Morgunblaðið - 11.08.2002, Qupperneq 30
SKOÐUN
30 SUNNUDAGUR 11. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MCP A+, MCSA námslotur
Nu gefst þér loksins færi á að ná þér í þessar eftirsóttu alþjóðlegu
prófgráður frá Microsoft, burtséð frá búsetu.
Sérhæft nám fyrir starfsmenn tölvudeilda, umsjónarmenn
tölvukerfa fyrirtækja, stofnana eða skóla , netþjónustumenn eða
þá sem vilja ná sér í viðurkennnt alþjóðlegt próf.
Kennsla fer fram í 20 klukkustunda námslotum í húsnæði skólans
aðra hverja helgi, auk þess sem gert er ráð fyrir heimavinnu og
viðtalstíma kennara þess á milli. Námið hentar því vel þeim sem búa
og starfa á landsbyggðinni.
Námið miðar að því að nemendur geti tekið alþjóðleg próf sem gefa
eftirfarandi prófgráður:
• MCP (Microsoft Certified Professional)
• Comptia A+ & Server+
• MCSA (Microsoft Certified System Administrator)
MCP A+
120 kennslustunda (80 klst.)
nám sem dreifist á 4 helgar.
Námsgreinar eru:
Verð án prófa: 168.000
Öll námsgögn innifalin
• Comptia A+ hardware
• A+ operating systems
• Server+
• Windows 2000 Pro
MCSA námsbraut
210 kennslustunda (140 klst) nám sem
dreifist á 7 helgar.
• Windows 2000 server
• Win 2000 Network Environment
292.000
Öll námsgögn innifalin
Námsgreinar eru:
• Comptia A+ hardware
• A+ operating systems
• Server+
• Windows 2000 Pro
Verð án prófa:
Nánari upplýsingar á www.tss.is
eða í síma 421 4025
Nám með vinnu hvar sem þú ert á landinu
Tölvuskóli
Suðurnesja
Annað nám á haustönn
Námsbrautir:
• Tölvu og markaðsnám
• Skrifstofu og tölvunám
• Vefsíðugerð I
• Vefsíðugerð II
Námskeið fyrir byrjendur
og lengra komna:
• Word
• Excel
• Outlook
• PowerPoint
• Publisher
• FrontPage
• Access
• Lotus Notes
• Photoshop
• Dreamweaver
• Flash
• Meðferð stafrænna
mynda
• Myndbandavinnsla fyrir
heimilið
Hótel Keflavík býður utanbæjar þátttakendum einstaklega hagstæða gistingu
Hafnargötu 51 - 55 • Reykjanesbæ
Öllum þeim mörgu, sem heiðruðu mig og
glöddu á 90 ára afmæli mínu 5. ágúst síðast-
liðinn þakka ég af alhug.
Guð blessi ykkur öll.
Arnór Aðalsteinn Guðlaugsson,
Digranesheiði 5,
Kópavogi.
MEÐAL Íslendinga
er löng venja fyrir því
að trúa öllu sem kemur
fram í fréttum. Átökin
milli Ísraels- og Palest-
ínumanna hafa þar ver-
ið fyrirferðarmikil. Í
tengslum við frásagnir
af atvikum hafa frétta-
stofur landsins oft haft
viðtöl og flutt frásagnir
Íslendinga sem lýsa
viðburðum og skoðun-
um sínum á ástandinu.
Hversdagslegt er orðið
að heyra frásagnir fé-
laga í Vinafélagi Pal-
estínu á Íslandi, en
hópurinn aðhyllist sjónarmið annars
aðilans og leitast við vinna málstað
hans fylgi og stuðning. Einnig
bregður fyrir viðtölum við starfs-
menn Hjálparstofnunar kirkjunnar,
fulltrúa Þjóðkirkjunnar, íslenska
hjálparstarfsmenn í Palestínu og ný-
lega var sagt ítarlega frá fjölmennri
ferð utanríkisráðherra og starfs-
manna hans til Ísrael. Það skal því
engan undra þótt fólkið í landinu
telji sig hafa heilsteypta og heiðar-
lega mynd af ástandinu á svæðinu
og góða innsýn í aðferðir og fram-
komu stríðenda.
