Morgunblaðið - 30.08.2002, Qupperneq 22
LISTIR
22 FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
LÍFIÐ er ósköp strembið hjá Lilo
litlu, einmana stúlku á Hawaii-eyjum
sem er í umsjá Nani, nítján ára syst-
ur sinnar. Þeim hefur ekki gengið of
vel að spjara sig og lífsbaráttan erf-
ið. Þegar félagsráðgjafinn Cobra
Bubbles kemur til að fylgjast með
hvernig gengur hjá systrunum eru
þær að rifast og íbúðin á hvolfi.
Cobras varar Nani við og gefur
henni þriggja daga frest til að koma
lagi á hlutina og sýna að hún sé fær
um að gæta systur sinnar. Annars
fari í verra!
Um kvöldið sér Lilo litla stjörnu-
hrap út um svefnherbergisgluggann
og óskar sér að „einhver verði vinur
minn, einhver sem stingur mig ekki
af“. Hún bætir við: „Þið ættuð að
senda mér engil, besta engilinn sem
þið eigið!“
Í rauninni er það lítið geimskip
sem Lilo sá út um gluggann sinn.
Eigandinn er Stitch, hálfgerður
vandræðabelgur sem hefur flúið
plánetuna sína sem heitir Turo. Sá
sem bjó hann til er kolruglaður vís-
indamaður sem segir að Stitch sé
„skotheldur, eldtraustur og getur
hugsað hraðar en ofurtölva. Hann
sér í myrkri og getur fært hluti sem
eru þrjúþúsund sinnum stærri en
hann. Eina eðlishvöt hans er að eyði-
leggja allt sem hann snertir!“.
Slíkt getur ekki viðgengist og
Stitch er dæmdur í einangrun úti í
geimnum. Þá gerir hann sér lítið fyr-
ir, stelur lögreglugeimskipinu og
skellir sér til fjarlægrar stjörnu sem
heitir Jörðin.
Nýjasta teiknimyndin frá Disney
segir síðan af skemmtilegum og
spennandi ævintýrum Stitch og vin-
konu hans Lilo, sem hann hittir fljót-
lega á jörðu niðri. Með sínum yfir-
náttúrulegu hæfileikum eru þeim
vinunum allir vegir færir og skyndi-
lega brosir lífið við Lilo, hún hefur
fengið sannkallaðan engil af himnum
sendan! Og tónlist rokkkóngsins
Elvis Presley er aldrei langt undan!
Leikarar: Daveigh Chase/Lilo (Fill-
more!, Ring, Carolinas, Donnie Darko);
Tia Carrere/Nina (Rising Sun, Wayne’s
World, True Lies); Ving Rhames/Cobra (
(Pulp Fiction, Out of Sight, Bring Out
the Dead); David Ogden Stiers/Jumba
(Fríða og Dýrið, Pocahontas, Hringj-
arinn í Notre Dame).
Leikstjórar: Chris Sanders og Dean
Deblois (Frumraun).
Himnasending-
in hennar Lilo
Úr bandarísku teiknimyndinni
„Lilo & Stitch“.
Lilo & Stitch. Bandarísk teiknimynd.
Enskar raddir: Daveigh Chase, Jason
Scott Lee, Tia Carrere, Ving Ehames,
Chris Sanden, David Ogden Stiers. Sýn-
ingarstaðir: Sjá bíóauglýsingar dag-
blaðanna.
Á UNDANFÖRNUM árum hafa fá-
ar myndir vakið jafnmikla hrifningu,
eftirtekt og aðsókn og hrollvekjan
The 6th Sense eftir M. Night
Shyamalan. Nú er þessi ungi og upp-
rennandi leikstjóri kominn með
Signs, sína fimmtu mynd, sem átt
hefur mikilli velgengni að fagna und-
anfarnar vikur og skellti sér m.a. aft-
ur á toppinn í Bandaríkjunum um
síðustu helgi.
