Morgunblaðið - 30.08.2002, Blaðsíða 17
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 2002 17
HÁTTSETTUR, bandarískur emb-
ættismaður sagði í gær, að ill öfl
réðu ríkjum í Norður-Kóreu, stjórn,
sem hefði virt að vettugi viðvaranir
Bandaríkjastjórnar og væri nú um-
svifamest allra í sölu á ýmsum bún-
aði í langdrægar eldflaugar.
John Bolton, aðstoðarutanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna á sviði víg-
búnaðareftirlits og alþjóðaöryggis,
sagði í Seoul í Suður-Kóreu, að
N-Kóreustjórn neitaði að leyfa eft-
irlit með kjarnorkuverum og kjarn-
orkuáætlunum sínum og því væri
mikilvægur samningur hennar og
Bandaríkjastjórnar um þau mál í
uppnámi. Þá varði hann þá yfirlýs-
ingu George W. Bush, forseta
Bandaríkjanna, að Norður-Kórea
ásamt Íran og Írak væri hluti af
„hinum illa öxli“, sem ynni að því að
auðvelda aðgang að gereyðingar-
vopnum.
„Tengslin milli þessara ríkja eru
mikil, eftir þessum öxli flæða
hættuleg vopn og hættuleg tækni,“
sagði Bolton og bætti við, að
N-Kóreumenn hefðu útvegað Írön-
um eldflaugar og eldflaugatækni
árum saman. Hefði sala af þessu
tagi verið ein helsta tekjulind
þeirra í langan tíma.
Samningurinn frá
1994 í uppnámi
Bolton sagði, að í N-Kóreu réðu
„ill öfl, vopnuð langdrægum eld-
flaugum og gereyðingarvopnum. Í
næsta nágrenni við Seoul er mesti
samsafnaður af vopnum af þessu
tagi á jarðríki“.
Bolton sagði, að ólíklegt væri, að
lokið yrði við fyrirhuguð kjarnorku-
ver í N-Kóreu fyrir 2005, en áður
hafði verið miðað við að ljúka því
2003. Sagði hann, að mikilvægustu
hlutar kjarnakljúfanna yrðu ekki
afhentir fyrr en stjórnin í Pyong-
yang heimilaði IAEA, Alþjóða-
kjarnorkustofnuninni, að kynna sér
öll kjarnorkumál í landinu fyrr og
síðar. N-Kóreustjórn setur hins
vegar það skilyrði fyrir eftirliti, að
hlutar í kjarnakljúfana verði af-
hentir fyrst.
Bandaríkjamenn og N-Kóreu-
menn sömdu um það 1994, að
bandarískt fyrirtæki byggði tvo
léttvatnskjarnakljúfa í N-Kóreu
gegn því, að stjórnvöld þar legðu
allar áætlanir um smíði kjarna-
vopna á hilluna. Grunur leikur hins
vegar á, að þau hafi á laun verið bú-
in að vinna úran í vopn úr gömlum
kljúfum áður en samkomulagið var
undirritað. Vilja Bandaríkjamenn
og IAEA fá að ganga úr skugga um
það.
Bolton sagði einnig, að N-Kórea
réði yfir miklu af eiturefna- og líf-
efnavopnum, en S-Kóreustjórn
áætlar birgðirnar í norðri um 2.500
tonn.
Segir ill öfl ráða
ríkjum í landinu
!""!# "
!
$
!
"
#$%
&
"
% !&
'
(" )
*
+
,&
-
(" ). /
'
0
12344
52544
62444
554
744
644
' '(" 8
!!!"./ "!!#$!! $"! !!! !!!
%!!./ ""!#&!! %!! !!! " "!!#& !!!
' &
( )' *+,-) -
' )*+,-
. ' . '
+
Sala á eldflaugatækni ein helsta tekjulindin í N-Kóreu
John Bolton, aðstoðarutanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna (t.h.),
hittir Lee Jun, varnarmálaráð-
herra S-Kóreu, í Seoul í gær.
Seoul. AFP.
Bandarískur embættismaður harðorður
um stjórnvöld í Norður-Kóreu
AP
um sextíu prósent Svía telja eðli-
legt að taka sér veikindaleyfi af
öðrum ástæðum en raunverulegum
veikindum, svo sem vandræðum
heima fyrir og streitu. „Hjólin snú-
ast of hratt,“ segir Anna Eriksson,
29 ára gamall hjúkrunarfræðingur,
sem tók sér tveggja mánaða veik-
indaleyfi á síðasta ári, og segist
hafa verið „útbrunnin“.
