Morgunblaðið - 11.08.2002, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 11.08.2002, Qupperneq 24
LISTIR 24 SUNNUDAGUR 11. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ Norræni menningarmálasjóðurinn veitir styrki til norrænna menningarverkefna sem eigi færri en þrjú norræn lönd/sjálfstjórnarríki taka þátt í. Umsóknum skal skilað á eyðublöðum sjóðsins og skulu þær vera póststimplaðar eigi síðar en 15. september 2002. Afgreiðsla umsókna tekur 3 mánuði. Frekari upplýsingar ásamt umsóknareyðublöðum fyrir árið 2003 er að finna á heimasíðu sjóðsins: www.nordiskkulturfond.org Norræni menningarmálasjóðurinn, Store Strandstræde 18, 1255 København K. Sími: +45 33 96 02 00 Bréfsími: +45 33 32 56 36 Netfang: kulturfonden@nmr.dk Enn er hægt að skrá sig á Tabúluna (Tabula gratulatoria) og óska Menningarsjóði þingeyskra kvenna til hamingju með hálfrar aldar afmælið. Um 200 þingeyskar konur eiga efni í bókinni sem er sannkallað stórvirki í íslensku menningarlífi. Pjaxi ehf. sími 565 9320 pjaxi@pjaxi.is www.pjaxi. Meistaraskóli hótel- og matvælagreina Í haust verður boðið upp á kvöldnám í Meistaraskóla hótel- og matvælagreina ef næg þátttaka fæst. Hér er um að ræða nám fyrir bakara, framreiðslumenn, kjötiðnaðarmenn og matreiðslumenn. Nemendur munu geta lokið náminu á tveimur önnum. Kennt verður frá kl. 17.20 til 21.45 fimm daga vikunnar. Dreifnám Dönskuáfanginn DAN 262 og tölvufræðiáfanginn TÖL 103 verða kenndir í dreifnámi með staðbundnum lotum. Nánari upplýsingar og innritun hjá áfangastjóra verknáms, Baldri Sæmundssyni, og fagstjóra meistaranáms, Guðlaugu Ragnarsdóttur, í síma 594 4000 frá kl. 9:00 til 15:00. Umsóknarfrestur er til 19. ágúst 2002. HÓTEL- OG MATVÆLASKÓLINN MENNTASKÓLINN Í KÓPAVOGI v/Digranesveg  200 Kópavogi. Sími 594 4000  Fax 594 4001 Netfang mk@ismennt.is Kvöldnám HÓTEL- OG MATVÆLASKÓLINN MARÝ þreytir frumraun sína í sýningarhaldi á Mokka um þessar mundir. Á sýningunni eru verk unnin með olíu á striga. Mest áber- andi á sýningunni er sería málverka af formum í einhvers konar fant- asíulandslagi en í öðrum verkum gætir annarra stílbrigða. Marý reynir sig til dæmis við geometr- íska abstraksjón auk þess sem hún sýnir tvær myndir, „Bærinn mál- aður rauður“ og „Vetur“, sem mál- aðar eru á barnslegan hátt með því að pára einföld form í grunnlitinn. Enn fremur má þarna sjá litla þokukennda trjámynd sem lista- konan kallar „Haust“. Marý notar mikið „heita“ liti, rauða, appelsínurauða og gula, í verk sín og fer ágætlega með þá. Formin í ævintýralandslaginu eru hvít að lit og gætu allt eins átt að vera stór útilistaverk sem komið er fyrir á rauðri plánetu. Ég veit satt að segja ekki hvort það er með vilja gert en formin eru meira og minna vitlaust teiknuð hvað fjar- vídd varðar og verða þess vegna hálf aumkunarverð á fletinum, næstum tvívíð á þrívíðum bak- grunni. Eitt má þó lesa skýrt út úr þessum myndum; Marý þarf að nema grunnatriði í teikningu og málun til að ná betri tökum á því sem hún er að reyna að gera. Bestu verk sýningarinnar þóttu mér verkin þar sem hún párar í gegnum málninguna, eins og barn á leikskóla, og hefði ég kosið að sjá fleiri slík verk á sýningunni en minnka vægi annarra á móti. Fantasíulandslag MYNDLIST Mokka-kaffi Opið mánudaga til laugardaga frá 9.30 til 23.30 og sunnudaga frá 14 til 23.30. Til 14. ágúst. MÁLVERK MARÝ Tagigi (Dagur) eftir Marý. Þóroddur Bjarnason Í GALLERÍI Gangi, heimagalleríi Helga Þorgils Friðjónssonar á Reka- granda 8, hefur þýski listamaðurinn Ralf Weißleder sett upp ljós- myndaverk. Þetta eru myndraðir þar sem unnið er með form í náttúru og umhverfi; lög af formum sem verða til innan myndrammans eða milli mynda sem hann raðar saman. Eitt verkið er þannig gert af fjórum ljósmyndum þar sem horft er á fólk bakvið laufskrúð; í myndröðinni