Signs fjallar líkt og tvær síðustu
myndir leikstjórans/handritshöfund-
arins Shyamalans um yfirnáttúru-
lega hluti og venjulegt fólk sem á í
mikilli innri baráttu við sjálft sig og
utanaðkomandi öfl. Spennumynd
byggð á dularfullum, illútskýranleg-
um atburðum. Mel Gibson fer með
aðalhlutverk Grahams Hess, fyrr-
verandi guðsmanns, nú bónda í kyrr-
látri sveitasælunni í Pennsylvaníu.
Hann ræktar meðal annars korn,
sem þekur tugi ekra umhverfis býlið.
Innra með bóndanum ríkir hinsveg-
ar lítil friðsæld. Hann hætti prest-
skap er hann missti konu sína í slysi
og elur nú upp börnin sín tvö á bú-
garðinum. Við bústörfin nýtur hann
einnig aðstoðar Merrills (Joaquin
Phoenix), yngri bróður síns.
Hess missti trúna við slysið og er í
sálarkreppu þegar heimurinn, eins-
og hann hefur þekkt hann, hrynur á
einni nóttu. Úti á kornökrunum eru
skyndilega komin risavaxin, fram-
andi tákn, tugir metra á lengd. Eru
hrekkjalómar á ferð eða gestir utan
úr geimnum?
Spurningunni verður Hess að
svara og hann er til að byrja með
ekki í minnsta vafa um að hér sé ver-
ið að fremja ótugtarleg prakkara-
strik. Honum snýst hugur er fréttist
af svipuðum risatáknum víðsvegar
að úr heiminum og nú verður hann
að takast á við efasemdir sínar gagn-
vart almættinu um leið og sviplegir
atburðir fara að gerast í fjölskyld-
unni. Börnin vafra í svefni útá akr-
ana og dularfullar verur fara á stjá.
M. Night Shyalaman er í toppformi
og svíkur engan aðdáanda sinn.
Mel Gibson og Joaquin Phoenix
fara með aðalhlutverk bræðranna,
tveir afar vinsælir en sömuleiðis
traustir leikarar sem skila jafnan
sínu af öryggi.
Því má bæta við að Shyalaman
kemur einnig fram í aukahlutverki
drukkins ökumanns.
Leikarar: Mel Gibson (Braveheart,
Lethal Weapon I- IV, Hamlet, Payback);
Joaquin Phoenix (U-Turn, Gladiator,
Quills, The Yards); Patricia Kalember
(Jacob’s Ladder, A Far Off Place, Big
Girl’s Don’t Cry); Rory Culkin (A Few
Good Years, You Can Count on Me, The
Good Son). Leikstjóri: M. Night
Shyalaman (The 6th Sense, The Un-
breakable Praying With Anger, Wide
Awake).
Undrin á akrinum
ReutersMel Gibson í kvikmyndinni „Signs“.
Signs. Aðalleikendur: Mel Gibson,
Joaquin Phoenix, Rory Culkin, Abigail
Breslin, Cherry Jones o.fl. Sýning-
arstaðir: Sjá auglýsingar í dagblöð-
unum.
hvaða nútímabarn væri ekki til í að
vera hluti af Krílafjölskyldunni? Hún
er svo falleg og góð, bjartsýn og bros-
andi, en þó svo skemmtilega óraun-
veruleg og gamaldags. Eða eins og
einhver sagði: „Músin er raunveru-
legri en mennirnir.“
Annars er boðskapur og innsýn í
barnssálina ekki stærsti kostur þess-
arar myndar. Það er hasarinn og
húmorinn. Þótt sagan sé einföld er
hún spennandi, og á köflum mjög
áhrifarík. Heimiliskötturinn Snjóber
á allar bestu setningarnar í myndinni
og uppsker hlátrasköll bæði barna og
fullorðinna. Þetta er ein af þessum
myndum þar sem er hugsað um for-
eldrana líka, nokkrir undirliggjandi
brandarar bara fyrir þá, og hvernig
eiga börnin að skilja tilvísunina í
Hitchcock-myndina Vertigo? Enda er
ekki víst að þau skilji öll að Stúart er
eiginlega ástfanginn af fuglinum
Möggu Lóu. Þau gætu líka bara verið
vinir. Við Íslendingar erum því al-
deilis óvön að verið sé að raddsetja
leiknar kvikmyndir. Og þótt músin og
fuglarnir séu mjög raunveruleg er
mun eðlilegra að sjá þau tala … og
það íslensku, en að sjá þekkta leikara
tala íslensku. Mér fannst fyrst rödd
Guðfinnu ekki passa við Geenu Davis,
en það venst þó óvenju vel, og radd-
setningin er öll skemmtilega vönduð.