Andstæðingar bótakerfisins
segja Svía líta á greiðslurnar sem
sjálfsagðan hlut, en ekki það ör-
yggisnet sem þær eiga að vera.
Fullyrða þeir að stór hluti bóta-
krafna eigi ekki rétt á sér og kenna
þeir óréttlætanlegum kröfum um
þá miklu aukningu í greiðslu bóta
sem orðið hefur frá árinu 1997 þeg-
ar aðeins um 170.000 Svíar fengu
slíkar greiðslur. Það þarf að of-
dekra Svía og umkringja þá
ávaxtakörfum svo þeir geti unnið,
segir í grein bókaútgefandans Hel-
enu Riviere, sem birtist í Svenska
Dagbladet. Riviere segir að of háar
bætur bjóði upp á misnotkun kerf-
isins og að fólk taki sér veikinda-
EINN af hverjum sex Svíum á
vinnualdri lifir nú á bótum frá hinu
opinbera vegna veikinda eða
meiðsla, og nema greiðslur vegna
þessa eitt þúsund milljörðum ís-
lenskra króna, sem svarar til um
sextán prósenta af fjárlögum rík-
issjóðs. Aldrei hafa jafnmargir Sví-
ar sótt sér slíkar bætur, en samtals
er um 810.000 manns að ræða. „Við
ráðum ekki við meiri kostnað,“
segir Rolf Lundgren, hagfræðing-
ur hjá sænsku tryggingastofnun-
inni. Segir Lundgren að aukist
kostnaðurinn enn verði að skera
niður bætur og þá geti kerfið ekki
þjónað hlutverki sínu.
Þegar sænskur launþegi hverfur
frá vinnu vegna veikinda eða slys-
fara greiðir vinnuveitandi honum
laun í tvær vikur en eftir það fær
hinn veiki greiðslur frá ríkinu.
Margt bendir til að bótagreiðsl-
urnar verði kosningamál í þing-
kosningum sem haldnar verða 15.
september næstkomandi. Ríkis-
stjórn jafnaðarmanna hefur hafið
rannsókn á aðstæðum launafólks
og samkvæmt skýrslum sem birtar
hafa verið af ráðuneytum fer
streita vaxandi hjá sænskum laun-
þegum. Stjórnarandstaða hægri
flokkanna segir ríkisstjórnina hins
vegar leita lausna á röngum stöð-
um. Segja talsmenn hennar vand-
ann ekki felast í slakri heilsu
sænskra launþega heldur í of
rausnarlegum bótagreiðslum sem
grafið hafi undan vinnusiðferði í
landinu.
Nýleg skoðanakönnun sýnir að
leyfi þegar það sé ósátt við lífið og
tilveruna eða einfaldlega búið að fá
nóg af vinnunni.
Hærri bætur – fleiri kröfur
„Haldi fólk áfram að nota bóta-
kerfið á þennan hátt mun ekki
verða neitt eftir handa þeim sem
raunverulega þurfa á aðstoð að
halda,“ segir Eric Jannerfeldt,
talsmaður samtaka atvinnurek-
enda í Svíþjóð. Samtökunum reikn-
ast svo til að á hverju ári tapist um
1.400 milljarðar íslenskra króna
vegna ónýttra vinnustunda.
Hagfræðingarnir Magnus Hen-
rekson og Mats Persson segja háar
bótagreiðslur hugsanlega hluta
vandans. Í nýlegri grein benda þeir
á tengsl milli breytinga á bótakerf-
inu og breytinga í fjölda bóta-
krafna undanfarna fimm áratugi.
Kenning þeirra útskýrir ekki af
hverju kröfur færðust í aukana ár-
ið 1997, eftir stöðuga fækkun
stærstan hluta tíunda áratugarins.
Henrekson og Persson benda hins
vegar á að fjöldi krafna tók kipp ár-
ið 1998 eftir að ríkisstjórnin jók
bæturnar úr 75% af launum í 80%
af launum viðkomandi bótaþega.
„Eitt er ljóst,“ segir Henrekson,
„þegar fjárhæð bóta er aukin fjölg-
ar bótakröfum.“
Vinnumálaráðherra Svíðþjóðar
segir of fáa vinna þau störf sem
unnin eru í hagkerfinu. Segir hún
að uppsagnir og endurskipulagn-
ing fyrirtækja á tíunda áratugnum
hafi aukið streitu meðal sænskra
launþega.
Deilt um bóta-
kerfið í Svíþjóð
Sjötti hver Svíi á
vinnualdri er á
bótum vegna
veikinda eða
meiðsla og kostn-
aðurinn er tekinn
að sliga ríkissjóð
Stokkhólmi. AP.