Morgunblaðið - 11.08.2002, Síða 19

Morgunblaðið - 11.08.2002, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. ÁGÚST 2002 19 Viltu stytta þér leið? Innritað verður á haustönn 2.- 6. september. Einungis er hægt að skrá sig á heimasíðu skólans, www.fa.is. Þar eru einnig upplýsingar um áfanga í boði. Innritunargjald er kr. 4.250. Kennsla hefst 19. september og prófað verður í desember. Skólameistari Fjarnám allt árið til að fá stílabækur, blek og penna. Slíkir hlutir lágu ekki á lausu á þessum tíma. Einu kennslubækurn- ar sem við höfðum voru þær sem lettnesku kennararnir höfðu tekið með sér í útlegð. Yfirleitt höfðu því einungis kennararnir kennslubækur og þeir urðu að spinna þetta eftir eyranu. Þessir skólar skiluðu hins vegar af sér börnum sem stóðu sig vel hvert sem þau fóru. Jafnvel krakkarnir, sem þarna þóttu hálf- gerðir skussar, báru af þegar þau komu til annarra landa. Menntahefð Letta á þessum árum virðist hafa verið einstaklega góð. Var það erfið ákvörðun að snúa aftur heim til Lettlands eftir að hafa búið um áratugaskeið í Kanada? Ég fékk mjög freistandi tilboð frá háskólanum mínum árið 1998. Mér var boðið að fara á eftirlaun um sex- tugt án þess að missa niður mikið af eftirlaununum mínum. Það var vissulega svolítið erfitt að hætta þar sem prófessorsstarfið var svo ríkur þáttur af sjálfsmynd minni. Þetta gerði mér hins vegar kleift að ein- beita mér að öðrum verkefnum, til dæmis rita bækur, án þess að tekjur mínar myndu skerðast. Örfáum mánuðum síðar fékk ég svo annað tilboð er ég gat ekki hafnað. Mér bauðst að taka við starfi forstöðu- manns Lettnesku upplýsingastofn- unarinnar. Ég var á þessum tíma- punkti búin að snúa baki við mínu gamla starfi og var opin fyrir ýmsu. Þetta var því himnasending. Mér bauðst að snúa aftur til föðurlands míns og byggja þar upp nýja stofn- un. Þarna sá ég fram á að geta nýtt mér þá hæfileika er ég hafði aflað mér í útlöndum til að byggja upp lettneska upplýsingamiðstöð er átti að styrkja ímynd Lettlands. Ég fékk tvær vikur til þess að velta þessu fyrir mér áður en ég varð að pakka dótinu niður í ferðatöskur og halda til Lettlands. Ég ákvað að taka þessari áskorun. Eiginmaður minn varð hins vegar að vera áfram í Kanada fyrst um sinn til að afla sér eftirlaunaréttinda. Ég fór því ein og skildi eftir köttinn minn, blómin mín, bækurnar sem ég var að skrifa, eiginmanninn og dóttur okkar sem enn bjó heima. Þetta var of spennandi áskorun til að hafna henni. Átta mánuðum síðar komu svo fulltrúar þriggja stjórnmálaflokka á minn fund og sögðust vera reiðu- búnir að styðja mig í embætti for- seta ef ekki næðist samstaða um frambjóðanda í fyrstu atkvæða- greiðslunni á þinginu. Þeir spurðu hvort ég væri reiðubúin að gefa kost á mér. Þetta var mjög erfið ákvörð- un því ef ég gæfi kost á mér varð ég að afsala mér kanadísku ríkisfangi. Annars hefðum við getað haft tvö- falt ríkisfang áfram. Enn og aftur gat ég hins vegar ekki skorast und- an. Hefur það einhvern tímann valdið þér erfiðleikum í embætti að hafa búið þetta lengi utan Lettlands? Nei, þvert á það sem margir lík- lega vonuðu. Þetta hefur ekki haml- að mér. Maður getur lært hlutina mjög hratt. Við erum frekar lítið land og þingmenn og fólk sem er virkt í stjórnmálum hleypur ekki á þúsundum. Þegar ég kom til Lett- lands byrjaði ég á því að kaupa og lesa alls konar tímarit til að átta mig á því hvernig fólk hugsaði. Ég hafði fyrir góð sambönd við fólk tengt þjóðlegum fræðum og myndlistar- menn, rithöfunda, tónlistarmenn og kvikmyndagerðarmenn. Ég var með mjög góð sambönd við lettneska

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.