Morgunblaðið - 25.07.2002, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2002 55
DAGBÓK
Heiti Potturinn
Trompmiði er auðkenndur með bókstafnum B en einfaldir miðar með E, F, G
og H. Gangi vinningar ekki út bætast þeir við Heita pott næsta mánaðar.
Birt með fyrirvara um prentvillur.
7. flokkur, 24. júlí 2002
Einfaldur kr. 5.810.000.- Tromp kr. 29.050.000.-
39305B kr. 29.050.000,-
39305E kr. 5.810.000,-
39305F kr. 5.810.000,-
39305G kr. 5.810.000,-
39305H kr. 5.810.000,-
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
LJÓN
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert ævintýramaður og
þolir ekki að láta þér leiðast.
Þú hefur mikið aðdráttarafl.
Þú leggur þig allan fram við
að ná takmörkum þínum. Á
komandi ári verða allar að-
stæður þér í hag.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Eitthvað á vinnustað veldur þér
streitu og það verður til þess að
þú íhugar að skipta um starf. Þú
átt það til að vera fljótfær og
ættir því að gefa þér tíma til að
melta þetta.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það er mikill hiti í ástarsam-
böndum í dag. Ástríðufullt ást-
arsamband getur breytt lífi
þínu.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú þráir stöðugleika í sambönd-
um þínum en stöðugleiki er ekki
mögulegur eins og stendur.
Breytingar á nánum sambönd-
um neyða þig til að aðlagast
breyttum aðstæðum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú þarft að endurskoða sam-
band þitt við einhvern til að gera
þér grein fyrir nauðsynlegum
breytingum. Öll vinasambönd
þurfa að þróast til að þau haldist
heilbrigð og kraftmikil.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú átt á hættu að eyða of miklu í
skemmtanir í dag. Þú ættir að
spyrja sjálfan þig að því hvort
þig langi raunverulega til
skemmta þér eða hvort þú sért
að reyna að ná stjórn á aðstæð-
um.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Reyndu ekki að beita brögðum
til að stjórna öðrum. Stjórn-
semi, sem sprottin er af sektar-
kennd eða ábyrgðartilfinningu,
getur spillt fyrir og skapað bit-
urð.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú ættir að íhuga hvort þú hald-
ir í einhvern af ótta eða óöryggi.
Allt of oft sættum við okkur við
erfiðar aðstæður fremur en að
halda á vit þess óþekkta.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Deilur um eignir eða peninga
geta spillt vináttu. Spurðu sjálf-
an þig að því hvort þú viljir
raunverulega að hlutirnir gangi
það langt.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Valdabarátta getur gert það að
verkum að þú finnir til máttleys-
is í dag. Láttu ekki þörf þína fyr-
ir sjálfstæði og frelsi eyðileggja
eitthvað sem skiptir þig máli.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Fréttir úr fjarlægð geta komið
þér úr jafnvægi í dag. Það kann
að vera eitthvað sem þú hefur
óttast en áttir þó ekki von á að
yrði í dag.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú neitar að láta undan kröfum
einhvers þar sem þér finnst við-
komandi ósanngjarn. Þar sem
þú hefur sterkar skoðanir á mál-
inu skaltu standa fast á þínu.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú átt erfitt með að hunsa eitt-
hvað neikvætt í fari góðs vinar í
dag. Það er hætt við að það spilli
sambandinu ef þú gætir ekki að
tungu þinni.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
Í HÁKARLALEGUM
Í skaparans nafni ýtt var út
opnu skipi, er leyst var festi.
Með Andrarímur í andans nesti,
en annars harðfisk og blöndukút;
en munaðaraukinnn eini og bezti
ögn af sykri í vasaklút.
Skipverjar allir áttu þar
einhvern skyldleikasvip í framan,
útigangsjálkar allir saman,
um það hörundið vottinn bar.
Þar var annað en glóðvolgt gaman
að gera sér mjög um þvotta far.