Fjöldi fallinna!
Nýlega kom fram í fréttum að
u.þ.b. 1.800 Palestínumenn hefðu
fallið í átökunum, sem hófust í sept-
ember árið 2000 og væru þeir þre-
falt fleiri en myrtir Ísraelsmenn. Í
úttekt „International Policy for
Counter-Terrorism“ (ITC) kemur
fram að Palestínumenn hafa sjálfir
myrt 185 menn af hin-
um föllnu. Jafnframt
kemur fram í skýrsl-
unni að mikill meiri-
hluti fallinna Palest-
ínumanna væru stríðs-
menn. Af u.þ.b. 800
Ísraelsmönnum sem
myrtir hafa verið í
stríðinu væru a.m.k.
80% þeirra almennir
borgarar, þar af 30%
konur og að yfir 2.000
Ísraelar liggja limlest-
ir efir sjálfsmorðsárás-
ir Palestínumanna á
almenna borgara.
Margt af því fólki mun
verða rúmliggjandi allt sitt líf.
5.000 myrtir í Jenin?
Frásagnir af innrás Ísraelsmanna
í borgina Jenin á Vesturbakkanum
vöktu hörð viðbrögð. Féllu stór orð
um ofbeldi Ísraelsmanna og fjölda
látinna. Þegar mest gekk á í frétta-
flutningi af atburðarásinni var talað
um að allt að 5.000 Palestínumenn
hefðu fallið í innrásinni. Íslenskir
hjálparstarfsmenn í Palestínu lýstu
ástandinu í löngum og mörgum
fréttasamtölum við íslenskar frétta-
stofur. Drógu þeir ekki af sér að lýsa
grimmdarverkum hermanna Ísr-
aels. Íslenskur prestur sem kom til
Jenin, sem formaður Mannréttinda-
nefndar alþjóða Lúterska heims-
sambandsins átti varla orð til að lýsa
ástandinu og eyðileggingunni. Lýs-
ingar þessara aðila gáfu tilefni til að
halda að sjaldgæf voðaverk hefðu
verið framin. Síðan hefur komið í
ljós að 52 palestínumenn fórust og
reyndust flestir þeirra vera með
vopn. Ísraelsmenn segja innrásina
hafa heppnast vel í þeim tilgangi að
uppræta hryðjuverk. Þeir hafi flutt
marga bílfarma af vopnum og
sprengiefni úr geymslum í bílskúr-
um og kjöllurum frá svæðinu sem
þeir jöfnuðu við jörðu í Jenin.
Er friðarvilji forystumanna
Palestínumanna einlægur?
Dennis B. Ross, sendiherra, var
formaður samninganefndar Banda-
ríkjanna í friðarviðræðum um Mið-
Austurlönd í stjórnartíð Clintons og
George Bush eldri. Í grein sem hann
skrifaði fyrr á þessu ári og vakti
verðskuldaða athygli segir hann
meðal annars um þetta atriði:
„2. Bandaríkin tóku ákvörðun
1993 um að eiga viðræður beint við
formann Arafat, sem hluta af Óslóar
samkomulaginu, þegar og eftir að
hann formlega samþykkti að hafna
hryðjuverkum, hét að aga og refsa
hverjum Palestínumanni sem efndi
til óspekta og leysa árekstra með
friði. Palestínumenn, Ísraelar,
Bandaríkjamenn, Egyptar, Saudi-
Arabar og aðrir leiðtogar Araba-
ríkja deildu sameiginlega þeirri trú
sinni að Arafat vildi frið við Ísrael.
Samt undirbjó Arafat aldrei almenn-
ing undir að samkomulagið yrði
málamiðlun þar sem báðir aðilar
hefðu slakað á ýtrustu kröfum sín-
um. Hann lét sem friðarviðræðurnar
færðu Palestínumönnum það sem
þeir hefðu alltaf viljað- og gaf í skyn
að gripið yrði til vopna ef ekki næð-
ist fram það takmark. Jafnvel með-
an allt lék í lyndi talaði Arafat við
Palestínumenn um hvernig barátt-
an, ,,Jihad“ (heilagt stríð) mundi
leiða þá til Jerúsalem. Í friðarvið-
ræðunum í desember 2000 með
Clinton, fyrrverandi forseta Banda-
ríkjanna, féll Arafat hryggilega á
prófinu. Þá hafnaði hann friði.
