Morgunblaðið - 30.08.2002, Page 23

Morgunblaðið - 30.08.2002, Page 23
MENNTUN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 2002 23 NÝJAR HAUSTVÖRUR KRÖFUR um góða þekk-ingu og færni ófaglærðsstarfsfólks á bókasöfnumhafa vaxið mikið á undan- förnum árum. Nám fyrir þennan hóp hefur þó ekki staðið til boða um langt skeið. Breyting verður á því, m.a. fyrir tilstuðlan Upplýsingar – Félags bókasafns- og upplýsingafræða og Samtaka forstöðumanna almenn- ingsbókasafna. Nám í bókasafnstækni við Borg- arholtsskóla hefst í haust. Boðið verður upp á tveggja ára nám á framhaldsskólastigi sem lýtur að menntun starfsfólks á bókasöfnum, skjalasöfnum og öðrum upplýsinga- miðstöðvum. Fólk sem vinnur á bókasöfnum á að geta stundað námið samhliða vinnu og verður fyrri menntun metin til eininga. Áætlað er að námið geti hafist af fullum krafti þegar dregur að áramótum en það fer að stórum hluta fram í fjar- kennslu. Nýjung á Íslandi Starfsemi bókasafna og annarra upplýsingamiðstöðva snýst að miklu leyti um að safna þekkingu og upp- lýsingum, skipuleggja og miðla til notenda. Bókasafnstæknar munu sennilega einkum vinna við upplýs- ingaöflun og upplýsingamiðlun í fyr- irtækjum, bókasöfnum, skjalasöfn- um og öðrum upplýsingamiðstöðvum og veita ólíkum notendahópum al- menna og sérhæfða þjónustu. Bóka- safnstæknar munu vinna með sér- fræðingum við upplýsingaleit og skráningu gagna. Einnig við al- menna umsýslu tölvubúnaðar, við- hald vefefnis og við framsetningu kynningarefnis fyrirtækja og stofn- ana. Námið flokkast undir upplýsinga- og fjölmiðlagreinar, starfsgreinar og starfssvið sem eiga það sameiginlegt að tækni breytist hratt og skilin milli greina riðlast. Í námskrá er gert ráð fyrir þriggja anna grunnnámi sem á að veita öllum nemendum almenna þekkingu og innsýn í grundvallarat- riði upplýsinga- og fjölmiðlagreina í heild. Nemendur stunda svo sérnám í eina önn í bókasafnstækni, bók- bandsiðn, fjölmiðlatækni, grafískri miðlun, ljósmyndun, prentun, net- tækni eða veftækni. Þriðja stigið er vinnustaðanám eða starfsþjálfun samkvæmt námssamningi við fyrir- tæki en fyrir þá sem þegar eru starf- andi við bókasöfn má gera ráð fyrir því að slíkri þjálfun sé þegar lokið eða að hún fari fram samhliða nám- inu. Skipulag námsins á að auka fjöl- hæfni starfsmanna og auðvelda þeim að aðlagast breytingum á vinnu- markaði jafnframt því að efla sam- vinnu milli ólíkra faghópa og starfs- stétta. Nemendur eiga svo kost á því að fá námið að fullu metið inn í fjög- urra ára nám til stúdentsprófs. Þeir geta einnig bætt við sig einu ári til að útskrifast af listnámsbraut en það veitir aðgang að listaskólum á há- skólastigi. Um er að ræða nýja námsskipan sem ekki hefur verið reynd hér á landi áður. Búist er við því að fram- haldsskólar sérhæfi sig á tilteknum sviðum og hefur verið ákveðið að kenna bókasafnstækni auk annarra greina í Borgarholtsskóla. Kristján Ari Arason, verkefnisstjóri og fags- tjóri í Borgarholtsskóla, segir að þessi nýja námskrá í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum sé löngu tímabær og hafi verið aðkallandi verkefni. „Fjölmiðlatæknin hefur breyst gríð- arlega á undanförnum áratugum og bókasafnstæknin, eða upplýsinga- tæknin, er orðin mjög mikilvægur þáttur í upplýsingasamfélaginu. Bókasöfn gegna stóru hlutverki sem upplýsingamiðstöðvar og menntunin er liður í því að gera bókasöfn að raunverulegum upplýsingamið- stöðvum. Þessi menntun mun því ekki síður nýtast þeim fyrirtækjum og stofnunum sem eru háð öruggri upplýsingamiðlun á einn eða annan hátt.