Morgunblaðið - 11.08.2002, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. ÁGÚST 2002 45
DAGBÓK
Námskeið um meðvirkni, samskipti,
tjáskipti og tilfinningar verður haldið
föstudagskvöld 23. ágúst og laugardag
24. ágúst í kórkjallara Hallgrímskirkju.
Nánari upplýsingar og skráning
í síma 553 8800.
Taktu mér eins og ég er, svo ég geti lært hvað ég get orðið
Meðvirkni
Stefán Jóhannsson,
MA, fjölskylduráðgjafi
Sprengitilboð v/breytinga
50% afsláttur af öllu í búðinni
Sófasett, barir, innskotsborð, kistur, stólar,
úrval af ljósum og gjafavöru.
Opið virka daga frá kl. 11-18, laugard. 10. ágúst frá kl. 11-16,
sunnud. 11. ágúst frá kl. 13-18
Sigurstjarnan, Suðurlandsbraut 50 (bláu húsin), sími 588 4545.
Fyrirtæki til sölu
● Höfum til sölu nokkrar stórar sérverslanir, heildverslanir og iðnfyrirtæki í
ýmsum greinum fyrir rétta kaupendur. Ársvelta 100-1000 m. kr.
● Gömul og þekkt sérverslun við Laugaveg með nærföt og náttföt. Góð
evrópsk umboð. Velta nú um 1 m. kr. á mánuði sem hægt er að marg-
falda.
● Rótgróið og vel arðbært gistihús miðsvæðis í Reykjavík. 30 herbergi og
lítil íbúð fyrir eiganda. Ársvelta 40 m. kr.
● Lítil verslun og verkstæði með reiðtygi og aðrar hestavörur.
● Vinnuvélaverkstæði í eigin húsnæði, vel staðsett. Ársvelta 35 m. kr.
Mikil föst viðskipti.
● Lítil blómaverslun í Breiðholti. Falleg búð í stóru hverfi. Auðveld kaup.
● Innflutnings- og þjónustufyrirtæki með vinnuvélar, lyftara o.fl. Ársvelta
50 m. kr.
● Lítið landflutningafyrirtæki með mikil föst verkefni. Tilvalið fyrir bílstjóra.
● Þekkt, lítið matvælafyrirtæki með góða framleiðslu óskar eftir samein-
ingu við öflugt fyrirtæki. Selur bæði í matvöruverslanir og stofnana-
markað. Ársvelta nú um 35 m. kr. en getur vaxið hratt.
● Lítil en mjög efnileg heildverslun með umhverfisvæn hreinsiefni.
● Teygjustökk. Allur búnaður, þjálfun og viðskiptasambönd. Mikill hagnað-
ur.
● Heildverslun með þekkt fæðubótarefni sem aðallega eru seld í apótek.
Ársvelta 20 m. kr.
● Þekkt videósjoppa í Breiðholti með 5 m. kr. veltu á mánuði. Auðveld
kaup.
● Breiðin, Akranesi. Stórt samkomuhús með góðri aðstöðu fyrir dansleiki,
veislur og fundi. Eigið húsnæði. Gott tækifæri fyrir fagmenn.
● Lítil en vel þekkt heildverslun með iðnaðarvélar. Hentar vel fyrir 1—2
starfsmenn, sérstaklega smiði.
● Góður og vaxandi söluturn í Grafarvogi. Velta 2,7 m. kr. á mánuði. Verð
aðeins 4,5 m. kr. Auðveld kaup.
● Stór austurlenskur veitingastaður í miðbænum. Mikil velta, góður hag-
naður.
● Rótgróin deild úr fyrirtæki. Sala mælibúnaðar fyrir framleiðslu- og mat-
vælafyrirtæki. Framlegð 5 m. kr. á ári.
● Framköllunarþjónusta í miðbænum. Góð tæki. Frábær staðsetning.
● Stór heildverslun með iðnaðarvélar. Ársvelta 200 m. kr.
