Morgunblaðið - 25.07.2002, Page 53

Morgunblaðið - 25.07.2002, Page 53
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2002 53 „ÞAÐ ER alveg prýðileg veiði hérna, síðasta hollið var með 58 laxa, það eru sex stangir í þrjá daga. Sex daga hollið sem hætti síðast í Kjarrá var með um 105 laxa. Þar hefir veiði verið að glæðast. Áin er í góðu ástandi og það er talsvert af laxi að ganga,“ sagði Guðmundur Guðmundsson kokkur í veiðihúsinu við Þverá í gærmorgun. Þá voru alls komnir samtals um 650 laxar á land úr ánni, þ.e.a.s. báðum svæðum, Þverá og Kjarrá. Vatnsdalsá hærri en í fyrra Pétur Pétursson leigutaki Vatnsdalsár sagði ána 30 löxum hærri en á sama tíma í fyrra, alls væru komnir tæplega 150 laxar á land og síðasti hópur, sem var skipaður afar rólegu rosknu fólki, hefði landað 50 löxum á fjórum dögum. „Síðan að ég byrjaði hérna hef ég aldrei séð jafn mikið af laxi uppsafnað fyrir neðan Flóð, það eru torfur í Hólakvörn og Hnausastreng. Það sem vantar helst hér núna er að laxinn dreifi sér betur, fari upp fyrir og þá verður veisla. Besti tíminn í Vatnsdalsá er framundan,“ sagði Pétur. Hann bætti við að tals- vert hefði verið að slæðast upp af sjóbirtingi, mikið 2-4 punda en einnig fiskar allt upp í rúm 7 pund. Þetta væri óvenjusnemmt fyrir birting í ánni, en hann væri velkominn. Ýmsar fréttir Nýlega náði holl í Hítará 40 löxum sem er afburðagott í þeirri verstöð. Fylgdi sögunni að menn sæju lax nánast um alla á. Mest er um stóran smálax að ræða. Svipaðar fregnir berast frá öðrum ám á Mýrum og Snæfells- nesi, enda hafa þær notið vot- viðrisins að undanförnu. Það er „kropp“ í Breiðdalsá eftir öfluga byrjun, að sögn Þrastar Elliðasonar leigutaka árinnar. Taldi hann um 30 laxa komna á land, mest stórlax, en úr þessu ætti smærri fiskurinn að fara að skila sér. Gengur vel í Þverá Morgunblaðið/Einar Falur Kristinn Ágúst Ingólfsson með væna bleikju úr Brúará. ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN? KIRKJUSTARF Hallgrímskirkja. Hádegistónleikar kl. 12. Ágúst Ingi Ágústsson leikur á orgel. Háteigskirkja. Taizé-messa kl. 20. Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðarstund kl. 22. Ath. breyttan tíma. Gott er að ljúka deg- inum í kyrrð kirkjunnar og ber þar fram áhyggjur sínar og gleði. Bænarefnum má koma til presta kirkjunnar og djákna. Hress- ing í safnaðarheimilinu eftir stundina. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung börn og foreldra þeirra í Vonarhöfn, safnaðar- heimili Strandbergs, kl. 10–12. Opið hús fyrir 8–9 ára börn í safnaðarheimilinu Strandbergi, Vonarhöfn, frá kl. 17–18.30. Víðistaðakirkja. Foreldrastund kl. 13–15. Kjörið tækifæri fyrir heimavinnandi foreldra með ung börn að koma saman og eiga skemmtilega samveru í safnaðarheimili kirkjunnar. Þorlákskirkja. Biblíupælingar í kvöld kl. 20. Kletturinn. Kl. 19 alfanámskeið. Allir vel- komnir. Vegurinn. Samkoma kl. 20. Högni Valsson prédikar, lofgjörð, fyrirbænir og samfélag. Allir velkomnir. Vegurinn. Bænastund kl. 19.30. Sam- koma kl. 20. Högni Valsson prédikar. Lof- gjörð, fyrirbænir og samfélag. Barnastarf fyrir 4–10 ára á sama tíma. Allir