Morgunblaðið - 30.08.2002, Side 12

Morgunblaðið - 30.08.2002, Side 12
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 12 FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ ALLS bárust 29 athugasemdabréf og fimm undirskriftalistar með samtals 275 nöfnum til Skipulags- og bygg- ingasviðs Reykjavíkurborgar vegna fyrirliggjandi tillögu að deiliskipulagi Norðlingaholts en frestur til að skila inn athugasemdum rann út á mið- vikudag eftir að hafa verið fram- lengdur um tvær vikur. Að sögn Helgu Bragadóttur skipu- lagsfulltrúa bera athugasemdirnar að sama brunni og áður. „Það er búið að fjalla töluvert um þetta og ljóst við hvað verið er að gera athugasemdir. Það er þéttleikinn, hæð húsa, sprung- urnar, Vatnsendasvæðið, umhverfis- málin, samráðið, athugasemdir frá Kópavogsbæ, frá eignaraðilum inni á svæðinu sjálfu og einnig frá hesta- mönnum varðandi framtíðaraðstöðu þeirra. Það er sama sagan sem end- urtekur sig.“ Hún segir að í framhaldinu verði athugasemdirnar yfirfarnar og rædd- ar hjá Skipulags- og byggingasviði og í kjölfarið verður gerð umsögn um þær. „Næsti fundur Skipulags- og bygginganefndar verður þann 11. september og ég geri ráð fyrir að at- hugasemdirnar verði lagðar fyrir á þeim fundi,“ segir Helga. Fjarri lagi að verið sé að þétta byggð Meðal þeirra sem gera athuga- semdir við skipulagið eru Höfuðborg- arsamtökin en í bréfi þeirra er þeirri fullyrðingu skipulagsyfirvalda í Reykjavík mótmælt að um sé að ræða þéttingu byggðar. „Ekkert er fjær lagi,“ segir í bréf- inu. „Hið rétta er að fyrirhuguð byggð er afskekktari en nokkurt ann- að hverfi í Reykjavík og íbúar þar þyrftu að sækja atvinnu og miðlæga þjónustu um lengri veg en áður hefur þekkst í höfuðborginni. Tillagan er því enn ein ávísunin á áframhaldandi þróun bílasamfélags á kostnað mann- vænnar menningarborgar.“ Frestur til að skila inn athugasemdum rann út á miðvikudag Um 30 athugasemdabréf og 275 undirskriftir Morgunblaðið/Jim Smart Að sögn Helgu Bragadóttur, skipulagsfulltrúa borgarinnar, varða at- hugasemdir við tillögu að deiliskipulagi Norðlingaholts þéttleika byggðarinnar, hæð húsa, umhverfismálin, samráð við íbúa og fleira. Norðlingaholt FJÖLSKYLDUHÁTÍÐ Smáralind- ar og LEGO á Íslandi hófst í Smáralind í gær er danski kon- súllinn opnaði hátíðina. Á hátíð- inni er margt í boði fyrir áhuga- fólk um LEGO-leikföng. Þar má nefna 200 fermetra svæði með kappasktursbrautum, myndver þar sem börnum býðst að búa til kvikmyndir í tölvu, leiksvæði fyr- ir börn á aldrinum tveggja til sex ára, Bubbi byggir svæði, fótbolta- spil og fleira. Aðgangur á LEGO-hátíðina í Smáralind er ókeypis. Morgunblaðið/Jim Smart LEGO er myndað úr dönsku orðunum „Leg godt“ eða leiktu fallega, en þýðir líka að safna eða velja á latínu. Þessir drengir voru áhugasamir á LEGO-hátíðinni í Smáralind í gær. Fjölskyldu- hátíð í Smáralind Kópavogur NOKKUR skólpmengun er enn í Bessastaðahreppi en Gunnar Valur Gíslason, sveitarstjóri, segir að hún sé ekki lengur á leiksvæði heldur á afgirtu svæði og stefnt sé að því að útrýma henni alveg á næstunni. Ármann R. Úlfarsson, íbúi í Bessastaðahreppi, segir að í þrjú ár hafi hann barist fyrir aðgerðum í frá- veitumálum og sérstaklega vegna skólps í ákveðnum skurði við íþrótta- svæðið norður af skátaheimilinu. Í sumar hafi komið fram að skólp- mengunin í skurðinum hafi verið langt yfir viðunandi mörkum og þá hafi verið farið í framkvæmdir, m.a. hreinsað upp úr skurðum, en ekki úr um 300 metra löngum skurði, þar sem mengunin sé mest. Hins vegar