Morgunblaðið - 25.07.2002, Page 64

Morgunblaðið - 25.07.2002, Page 64
LANDI hefur verið úthlutað til ný- bygginga á Reyðarfirði og stefnt að því að byggja þar átta nýjar íbúðir – ef álvershugmyndirnar verða að veruleika en um sjö ár eru síðan nýtt íbúðarhúsnæði var byggt á Reyðarfirði. Bjartara er yfir fast- eignamarkaðinum í Fjarðabyggð og að sögn fasteignasala á svæðinu er fólk hvaðanæva af landinu farið að spyrjast fyrir um húsnæði. Þá standa nú yfir vegafram- kvæmdir rétt utan byggðarinnar á Reyðarfirði en þar er unnið að lagningu nýs fjögurra kílómetra vegar út að Framnesi, sem er skammt frá Sómastöðum þar sem gert er ráð fyrir að álverið sjálft rísi. Aukin bjartsýni í Fjarðabyggð Morgunblaðið/Kristinn  Fyrstu / 4 MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. Lágmúla og Smáratorgi opið kl. 8-24 alla daga STJÓRN Fjárfestingarfélagsins Kaldbaks hf., sem er að mestu í eigu KEA, Samherja á Akureyri og Lífeyrissjóðs Norðurlands, veitti í gær framkvæmdastjóra fé- lagsins heimild til að leggja inn er- indi til framkvæmdanefndar um einkavæðingu þar sem lýst er áhuga á viðræðum um kaup á hlut ríkisins í Landsbankanum og Bún- aðarbankanum. Frestur til þess hjá nefndinni rennur út kl. 16 í dag vegna frekari sölu á eignar- hlut ríkisins í bönkunum en ríkið á nú 55% hlut í Búnaðarbanka og 48% í Landsbanka. Eiríkur S. Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri Kaldbaks, sagði í samtali við Morgunblaðið að stjórnarfundi loknum að allar líkur væru á því að félagið legði inn beiðni um viðræður. Aðspurður hvorum bankanum félagið hefði áhuga á sagði Eiríkur að miðað við auglýsingu einkavæðingarnefndar væru það báðir bankarnir, erfitt væri að sjá af auglýsingunni hvor bankinn yrði seldur strax. „Það verður að koma í ljós hvort einka- væðingarnefnd telur okkur þess verða að tala við okkur,“ sagði Ei- ríkur. Aðspurður hvort Kaldbakur stæði einn og sér í málinu sagði Eiríkur enga launung á því að fé- lagið hefði rætt við aðra fjárfesta, innlenda sem erlenda, um mögu- lega þátttöku. Hann vildi ekki upplýsa um hvaða fjárfesta væri að ræða en ef af slíku samstarfi yrði myndi Kaldbakur eftir sem áður leiða þann hóp. Kaldbakur er í eigu rúmlega 8 þúsund hluthafa, sem flestir mynduðu A- og B-deild stofnsjóðs Kaupfélags Eyfirðinga svf. Að því er fram kemur á vef félagsins eru stærstu hluthafar KEA með 46,9% eignarhlut, Samherji með 18,4%, Lífeyrissjóður Norðurlands 14,8%, Vátryggingafélag Íslands með 1,5% og Olíufélagið 1,3%. Kaldbak- ur hóf formlega starfsemi í byrjun þessa árs þegar félagið tók yfir all- ar eignir og skuldir KEA. Stefnt er að skráningu á hlutabréfamark- aði hérlendis síðar á árinu. Stjórn- arformaður Kaldbaks er Jóhannes Geir Sigurgeirsson. Óljóst með þremenningana Feðgarnir Björgólfur Guð- mundsson og Björgólfur Thor Björgólfsson, ásamt Magnúsi Þor- steinssyni, óskuðu eftir því í bréfi til einkavæðingarnefndar í byrjun þessa mánaðar að hefja viðræður við ríkissjóð um kaup á umtals- verðum hlut ríkisins í Landsbank- anum. Ekki lögðu þeir fram form- legt kauptilboð en í kjölfarið auglýsti nefndin eftir áhuga ann- arra fjárfesta með það að mark- miði að gæta jafnræðis meðal þeirra. Drógu þremenningarnir þá ósk sína um viðræður til baka. Ekki náðist í þá í gær til að fá upplýsingar um hvort þeir hygðust sýna áhuga að nýju á viðræðum við ríkið um kaupin. Er þeir drógu ósk sína til baka í bréfi til fram- kvæmdanefndar um einkavæðingu 