Morgunblaðið - 11.08.2002, Qupperneq 42
42 SUNNUDAGUR 11. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
!
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
SÍÐAST þegar ég vissi mældist
Norðurland frá Hrútafjarðarbotni í
vestri til Langaness í austri og
grunar mig að þeir sem þar búa telj-
ist flestir Norðlendingar. Allt er þó
breytingum háð. Sveitarstjórinn á
Akureyri og frú iðnaðarráðherra
eru líka svo viss á því að Norðurland
sé aðeins Eyjafjörður og þar með
líka að Eyfirðingar einir séu Norð-
lendingar að mig hlýtur hreinlega
að misminna – og hvaða vit ætli
maður hafi svo sem á landafræði?
Tilefni þessa pistils er orðaleikur í
Kastljósi Sjónvarpsins og öðrum
fjölmiðlum milli áðurnefndra stjórn-
málamanna sem telja að nú sé tími
kominn fyrir stóriðju á Norðurlandi.
Ómögulegt var að skilja orð þeirra á
þann hátt að þetta ágæta fólk hefði
t.d. Norðurland vestra í huga. Ég
veit ekki til þess að þau hafi sýnt ná-
grönnum sínum í vestri nokkurn
áhuga, hvorki í stóriðjumálum né
öðrum málum sem til samstarfs má
horfa í byggðamálum. Þó má þetta
vera vitleysa hjá mér rétt eins og
landafræðin, því hvað veit maður
svo sem um stjórnmál?
Rétt eins og skurður skerst Eyja-
fjörður inn í mitt Norðurland og
skiptir því í tvennt. Oft er uppgröft-
ur á skurðarbökkum og sé myndlík-
ingunni haldið áfram má segja að
þannig sé því farið með Eyjafjörð
beggja vegna. Þar eru mikil fjöll og
torleiði og með sanni hægt að segja
að fjörðurinn frægi sé nokkuð af-
skekktur. Það tíðkast enda harla lít-
ið að Skagfirðingar fari í kaupstað
til Akureyrar. Þurfi þeir einhvers
með utan Sauðárkróks, fara þeir
einfaldlega til Reykjavíkur. Sama
má segja með Húnvetninga, ef
Skagaströnd, Blönduós og
Hvammstangi duga ekki er greið
leið til Reykjavíkur. Af þessu má sjá
að Akureyri er því síður en svo höf-
uðstaður Norðurlands þó mörgum
sé tamt að tuða á því.
Áðurnefndir bæir á Norðurlandi
vestra tóku sig til í byrjun vors og
gerðu markvissar tillögur í byggða-
málum í stað þess að gagnrýna
frumvarp iðnaðarráðherra til laga í
sama málaflokki. Meðal annars var
stungið upp á því að gerð væru jarð-
göng undir Tröllaskaga sem tengdu
saman byggðir á Norðurlandi vestra
og Eyjafjörð. Gríðarleg samlegðar-
áhrif hljóta að verða til með góðum
og greiðum samgöngum, nefna má í
menntamálum, atvinnumálum,
ferðamálum, menningarmálum og
heilbrigðismálum jafnt í Eyjafirði
sem Skagafirði og enn vestar. Við-
brögð við tillögunum hafa látið á sér
standa hjá eyfirskum Norðlending-
um, stjórnmálamönnum sem öðrum.
Eyfirðingum ætti að muna um áhrif
af rúmlega 8.000 manna byggðar-
lögum, nema því aðeins að þau telj-
ist ekki til Norðurlands. Taka má þá
undir með skáldinu sem að nóttu
reikaði um eyðisand og syrgði horfið
Norðurland.
SIGURÐUR SIGURÐARSON,
atvinnuráðgjafi hjá
Iðnþróunarfélagi Norðurlands.
… nú er horfið
Norðurland
Frá Sigurði Sigurðarsyni:
FYRIR skemmstu höfnuðu Írar því í
þjóðaratkvæðagreiðslu að Evrópu-
sambandið yrði stækkað til austurs
eins og til hefur
staðið. Fyrir at-
kvæðagreiðsluna
lýsti Romano
Prodi, fram-
kvæmdastjóri
Evrópusam-
bandsins, því yfir
að sambandið
myndi ekki skipta
sér af atkvæða-
greiðslunni og
ennfremur virða
niðurstöður hennar hverjar sem þær
yrðu. Strax og úrslit atkvæðagreiðsl-
unnar voru hins vegar ljós tilkynnti
Evrópusambandið að leitað yrði
allra leiða til að fara í kringum nið-
urstöðurnar og að lýðræðislegur vilji
Íra yrði því ekki virtur.
Maður spyr sig því óneitanlega
hvers vegna verið var að efna til
þjóðaratkvæðagreiðslu meðal Íra
um stækkun Evrópusambandsins
fyrst sambandið var þegar búið að
ákveða hver úrslit málsins ættu að
vera. Þetta minnir óhugnanlega á
starfsaðferðir þær sem stundaðar
voru í Sovétríkjunum sálugu og öðr-
um austantjaldsríkjum. Lýðræðis-
legar niðurstöður kosninga eru ein-
ungis virtar ef þær eru í samræmi
við vilja valdhafanna.
Slík ólýðræðisleg vinnubrögð eru
annars ekkert nýtt af hálfu Evrópu-
sambandsins, en sömu meðöl voru
m.a. brúkuð er Danir höfnuðu
Maastricht-samkomulaginu á sínum
tíma. Sama var einnig uppi á ten-
ingnum þegar austurrískir kjósend-
ur kusu „vitlaust“, í síðustu þing-
kosningum þar í landi, að mati
sambandsins. Fyrir að kjósa sam-
kvæmt sannfæringu sinni, en ekki
samkvæmt vilja Evrópusambands-
ins, fengu Austurríkismenn efna-
hags- og samskiptaþvinganir á sig.
Sams konar hugmyndir voru síðan
viðraðar þegar Evrópusambandinu
mislíkaði lýðræðislegar niðurstöður
þingkosninganna í Danmörku á síð-
asta ári.
Það verður því að segjast eins og
er að lítið hefur áunnizt, eftir lok
kalda stríðsins, ef við höfum fengið
ólýðræðislega Vestur-Evrópublokk,
í staðinn fyrir þá ólýðræðislegu
Austur-Evrópublokk sem áður var
við lýði, þar sem lýðræðið er ekki í
hávegum haft og einungis í gildi þeg-
ar valdhöfunum hentar.
HJÖRTUR J. GUÐMUNDSSON,
meðlimur í Flokki framfarasinna
og Heimssýn.
ESB hunsar vilja Íra
Frá Hirti J. Guðmundssyni:
Hjörtur J.
Guðmundsson