Morgunblaðið - 11.08.2002, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 11.08.2002, Qupperneq 37
KIRKJUSTARF MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. ÁGÚST 2002 37 upp úr ísnum – milli Hvalfjarðar og Borgarfjarðar, á Vestfjörðum, á Tröllaskaga og á Austfjörðum. Hann taldi að á ísöld hafi Vestfjörðum svip- að til SA-hluta Vatnajökuls nú. Guð- mundur Kjartansson (1943) og Trausti Einarsson (1942) færðu sömuleiðis rök að því að hlutar lands- ins hefðu verið íslausir á síðasta jök- ulskeiði. Sænski skordýrafræðingur- inn Lindroth varð fyrstur líffræðinga til að lýsa því (1931) að fjöldi skordýrategunda hljóti að hafa lifað af ísöldina, og danski grasa- fræðingurinn Gelting (1934) taldi einsýnt að á Íslandi, ekki síst Trölla- skaga, hafi gróður getað lifað af, því þar sé að finna fjölda tegunda sem hvergi finnist annars staðar á land- inu, auk þess sem grænlenskar teg- undir séu algengari þar en annars staðar. Fyrst skrifaði Steindór um þetta efni í Náttúrufræðinginn 1937, en kemur síðan aftur og aftur að því í ritum sínum. Hann hafði fljótlega veitt því athygli eftir að hann fór að rannsaka hálendisgróður landsins að flestar hinna óalgengari tegunda eru ýmist einskorðaðar við tiltekin svæði, eða virðast hafa dreifst út frá þeim. Svæði þessi reyndust í aðal- atriðum vera hin sömu og Sigurður Þórarinsson taldi hafa verið íslaus. Eftir því sem árin liðu renndu frek- ari rannsóknir Steindórs stoðum undir þessa niðurstöðu, sem loks var tekin saman í ofangreindu 150 blað- síðna riti (1962). Mun það rit vera óbrotgjarnt framlag til þessara fræða eins og Hákon Bjarnason spáði, þótt enn séu skiptar skoðanir um uppruna íslensku flórunnar – til dæmis ritaði Sturla Friðriksson grein Um aðflutning íslensku flór- unnar í Náttúrufræðinginn 1962 þar sem haldið er fram gagnstæðri nið- urstöðu. Skömmu síðar gaus Surts- ey, og landnám lífsins þar með fugl- um og sjávarstraumum þykir merkilegt rannsóknarefni. Kenningar koma og kenningar fara, en réttar athuganir standast óhaggaðar tímans tönn. Af því tagi eru viðamiklar athuganir Steindórs Steindórssonar á flóru Íslands, ára- tuga eljuverk glöggs og hugkvæms náttúrufræðings. Meðal „aukaaf- urða“ þeirra miklu ferðalaga og rannsókna má telja yfirlitsritið Gróð- ur á Íslandi (Almenna bókafélagið, 1964), Skrá um gróðurhverfi (1974), Íslensk plöntunöfn (1978), Landið þitt (upphaflega með Þorsteini Jós- epssyni: Örn og Örlygur, 1966, 1980), og Vegahandbókina í framhaldi af því. Flokkunarlykill Steindórs og skil- greining gróðurhverfa, sem hann tók fyrst upp við rannsóknir sínar á svæði Flóaáveitunnar og þróaði síð- an áfram, sjálfur og ásamt Birni Jó- hannessyni og Ingva Þorsteinssyni til nota við gróðurkortagerðina, voru brautryðjandaverk. Auk þess mark- aði hann