Dennis Ross segir að hann sjái
enginn merki þess að Arafat hafi
breyst og sé nú tilbúinn að gera
tímamóta samkomulag um frið við
Ísraelsmenn. Arafat hefur aldrei
gert raunverulega tilraun til að út-
skýra fyrir sínu fólki hvað Palest-
ínuönnum var boðið í samningaferl-
inu með Clinton.
Samningur sem fært hefði Palest-
ínumönnum sjálfstætt ríki, 97% af
Vesturbakkanum, Gazasvæðið, gert
austurhluta Jerúsalem að höfuðborg
ríkisins og gefið Palestínskum
flóttamönnum fullt frelsi til að flytja
á landsvæði fráskilið sem hluti af
nýju ríki Palestínumanna. Dennis
segist aldrei hafa hitt Arabískan
leiðtoga sem treysti Arafat eða hafi
yfirleitt nokkuð gott um hann að
segja. Nánast allir leiðtogar Araba
hafa sömu sögu að segja um hvernig
Arafat hafi viljandi villt þeim sýn
eða svikið þá. Allir leiðtogar Araba
létu í ljós þá skoðun sína á að frið-
aráætlun Clintons hefði verið tíma-
móta-tillaga.
Hann dregur heldur ekki dul á að
hann telji að Arafat geti, ef hann
vilji, barið niður hryðjuverk og of-
beldi. Það hafi hann sýnt og sannað
1996 þegar hann braut niður and-
stöðu Hamas samtakanna og hélt
niðri hryðjuverkastarfsemi þeirra til
ársins 2000. Palestínumenn verða að
taka ákvarðanir og bera ábyrgð á
eigin verkum. Raunverulegur friður
veltur ekki minnst á því hvort að yf-
irvöld í Palestínu taki upp heiðarlegt
og falslaust samband við sitt fólk og
æxli ábyrgð og standi af heilindum
við umdeildar ákvarðanir og samn-
inga sem gera verður“, segir Dennis
Ross að lokum í grein sinni.
Arafat verður að víkja
Í lok júní ávarpaði Georg W.
Bush, forseti Bandaríkjanna, þjóð
sína í afdrifaríkri ræðu þar sem
hann skorar á Palestínumenn að
velja sér nýja leiðtoga. Hann hvatti
Palestínsku þjóðina til að velja lýð-
ræði og hafna einræði. Bush var
harðorður gagnvart leiðtoga Palest-
ínumanna er hann sagði:
„Núverandi stjórnendur eru
hvetjandi um hryðjuverk, í stað þess
að berjast á móti þeim. Sjálfstætt
ríki Palestínu verður aldrei skapað
með hryðjuverkum. Það er óverj-
andi að Palestínumenn lifi við eymd
og einangrun við úrelt efnahagskerfi
sem stýrt er af spilltum embættis-
mönnum. Allir sem fylgst hafa með
málefnum Mið-Austurlanda gera sér
grein fyrir að friðarferlið hefur tekið
stórt skref til baka. Þjálfaðir og ein-
beittir morðingjar hafa stöðvað það.
Verði breytingar í forystu Palest-
ínumanna eru Bandaríkin, Evrópu-
sambandið, Arabaríkin, Alþjóða-
bankinn ásamt alþjóða samfélaginu
tilbúin að leggja sinn stuðning fram
við að koma á stofnun sjálfstæðs rík-
is, raunverulegu lýðræði og traustu
efnahagskerfi.
3. Hið nýja ríki gæti risið hratt og
lifað í sátt, öryggi og friði við ná-
granna sína Ísrael, Jórdaníu og
Egyptaland“, sagði Bush ávarpinu.
