Morgunblaðið - 11.08.2002, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 11.08.2002, Qupperneq 20
20 SUNNUDAGUR 11. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ menntamenn. Auðvitað varð ég að koma mér í kynni við þá sem gegndu forystuhlutverki í lettnesku samfélagi en það er þó ekki neinn risavaxinn hópur og með ástundun getur maður kynnst þeim á fremur skömmum tíma. NATO-aðild mikilvæg af sögulegum ástæðum Aðild að Evrópusambandinu og NATO hefur verið mikilvægasta málið í lettneskri þjóðfélagsumræðu um nokkurra ára skeið. Hvaða þýð- ingu mun aðild að þessum stofn- unum hafa fyrir Lettland? Aðild að NATO myndi binda enda á eftirleik þeirra atburða er áttu sér stað árið 1939, í kjölfar sáttmála Ribbentrops og Molotovs, er skipti Evrópu upp í áhrifasvæði. Við telj- um það ekki nægilegt að fljóta með í áttina að nýju heimsskipulagi. Við teljum, af sögulegum ástæðum, að með þessu yrði samningur Ribb- entrops og Molotovs ógiltur, með formlegum samningi, undirrituðum af aðildarríkjum NATO, og við mundum síðan sem nýtt aðildarríki staðfesta samninginn. Það hefði sögulega þýðingu fyrir okkur. Við yrðum viðurkennd sem sjálfstæð þjóð er hefði fullt og óskorað vald til að ganga í bandalög með öðrum ríkjum og þyrftum ekki að hafa áhyggjur af árásum annarra ríkja. Þetta myndi líka efla öryggi okk- ar í víðasta skilningi orðsins. Við yrðum undir hinum sameiginlega verndarskildi og í þeirri vissu að við stæðum ekki ein. Það mun hafa mik- il áhrif á ímynd Lettlands og við er- um sannfærð um að það muni auka erlenda fjárfestingu í landinu. Við höfum séð það gerast í hinum nýju aðildarríkjum, Póllandi, Tékklandi og Ungverjalandi, að NATO-aðildin hefur ýtt undir erlenda fjárfestingu. Fjárfestar eru öruggari um sig ef formlegur samningur er í gildi en ekki einungis heiðursmannasam- komulag um að ríkinu verði komið til hjálpar ef eitthvað gerist. Við höfum nú skuldbundið okkur til að verja 2% af vergri þjóðarfram- leiðslu fram til ársins 2008 til að byggja herafla okkar upp frá grunni. Sú uppbygging mun hafa ýmsa kosti í för með sér, ekki síst atvinnusköpun. Þarna mun ungum körlum og konum bjóðast tækifæri til að afla sér menntunar og sérhæf- ingar. Þessu fylgja líka ýmis tæki- færi og nú þegar hafa lettneskir hermenn til dæmis verið sendir til Georgíu sem eftirlitsmenn. Við stefnum að því að byggja upp at- vinnuher í framtíðinni og geta dreg- ið úr fjölda þeirra sem þurfa að gegna herskyldu. Við tökum því ekki einungis á okkur efnahagslegar skuldbindingar heldur mun þetta skila samfélaginu miklu. Lettland hefur skuldbundið sig til að umbylta herafla sínum þannig að hann standist kröfur NATO. Þegar litið er til skoðanakannana er ljóst að töluverður munur virðist vera á afstöðu fólks til ESB og NATO. Mikill meirihluti lettnesku þjóðarinnar virðist styðja NATO- aðild en minnihluti er fylgjandi ESB-aðild. Er það áhyggjuefni? Það eru miklar sveiflur á stuðn- ingi við ESB og stuðningurinn virð- ist ráðast af daglegum fréttaflutn- ingi. Stuðningur við ESB-aðild náði lágmarki eftir að framkvæmda- stjórn ESB kynnti tillögur sínar í byrjun árs, þar sem fyrst var ekki gert ráð