– – –
Jakob Thorarensen
Árnað heilla
60 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 25.
júlí, er sextug Hulda Björk
Kolbeinsdóttir, Hátúni 10,
Reykjavík. Hún tekur á
móti gestum á heimili dóttur
sinnar og tengdasonar á
Barðastöðum 57, Reykjavík,
í dag eftir kl. 15.
Hlutavelta
Þessar duglegu stúlkur söfnuðu kr. 3.965 til styrktar Um-
hyggju, félagi til stuðnings langveikum börnum. Þær heita
Magný, Jenný og Linda.
Morgunblaðið/Jim Smart
EKKERT kitlar slemmu-
taugar spilara eins mikið og
sterkar tvílita hendur. Spil
norðurs eru af þeim toga:
Austur gefur; allir á hættu
Norður
♠ D
♥ Á
♦ Á8732
♣ÁDG1032
Vestur Austur
♠ 1064 ♠ G53
♥ 9654 ♥ D10832
♦ KD ♦ G1095
♣K874 ♣6
Suður
♠ ÁK9872
♥ KG7
♦ 64
♣95
Spilið kom upp í 27. um-
ferð EM og yfirleitt enduðu
NS í sex laufum, einn niður.
Þannig fór á báðum borðum
í leik Íslands og Tyrklands,
svo dæmi sér tekið. Norður
á gullfalleg spil og þegar við
bætist að suður hefur leikinn
með spaðasögn, á norður
erfitt með að halda aftur af
sér, þrátt fyrir litlar undir-
tektir makkers. En í Pól-
verja og Ítala tókst báðum
pörum að stansa í geimi:
Vestur Norður Austur Suður
Duboin Lesniev. Bocchi Martens
-- -- Pass 1 spaði
Pass 2 lauf Pass 2 spaðar
Pass 3 tíglar Pass 3 grönd
Pass 4 lauf Pass 4 hjörtu
Pass 5 lauf Allir pass
Lesnievski gafst loks upp
við slemmuna þegar Mar-
tens neitaði fyrirstöðu í tígli.
Fimm lauf vinnast alltaf með
því að trompa einn tígul með
níunni og henda tveimur nið-
ur í spaða og hjarta: 600 til
Pólverja.
Á hinu borðinu stönsuðu
Ítalir í fjórum gröndum eftir
sömu byrjun:
Vestur Norður Austur Suður
Bizon Lauria Kowalski Versace
-- -- Pass 1 spaði
Pass 2 lauf Pass 2 spaðar
Pass 3 tíglar Pass 3 grönd
Pass 4 lauf Pass 4 grönd
Pass Pass Pass
Fjögur grönd líta ágæt-
lega út, en Versace fór þó
niður. Bizon hitti á gott út-
spil – tígulkóng. Versace
dúkkaði, drap næsta slag
með tígulás, tók hjartaás og
yfirdrap síðan spaðadrottn-
ingu til að svína tvisvar í
laufi. Vestur átti þó öruggan
laufslag á kónginn og nú var
spilið tapað.
Þessi spilamennska Vers-
ace er ekki sú besta. Hvort
sem hann tekur strax á tíg-
ulás eða dúkkar einu sinni,
er best að spila spaðadrottn-
ingu og hjartaás og senda
vörnina svo inn á tígul. Í
þessari lengu lendir austur
inni og getur tekið tvo tíg-
ulslagi (suður hendir hjarta-
gosa og einum spaða). Ef
austur spilar nú hálit kemst
suður inn til að taka spaða-
slagina og svína í laufi. Og
það dugir austri ekki að spila
laufi, því suður lætur níuna
og setur vestur í vanda.
Blindur er frír ef hann legg-
ur kónginn á níuna, svo hann
verður að dúkka og gefa
sagnhafa innkomu heima.
Sama niðurstaða.
