Morgunblaðið - 11.08.2002, Síða 39
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. ÁGÚST 2002 39
.
Hannes Jóna Pétur Sæberg
Við skoðum og verðmetum samdægurs.
Kannaðu málið, það kostar ekkert.
Fasteignamarkaðurinn er nú með
líflegasta móti og eftirspurn mikil.
Ef þú ert í söluhugleiðingum,
hafðu þá samband
og við munum aðstoða þig.
ÞEKKING • ÖRYGGI • ÞJÓNUSTA
Sæberg Þórðarson, löggiltur fasteigna- og skipasali
Sími 588 55 30
Fax 588 55 40
Netfang: berg@berg.is
Heimasíða: www.berg.is
Opið mánudaga-föstudaga frá kl. 9-17
Eigendur fasteigna athugið!
Hús á mynd er m. steinklæðningu.
Hús þetta er 151 fm (125+26 fm bílsk.) íslenskt timbureiningahús.
Efni í fokh. hús m. stand. vatnsklæðningu afhendist í gámi tilbúið til
uppsetningar á höfuðborgarsvæðinu. Reisingartími er um 10 dagar.
Kr. 5.600.000
Lækkaðu byggingarkostnaðinn!
Styttu byggingartímann!
sphönnun húseiningar, Dalvegi 16b, 200 Kópavogi,
sími 564 6161, netfang: spdesign@mmedia.is
Mjög vel staðsett, rótgróin og fullbúin hárgreiðslustofa (4 stólar) með
góða og jafna viðskiptavild til sölu. Stofan er í 65 fm leiguhúsnæði. Hér
er gott tækifæri fyrir athafnafólk að ganga beint inní reksturinn. Stofan
býður upp á mikla möguleika fyrir duglega aðila. Mjög hagstætt verð og
kjör.
Frekari upplýsingar gefur Björgvin í síma 595 9012.
Skúlagata 17
Sími 595 9000
Fax 595 9001
holl@holl.is - www.holl.is
Hárgreiðslustofa í miðborginni
Til sölu lítil ferðaskrifstofa með B-leyfi. Sérstök áhersla er lögð á per-
sónulega þjónustu, hálandaferðir og sérútfærðar ævintýraferðir fyrir er-
lenda sem og innlenda ferðamenn. Fullbúinn ofur-jeppi, bókaðar ferðir
og búnaður til rekstrarins fylgja með svo sem tölvur, heimasíður, áætlan-
ir, viðskiptavinir og viðskiptasambönd. Hér er frábært tækifæri fyrir at-
hafnasaman einstakling eða samhenta fjölskyldu. Hagstæð langtímalán
getur fylgt rekstrinum. Mikil og markviss markaðssetning hefur verið
unnin að undanförnu. – Ferðaskrifstofa með sérstöðu.
Frekari upplýsingar gefur Björgvin í síma 595 9012
Ævintýraferðir - ferðaiðnaður!
BYKO hf. hefur afhent Krabba-
meinsfélagi Íslands eina milljón
króna í tilefni af 40 ára afmæli fyr-
irtækisins. Gjöfin er til minningar
um stofnendurna, Guðmund H. Jóns-
son verslunarmann og síðar forstjóra
og Hjalta Bjarnason byggingameist-
ara, en þeir eru báðir látnir.
Guðmundur og Hjalti stofnuðu
Byggingavöruverslun Kópavogs 14.
júní 1962 og opnuðu verslun í 135
fermetra húsnæði við Kársnesbraut.
Nú er starfsemi BYKO á mörgum
stöðum á landinu, í húsnæði sem
skiptir tugum þúsunda fermetra.
Einnig hefur fyrirtækið verið að
hasla sér völl erlendis og rekur timb-
urvinnslu í Lettlandi.
Í frétt frá Krabbameinsfélaginu
kemur fram að félagið meti mikils
þessa höfðinglegu gjöf sem kemur að
góðum notum í fjölþættu starfi fé-
lagsins í almannaþágu.
BYKO gefur
Krabbameins-
félaginu eina
milljón
Jón Helgi Guðmundsson, forstjóri BYKO, afhendir Sigurði Björnssyni, for-
manni Krabbameinsfélags Íslands, og Guðrúnu Agnarsdóttur, forstjóra fé-
lagsins, einnar milljónar króna gjöf í tilefni af 40 ára afmæli BYKO.
SJÓBLEIKJUVEIÐI hefur víða
verið góð, en sums staðar hefur
bleikjan annaðhvort verið sein fyrir
eða hana beinlínis vantað.