með þessari vinnu upphaf vistfræðirannsókna hér á landi. Steindór markaði því djúp spor í ís- lenskri náttúrufræði, spor sem ekki hefur fennt í svo merkt verði á 100 ára afmæli hans. Sjálfur hitti ég Steindór Stein- dórsson aðeins einu sinni, á Akureyri árið 1991. Þar var þá haldin vegg- spjaldasýning um Alfred Wegener og ég flutti erindi. Þrettán sóttu samkomuna, og var Steindór þeirra á meðal, þá orðinn blindur. Hann var áhugasamur mjög og léttur í máli, fjölfróður og minnugur. Um kvöldið var samkvæmi hjá Haraldi Bessasyni og frú hans þar sem Steindór var hrókur alls fagn- aðar. Þar spurði ég hann um fram- hald bókar hans um íslenska nátt- úrufræðinga og bauð fram aðstoð mína við það verk, en Steindór hafn- aði því eins og fyrr sagði – treysti engum til þess nema sjálfum sér. Því miður tók hann mikið með sér í gröfina þótt fáir stæðu honum á sporði á ritvellinum, ævinlega trúr ráðum velunnara síns Guðmundar G. Bárðarsonar. Steindór Steindórsson var kjörinn félagi í Vísindafélagi Íslendinga 1941 og heiðursdoktor við Háskóla Ís- lands 1981. Sigurður Steinþórsson, prófessor við Háskóla Íslands og fyrrverandi forseti Vísindafélags Íslendinga. Hallgrímskirkja: Sumarkvöld við orgelið. Tónleikar kl. 20. Susan Landale frá Frakk- landi leikur. Neskirkja: Leikja- og ævintýranámseið Neskirkju 12.–16. ágúst frá kl. 13–17. Skráning í síma 511 1560. Grafarvogskirkja. Sunnudagur: Bænahóp- ur kl. 20. Tekið er við bænarefnum alla virka daga frá kl. 09–17 í síma 587-9070. Laugarneskirkja. Mánudagur kl. 18. fram- haldshópur í 12 sporastarfinu kemur sam- an. Margrét Scheving hefur umsjón. Lágafellskirkja. Mánudagur: Al-Anon-fund- ur í kirkjunni kl. 21. Bænahópur á mánu- dagskvöldum í Lágafellskirkju kl. 20. Þorlákskirkja. TTT-starf í kvöld sunnudag kl. 19.30. Landakirkja. Kl. 20 kvöldguðsþjónusta að kvöldi dags. Ath. breyttan tíma. Krossinn. Almenn samkoma í Hlíðasmára 5 kl. 16.30. Allir velkomnir. Íslenska kristskirkjan. Samkoma kl. 20. Mikil lofgjörð og fyrirbænir. Friðrik Schram talar um efnið: Hvernig á að sigrast á dep- urð og svartsýni. KEFAS, Vatnsendabletti 601: Samkoma sunnudag kl. 14. Helga R. Ármannsdóttir talar. Bænastund fyrir samkomu kl. 13.30. Lofgjörð og fyrirbænir. Barnagæsla fyrir 1–7 ára börn. Þriðjud.: Bænastund kl. 20.30. Miðvikud.: Samverustund unga fólksins kl. 20.30. Mikil lofgjörð og Orð Guðs rætt. Allir velkomnir. Hvítasunnukirkjunni á Akureyri. Sam- koma kl 20. Yngvi Rafn Yngvason predik- ar. Lofgjörð og fyrirbænaþjónusta. Safnaðarstarf Vorum að fá í sölu mjög fallega hæð ásamt risi í þessu virðulega húsi. Húsið er tvibýlishús sem reist var árið 1902 við Hverfisgötuna en flutt árið 1989 yfir á lóð við Bergstaðastræti og var húsið þá allt standsett af fagmönnum. Sérinn- gangur er í íbúðina en íbúðin