því fólgin
að legsteinarnir eru steyptir í sér-
hönnuð mót. Bæði legsteinar og
útistyttur eru steypt úr efni fyrir
íslenskar aðstæður.
Í tilkynningu frá Englasteinum
segir að markmiðið sé að bjóða fyrst
og fremst upp á fallegan og sér-
stakan legstein til að setja á leiði ást-
vina og styttu í stíl við legsteininn
auk þess sem boðið er upp á engla-
styttur til ýmissa tækisfærisgjafa.
Legsteinar steyptir
í sérhönnuð mót
DVALARHEIMILIÐ Ás í Hvera-
gerði fagnar nú í sumar 50 ára af-
mæli. Afmælismóttaka fyrir boðs-
gesti verður haldin föstudaginn 26.
júlí í Ásbúð, Bröttuhlíð 20.
Þá verður opið hús dvalarheim-
ilisins laugardaginn 27. júlí á lóðinni
gegnt kirkjunni í Hverahlíð 17. Þá
gefst tækifæri til að skoða nánar
starfsemi Áss. Hjúkrunarheimilið
verður til sýnis, önnur hús heimilis-
fólks svo og garðyrkjustöð heimilis-
ins á Heiðmörk 32. Boðið verður
upp á grillaðar pylsur og ís. Lúðra-
sveit spilar, opið púttmót verður
haldið, trúðar koma í heimsókn og
fleira verður í boði. Dagskráin
stendur frá kl. 14.00 til 17.00.
Afmælishátíðinni lýkur síðan á
sunnudeginum 28. júlí með hátíðar-
messu í Hveragerðiskirkju kl. 14.00.
Umsjón er í höndum Félags fyrr-
verandi sóknarpresta. Séra Sigurð-
ur Haukur Guðjónsson predikar og
séra Tómas Guðmundsson, fyrrver-
andi prófastur, sér um altarisþjón-
ustu. Tónlistarflutningur fer fram í
kirkjunni nokkru áður en guðsþjón-
ustan hefst, þar sem verður orgel-
leikur, einsöngur og fiðluleikur.
Organisti og umsjónarmaður tón-
listarflutnings verður Kjartan
Ólafsson.
Dvalarheimilið Ás
fagnar 50 ára afmæli
UNGMENNASAMBAND Borgar-
fjarðar stendur fyrir kvöldgöngu
fyrir alla fjölskylduna annað hvert
fimmtudagskvöld í sumar. Hinn 25.
júlí verður gengið um nágrenni Grá-
brókar og Brekkurétt skoðuð. Leið-
sögumaður er Þórhildur Þorsteins-
dóttir. Gangan hefst kl. 20 við
bílastæðið hjá Grábrók í Norðurár-
dal.
Kvöldganga
við Grábrók
LAUGARDAGINN 27. júlí verður
námskeið í tóvinnu í Árbæjarsafni.
Þar gefst fólki tækifæri til að kynn-
ast íslensku ullinni, kemba og spinna
á halasnældu. Leiðbeinandi er Anna
María Lind Geirsdóttir. Námskeiðið
er sérstaklega hugsað fyrir foreldra
og börn eða ömmu/afa og barnabörn-
in en einstaklingar eru vitaskuld vel-
komnir. Námskeiðið hefst kl. 13 og
lýkur um kl. 16. Þátttaka tilkynnist í
síma 577-1111.
Spunnið á
halasnældu
MIÐSUMARHÁTÍÐ verður haldin
á Hvoli á Hvolsvelli föstudaginn 26.
júlí kl. 17–19 og laugardaginn 27. júlí
kl. 11–17. Ýmislegt verður í boði og
eru allir velkomnir.
Miðsumar-
hátíð á Hvoli
VEGAGERÐIN opnaði tilboð í eft-
irlit með framkvæmdum á kafla
hringvegarins við Þjórsá í síðustu
viku. Lægstbjóðandi var Verkfræði-
stofa FHG í Reykjavík með tilboð
upp á tæpar 8,8 milljónir króna.
Hæstbjóðendur voru tveir, annars
vegar Verkfræðistofa Björns Ólafs-
sonar ehf. í Kópavogi og Fjarhitun
hf. í Reykjavík hins vegar, en buðu
þær báðar 15 milljónir króna. Munar
því rúmum 6,2 milljónum króna á
hæsta og lægsta boði.
Áætlaður verktakakostnaður
Vegagerðarinnar vegna eftirlitsins
hljóðar upp á 17,5 milljónir króna.
Hjá Vegagerðinni fengust þær
upplýsingar að vegurinn og brúin
um Þjórsá væru ein stærsta fram-
kvæmdin sem fyrirhuguð væri á
Suðurlandi á næstunni.
Fjárveiting til verksins í heild er
959 milljónir króna á árunum 2001
og 2002 en áætluð verklok eru í októ-
ber 2003.
Að auki bauð Verkfræðistofa
Björns Ólafssonar ehf. í Kópavogi
tæpar 9 milljónir í eftirlit með fram-
kvæmdinni, Línuhönnun hf. Reykja-
vík 12 milljónir og Fjölhönnun ehf.
og Hnit hf. í Reykjavík buðu sameig-
inlega 12,2 milljónir. Þá buðu einnig
sameiginlega Verkfræðistofa Guð-
jóns Sigfússonar ehf. á Selfossi og
Verkfræðistofa Sigurðar Thorodd-
sen hf. í Reykjavík 12,6 milljónir.
Loks hljóðaði tilboð VSÓ ráðgjafar
ehf. í Reykjavík upp á 13 milljónir og
tilboð Hönnunar hf. í Reykjavík upp
á tæpar 14,4 milljónir króna.
Opnun tilboða
í eftirlit með
Hringvegi
um Þjórsá