fyrir neinum beingreiðslum og niðurgreiðslum til bænda í nýju aðildarríkjunum en síðar að þeir myndu fá fjórðung af þeim stuðn- ingi sem bændur í núverandi aðild- arríkjum fá. Þegar Evrópusam- bandið greiddi hins vegar loks út styrki, sem lettneskir bændur höfðu sótt um fyrir tveimur árum og voru orðnir langeygir eftir að fá, jókst stuðningur við ESB skyndilega til muna. Stuðningur við aðild minnk- aði því fyrst, jókst aftur og minnk- aði svo á nýjan leik þegar ESB kynnti tillögur sínar um mjólkur- kvóta. ESB hefur boðið Lettum mjög lága kvóta á grundvelli viðmið- unartímabils sem var okkur mjög óhagstætt. Á fyrri hluta tímabilsins voru umskiptin frá stóru sam- yrkjubúunum yfir í einkarekin býli enn í gangi og síðari hluti viðmið- unartímabilsins eru ár sem voru okkur mjög erfið vegna efnahags- kreppunnar í Rússlandi. Þá misst- um við stóran hluta af útflutnings- markaði okkar. Mjólkurkvótinn sem okkur stendur til boða er helmingur þess sem við framleiðum í dag. Bændur okkar hafa réttilega bent á að með þessu væri okkur ekki heim- ilt að framleiða mjólk er myndi duga fyrir innanlandsneyslu. Hvað þá út- flutning og frekari vöxt greinarinn- ar. Þetta er ekki viðunandi. Við vissum að viðræðurnar um landbúnarmál yrðu erfiðar og sú hefur orðið raunin. Við erum hins vegar langt komin með aðildarvið- ræðurnar og höfum í mörgum til- vikum fengið viðunandi aðlögunar- tíma til að laga okkur að sambandinu. Mjólkurkvótarnir eru hins vegar stórmál og Lettar eru ekki sáttir við það sem er í boði. Að öðru leyti ganga aðildarvið- ræðurnar vel, við erum ánægð með gang mála og almenningur sýnir þessu skilning. Nú erum við hins vegar að komast á leiðarenda og þjóðaratkvæðagreiðsla verður hald- in um aðildarsamninginn eftir að viðræðum lýkur. Þetta minnir um margt á aðdraganda brúðkaups þar sem fólk fer að hafa efasemdir á síð- ustu stundu. Fólk veltir því fyrir sér hvort það sé í raun að taka rétta ákvörðun með því að tengjast að ei- lífu, hvort hamingja eða vesöld blasi við. Það er titringur í fólki. Hvaða áhrif mun aðild að NATO og ESB hafa á samskipti Letta og Rússa? Fyrir einungis tveimur ár- um vakti það athygli er þú gagn- rýndir stefnu Rússlands gagnvart Eystrasaltsríkjunum harkalega. Ríki geta ávallt breytt um stefnu. Undir núverandi stjórn og lýðræð- iskerfi ógnar Rússland Lettlandi ekki á neinn hátt. Fræðilega séð getur það þó breyst, ný öfl gætu komist til valda. Rússar eru ná- grannar okkar og þessi fræðilegi möguleiki verður ávallt fyrir hendi. Við getum ekki útilokað að þróunin verði óhagstæð. Sem stendur eru samskipti ríkjanna eðlileg að öllu leyti og raunar bendir flest til að þau séu stöðugt að batna og eflast. Höfuðborgin Riga á góð samskipti við Moskvuborg og margt bendir til að brátt muni Rússland og Lettland geta undirritað samninga um marg- vísleg málefni. Það eina sem skyggir á samskiptin eru yfirlýsingar rúss- neska utanríkisráðuneytisins um að illa sé farið með rússneska minni- hlutann í Lettlandi og að hann eigi undir högg að sækja. Við vísum slík- um fullyrðingum til föðurhúsanna. Við teljum að við fylgjum evrópsk- um lýðræðisstöðlum í einu og öllu. Ég