“ Fjarnám og staðnám Skrifað var undir viljayfirlýsingu um framkvæmd þessa náms í júní- byrjun í sumar. Í kjölfarið verður námskráin útfærð, tilskilinna heim- ilda aflað, ásamt tækjum og gögnum, og hefst innritun í haust. Til að byrja með verður farið af stað með fag- námshluta námsins í fjarkennslu og staðbundnum lotum fyrir starfandi bókaverði. Þar sem eingöngu verður um að ræða fagnámshluta upplýs- inga- og fjölmiðlagreina gefur það nám eitt og sér ekki rétt til þess að kalla sig bókasafnstækni nema við- komandi hafi lokið bóknámshluta grunnnáms á Fjölmiðla- og upplýs- ingabraut og sem samsvarar 12 mán- aða starfsnámi. Þeir sem hafa lokið stúdentsprófi fá það metið. Um leið og kennsla er hafin í greininni má síðan ætla að fljótlega geti þeir sem lokið hafa grunnnámi í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum stundað bókasafnstækni sem sér- nám. Aðrir en starfandi bókaverðir verða að taka bókasafnstæknina í dagskóla til að byrja með en stefnt er að því að hægt verði að stunda námið í kvöldskóla og með fjarkennslu. Þeir sem hafa reynslu af starfi við bókasöfn eða aðrar upplýsingamið- stöðvar geta óskað eftir að fá þekk- ingu sína og hæfni í sérgreinum og almennum bóklegum greinum metna áður en kennsla hefst. Frekari upplýsingar um námið er hægt að nálgast í Aðalnámskrá framhaldsskóla á vefsíðu mennta- málaráðuneytisins. TENGLAR .............................................. www.bhs.is Bókasöfn og upplýsinga- tækni  Bókasafnstæknar vinna einkum við upplýsingaöflun og -miðlun.  Fjölmiðlatæknir er sérhæfður í tækniumgjörð á fjölmiðlum. Undirritun vegna náms í bókasafnstækni. F.v.: Kristján Ari verkefnastjóri, Hlynur Helgason kennslustjóri, Þór- dís T. Þórarinsdóttir, formaður Upplýsingar, Marta Hildur Richter, forstöðumaður Bókasafns Mosfellsbæjar, Ólafur Sigurðsson skólameistari og Hulda Björk Þorkelsdóttir, forstöðumaður Bókasafns Reykjanesbæjar. Borgarholtsskóli/Starfsnám í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum er nýjung sem hægt er að leggja stund á í Borgarholtsskóla; 4 annir í skóla og árs starfsþjálfun á vinnustað. Bókasafnstækni er einnig nám sem brátt verður hægt að iðka við þennan sama framhaldsskóla. Einnig má nefna veftækni, en veftæknir er fagmaður í vefmiðlun. BORGARHOLTSSKÓLI hóf haustið 2001 kennslu í upplýs- inga- og fjölmiðlagreinum, en starfsnám í þessum grein- um er nýjung á Íslandi sem byggir á göml- um merg iðn- greina prent- iðnaðarins. Námstíminn er þrjú námsár, þar af fjórar annir í skóla og tólf mánaða starfsþjálfun á vinnustað. Skólanámið skiptist í 58 eininga sameiginlegt grunnnám og tutt- ugu eininga sérnám. Með próf af upplýsinga- og fjölmiðlabraut, sem þreytt er við lok sérnáms í skóla, getur nemandi farið í starfsþjálfun hjá viðurkenndu fyrirtæki og lokið starfsnámi á sínu sérsviði eða haldið áfram skólanámi á framhaldsskólastigi, t.d. til stúdentsprófs (u.