Ekki voru allir sammála ummæl-
um Bush. Utanríkisráðherra Íslands
lýsti sig undrandi á ræðunni. Hann
sagði Arafat réttkjörinn leiðtoga
Palestínumanna á sjálfstjórnar-
svæðunum. Frjáls af skoðunum og
viðhorfum þjóðarleiðtoga annarra
ríkja ætti hann að leiða samninga-
viðræður um velferð og framtíð Pal-
estínumanna á svæðinu. Mátti skilja
orð hans þannig að hann teldi Bush
með ræðu sinni kalla fram aukin
ófrið og grimmdarverk. Ekki áttuðu
allir sig á þessum afskiptum utan-
ríkisráðherra af sjónarmiðum
Bandaríkjaforseta. Vera má að þetta
viðhorf hans tengdist opinberri
heimsókn hans og fylgdarliðs til Ísr-
ael í byrjun júní sl. Mörgum var
brugðið þegar myndir frá heimsókn-
inni birtust með utanríkisráðherra
Íslands og Arafat í faðmlögum og
leiðast sem fóstbræður. Víst er að
margir telja Arafat einn öflugasta
núlifandi hryðjuverkamanninn og
helstu hindrun fyrir friði í Mið-Aust-
urlöndum. Frá því utanríkisráð-
herra veiti félaga Arafat þessa
stuðningsyfirlýsingu hafa hins vegar
margir þjóðarleiðtogar tekið undir
skoðanir Bush um nauðsyn leiðtoga-
skipta, þ.á.m. leiðtogar Arabaríkja.
Alið á hatri
Í Morgunblaðinu 16. júlí sl. birtist
grein eftir Björk Vilhelmsdóttur,
ferðamann, sem dvaldi fyrir
skömmu í Jerúsalem. Hún segist
hafa heimsótt Gazasvæðið og borg-
irnar Ramallah og Betlehem í ferð-
inni. Í greininni elur hún á hatri og
andúð á Gyðingum og Ísraelsmönn-
um. Hún nefnir til sögunnar biðraðir
sem mynduðust við varðstöðvar
milli svæða Ísraels- og Palestínu-
manna og það sem hún segir einu
landamærastöðina til Jórdaníu þ.e.
Allenby-brúna yfir Jórdaná. Sjálf-
sagt er það vanþekking ferðamanns-
ins, en landamærastöðvar til Jórd-
aníu er þrjár. Til viðbótar Allen-
by-brúnni er landmærastöð við
Husein-brúna og við borgina Eilad
við Aqabaflóann.
Það skiptir máli þegar rætt er um
varðstöðvar og landamæravörslu á
þessum stað að yfir 50 sjálfsmorðs-
árásir hafa verið gerðar á saklausa
borgara í Ísrael, frá síðustu áramót-
um, af fólki sem farið hefur í gegn
um þessar varðstöðvar. Það á líka
við í þessu sambandi að nefna að
landamærin við Jórdaníu er varin af
bæði Ísraels- og Jórdaníumönnum.
Jórdaníumenn eru einnig afar var-
kárir í þessum efnum. Það flýtir
heldur ekki fyrir landmæraeftirliti
að flestir Palestínumenn eru vega-
bréfslausir og verða að ganga frá
sérstökum áritunum við landamæra-
stöðvarnar í hverju tilfelli.
Hryggilegast við þessi greinar-
skrif ferðamannsins er frásögnin
þegar hún segir: „Ég spjallaði og hló
með strákunum sem voru að koma
frá því kasta steinum ...“ Flestum
sem fylgjast með þessum málefnum
er ekki hlátur í huga, þegar börn og
unglingar eru notuð til að kasta
steinum að Ísraelsmönnum og
stuðla þannig að áframhaldi fjand-
skap, ófriði og óvild.
BARÁTTAN UM
ÍSRAEL
Ómar Kristjánsson
Frá því utanríkisráð-
herra veiti félaga Arafat
þessa stuðningsyfirlýs-
ingu, segir Ómar Krist-
jánsson, hafa hins vegar
margir þjóðarleiðtogar
tekið undir skoðanir
Bush um nauðsyn leið-
togaskipta, þ.á m. leið-
togar Arabaríkja.
Höfundur er stjórnarmaður í KFUM
og K í Reykjavík.