Þetta er afar breytilegt, ár fyrir
vestan hafa t.d. verið mjög líflegar,
t.d. Skálmardalsá þar sem sum
hollin voru að fá 30 til 40 fiska og
missa mikið, eftir miðjan júlí. Góð
skot voru einnig í Gufudalsá og
sunnar, í Dölunum, hefur sannar-
lega verið góð veiði í Hvolsá og
Staðarhólsá þótt ekki séu tölur fyr-
irliggjandi.
Norðanlands er þó sums staðar
daufara yfir vötnum. Gæðum
heimsins er misskipt á silunga-
svæði Vatnsdalsár, en Ragnar
bóndi á Bakka í Víðidal sagði
bleikjuveiði í Víðidalsá hafa verið
mun lakari en menn eiga að venjast
á þeim bæ. Hann talaði um „skot“
þegar einhverjir tveir á silunga-
svæði árinnar fengu 10 fiska einn
daginn. Mikinn fisk var þó að sjá í
Hópinu í júní og snemma í júlí og
því kemur fiskleysið dálítið á óvart.
Mikið er um það talað meðal
norðlenskra veiðimanna að Eyja-
fjarðará sé
„hrunin“, þar
séu menn að
fá mest 10 til
12 fiska á
dag en ekki
30 til 50 þeg-
ar best hefur
látið. Nú er
kominn sá tími sumars að bleikjan
á að vera byrjuð að ganga af mikl-
um krafti og því er uggur í mönn-
um að göngur og veiði þetta árið
verði með minnsta móti.
Á sama tíma hefur glæðst nokk-
uð í Hörgá, en besta hrotan sem
frést hefur af úr þeirri á er 19 fisk-
ar á einum degi, sem flestir veidd-
ust í Bægisárhyl, sem mun vera
einn besti veiðistaðurinn í ánni.
Sjóbleikjuveiði víða slök
Sigurður
Árni Sigurðs-
son fylgist
með Jökli
syni sínum, 9
ára, þreyta
2,5 punda
bleikju í
Skálmar-
dalsá.
Morgunblaðið/Einar Falur
Jökull Sigurðsson sýnir fluguna
Gull-Rófu sem hann bjó til og
hnýtti og gaf honum stærstu
sjóbleikjuna í 36 fiska holli í
Skálmardalsá.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
SAMKVÆMT nýlegu áliti nefndar
sem starfar á grundvelli 27. gr. laga
um réttindi og skyldur starfsmanna
ríkisins, gerði ríkislögreglustjóri rétt
í því að víkja aðalvarðstjóra hjá rík-
islögreglustjóra tímabundið úr starfi
vegna rannsóknar á meintu umferð-
arlagabroti hans. Grunur er um að
hann hafi notað einkabifreið sína með
áfestum skráningarmerkjum þrátt
fyrir að bifreiðin hafi verið tekin af
skrá og þannig hafi hann komið sér
undan greiðslu tryggingariðgjalda
og annarra gjalda.
Aðalvarðstjórinn, sem starfaði um
nokkurra mánaða skeið í umferðar-
deild ríkislögreglustjóra, var stöðv-
aður við venjulegt eftirlit lögreglunn-
ar í Reykjavík 25. janúar sl. og kom
þá í ljós að skráningarmerkin höfðu
verið lögð inn hjá Frumherja hf. á
Hvolsvelli um miðjan desember 2001.
Þegar starfsmaður Frumherja var
yfirheyrður sagði hann að lögreglu-
maðurinn hefði verið staddur í
Reykjavík þegar hann óskaði eftir
innlögninni. Hafi lögreglumaðurinn
lofað að koma skráningarmerkjunum
til Frumherja innan nokkurra daga
en ekki hafi orðið af því. Einnig kom í
ljós að hann hafði tekið bifreið konu
sinnar af skrá með sama hætti rúmu
ári áður. Báðar bifreiðirnar voru
skráðar á eiginkonu lögreglumanns-
ins en nefndin telur það ekki breyta
því að hann hagnýtti þær sjálfur og
var stöðvaður á annarri þeirra.
Í lok febrúar var honum vikið
tímabundið úr starfi og telur nefndin
að ríkislögreglustjóri hafi gert rétt í
að víkja honum frá. Telur hún að
brotin, sem aðalvarðstjórinn er grun-
aður um, séu ósamboðin lögreglu-
manni.
„Í ljósi starfssviðs [lögreglu-
mannsins] á vettvangi umferðarmála
og sérþekkingar hans á reglum um
bifreiðaskráningar væru slík brot
sérlega alvarleg,“ segir í álitinu. „Að
mati nefndarinnar eru brotin [...], ef
sönn reyndust, svo alvarleg að hann
teldist ekki lengur verður eða hæfur
til að vera lögreglumaður, sbr. 68 gr.
alm. hgl.“ Lögreglurannsókn á mál-
inu heldur áfram hjá lögreglunni í
Reykjavík.
Vék aðalvarðstjóra
réttilega frá störfum