Morgunblaðið - 25.07.2002, Síða 56
FÓLK Í FRÉTTUM
56 FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Verðhrun
Enn meiri verðlækkun
60% afsláttur af öllum útsöluvörum!
GK REYKJAVÍK
www.gk.iskonur kringlunni menn laugavegi
Gíraffinn
(Meschugge/The Giraffe)
Spennudrama
Þýskaland/Sviss/Bandaríkin, 1998.
Myndform, VHS. (105 mín.) Bönnuð inn-
an 12 ára. Leikstjórn: Dani Levy. Aðal-
hlutverk: Maria Schrader, Dani Levy, Dav-
id Strathairn.
ÞESSI evrópsk/bandaríska sam-
framleiðsla sker sig að mörgu leyti úr
þegar litið er til þess úrvals spennu-
mynda sem venjulega er að finna í
hillum myndbandaleiganna. Um er
að ræða verkefni sem leikararnir
Dani Levy og Maria Schrader skrifa,
leikstýra og túlka
aðalpersónurnar í,
og einkennist út-
koman af alvöru-
þunga og hæg-
gengu raunsæi.
Sögð er tilfinninga-
hlaðin spennusaga,
sem hefst á morði í
bandarísku hóteli,
en teygir rætur sínar nokkuð langt í
tíma og rúmi. Við sögu koma banda-
rískir borgarar af þýskum og gyðing-
legum uppruna og flettir sakamála-
sagan að lokum ofan af glæp og
svikum sem áttu sér stað í kringum
helförina á yfirráðasvæðum Hitlers í
heimsstyrjöldinni síðari.
Þetta er vönduð spennumynd engu
að síður, og er ánægjuleg tilbreyting í
því að heyra persónur tala þýsku og
ensku eftir því sem það á við, og gefur
það myndinni eðlilegra og gáfulegra
yfirbragð en þegar enskan er notuð
með mismunandi „hreimum“ eins og
svo algengt er í albandarískum kvik-
myndum. Heiða Jóhannsdóttir
Myndbönd
Fólk með fortíð
ÞAÐ hlaut að koma að því að hljóm-
sveit nefndi sig A (og þá að sjálf-
sögðu eftir samnefndri plötu Jethro
Tull frá 1980!).
A leggja sig eftir útvarpsvænu
popppönki sem Green Day hleyptu
út á markaðinn í kringum ’94 með
plötunni Dookie.
Sú plata er að
verða eitt áhrifa-
mesta „verk“ síð-
ustu ára í dægur-
tónlistinni, hvort
sem fólki líkar bet-
ur eða verr.
Flestir búa til Green Day-rokk af
stöku andleysi en slíkt á ekki við um
A. Þeir gera þetta bara skrambi vel.
Hvað gerist þegar Police, Van
Halen, Blink 182 og Green Day hitt-
ast á götuhorni? Jú, þeir stofna með
sér hljómsveitina A. Söngvarinn
minnir nefnilega verulega á vin okk-
ar Sting og undir niðri eru tilvísanir í
nýbylgju níunda áratugarins, tímabil
sem harðrokkarar dagsins í dag
virðast aldrei ætla að þreytast á.
Rennslið hér er skothelt og mel-
ódíurnar góðar. Grípandi línur sem
fá hausinn til að hristast og leggina
til að líða um, sé sá gállinn á manni.
Kraftmikið, poppað pönkrokk sem
svínvirkar á grillið. Það er kannski
ekki verið að finna upp hjólið hér en
felgurnar eru skreyttar á nokkuð út-
sjónarsaman hátt.
Tónlist
Þeir rokk-A
A
Hi-Fi Serious
London Records
A rokka bara sæmilega vel. Ekkert við
þennan grip að athuga.
Arnar Eggert Thoroddsen
ÞEIR félagar komu askvaðandi inn á
skrifstofur Moggans í fyrradag með
eintak af diskinum nýja, Góðir far-
þegar, og voru því teknir með snið-
glímu á lofti og afgreiddir snögglega
með stuttu spjalli.