hafi nýlega verið send út orðsending til íbúanna þar sem m.a. hafi komið fram að búið væri að hreinsa skólp- mengun úr þessum skurði. „Þetta er skurðurinn sem er ekki hreinn og hefur aldrei verið farið í,“ segir Ármann og bætir við að hann hafi fengið meiri- og minnihluta til að ganga með sér um svæðið sl. sunnu- dag. Allir hafi verið sammála um að skólp væri í skurðinum og rætt hafi verið um að bréfið hafi verið ótíma- bært en það fengist ekki dregið til baka, því framkvæmdir væru fyrir- hugaðar á næstunni. Með orðsend- ingunni væri verið að segja að þessi skurður væri í lagi barnanna vegna en aðrir ekki, en hann væri það alls ekki. Gunnar Valur Gíslason, sveitar- stjóri, segir að í sumar hafi verið far- ið í ákveðna aðgerð til að hreinsa um- ræddan skurð og þá staði þar sem mengunin hafi verið mest. Í bréfinu kemur fram að búið sé að hanna tengilögn frá Vesturtúni og skáta- heimili að stofnlögn fráveitu við Breiðumýri og að verkið hafi verið boðið út, en Gunnar Valur segir að ákvörðun um verktaka verði tekin í vikunni og síðan hefjist framkvæmd- ir sem taki nokkrar vikur. Hann seg- ir að farið hafi verið út í að loka fyrir tengingu í viðkomandi skurð, hann hafi verið hreinsaður og mælingar sýni að hann sé í lagi, en þetta hafi verið framkvæmdir til bráðabirgða. „Við fjarlægðum mengunina úr íbúð- arhverfinu,“ segir hann og áréttar að komandi framkvæmdir komi endan- lega í veg fyrir skólpmengunina. Enn skólpmeng- un í skurði Bessastaðahreppur FJÖGUR athugasemdabréf hafa borist skipulags- og bygginganefnd Reykjavíkur vegna fyrirhugaðrar stækkunar Grand Hótels í Reykja- vík en frestur til að skila athuga- semdum við tillögu að deiliskipulagi svæðisins rann út í júlí. Bréfin voru kynnt á fundi nefnd- arinnar í síðustu viku. Í þeim eru gerðar athugasemdir við skugga- varp af tveimur 12–13 hæða turn- um, sem fyrirhugað er að reisa við hótelið. Þá er talið að slíkir turnar séu ekki í samræmi við þá byggð sem fyrir er í hverfinu. Eitt athugasemdabréfið er frá Tónskóla Sigursveins D. Kristins- sonar en hann er til húsa á Engja- teigi 1, í næsta nágrenni hótelsins. Er í bréfinu tíundaðar áhyggjur af aðkomu og umferðarmálum í kjöl- far breytinganna. Þá telja stjórn- endur skólans að erfitt eða ómögu- legt verði að skerma fyrir umferðarhávaða frá Kringlumýrar- braut eftir að byggingarnar verða komnar auk þess sem stækkun lóð- ar Grand Hótels muni þrengja mjög að skólalóðinni. Athugasemdir vegna stækkunar Grand Hótels Óttast skugga- varp af hótel- turnunum Teigar SÉRSTAKAR öryggisráðstafanir verða viðhafðar á næstu vikum við Flataskóla vegna framkvæmda við viðbyggingu skólans til að tryggja öryggi skólabarna. Verður út- færsla á öryggisráðstöfunum end- urmetin ef nauðsynlegt reynist að því er fram kemur í bókun bæj- arráðs Garðabæjar. Í minnisblaði bæjarverkfræð- ings kemur fram að ráðstafanirnar felast meðal annars í að auk venju- legrar vinnugirðingar umhverfis framkvæmdasvæðið hefur verið sett upp girðing umhverfis bíla- stæði skólans þar sem aðkomuleið að vinnusvæðinu er. Á girðingin að tryggja að umferð vinnuvéla og skólabarna skarist sem minnst. Þá verður gæsla viðhöfð við skólann þegar flutningabílar með húsaein- ingar fara um skólasvæðið. Bæjarverkfræðingur greindi frá þeim öryggisráðstöfunum sem verða á næstu vikum. Útfærsla á öryggisráðstöfunum verður endur- metin ef nauðsynlegt reynist til að tryggja öryggi skólabarna. Öryggisráðstaf- anir vegna bygg- ingaframkvæmda Garðabær ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.