hjartanlega velkomnir. Akureyrarkirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna- stund kl. 12. Léttur hádegisverður á vægu verði í Safnaðarheimili eftir stundina. Safnaðarstarf flísar Stórhöfða 21, við Gullinbrú, sími 545 5500. www.flis.is  netfang: flis@flis.is YFIR sumartímann eru fimmtudag- ar á Minjasafni Austurlands þjóð- háttadagar. Á þeim hefur austfirskt hæfileikafólk komið til að sýna hand- verk og forna hætti í margs konar sýnikennslu, sem hefur síðan verið tengd gripum sem eru varðveittir á safninu. Sem dæmi um viðfangsefni þjóðháttadaganna í júlí er eldsmíði, tínugerð og lífsbarátta kotbóndans. Í dag, fimmtudaginn 25. júlí, verð- ur sýndur útskurður úr ýsubeinum, frá kl. 13–17. Gestir geta reynt sig við útskurðinn, þátttökugjald er 500 kr., efni innifalið. Í ágúst verður síðan tekin fyrir ostagerð, tónlist og hljóðfæranotkun fyrr á öldum, fjallagrasanotkun og tínsla, lerkisveppatínsla og útskurð- ur í tré. Ferðamenn jafnt sem „innfæddir“ eru eindregið hvattir til að taka þátt í lifandi sumardagskrá safnsins, en þjóðháttadagarnir eru styrktir af Menningarsjóði Héraðssvæðis. Þjóðhátta- dagar á Minjasafni Austurlands UM helgina verður margt á dag- skránni á Hólum í Hjaltadal, sérstak- lega fyrir áhugafólk um sögu og menningu. Á föstudagskvöld kl. 22 verður farið í gönguferð þar sem sagðar verða sögur af Galdra-Lofti. Á laugardagsmorgun kl. 11 verður önnur gönguferð þar sem sem gengið verður í fótspor Guðmundar biskups góða. Sama dag kl. 15 mun Ragnheið- ur Traustadóttir fornleifafræðingur kynna fornleifarannsóknir á Hólum og ganga með gestum um minja- svæðið. Á sunnudag kl. 11. verður guðsþjónusta í Hóladómkirkju. Prestur verður séra Guðni Þór Ólafs- son. Á föstudaginn milli kl. 13–17 verð- ur haldin bleikjuveiðikeppni, en þessi keppni er haldin hvern föstudag í allt sumar. Ennfremur geta gestir skoð- að vatnalífssýninguna og opið er á veitingahúsinu Undir Byrðunni. Fjölbreytt dag- skrá á Hólum ♦ ♦ ♦ MARKAÐUR verður haldinn í sam- komutjaldinu að Lónkoti í Skagafirði sunnudaginn 28. júlí. Hefst markað- urinn kl. 13 og stendur til kl. 18. Markaðir í Lónkoti eru haldnir síð- ustu sunnudagana í júlí og ágúst. Markaður í Skagafirði ♦ ♦ ♦ Fyrirtæki óskast Höfum góða kaupendur að fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum. Þó er nauðsynlegt að þau hafi sýnt einhvern rekstrarhagnað fyrir fjár- magnsliði. Okkur vantar sérstaklega: ● Heildverslanir með matvöru eða aðra stórmarkaðsvöru. ● Lítið fyrirtæki sem hægt er að flytja út á land. ● Stórt iðnfyrirtæki. ● Blómaverslun með a.m.k. 1 m. kr. mánaðarveltu. ● Verslun eða heildverslun með sportvörur. Fyrirtæki til sölu ● Höfum til sölu nokkrar stórar sérverslanir, heildverslanir og iðnfyrirtæki í ýmsum greinum fyrir rétta kaupendur. Ársvelta 100-1000 m. kr. ● Lítil blómaverslun í Breiðholti. ● Innflutnings- og þjónustufyrirtæki með vinnuvélar, lyftara o.fl. Ársvelta 50 m. kr. ● Teygjustökk. Allur búnaður, þjálfun og viðskiptasambönd. Mikill hagnaður. ● Breiðin, Akranesi. Stórt samkomuhús með góðri aðstöðu fyrir dansleiki, veislur og fundi. Eigið húsnæði. Gott