þ.b. tvö ár) eða lokaprófs í margmiðlun á list- námsbraut (u.þ.b. eitt ár). Að lok- inni starfsþjálfun gangast nem- endur í löggiltum iðngreinum undir sveinspróf í viðkomandi iðn eða fagpróf. Menntamálaráðu- neytið hefur gefið út námskrá í upplýsinga- og fjölmiðlatækni, sbr. námskrárvef menntamála- ráðuneytis. Kristján Ari Arason (krisara- @ismennt.is) kennari er verkefn- isstjóri þessa og samkvæmt upp- lýsingum frá honum verður til að byrja með stefnt að því að tvö sér- svið verði kennd í Borgarholts- skóla; fjölmiðlatækni og veftækni. Í fjölmiðlatækni er lögð áhersla á margmiðlun, textaframsetningu og tæknilega úrvinnslu fjölmiðla- efnis. Í veftækni er hins vegar lögð áhersla á heildræna hönnun fyrir Netið og vinnu við þróun og við- hald vefja. Þrjátíu og fimm nem- endur alls hófu nám á brautinni nú í haust og gert er ráð fyrir að nemendahópurinn verði um sjötíu næsta haust. Fjölmiðlatækni Fjölmiðlatæknir er fagmaður á sviði fjölmiðlatækni. Hann vinnur meðal annars á framleiðslu- deildum ljósvakamiðla, dag- skrárdeildum, dagblöðum, tíma- ritum, ritstjórnum, fréttastofum, auglýsingastofum, upplýs- ingadeildum fyrirtækja, net- miðlum og víðar þar sem þörf er á sérhæfðri þekkingu á tæknium- gjörð við fjölmiðlun. Fjölmiðla- tæknir vinnur með sérfræðingum á fjölmiðlum, sér um uppsetningu og frágang á tækjum og vinnur við frágang og úrvinnslu efnis fyrir birtingu og við útsendingu. Hann getur unnið þverfaglega með blaðamönnum, fréttamönn- um, dagskrárgerðarfólki, dag- skrárgerðarframleiðendum (pródúsentum), tökumönnum, tæknistjórum, klippurum, al- mannatenglum, auglýsingateikn- urum, grafískum hönnuðum, vef- smiðum og öðrum fagmönnum á sviði fjölmiðlunar og upplýsinga- tækni. Veftækni Veftæknir er fagmaður á sviði vefmiðlunar. Hann getur unnið þjónustustörf innan fyrirtækja og stofnana sem snúa að vefnum og vefmiðlun. Hann sér um skipulag vefja og þjónustu þeirra. Hjá stærri fyrirtækjum er vef- tæknir innanbúðarsérfræðingur á sviði vefmiðlunar, hann skipu- leggur vinnu með sérfræðingum við að meta þörf á vefmiðlun fyrir fyrirtækið, hann kemur til með að eiga þátt í stefnumótun og áætl- anagerð og hann á þátt í að skipu- leggja flóknari forritunarvinnu við stærri vefi fyrir hönd sinna fyrirtækja. Hann vinnur að skipu- lagi smærri vefja og hann getur hannað útlit þeirra og virkni. Hann mun einnig sjá um daglegt viðhald vefjanna, vinna efni fyrir þá, vista efnið á vefnum og kynna vefinn og efni hans á Netinu. Listnámsbraut Í Borgarholtsskóla hefur list- námsbraut einnig verið starfrækt nú um tveggja ára skeið á sviði margmiðlunar. Námið á brautinni er á sama sviði og á hinum nýju brautum þótt áherslur séu aðrar: Upplýsinga- og fjölmiðlabrautin er starfsmiðuð en í margmiðl- unarhönnun er lögð áhersla á undirbúning fyrir frekara nám í háskóla eða listaháskóla á þessu sviði. Upplýsinga- og fjölmiðlatækni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.