Morgunblaðið - 30.08.2002, Side 39
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 2002 39
OPNA heimsmeistaramótinu í
brids lýkur í Montreal í Kanada um
helgina með úrslitum í tvímenningi,
bæði í kvenna- og opnum flokki.
Lokið er keppni í helstu flokkum
sveitakeppni og þar bar helst til tíð-
inda frá íslenskum sjónarhóli, að
Hjördís Eyþórsdóttir spilaði til úr-
slita um McConnell-bikarinn í
sveitakeppni kvenna ásamt banda-
rískum sveitarfélögum.
Sveit Hjördísar tapaði leiknum
fyrir annarri bandarískri sveit en í
báðum þessum sveitum spiluðu
sterkustu spilakonur Bandaríkj-
anna. Í sigursveitinni spiluðu Kerri
Sanborn, Jill Meyers, Randi Montin,
Irina Levitina, Lynn Deas og Beth
Palmer en í sveit með Hjördísi
spiluðu Judi Radin, Shawn Quinn,
Mildred Breed, Rozanne Pollack og
Valerie Westheimer. Allar hafa
þessar konur, nema Hjördís, spilað í
bandarískum landsliðum og flestar
unnið heimsmeistaratitla í brids.
Hjördís spilaði hins vegar í íslenska
landsliðinu áður en hún flutti til
Bandaríkjanna þar sem hún er nú
atvinnuspilari.
Þá urðu spilarar, sem með réttu
má kalla Íslandsvini, heimsmeistar-
ar í öldungaflokki, 50 ára og eldri, í
vikunni. Þetta voru Kanadamenn-
irnir George Mittelman og Boris
Baran, sem báðir hafa oft spilað hér
á landi á Bridshátíð. Mittelman hef-
ur áður unnið heimsmeistaratitil en
fyrir réttum 20 árum varð hann
fyrsti heimsmeistarinn í parakeppni.
Með Mittelman og Baran spiluðu
Diana Holt, Ed Schulte og Joe
Godefrin. Sveitin spilaði til úrslita
við bandaríska sveit, skipaða Chris
Larsen, Joe Kivel, Gene Freed, Nels
Erikson, Lew Finkel og Bernie Mill-
er.
Öruggur sigur Ítala
Þá vann ítalska sveitin Lavazza
Rosenblum-bikarinn í sveitakeppni
þegar hún lagði sveit frá Indónesíu í
úrslitaleik á miðvikudag. Ítalska
sveitin hafði yfirburði í úrslitaleikn-
um og vann með 160 stigum gegn 70.
Í ítölsku sveitinni spiluðu Giorgio
Duboin, Norberto Bocchi, Lorenzo
Lauria, Maria Teresa Lavazza, Alf-
redo Versace og Guido Ferraro. Ítal-
ir eru núverandi ólympíumeistarar
og Evrópumeistarar í sveitakeppni
og virðast þessir spilarar vera verð-
ugir arftakar Bláu sveitarinnar
margfrægu. Í sveit Indónesíu
spiluðu Eddie Manoppo, Henky La-
sut, Frankie Karwur, Denny Sacul,
Taufik Asbi og Robert Parasian
Tobing.
Úrslitaleikurinn um Rosenblum-
bikarinn var ekki sérlega vel spilað-
ur en það var í raun aldrei vafi á
hvorum megin sigurinn myndi
lenda. Ítalirnir virtust á stundum
geta töfrað stig úr nánast engu, til
dæmis í þessu spili.
Suður gefur, NS á hættu.
Norður
♠ D8654
♥ G86
♦ 85
♣G107
Vestur Austur
♠ KG ♠ 10932
♥ Á7543 ♥ 10
♦ ÁD6 ♦ G97432
♣K82 ♣53
Suður
♠ Á7
♥ KD92
♦ K10
♣ÁD964
Þegar litið er á öll spilin sést að
AV geta unnið 5 tígla. En niðurstað-
an varð sú við bæði borð að suður
varð sagnhafi í bút. Við annað borðið
spilaði Alfredo Versace 1 grand eftir
að vestur sýndi sterk spil með
hjartalit en eftir hjartaútspil frá
vestri fékk Versace 9 slagi, 150 til
Ítalíu.
Við hitt borðið opnaði Franky
Karwur á sterku laufi og sýndi síðan
16-18 punkta og jafnskipta hönd.
Norður yfirfærði í 2 spaða sem varð
lokasamningurinn.