Brotthætt rödd Bergs passar listilega
vel við viðkvæmu músina Stúart
kríli … ég meina litla. Af hverju heitir
hann ekki bara Stúart kríli?
EN gaman að hitta Stúart litla aft-
ur! Og það í enn meira stuði en í
fyrstu myndinni. Þar var meira gert
út á hversu skondið það er að lítil mús
skuli eiga mannlega foreldra og
hversu krúttlegt þetta allt saman er.
Og það verður að segjast að herberg-
ið hans Stúarts, bíllinn og fötin, þetta
er mjög sætt, skemmtilega upphugs-
að og fyrst og fremst vel gert. Ef ég
væri fimm ára og hefði ekki vit á hvað
hægt er að gera í tölvum væri ég
sannfærð um að Stúart væri raun-
verulegur.
Myndin fjallar aðallega um vinátt-
una og fjölskylduna og upp koma að-
stæður sem börn geta auðveldlega
samsamað sig við; að vera skilinn út
undan og vera einmana. Og að finnast
maður lítill og ráða ekki við aðstæð-
urnar. En Stúart segir að maður sé
bara jafnstór og manni finnist maður
vera. Já Stúart! Rétt hjá þér! Og
Músahasar og húmor
KVIKMYNDIR
Smárabíó, Regnboginn og Laug-
arásbíó
Leikstjórn: Rob Minkoff. Handrit:
Douglas Wick og Bruce Joel Rubin eftir
sögum E.B. White. Kvikmt.: Steven B.
Poster. Brellur: Jim Henson’s Creature
Shop og Sony Pic. Imageswork. Leikarar:
Geena Davies, Hugh Laurie og Jonathan
Lipnicki. Leikstj. ísl. raddsetn: Þórhallur
Sigurðsson. Raddir: Bergur Ingólfsson,
Gunnar Hansson, Guðfinna Rúnarsdóttir,
Sigurður Jökull Tómasson, Hjálmar
Hjálmarsson, Pálmi Gestsson og Sigrún
Edda Björnsdóttir. 78 mín. Bandaríkin.
Columbia Tristar 2002.
STÚART LITLI 2 Hildur Loftsdóttir
AUSTIN Powers er samur við sig í
þessari nýjustu mynd sinni. Brandari
ofan í brandara, þeim er hellt yfir
mann bröndurunum svo enginn tími
gefst til að melta þann seinasta sem
maður gleypti. Og húmorinn er að
vanda allur neðan mittis, en í þessari
mynd er óvenju mikið um typpa-
brandara. Kannski er það í samræmi
við þema myndarinnar sem er sam-
band föður og sonar, eða til heiðurs
nýjustu persónunni sem Mike Myers
holdgerir, hinum hollenska Gulllimi.
En hann hlaut nafn sitt af því óláni að
missa liminn í málmbræðsluslysi og
fá sér einn úr gulli í staðinn. Gull-
limur er diskófrík sem flagnar og ef
hann safnar ekki skinnflögunum í
sérstakt box, þá borðar hann þær. Oj!
þarna kúgaðist ég jafn mikið og þeg-
ar Feiti skíthæll drakk kúk í seinustu
mynd. (Mike Myers húmor í hnot-
skurn?)