tækifæri fyrir fagmenn. ● Góður og vaxandi söluturn í Grafarvogi. Velta 2,7 m. kr. á mánuði. Verð aðeins 4,5 m. kr. Auðveld kaup. ● Stór austurlenskur veitingast. í miðbænum. Mikil velta, góður hagnaður. ● Framköllunarþjónusta í miðbænum. Góð tæki, frábær staðsetning. ● Stór heildverslun með iðnaðarvélar. Ársvelta 200 m. kr. ● Dagsöluturn í atvinnuhverfi með áherslu á léttar veitingar. Lítil en vax- andi velta og miklir möguleikar. ● Landflutningafyrirtæki með mikil föst verkefni. Hentar vel fyrir einstakling. ● Heildverslun með sælgæti. 60 m. kr. ársvelta. Föst viðskipti. Góður hagnaður. Meðeign eða sameining möguleg. ● Lítil heildverslun með góða markaðsstöðu í matvöru óskar eftir meðeig- anda eða sameiningu til að nýta góð tækifæri. ● Stór sérhæfð trésmiðja með góðan hagnað. Gott tækifæri fyrir fyrirtæki í svipaðri starfsemi. ● Rótgróið veitingahús við Bláa Lónið. Góður og vaxandi rekstur í eigin húsnæði á þessum fjölsóttasta ferðamannastað landsins. ● Kaffi- og veitingahúsið Vivaldi, Borgarnesi. Ársvelta 20 m. kr. ● Þekkt lítið matvælafyrirtæki með góða framleiðslu óskar eftir samein- ingu við öflugt fyrirtæki. Selur bæði í matvöruverslanir og á stofnana- markaði. Ársvelta nú um 35 m. kr. en getur vaxið hratt. ● Vinsæl verslun með notaðan fatnað. Auðveld kaup. ● Lítil en mjög efnileg heildverslun með umhverfisvæn hreinsefni. ● Verksmiðja sem framleiðir gróðurmold o.fl. Góð viðskiptasambönd. ● Pizzastaður í Hafnarfirði. Partur af stórri keðju. Miklir möguleikar. ● Góð bónstöð með mikil föst viðskipti. ● Þekkt „videó“sjoppa í Breiðholti m. 5 m. kr. veltu á mán. Auðveld kaup. ● Heildverslun með tæki og vörur fyrir byggingariðnaðinn. Ársvelta 130 m. kr. Góður hagnaður um margra ára skeið. Hagstætt verð. ● Sport „pub“ í Árbæjarhverfi. Besti tíminn framundan. Auðveld kaup. ● Sólbaðsstofa í Skeifunni. 12 bekkir. Velta 1.200 þús. kr. á mánuði. Skipti möguleg. ● Grensásvideó. Ágætur hagnaður, auðveld kaup. ● Rótgróið og vel arðbært gistihús miðsvæðis í Reykjavík. 15 herbergi, ársvelta 20 m. kr. Möguleiki á 15 herbergjum til viðbótar og lítilli íbúð fyrir eiganda. ● Lítil en vel þekkt heildverslun með iðnaðarvélar. Hentar vel fyrir 1-2 starfsmenn, sérstaklega smiði. ● Ein besta sólbaðsstofa borgarinnar. Góður hagnaður. Skipti möguleg á góðu atvinnuhúsnæði. ● Vel þekkt og vaxandi sérverslun með flísar. 50 m. kr. ársvelta. Góð umboð. ● Veitingastaður í atvinnuhverfi. Eingöngu opið virka daga kl. 7-17. Lágt verð - auðveld kaup. ● Langar þig í eigin rekstur? Höfum til sölu nokkur lítil en góð fyrirtæki sem auðvelt er að byrja á. Jafnvel auðveldara en þú heldur. Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin v/Faxafen) Sími 533 4300, GSM 820 8658 FLUGUVEIÐISKÓLI VEIÐIFERÐ Vegna fjölda áskorana frá fólki sem ekki komst í júnískólann verður flugu- veiðiskóli og veiðiferð um helgina 17.-19. ágúst. Rífandi gangur er í veiði í Langá og meðaldagsveiði í júlí er um 20 laxar. Bókanir og upplýsingar á langa.is eða í símum 864 2879, 437 2377, 437 1704 eða 899 2878. Á LANGÁRBÖKKUM 17.-19. ÁGÚST

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.