Bocchi í vestur hafði skotið inn 1
hjarta í sögnum og hann spilaði út
hjartaás og síðan hjartasjöu sem
Duboin í austur trompaði. Hann
hlýddi síðan hliðarkallinu með því að
skipta í tígulníu og kallaði þar með í
hjarta. Suður stakk upp kóng og
Bocchi drap með ás og spilaði nú
hjartafimmu sem austur trompaði.
Duboin spilaði meiri tígli á drottn-
ingu vesturs sem spilaði enn hjarta.
Sagnhafi henti laufi í borði og Dubo-
in trompaði með níunni.
Hann skipti nú í lauf, sagnhafi lét
lítið og kóngur vesturs átti slaginn.
Enn spilaði Bocchi hjarta, sagnhafi
henti enn laufi í borði og einnig
heima þegar Duboin trompaði með
tíunni. Vörnin hafði nú fengið fyrstu
átta slagina, þar af austur helming-
inn á tromp, og vestur átti einn slag
vísan á spaðakóng. 4 niður, 400 til
Ítalíu og 11 impar.
Ítalskir Pólverjar
Í undanúrslitum í opnum flokki
unnu Ítalarnir sænska sveit undir
stjórn Peters Fredins, og Indónesar
unnu pólska sveit undir stjórn Ítal-
ans Leandros Burgays. Sveitarfé-
lagar hans í Montreal voru ekki af
verri endanum: pólsku landsliðs-
mennirnir Adam Zmudzinski, Cec-
ary Balicki, Michel Kwecien og Jac-
ec Pszczola.
Í þessu spili, sem kom upp í byrj-
un undanúrslitanna, ákvað Balicki
að kanna taugastyrk andstæðinga
sinna:
Vestur gefur, NS á hættu.
Norður
♠ Á873
♥ 8732
♦ G42
♣62
Vestur Austur
♠ D10964 ♠ KG2
♥ Á1054 ♥ KDG
♦ K ♦ D97652
♣1083 ♣G
Suður
♠ 5
♥ 96
♦ Á108
♣ÁKD9754
Við bæði borð opnaði austur á 1
tígli eftir pöss frá vestri og norðri.
Án efa myndu margir keppnisspil-
arar einfaldlega stökkva í 3 grönd
með suðurspilin og eins og sést
vinnst sá samningur auðveldlega.
En í leiknum ákváðu suðurspilararn-
ir að fara sér hægt og sagnir gengu
lengi vel eins við bæði borð:
Vestur Norður Austur Suður
Pass Pass 1 tígull 2 lauf
dobl pass 2 tíglar 2 grönd
pass 3 grönd
Nú skildu leiðir. Við annað borðið
passaði Eddy Manoppo með austur-
spilin, allir aðrir sögðu pass og
Pszczola í suður tók 9 slagi.
En við hitt borðið hafði Franky
Karwur tekið sér góðan tíma áður en
hann lyfti í 3 grönd og Balicki ákvað
að dobla þá sögn með austurspilin.
Nú var spurning hvort Karwur væri
maður eða mús. Á endanum herti
hann upp hugann, vonaði að ásinn
hans dygði og passaði, Danny Sacul
fékk sömu 9 slagina og við hitt borð-
in en græddi 4 impa.
Í leik um þriðja sætið á mótinu
unnu Pólverjarnir síðan Svía.
Ítalir unnu Rosenblum-bikarinn á opna heimsmeistaramótinu í brids í Montreal
Hjördís spilaði
til úrslita á HM í
kvennaflokki
Guðm. Sv. Hermannsson
Heimsmeistarar Ítala fagna sigri á Indónesum.
BRIDS
Montreal
OPNA HEIMSMEISTARAMÓTIÐ Í BRIDS
Haldið dagana 16.–31. ágúst.
GÓÐ veiði hefur verið í Flekkudalsá
á Skarðsströnd í sumar og er síðasta
holl lauk veiðum voru komnir 189
laxar á land og er áin komin vel yfir
veiðitölu síðasta sumars. Síðasta
holl, sem að mestu var skipað veiði-
mönnum sem þekktu ána lítið, veiddi
13 laxa, sem er tveggja daga veiði á
þrjár stangir. Hollið á undan var
með 17 laxa.
Martin Bell, kvikmyndatökumað-
ur frá New York, var í ánni með
nokkrum íslenskum vinum sínum í
síðasta holli og hann veiddi sína
fyrstu laxa, náði þremur löxum síð-
asta morguninn, þar af einum 11,5
punda sem er stærsti laxinn úr ánni í
sumar. Stórlaxinn tók Snældu ofan í
kok í hávaðaroki og hryssingi. Áður
voru komnir nokkrir 10 punda.