sjálf er um 80 fm að stærð og skiptist í tvær sam- liggjandi stofur, svefnherbergi, baðherbergi, vinnuherbergi (svefnherbergi), eld- hús og risloft. Úr holinu er gengið upp nokkur þrep út á svalir með útsýni til vesturs yfir borgina. Íbúðinni hefur verið vel við haldið og til að mynda eru lagnir hússins frá árinu 1989 og því sérstakt að svo gamalt hús státi af nýlögð- um grunnlögnum með tilliti til aldurs. Þetta er eign sem vert er að skoða. BERGSTAÐASTRÆTI - GLÆSIÍBÚÐ Í VIRÐULEGU HÚSI www.holtfasteign.is Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði  EFSTASUND - RVÍK Nýkomið í sölu á þessum góða stað mjög góð efri hæð og ris ásamt íbúð í bílskúr, samtals 170 fm. 5 herb. Yfirbyggðar sólsvalir. Fallegur garður. Verð 17,9 millj. 82235 LINDASMÁRI - KÓP. - PENTHOUSE Vorum að fá í sölu á þessum góða stað stórglæsil. 165 fm íbúð á tveimur hæðum. Eignin er mjög smekklega innréttuð með fallegum innréttingum og gólfefnum. Góð lofthæð. 3-5 svefnherb. Stutt í alla þjónustu. Eign fyrir vandláta. Skipti mögul. Áhv. húsbr. 6,7 millj. Verð 17,9 millj. Laus strax. BLÁSALIR - KÓP. - SÉRH. Nýkomin í einkas. á þessum góða stað mjög falleg 125 fm efri hæð í fjórbýli ásamt 34 fm góðum bílskúr. Glæsil. innréttingar og gólfefni. Sérinng. Frábær staðs. Ákv. sala. 91912 LÆKJASMÁRI - KÓP.- M. BÍLSKÝLI Nýkomin í einkas. sérl. falleg 95 fm íb. á efri hæð í góðu fjórb. auk sérstæðis í bílskýli. Sérinng. Rúm- góð herb. Parket og flísar. Fráb. staðs. á rólegum stað. Áhv. húsbr. 7 millj. Verð 14,9 millj. 90434 VESTURGATA - RVÍK - SÉRH. Vorum að fá í sölu 112 fm íb., efri hæð í tvíb. Eign sem býður upp á mikla möguleika, t.d. leigutekjur. 3 svefnherbergi. Aukaherbergi á neðri hæð. Sérinng. Ákv. sala. Verð 12,4 millj. 90792 REYKÁS - RVÍK Nýkomin á þessum fráb. út- sýnisstað mjög falleg 96 fm íb. á 2 hæðum. Falleg- ar innr. Merbau-parket. Þvotth. í íb. Ákv. sala. Laus strax. Verð 13,5 millj. HJALTABAKKI - RVÍK Nýkomin í einkas. mjög skemmtil. 73 fm íbúð á 2. hæð í nýmáluðu fjölb. Tvö herb. (eitt stórt á teikningu). Parket. Nýj- ar innnr. Verð 8,5 millj. 82983 ÁLFAHEIÐI - KÓP. Nýkomin í einkas. á þessum fráb. útsýnisstað mjög falleg 63 fm íbúð á 1. hæð í góðu hirtu fjölb. Fallegar innr. Parket og flísar. Fráb. staðs. Verð 10,5 millj. 91151 REKAGRANDI - RVÍK Nýkomin í einkas. á þessum fráb. stað falleg 53 fm íb. á 2. hæð í fallegu nýmáluðu fjölb. Sérstæði í góðu bílskýli. Áhv. 4,7 millj. Verð 9,3 millj. 91479 ÁLFAHEIÐI - KÓP. - 2JA Nýkomin í einkasölu glæsil. 62 fm endaíbúð á annarri hæð (efstu) í klasahúsi. Parket. Vandaðar innréttingar. Suðursvalir. Tvær íbúðir í stigagangi. Frábær stað- setning í suðurhlíðum Kópavogs. Góð eign. Áhv. byggingarsj. ca 5 millj. Verð 10,5 millj. 