Með þessari leið vinnast
fjögur grönd ef spaðinn fell-
ur 3-3 eða laufið skilar sér
tapslagalaust.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 b6
4. a3 Bb7 5. Rc3 d5 6. Dc2
c5 7. cxd5 cxd4 8. Rxd4
Rxd5 9. Rdb5 Rc6 10. Rxd5
exd5 11. Bf4 Hc8 12. Dc3 f6
13. Dh3 Kf7 14. e3 g5 15.
Dh5+ Kg7
16. Bg3 a6
17. Rc3 d4
18. Bc4
De8 19.
Dxe8 Hxe8
20. Rd5
Re5 21.
Rc7 Hc8
22. Re6+
Kg6 23.
Bxe5 fxe5
24. Bb3 d3
25. Kd2
Be7 26. f3
e4 27. h4
gxh4 28.
Rf4+ Kh6
29. Hh3
Hc5 30.
Re6 Hg8
31. Rf4 Hgc8 32. Hb1 Bf6
33. fxe4 Bxe4 34. Hf1 Hb5
35. Re6 Be7 36. Rd4
Staðan kom upp á öðru
bikarmóti FIDE sem lauk
fyrir skömmu í Moskvu.
Ruslan Ponomarjov (2743)
hafði svart gegn Alexey
Dreev (2677). 36... Hxb3!
37. Rxb3 Hc2+ 38. Kd1
Bxg2 og hvítur gafst upp.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
FRÉTTIR
SETT hefur verið upp svokölluð
hlunnindasýning á Reykhólum í
Austur-Barðastrandasýslu. Sýning-
in verður formlega opnuð 27. júlí kl.
14. Sýningin verður opin frá kl. 13
til kl. 18 alla daga fram til 15.
ágúst. Eftir það verður afgreiðslu-
tími styttur.
Á sýningunni er sýnd nýting sels-
ins, nýting æðarfuglsins og sex teg-
unda sjófugla.
„Höfuðbólið Reykhólar í Austur-
Barðastrandarsýslu er viðurkennt
sem mikil hlunnindajörð. Þar sátu
höfðingjar til forna og höfðu um sig
hirð mikla. Væringar voru tíðar
með mönnum og því oft gott að
ekki var langt að leita fanga til
matar fyrir heimilisfólk og gesti.
Breiðafjörðurinn var og er mikil
matarkista. Eyjarnar á Breiðafirði
og sjórinn þóttu gefa vel bæði af
fugli og fiski,“ segir í fréttatilkynn-
ingu.
Á veggjum og gólfi eru myndir
og uppsettir hlutir. Texti er bæði á
íslensku og ensku. Selur flæktur í
net hangir á vegg. Þrjú sjónvörp
eru í gangi með myndum úr lífi
þessara dýra og af ýmsu sem teng-
ist þeim. Hægt er að hlusta á ensk-
an texta með myndunum. Barna-
horn er í salnum, útbúið með
fjölmörgum myndum af fuglum og
litum til að lita fuglamyndirnar,
þegar búið er að skoða þær.
Að uppsetningu hlunnindasýning-
arinnar unnu þau Sigrún Kristjáns-
dóttir þjóðfræðingur, Finnur Arnar
Arnarson leikmyndasmiður og Þór-
arinn Blöndal myndlistarmaður,
auk heimamanna sem smíðuðu og
máluðu og unnu að útvegun muna á
sýninguna.
Hlunnindasýning
á Reykhólum
MORGUNBLAÐINU hefur borist
ályktun frá NAUST um Kárahnjúka-
virkjun og álver í Reyðarfirði. Þar
segir meðal annars:
„Í tilefni af viljayfirlýsingu ríkis-
stjórnar Íslands og bandaríska álfyr-
irtækisins ALCOA, 18. júlí 2002, vill
stjórn Náttúruverndarsamtaka Aust-
urlands (NAUST) ítreka fyrri sam-
þykktir, þar sem varað er við þeirri
víðtæku röskun, sem Kárahnjúka-
virkjun mun valda á Fljótsdalshéraði.