● Dagsöluturn í atvinnuhverfi með áherslu á léttar veitingar. Lítil en vax-
andi velta og miklir möguleikar.
● Heildverslun með sælgæti. 60 millj. kr. ársvelta. Föst viðskipti. Góður
hagnaður. Meðeign eða sameining möguleg.
● Lítil heildverslun, með góða markaðsstöðu í matvöru, óskar eftir sam-
einingu til að nýta góð tækifæri.
● Stór sérhæfð trésmiðja með góðan hagnað. Gott tækifæri fyrir fyrirtæki
í svipaðri starfsemi.
● Rótgróið veitingahús við Bláa lónið. Góður og vaxandi rekstur í eigin
húsnæði á þessum fjölsóttasta ferðamannastað landsins.
● Kaffi- og veitingahúsið Vivaldi, Borgarnesi. Ársvelta 20 m. kr.
● Vinsæl verslun með notaðan fatnað. Auðveld kaup.
● Verksmiðja sem framleiðir gróðurmold o.fl. Góð viðskiptasambönd.
● Pizzastaður í Hafnarfirði. Partur af stórri keðju. Miklir möguleikar.
● Góð bónstöð með mikil föst viðskipti.
● Heildverslun með tæki og vörur fyrir byggingariðnaðinn. Ársvelta 130
m. kr. Góður hagnaður um margra ára skeið. Hagstætt verð.
● Sólbaðstofa í Skeifunni. 12 bekkir. Velta 1200 þús. kr. á mánuði. Skipti
möguleg.
● Grensásvideó. Ágætur hagnaður, auðveld kaup.
● Ein besta sólbaðstofa borgarinnar. Góður hagnaður. Skipti möguleg á
góðu atvinnuhúsnæði.
● Vel þekkt og vaxandi sérverslun með flísar. 50 m. kr. ársvelta. Góð
umboð.
● Veitingastaður í atvinnuhverfi. Eingöngu opið virka daga kl. 7—17. Lágt
verð — auðveld kaup.
● Langar þig í eigin rekstur. Höfum til sölu nokkur lítil en góð fyrirtæki
sem auðvelt er að byrja á. Jafnvel auðveldara en þú heldur.
● Eitt af vinsælustu veitingahúsum bæjarins. Mjög mikið að gera.
Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin v/Faxafen)
Sími 533 4300, GSM 820 8658
Árnað heilla STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
LJÓN
Afmælisbörn dagsins:
Persóna þín hefur ríka rétt-
lætiskennd og lætur ekki
hugfallast í baráttunni við
ranglæti. Miklar breytingar
eru framundan hjá þér, bæði
í starfi og einkalífi.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú vilt endurskoða það sem
þú hefur áorkað í gegnum tíð-
ina. Þú vilt ekki líta til baka á
efri árum og vera leið/ur yfir
því hvers vegna þú gerðir
ekki þá hluti sem þig dreymdi
um.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Taktu til hendinni og losaðu
þig við það sem þú telur þig
ekki hafa þörf á. Miklar
breytingar eru framundan í
lífi þínu á næsta ári.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú hefur komist að raun um
það hvað hefur gengið upp og
hvað hefur misfarist í lífi
þínu. Sýndu hugrekki og
hættu því sem skilar ekki ár-
angri.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú ert nálægt því að ljúka
verki sem hefur tekið þig eitt
ár í vinnslu. Þú hefur hins
vegar enn ekki náð á leiðar-
enda, enn eru nokkur atriði
óútkljáð.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú hefur þurft að sætta þig
við minna að undanförnu,
kannski vegna þess að maki
þinn hefur þurft að skipta um
starfsvettvang eða er án
vinnu. Láttu ekki hugfallast
því erfiðleikar eru til þess að
sigrast á þeim.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það hefur hlaðist svo margt
upp á skrifborðinu þínu að þú
átt ekki annarra kosta völ en
að bretta upp ermarnar og
vinna sleitulaust fram úr öllu.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Erfið vinna mun skila árangri
á næsta ári. Ekki láta hugfall-
ast þó að þér finnist starfið
vera að beygja þig.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Aukin ábyrgð í tengslum við
börn mun valda því að þú
veltir fyrir þér að breyta um
starfsvettvang.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Haltu þinni stefnu í starfi því
þú munt ná betri árangri eftir
því sem á líður. Atorka þín
mun skila sér í betri starfs-
kjörum eða nýjum atvinnu-
möguleikum.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú hefur tök á að fegra heim-
ili þitt með nýjum hlutum.