91561 ÁSVALLAGATA - RVÍK Nýkomin í einkas. skemmtil. ca 75 fm íb. (kjallari) m. sérinng. í glæsil., virðulegu þríbýli. Mjög fallegur garður. Frábær staðs., örstutt frá miðbænum. Áhv. húsbr. Verð 11,6 millj. 91649 ÞRASTARÁS - HF. - NÝTT FJÖLBÝLI Nýkomnar í sölu á þessum frábæra útsýnis- stað vel skipulagðar 2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðir (með bílskúr) í 12 íbúða, klæddu, litlu fjölbýli. Íbúðirnar afhendast fullbúnar án gólf- efna í des. 2002. Tvennar svalir. Sérinng. Ein- stakt útsýni. Traustur verktaki. Teiknað af Sig- urði Þorvarðarsyni. Nánari uppl. og teikn. á skrifstofu Hraunhamars. SVÖLUÁS - HF. - EINB. - GLÆSILEGT Nýkomið glæsil. nýtt einb. m. innb. bílskúr samtals ca 240 fm. Fráb. útsýni og staðs. Hús- ið selst uppsteypt. Arkitektateiknað. Til afh. strax. Verð 15,3 millj. Opið hús í dag milli kl. 14 og 17 Suðurlandsbraut 20, sími 533 6050 www.hofdi.is Í dag býðst þér og þínum að skoða þetta fallega 117 fm. einbýli, sem er á einni hæð og er húsið í botnlanga. Óbyggt svæði er við húsið. Húsið skiptist m.a. í þrjú herbergi, tvær stofur, eldhús og bað. Byggingar- réttur er við húsið fyrir stækkun og bílskúr. Húsið stendur á 746 fm. lóð Verð 15,9 mill. SIGURJÓN TEKUR VEL Á MÓTI YKKUR. Einarsnes 33 - Skerjafirði ÓLAFSGEISLI TIL SÝNIS Í DAG Í dag milli kl: 13:00 og 15:00 kynnum við glæsilegar sérhæðir í húsunum nr. 20 til 28 við Ólafsgeisla. Öll húsin er tvíbýlishús og eru byggð á einhverjum fallegasta bygg- ingastað í Reykjavík, með óviðjafnanlegt útsýni yfir Reykjavík og golfvöllinn í Grafar- holti. Íbúðarflötur er frá uþb. 150 -250 fm, geymslur uþb. 25 fm og innbyggður bílskúr uþb. 25 fm. Hér býðst þér að búa í næsta nágrenni við ósnorta náttúru í glæsilegu og nútímalega hönnuðu húsnæði. Húsin afhendast fullbúin að utan en að innan geta íbúðirnar afhendst fokheld að innan eða lengra komin eftir samkomulagi. Ólafsgeislinn er gullmolinn í Grafarholtinu, staðsettur sunnan- og sólar- megin í holtinu. Sjón er sögur ríkari. HLÍÐARHJALLI KÓPAVOGI Glæsilegt 212 fm einbýli á 2 hæðum með innb. bílskúr. Einstaklega vel skipulagt hús sem er mjög vel staðsett neðan við götu. 5 svefnherb.Mikið endurnýjað hús m.a. nýtt eldhús og massivt parket. Stór sólpallur með heit- um potti. Fallegt útsýni. Verð 35 milljónir. Sjá 46 myndir á netinu Opið hús - Móabarð 30b Híbýli fasteignasala, Suðurgötu 7, símar 585 8800 og 864 8800. Mjög snyrtilegt og vel staðsett ein- lyft einbýlishús með fjórum svefn- herbergjum. Nýleg eldhúsinnrétt- ing. Húsið er klætt að utan. Mjög fallegur gróinn garður. Fallegt út- sýni. Bílskúr. Mjög góð langtímalán áhvílandi. Sigrún og Finnbogi sýna húsið frá kl. 14 til 16 í dag. Viltu léttast um 1-4 kíló á viku Símar 557 5446 og 892 1739 Hárlos það er óþarfi Þumalína, Skólavörðustíg 41

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.