Menn hafa þó séð nokkra laxa sem
eru klárlega stærri, en þeir hafa
ekki tekið.
Laxá bætir sig tæplega
Þokkalega gengur í Laxá í Dölum,
en að sögn Gylfa Ingasonar kokks í
veiðihúsinu þarf áin að gefa að jafn-
aði 10 laxa á dag það sem eftir lifir
veiðitímans til að ná 900 löxunum
sem veiddust í fyrra. Að sögn Gylfa í
gærdag voru þá komnir 613 laxar á
land og holl að fara úr ánni með að-
eins 20 laxa. Næsta holl á undan var
með tæpa 40, þar á undan var holl
með 97 laxa, en hollið þar á undan
var ormahollið og má heita að það
hafi beðið skipbrot því aðeins 43 lax-
ar veiddust þá að sögn Gylfa. Sagði
Gylfi að karlarnir í maðkahollinu
hefðu hreppt slæm skilyrði, þurrka
og vatnsleysi.
Hörkuvertíð í Veiðivötnum
Veiði er lokið í Veiðivötnum á
Landmannaafrétti og var vertíðin
afar gjöful. Reyndar er enn veitt, því
netamenn veiða eitthvað fram í sept-
ember og fer einhver stangaveiði
fram samhliða. Það er veiði sam-
kvæmt hefðbundinni veiðileyfasölu
sem er lokið og veiddust samkvæmt
Veiðivatnavef Arnar Óskarssonar
11.889 silungar, 10.494 urriðar og
1.395 bleikjur. Til samanburðar
veiddust árið 2000 12.788 fiskar, en
metið var 1977 er 18.885 fiskar voru
dregnir á þurrt. Það ár var þó sér-
stakt að því leyti að rúmlega 80%
aflans voru smáurriðar veiddir í
Stóra Fossvatni. Veiðin bæði í ár og
síðustu sumur byggist hins vegar á
miklum mun meira af vænni fiski og
mun meðalþyngd aflans vera nærri
2 pundum. 11,6 punda urriði veidd-
ist í Hraunvötnum og 10 punda urr-
iði kom úr Litlasjó. 8 punda urriðar
veiddust og í Litla Breiðavatni,
Pyttlum, Grænavatni og Ónefnda-
vatni. Langmest var veiðin í Litlasjó,
eða 4.721 fiskur. Næst var Skyggnis-
vatn með 1.308 fiska, en þar af voru
747 bleikjur. Samkvæmt töflu Arnar
er aðeins eitt vatn í klasanum hreint
bleikjuvatn, Tjaldvatn, en þar veidd-
ust 103 bleikjur og enginn urriði.
Morgunblaðið/Einar Falur
Martin Bell, kvikmyndagerðar-
maður frá New York, með ellefu
og hálfs punds hrygnu sem tók
Snældutúpu í Jónsbakkahyl
Flekkudalsár.
Líflegt í
Flekkunni
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
HAUSTNÁMSKRÁ Endurmennt-
unar HÍ er komin út og er verið að
bera hana í hús til 33.000 viðtakenda
um allt land. Hátt í þrjú hundruð
námskeið eru í boði á meira en þrjá-
tíu fræðasviðum, enda er námskráin
afrakstur af fjölþættu samstarfi við
fagfélög, fyrirtæki, menningarstofn-
anir, frjáls félagasamtök, kennara
og viðskiptavini. Félag viðskipta- og
hagfræðinga hefur nú bæst í hóp
þeirra stéttarfélaga sem standa að
Endurmenntun HÍ en sex fagfélög
háskólafólks eiga nú fulltrúa í stjórn
stofnunarinnar.
Í fréttatilkynningu segir: „Vegna
fjölþættra tengsla við atvinnulífið
liggur mikið þróunarstarf á bak við
hverja námskrá og er hún óvenju
fjölbreytt að þessu sinni. Hæst ber
nýjar námsbrautir sem stunda má
samhliða starfi, s.s. nám í sálgæslu,
sem boðið er upp á í samstarfi við
guðfræðideild HÍ, og heildstætt
nám í verkefnastjórnun. Þá stendur
hjúkrunarfræðingum nú til boða að
ljúka endurmenntunarnámskeiðum
sem meta má til eininga í meist-
aranámi og MBA-nám er að fara af
stað í annað sinn í samstarfi við við-
skipta- og hagfræðideild HÍ og hefja
48 nemendur nám að þessu sinni.