Stjórnin bendir á úrskurð Skipu-
lagsstofnunar frá 1. ágúst 2001, þar
sem þessari virkjunartilhögun var
hafnað, og niðurstöðu tilraunamats
rammaáætlunar um nýtingu vatns-
afls og jarðvarma á 15 virkjunarkost-
um, þar sem Kárahnjúkavirkjun er
talin hafa mest umhverfisáhrif, ásamt
virkjun Jökulsár á Fjöllum.
Fullyrðing ALCOA um að þetta sé
umhverfisvænsti virkjunarkostur
sem fyrirtækið eigi úr að velja sýnir
aðeins hversu geigvænlegar áætlanir
eru í gangi varðandi stórar vatns-
virkjanir víða um heim.
Viðurkennt er að fyrirhugaðar
framkvæmdir valdi mikilli þenslu í
efnahagslífi þjóðarinnar, sem bregð-
ast verði við með hækkuðum vöxtum.
Á Austurlandi verður um gullgrafara-
ástand að ræða meðan á framkvæmd-
um stendur, sem raska mun hefð-
bundnum atvinnugreinum.
Öll náttúruverndarsamtök á Ís-
landi hafa mótmælt Kárahnjúkavirkj-
un og sömuleiðis nokkur alþjóðleg
samtök, svo sem World Wildlife
Fund. 120 Austfirðingar andmæltu
fyrirhuguðum vatnaflutningum í Mbl.
17. mars sl.
Stjórn NAUST mótmælir sérstak-
lega þeirri ákvörðun Landsvirkjunar
að hefja framkvæmdir við Kára-
hnjúkavirkjun í sumar, áður en nokk-
ur niðurstaða hefur fengist í samn-
ingum við ALCOA.“
Vara við röskun vegna
Kárahnjúkavirkjunar
70 ÁRA afmæli. Ámorgun, föstudaginn
26. júlí, er sjötugur Kristján
Ásgeirsson, Álfhóli 1, Húsa-
vík. Eiginkona hans er Erla
Jóna Helgadóttir. Kristján
og Erla taka á móti vinum
og samstarfsmönnum í sam-
komusal Hvamms, heimili
aldraðra, frá kl. 17.30–21 á
afmælisdaginn.
SAMTÖKIN World Wide Fund,
WWF, fordæma stjórnendur Alcoa
sem og íslensk stjórnvöld vegna und-
irritunar viljayfirlýsingar þeirra um
álvers- og virkjunarframkvæmdir á
Austurlandi að því er fram kemur í
tilkynningu frá samtökunum. Segir
m.a að ef þessi áform verði að veru-
leika tákni það að stórum hluta af
austurhálendinu verði spillt til fram-
búðar. „Slíkar framkvæmdir munu
hafa áhrif á bæði plöntu- og dýralíf á
um þrjú þúsund ferkílómetra svæði
á hálendinu auk þess sem hluti af
náttúruperlunni Dimmugljúfrum
verður eyðilagður.“
Samantha Smith, einn fram-
kvæmdastjóra WWF, segir að með
þátttöku sinni í verkefninu horfi Al-
coa fram hjá eigin áherslum í um-
hverfismálum. „Það má vera að við
höfum tapað fyrstu smáorrustunni í
viðleitni okkar til þess að stöðva
framkvæmdirnar og gera þetta
svæði að þjóðgarði en við höfum alls
ekki tapað stríðinu. Þrátt fyrir að
stjórnendur Alcoa hafi undirritað
viljayfirlýsingu um framkvæmdirn-
ar ásamt með Landsvirkjun og ís-
lenskum stjórnvöldum getur Alcoa
enn dregið sig út úr verkefninu og
við skorum á Alcoa að standa við
áherslur sínar í umhverfismálum og
gera það.“
WWF gagnrýna virkj-
anaáform á Austurlandi