Nýja daman hans Austin er leyni-
löggan Flotta Kleópatra sem söng-
konan Beyoncé Knowles leikur, og er
geðveikt flott með brjálaða afró-
greiðslu. Í þessari fyrstu mynd sinni
stendur hún sig ekki sem verst þótt
henni takist engan veginn að stela
senunni. Það gerir hins vegar pabbi
Austin Powers sem sjálfur Michael
Caine leikur. Svo hittum við auðvitað
alla gömlu vinina okkar, Dr. Illan,
Scotty, Litla-Ég, Númer 2, Basil og
Frau. Og því miður eru allir brand-
ararnir sem þeim viðkoma mjög svip-
aðir og í fyrri myndum hans.
Mér fannst upphafsatriðið alveg
frábært og Danny de Vito bestur. Það
segir ýmislegt um þá virðingu sem
Austin Powers nýtur, þrátt fyrir að
vera bara bullukolla. Nathan Lane
kemur líka inn með gott atriði og
skuggamyndirnar í kafbátnum eru
góðar.
Jæja, annars fjallar þessi mynd um
eitthvað spæjó, ... eða þannig. Þetta
var allt saman mjög ruglingslegt, en
Gulllimur vill alla vega eyða heimin-
um, og auðvitað verður Austin Pow-
ers að redda því. Þetta finnst mér ein-
mitt verst við Myers. Hugmyndirnar
hans eru oft alveg frábærar og húm-
orinn líka. Hann hefur allt í höndun-
um til að búa til góða, jafnvel frá-
bæra, grínmynd, ef hann myndi sýna
smá aga í vinnubrögðum. Gera góðan
og spennandi söguþráð sem hægt er
að lifa sig inn í og koma svo með
brandara á réttum stöðum. Myndin
er bara samansafn af persónum, að-
stæðum og bröndurum sem hann hef-
ur fundið upp, dembir yfir okkur í
belg og biðu, veður sífellt úr einu í
annað og að lokum verður þetta al-
gjört bull. En geggjað bull, já!
Geggjað
bull
KVIKMYNDIR
Regnboginn, Smárabíó, Laug-
arásbíó og Borgarbíó Ak.
Leikstj: Jay Roach. Handrit: Mike Myers
og Michael McCullers. Kvikm.t: Peter
Deming. Aðalhlutverk: Mike Myers,
Beyoncé Knowles, Michael Caine, Seth
Green, Verne Troyer, Fred Savage, Mindy
Sterling, Michael York og Robert Wagn-
er. 94 mín. USA. New Line Cinema 2002.
GOLDMEMBER/GULLLIMURINN Hildur Loftsdóttir
LISTAHÁSKÓLI Íslands verður
settur í fjórða sinn í dag kl. 16 og hefst
með stuttri dagskrá í porti skólahúss-
ins í Skipholti 1. Auk ávarps rektors
verða flutt tónlistaratriði og veggmál-
arar láta til sín taka.
Skólinn starfar nú í fjórum deild-
um, myndlistardeild, leiklistardeild,
hönnunar- og arkitektúrdeild og tón-
listardeild, auk þess sem í boði er sér-
hæft kennaranám fyrir myndlistar-
menn, hönnuði og leiklistarfólk. Til
helstu nýjunga í skólastarfinu má
telja nám í arkitektúr innan hönnun-
ardeildar, tónlistarnám á sviði nýrra
miðla í tónlistardeild, nám á almennri
fræðabraut innan sömu deildar og út-
víkkun kennaranámsins til leiklistar-
fólks. Um 140 nemendur hefja nám á
fyrsta ári við skólann en umsóknir um
skólavist voru um 550. Alls verða um
300 nemendur í fullu námi. Auk þess
starfrækir skólinn símenntunardeild,
Opna listaháskólann, þar sem á
haustönn verða í boði rúmlega 30
námskeið fyrir almenning og fjöldi
sjálfstæðra fyrirlestra um listir og
listtengd efni.
Listaháskólinn settur
undir berum himni