Kvöldnámskeið Endurmenntunar
fyrir almenning njóta alltaf jafnmik-
illa vinsælda og eru óvenjumörg
námskeið í boði að þessu sinni eða á
þriðja tuginn. Jón Böðvarsson tekur
á haustmánuðum fyrir Brennu-
Njáls sögu og einnig Þingeyingasög-
ur og Magnús Jónsson verður með
framhaldsnámskeið í Sturlungu. Af
öðrum viðfangsefnum á menningar-
sviði má nefna lifandi námskeið um
óperuna Rakarann í Sevilla eftir
Rossini, sem sett verður upp í Ís-
lensku óperunni á haustmánuðum,
námskeið og vettvangsferð til Þing-
valla þar sem Páll Hersteinsson pró-
fessor og Sigurður S. Snorrason,
dósent við HÍ, fjalla um einstæða
náttúru og sögu þessa svæðis og
Magnús T. Bernharðsson, dr. í sögu
Mið-Austurlanda, ætlar á fjögurra
kvölda námskeiði að fræða fólk um
sögu og menningu palestínsku þjóð-
arinnar. Hann fær til liðs við sig tvo
aðra sérfræðinga frá Hofstra-há-
skólanum í Bandaríkjunum. Þeir
sem huga á ferð til Kúbu eiga líka
kost á undirbúningi á skemmtilegu
námskeiði þar sem ýmsir sérfræð-
ingar í menningarsögu Kúbverja
fjalla um tónlist, bókmenntir og
danshefðir eyjaskeggja.
Þá er mikið úrval af sérhæfðari
fræðslu fyrir fagfólk, s.s. skemmri
námskeið fyrir lögfræðinga, verk-
fræðinga og fólk í fjármála- og hug-
búnaðargeiranum. Einnig er fjöl-
breytt framboð af námskeiðum fyrir
fólk í heilbrigðis- og félagsþjónustu
og í uppeldisstörfum. Tekið hefur
verið upp samstarf við IMG til að
auka fræðsluframboð fyrir stjórn-
endur og er hátt á fjórða tug slíkra
stjórnunarnámskeiða í boði.
Skólaárið hjá Endurmenntun HÍ
hefst nú fyrr en áður og er vakin at-
hygli á að fjölmörg starfstengd
námskeið eru haldin strax í sept-
ember.“
Námskrá Endurmenntunar er
komin á Netið, www.endurmenntun-
.is, og þar er hægt að skrá sig.
Haustnámskrá Endur-
menntunar HÍ er komin út
Nýtt nám með
starfi, meistara-
nám og fjölmörg
skemmri nám-
skeið
FYRSTA Bláa lóns hlaupið fer fram
laugardaginn 31. ágúst. Boðið verður
upp á 6 og 12 km hlaup.
Bláa lóns hlaupið er samvinnuverk-
efni Bláa lónsins og Grindavíkurbæj-
ar og er haldið í tilefni opnunar nýs
vegar milli Grindavíkur og Bláa lóns-
ins. Aðrir styrktaraðilar hlaupsins
eru: Flugleiðir, Sparisjóður Keflavík-
ur, Þingvallaleið og Vífilfell.
Skráning hefst kl. 11:00 á bað-
staðnum við Bláa lónið. Að skráningu
lokinni verður þátttakendum ekið
með Þingvallaleið til Grindavíkur þar
sem hlaupið hefst kl. 13:00. Hlaupið
endar á baðstaðnum við Bláa lónið
þar sem öllum þátttakendum verður
boðið í lónið. Allir þátttakendur fá
verðlaunapening og boli. Þátttakend-
ur fá einnig Powerade í boði Vífilfells,
segir í fréttatilkynningu.
Keppt verður í 6 og 12 km vega-
lengdum í karla- og kvennaflokki og
verða verðlaun veitt fyrir fyrsta, ann-
að og þriðja sæti. Aðalverðlaun í
hlaupinu eru útdráttarverðlaun sem
eru ferð fyrir tvo að eigin vali til ein-
hvers áfangastaðar Flugleiða í Evr-
ópu.
Þátttökugjald er kr. 1.000 fyrir full-
orðna og kr. 500 fyrir börn. Nánari
upplýsingar eru veittar í síma 420 880
og á netfanginu lagoon@bluelagon.is.
Bláa lóns hlaupið á laugardag