Jæja, hvað segið þið, Buff loksins
með plötu? Sveitin er engu að síður
búin að starfa í einhvern tíma?
Bergur: „Jú, jú. Við erum búnir að
vera að spila í þetta þrjú, fjögur ár, á
Skjá einum og á börum bæjarins. Við
byrjuðum að spila á Óliver og vorum
þar nánast hvert einasta sunnudags-
kvöld í tvö ár. Vorum með tónlist og
uppistand.“
Pétur: „Fólk var svo löngu hætt að
koma til að hlusta á okkur spila lög.
Það vildi bara fá uppistand. En við
vorum aldrei með neina efnisskrá
þannig. Það er eins og þegar einhver
biður þig um að segja brandara, þá
kemur ekkert.“
Hvernig gekk að vinna plötuna?
Pétur: „Við byrjuðum á henni fyrir
tveimur árum, með allt öðrum mann-
skap en fólk sér framan á plötunni.
Fæðingin er búinn að vera mjög erf-
ið, við byrjuðum á því að taka upp 3, 4
lög og svo kom langt stopp. Við fór-
um svo í Stúdíó september sem við
eigum sjálfir og kláruðum plötuna.“
Buff hefur nú lítið verið að trana
sér beint fram...
Pétur: „Ja... við vorum svona að-
stoðarmenn á Skjánum þannig að
það mætti segja að þetta væri okkar
fyrsta „trönun“ (hlær).“
En svo virðist sem þið séuð mjög
uppteknir menn, þið sjáist syngja og
leika með hinum og þessum?
Pétur: „Jú, ég geri t.d. mikið af því
að syngja bakraddir og maður fer
svona í hin og þessi verkefni. Maður
hefur atvinnu af þessu. Einnig tala
ég og syng inn á teiknimyndir af og
til.“
Bergur: „Svo rekum við saman
hljóðver og ég er með hljóðfæra-
leigu. Ég er ekki nógu góður bassa-
leikari til að ég geti lifað af því
(hlær).“
Er orðið auðveldara að gefa út
plötu í dag?
Bergur: „Ég veit það nú ekki. Það
er útilokað að reikna laun á nokkurn
mann ef maður gefur út sjálfur. Ef
þetta kemur út á sléttu er maður
launalaus, ekki í stórkostlegum mín-
us.“
Pétur: „Það er t.a.m. fyndið hvern-
ig plötusala og tónleikar víxlast hér-
lendis, miðað við hvernig þetta er er-
lendis. Plötur eru gefnar út á Íslandi
svo að fleiri mæti á böllin/tónleikana.
En úti eru tónleikar haldnir svo að
fleiri kaupi plöturnar!“
Nýstárlegir útgáfutónleikar
Buff verður með útgáfutónleika í
kvöld á Gauki á Stöng kl. 21. Tónleik-
arnir eru æði sérstakir en Buff munu
ekki spila neitt lag af diskinum sjálf-
ir. Um það munu ellefu sveitir aðrar
sjá. Þær eru Á móti sól, Buttercup,
Geirfuglarnir, Í svörtum fötum, Íra-
fár, Miðnes, Sálin hans Jóns míns,
Sóldögg, Búgalú, Dead Sea Apple og
Nýdönsk. Ókeypis er inn.
Okkar fyrsta „trönun“
Hljómsveitin Buff á sér
langa sögu en er þó í fyrsta
sinn að gefa út disk, og er
hann eingöngu með frum-
sömdu efni. Þeir Pétur Örn
Guðmundsson og Bergur
Geirsson töluðu Arnar
Eggert Thoroddsen í buff. Bufflimir: Pétur, Hannes Heimir Friðbjarnarson og Bergur.
Buff gefur út Góðir farþegar
arnart@mbl.is