4. júlí síðastliðinn sagði Björgólfur Thor m.a. að staða mála yrði end- urmetin þegar auglýstur tilboðs- frestur rynni út. Þangað til hefðu þeir ekkert frekar um málið að segja. Kaldbakur, sem er í eigu Samherja, KEA, Lífeyrissjóðs Norðurlands og fleiri Sýnir áhuga á bæði Lands- banka og Búnaðarbanka Frestur fjárfesta til að svara einkavæðingarnefnd rennur út í dag 10 ÁRA drengur slasaðist nokkuð, þó ekki lífshættulega, þegar hann féll niður í húsgrunn við Þorláks- geisla í Grafarholtshverfi í Reykja- vík á tíunda tímanum í gærkvöld. Drengurinn féll úr stiga og lenti á steypustyrktarjárni. Fallið var um tveir metrar, en hann var, að sögn lögreglu, að hjálpa fjölskyldu sinni við húsbyggingu þegar slysið átti sér stað. Drengurinn var fluttur á slysa- deild Landspítalans í Fossvogi. Vakthafandi læknir á slysadeild sagði líðan drengsins í gærkvöld vera bærilega, hann væri ekki í lífs- hættu. Drengurinn átti að gangast undir frekari rannsóknir í gær- kvöld. Teinninn gekk upp í nára dreng- isins, en það reyndist ekki vera lífs- hættulegur áverki. Drengur féll á steypustyrktarjárn SNÁKUR var handsamaður á Rétt- arholtsvegi í gær. Hann hafði hring- að sig á mottu við inngang íbúðar. Lögreglan færði hann til dýralækn- is, þar sem hann var svæfður. Eig- andi snáksins fannst ekki, en líklegt þykir að snákurinn hafi sloppið úr húsi í grenndinni. Snákur handsamaður ÁTTA ÁRA drengur á reiðhjóli varð fyrir bíl á Heiðarbraut í Garði laust eftir hádegi í gær. Hann var fluttur með sjúkrabifreið á Landspítala þar sem hann gekkst undir aðgerð síðdegis vegna höfuðáverka. Drengurinn var með hjálm, en að sögn lögreglu hlaut hann engu að síður heilahristing við höggið. Vakthafandi læknir á gjörgæslu- deild sagði í gærkvöld að dreng- urinn væri alvarlega slasaður. Hann væri í öndunarvél og væri haldið sofandi. Drengur varð fyrir bíl í Garði RAFRÆN afladagbók, sem talin er geta létt skipstjórnarmönnum störf- in og tryggt betri upplýsingagjöf til Hafrannsóknastofnunar og Fiski- stofu, er nú til prófunar hjá nokkrum skipstjórum. Hugbúnaðurinn, sem er íslenskur, mun gjörbreyta og auð- velda allt vinnuferli við að færa afla- skýrslur um borð í fiskiskipum og senda til Fiskistofu með rafrænum hætti. Þá getur hugbúnaðurinn, sem Radiomiðun hf, Sjávarútvegsstofnun HÍ og Fiskistofa standa í samein- ingu að, haldið utan um upplýsingar um veiðarnar fyrir skipstjóra og sýnt þær með aðgengilegu móti. AGR ehf. hefur séð um smíði hug- búnaðarins. Upplýsingarnar verða sendar með tölvupósti frá skipum í land. Með því að tölvuvæða skráningar og skýrslu- gerð til Fiskistofu er hægt að ein- falda skráningarferlið og gera það um leið nákvæmara og áreiðanlegra með því að byggja inn í það innra eft- irlit. Upplýsingarnar verða dulkóðaðar þannig að enginn óviðkomandi geti lesið aflaskýrslurnar. Með því að uppfylla skilyrði um rafræna undir- skrift munu skýrslurnar einnig öðl- ast lagalegt gildi. Hugbúnaðinum mun einnig fylgja fyrirspurnakerfi þannig að hægt er að skoða veiðisögu og aflasamsetn- ingu úr hverri veiðiferð og hverju holli. Þá verður einnig hægt að bera saman árangur veiða með mismun- andi veiðarfærum o.s.frv. Hugbúnaðurinn mun hafa fengið jákvæðar viðtökur hjá þeim skip- stjórum sem hafa prófað hann til þessa. Nýr íslenskur hugbún- aður er í smíðum Rafræn afladagbók tryggir betri upp- lýsingagjöf  Rafræn afladagbók / B-12 ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.