Keyptu eitthvað sem þér líst
vel á og kemur að notum
heima hjá þér.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Nú er ekki tími til þess að
slaka á. Framundan eru erf-
iðir tímar, einkum í starfi.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú býrð yfir mikilli orku, sem
hægt er að nota til þess að
stíga á stokk og koma þínum
hugmyndum á framfæri.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
60 ÁRA afmæli. Ámorgun, mánudag-
inn 12. ágúst, er sextug
Birgit Henriksen, kennari,
Miðvangi 127, Hafnarfirði.
Eiginmaður hennar er Jón
Sæmundur Sigurjónsson,
hagfræðingur. Þau hjón eru
á ferð um Hornstrandir á af-
mælisdaginn.
102 ÁRA afmæli. Ídag, sunnudaginn
11. ágúst, er 102 ára Ágúst
Benediktsson frá Hvalsá í
Kirkjubólshreppi, nú til
heimilis á Hrafnistu, Hafn-
arfirði. Hann verður að
heiman í dag.
LJÓÐABROT
Hún kyssti mig
Heyr mitt ljúfasta lag,
þennan lífsglaða eld,
um hinn dýrlega dag
og hið draumfagra kveld.
Rauðu skarlati skrýðzt
hefur skógarins flos.
Varir deyjandi dags
sveipa dýrlingabros.
Ég var fölur og fár,
ég var fallinn í döf.
Ég var sjúkur og sár,
og ég sá aðeins gröf.
Hvar er forynjan Feigð
með sitt fláráða spil?
Hér kom gleðinnar guð,
og það glaðnaði til.
- - -
Stefán frá Hvítadal
SPIL dagsins kallar ekki á
flókna úrspilstækni, en það
hangir fleira á spýtunni.
Samningurinn er fjórir
spaðar og útspil vesturs
laufkóngur:
Norður
♠ 10762
♥ Á6
♦ KG105
♣1073
Suður
♠ ÁK94
♥ 985
♦ ÁD7
♣Á95
Hvernig myndi lesandinn
spila?
Fyrir margt löngu sat
Terence Reese (1913–1996)
í suðursætinu. Hann dúkk-
aði laufkónginn, tók næsta
slag á laufás og lagði niður
ÁK í spaða. Trompið var 3-2
og nú er spilið unnið ef sá
mótherji sem á þriðja
trompið fylgir þrisvar lit í
tígli.
Norður
♠ 10762
♥ Á6
♦ KG105
♣1073
Vestur Austur
♠ G5 ♠ D83
♥ KG7 ♥ D10432
♦ 9642 ♦ 83
♣KDG8 ♣642
Suður
♠ ÁK94
♥ 985
♦ ÁD7
♣Á95
En austur á aðeins tvo
tígla, svo spilið ætti að tap-
ast.
Reese tókst þó að læða
þriðja tíglinum framhjá
austri með kænlegri íferð.
Hann tók fyrst á tígulásinn,
spilaði svo sjöunni á kóng-
inn og gosanum úr borði.