verður til einhvers konar frásögn, óljós að vísu, og í öðru verki eru felldir saman nokkrir sjóndeild- arhringir. Það verk endar í raun úti á leikskólanum Gullborg, sem sést fyrir utan glugga íbúðarinnar, en þar blaktir á flaggstöng fáni með grasi og himni og sjóndeildarhring- urinn sker myndina í tvennt. Weißleder var skólabróðir Önnu Guðjónsdóttur myndlistarkonu í Hamborg, hann hefur sýnt í galleríi sem hún rekur og í tvígang hefur hann tekið þátt í samsýningum með Kristni G. Harðarsyni. Það var Kristinn sem sagði honum frá Gang- inum og nú er hann kominn hingað til að sýna. „Ég vinn mikið með fundnar myndir,“ segir Weißleder, „myndir sem ég ýmist klippi út úr tímaritum, bókum eða kaupi hjá skransölum. Þannig er ég nú með hálfgert vegg- fóðursverk á sýningu úti, stórt sam- klipp gert úr ljósmyndum þar sem mest ber á myndum af konu sem ég keypti á fornsölu. Þetta er eldri kona, sem ég veit ekkert hver var, en þarna eru tugir mynda af henni við vötn. Og svo nota ég ýmiss konar myndefni af vatni og konum; konum að stíga uppúr vatni og þessháttar. Slík verk mín eru að hluta rannsókn og einnig um tungumál ljósmynda.“ Stundum blandar Weißleder sam- an myndum sem hann tekur sjálfur og fundnum myndum, og stundum býr hann til hluti. Svo sýnir hann bara ljósmyndir sem hann tekur sjálfur og svo er um þessa sýningu í Ganginum. „Þetta er í raun hrein könnun á formum í efni sem ég hef ekki búið til sjálfur. Formið er mér mjög mikilvægt og hér vinn ég til dæmis með hluti eins og sjóndeild- arhringinn, sem er eitt af því sem skilgreinir hugtakið landslag.“ Hann gengur mikið og er þá með myndavélina; tekur myndir af lands- lagi og í borginni; í sumum verk- anna skarast byggingar og sterkar línur brjóta upp myndflötinn. Ljósmyndalistin hefur síðustu áratugi verið mjög áberandi í Þýskalandi og Weißleder segir ljós- myndamiðilinn enn vera þann sterk- asta í þýskri myndlist. „Ef maður fer inn í listaháskóla þá er ljós- myndin alstaðar og margir að vinna með ljósmyndaútprent úr tölvum. Í dag erum við að horfa á fagleg barnabörn Beckers-hjónanna koma út í listalífið; nemar þeirra, eins og Thomas Struth, eru sjálfir orðnir prófessorar og farnir að taka nem- endur. Ungir ljósmyndarar eru mik- ið undir áhrifum frá Tilmans og Nan Goldin; Martin Parr virðist einnig hafa áhrif á stóran hóp. Ég reyni hinsvegar bara að halda áfram með mína hluti, beiti gamaldags aðferð- um við að setja myndirnar saman og læt framkalla þetta fyrir mig í fram- köllunarstofunni á horninu.“ Tungumál ljósmynda Morgunblaðið/Einar Falur Ralf Weißleder vinnur í ljósmyndum sínum með form í náttúru og borgarumhverfi. NÚ standa yfir æfingar á gam- anleikritinu Beyglur með öllu en það er leikhópurinn Skjall- bandalagið sem frumsýnir leikritið í Iðnó föstudaginn 30. ágúst. Verkið er ekki það fyrsta sem félagið setur upp því árið 1994 setti Skjall- bandalagið upp Dónalegu dúkkuna eftir Dario Fo og Fröncu Rame. Meðlimir Skjallbandalagsins, þær María Reyndal leikstjóri og leikkonurnar Arndís Hrönn Egils- dóttir, Elma Lísa Gunnarsdóttir, Jóhanna Jónas og Þrúður Vil- hjálmsdóttir, hófu vinnu með spunaformið fyrir rúmu ári og hafa síðan unnið handrit að Beyglum með öllu, en í verkinu er líf kvenna í samtímanum tekið til nákvæmrar skoðunar og byggist verkið á stutt- um brotum úr lífi kvenna sem allar tengjast á einn eða annan hátt. „Kvenpersónurnar eiga það sam- eiginlegt að vera uppfullar af komplexum og taugaveiklun auk þess að vera sterkar og áhugaverð- ar en fyrst og síðast fyndnar,“ segja konurnar í Skjallbandalaginu. Morgunblaðið/Jim Smart Leikkonur Skjallbandalagsins: Arndís Hrönn Egilsdóttir, Jóhanna Jón- as, Elma Lísa Gunnarsdóttir, og Þrúður Vilhjálmsdóttir. Gamanleik- rit um líf samtíma- kvenna

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.