tel að með aðild að ESB verð- um við enn áhugaverðari viðskipta- aðili fyrir Rússa. Við eigum mikil viðskipti vegna vöruflutninga um hafnir Lettlands. Rússar hafa áhuga á því að nýta eigin hafnir í auknum mæli í stað lettnesku hafnanna í Ventspils og Riga. Ef efnahagsleg sjónarmið munu ráða ferðinni en ekki pólitísk verða þessar hafnir hins vegar góður kostur í framtíð- inni. Lettland ætti að geta laðað til sín rússneska fjárfestingu og við- skipti er beinast að Evrópusam- bandinu. Þar sem við höfum landa- mæri að Rússlandi höfum við landfræðilega sterka stöðu í þessu sambandi. Vonandi tekst að styrkja tengsl þjóðanna enn frekar Samskipti Íslands og Lettlands hafa verið góð og tilfinningaleg bönd milli þjóðanna sterk. Hin land- fræðilega fjarlægð gerir hins vegar að verkum að bein samskipti þjóð- anna hafa verið af skornum skammti. Hvernig sérð þú fyrir þér að hægt verði að efla samskipti Ís- lendinga og Letta? Það er athyglisvert hversu ört viðskiptatengsl milli Íslands og Lettlands hafa vaxið. Í ljósi stærðar ríkja okkar er árangurinn undra- verður. Í tengslum við hina opin- beru heimsókn mun á fimmta tug fulltrúa úr lettnesku viðskiptalífi koma til Íslands. Allir hafa þeir skipulagt fjölmarga fundi með ís- lenskum fyrirtækjum til að afla sér tengsla eða þá reynslu. Til að mynda hafa menn áhuga á að kynna sér rekstur álvers Alcan á Íslandi og einnig hefur verið rætt um sam- starf á sviði erfðavísinda. Það er því ýmislegt í gangi og vonandi mun þetta skila árangri. Það er svo annað mál hvernig hægt er að efla bein tengsl mill þjóðanna, meðal annars með ferðum einstak- linga. Hvað okkur varðar mun það ráðast af því hversu hratt okkur gengur að efla lífskjör þjóðarinar. Það blasir við að það er dýrara að ferðast til fjarlægari landa en ná- grannaríkja. Vonandi munu Íslend- ingar, sem eru tekjuhærri en Lett- ar, sýna gott fordæmi með því að sækja Lettland heim. Flestir Lettar þekkja til Íslands og í huga þeirra er það fagurt land sem hefur ávallt stutt við bakið á Lettum, ekki síst með því að viðurkenna sjálfstæði okkar fyrst allra. Við finnum til sterkra tengsla við íslensku þjóðina. Vonandi mun okkur takast að styrkja böndin á milli þjóðanna enn frekar. ’ Það er athyglisverthversu ört viðskipta- tengsl milli Íslands og Lettlands hafa vaxið. Í ljósi stærðar ríkja okkar er árangurinn undraverður. ‘ Morgunblaðið/Þorkell Vike-Freiberga, forseti Lettlands, kom hingað til lands þegar haldin var ráð- stefna undir yfirskriftinni Konur og lýðræði og vakti þá athygli með málflutningi sínum í ávarpi í Borgarleikhúsinu. Reuters Vaira Vike-Freiberga tekur við blómum og heillaóskum eftir að hún var kjörin forseti Lettlands í júní 1999. ’ Nú erum við hins vegar að komast áleiðarenda og þjóðaratkvæðagreiðsla verður haldin um aðildarsamninginn eftir að viðræðum lýkur. Þetta minnir um margt á aðdraganda brúðkaups þar sem fólk fer að hafa efasemdir á síðustu stundu. Fólk veltir því fyrir sér hvort það sé í raun að taka rétta ákvörðun með því að tengjast að eilífu, hvort hamingja eða vesöld blasi við. Það er titringur í fólki. ‘

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.