Frá bæjardyrum austurs
leit út fyrir að sagnhafi
hefði byrjað með Á7 tvíspil
og væri nú að undirbúa
trompsvíningu fyrir tígul-
drottningu. Austur sá því
ekki ástæðu til að trompa
og henti hjarta. Reese fór
þá inn í borð á hjartaás og
henti laufi niður í fjórða tíg-
ulinn.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
GÓÐIR vinir og lesendur
þessara pistla hafa á
stundum mér til mikillar
ánægju lagt hér orð í
belg. Er ég þakklátur
fyrir það. Mættu þeir þó
alveg að ósekju vera
fleiri, því að langt er frá
því, að ég heyri eða komi
auga á allt það, sem vert
væri að minnast á í stuttu
máli. Ekki alls fyrir
löngu var ég í hópi nokk-
urra áhugamanna, sem
finnst veruleg ástæða til
að minnast á ýmis ensk
orð, sem flæða inn í mál
okkar. Þetta er vitaskuld
rétt og þörf ábending,
enda held ég eitthvað hafi
verið vikið að enskum
slettum í þessum pistlum.
En góð vísa er aldrei of
oft kveðin, eins og á
stundum er sagt. Eitt
enskt orð hefur sótt mjög
á, þ. e. bæ. Trúlega þó
einkum í mál yngra fólks.
Þegar menn kveðja,
segja margir bæ eða jafn-
vel bæ, bæ.
Ég held, að í mínu ung-
dæmi vel fyrir miðja síð-
ustu öld hafi enginn sagt
svo, heldur oftast bless
eða blessaður og jafnvel
þegar menn heilsuðust.
Ég tel mig aftur á móti
hafa heyrt menn fullyrða,
að þessi síðarnefndu orð
hafi borizt hingað með
Englendingum í seinna
stríði. Hér sé því einnig
um slettu að ræða. Þetta
er hinn mesti misskiln-
ingur. Þau eru löngu áður
komin í mál okkar. Þau
eru áreiðanlega dregin af
so. að blessa, sem hér
hefur þekkzt í máli okkar
um margar aldir. Samkv.
OM. (1983) merkir það að
signa, lýsa blessun yfir:
Guð blessi matinn, sagði
gamla fólkið.
Og presturinn blessar
yfir fólkið. Þá minnist
OM á, að orðið sé notað í
„(heilsunar- og) kveðju-
orðum; (komið þið, verið
þið) sæl og blessuð“.
Síðan er bætt við: „oft
stytt í bless.“ Blessaður.
Þetta eru falleg árnaðar-
orð, sem fara vel í máli
okkar, og menn ættu að
nota. En alls ekki bæ, að
ekki sé talað um „ókei,
bæ, bæ“. – J. A. J.
ORÐABÓKIN
Bless – bæ
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. d4 exd4
4. Rxd4 Rf6 5. Rxc6 bxc6 6.
e5 De7 7. De2 Rd5 8. c4 Ba6
9. b3 g5 10. h4 Bg7 11. Bb2
Rf4 12. De3 h6 13. Rd2 Rg6
14. Rf3 gxh4 15. 0-0-0 0-0 16.
Dd4 Had8 17. Dxa7 Rxe5 18.
Dxc7 Rxf3 19. Bxg7 Dg5+
20. Kc2 Kxg7 21. gxf3 d5 22.
Hd4 Bc8 23. Hhxh4 Bf5+
24. Kb2 Bg6 25. Df4 dxc4
26. Bxc4 c5 27. Hxd8
Hxd8 28. Kc3 Hd1 29. a4
Hc1+ 30. Kb2 Hc2+ 31.
Ka3 Hxf2 32. a5 Hxf3 33.
Dxg5 hxg5 34. Hg4 f5 35.
Hxg5 Kf6
Staðan kom upp á Lost
Boys-mótinu sem lauk
fyrir skömmu í Amster-
dam. Jan Smeets (2.392)
hafði hvítt og lagði landa
sinn og goðsögnina Jan
Timman (2.623) að velli.
36. a6! og svartur gafst
upp enda fátt til varnar þar
sem bæði eftir 36. ...Kxg5 37.
a7 og 36. ...He3 37. a7 He8
38. Hxg6+ Kxg6 39. Bd5
reynist a-peð hvíts svörtum
ofviða.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.