Morgunblaðið - 30.08.2002, Síða 42
DAGBÓK
42 FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Thule
kemur og fer í dag.
Taiko Maru no. 7, Kur-
oshio Maru no. 11 og
Agpa koma í dag. Mána-
foss, Bjarni Sæmunds-
son og Carr fara í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Bingó í
dag kl. 14. Vetrarstarfið
er að hefjast eftir sum-
arfrí. Vinnustofa byrjar
mánud. 2. sept. Skrán-
ing er hafin í eftirtalin
námskeið: leikfimi,
myndmennt, leirkera-
smíði, postulín og ensku.
Ef næg þátttaka fæst
verður jóga á þriðju- og
fimmtud. kl. 9, skráning
í afgreiðslu. Boccia á
mánu- og fimmtud. kl.
10. Verslunarferðir
verða fyrsta miðvikud.
hvers mánaðar, næsta
ferð verður miðvikud. 4.
sept. kl. 10. Bún-
aðarbankinn kemur í
miðstöðina tvisvar í
mánuði, næst þriðjud. 3.
sept. kl. 10.15. Söng-
stund við píanóið. Sung-
ið verður á þriðjud. kl.
14 og hefst þriðjud. 10.
sept., skráning í af-
greiðslu. Skráning í af-
greiðslu og s. 562 2571.
Árskógar 4. Púttvöll-
urinn er opinn kl. 10–16
alla daga.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
16 hárgreiðsla, kl. 8.30–
12.30 böðun, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 13–16
frjálst að spila í sal.
Verslunarferð annan
hvern föstudag kl. 10–
11.30. Vetrastarfið hefst
mánud. 2. sept. Uppl. í s.
568 5052.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 9–14 baðþjón-
usta, hárgreiðslustofan
opin kl. 9–17 alla daga
nema mánudaga.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 10
hársnyrting, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 13.
„Opið hús“, spilað á spil.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Brids og
frjáls spilamenska kl.
13.30, pútt á Hrafn-
istuvelli kl. 14–16. Á
morgun morgungangan
kl. 10 frá Hraunseli.
Rúta frá Firðinum kl
9.50. Olofsferð að Höfða-
brekku 10.–13. sept.,
sækja þarf farseðlana í
Hraunseli í dag kl. 13–
16.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Sunnud.:
Dansleikur kl. 20.
Þriðjud.: Skák hefst að
nýju kl. 13. Opið hús hjá
Félagi eldri borgara 7.
sept. kl. 14–16 í Ásgarði.
Kynning á starfi og
markmiði félagsins.
Réttarferð í Þverárrétt
15. september. Brottför
frá Ásgarði kl. 12.
Skráning á skrifstofu
FEB. Skrifstofa félags-
ins er flutt að Faxafeni
12, s. 588 2111. Fé-
lagsstarfið er áfram í
Ásgarði Glæsibæ.
Félagsstarfið Furugerði
1. Í dag kl. 9 aðstoð við
böðun, kl. 14, kynning á
vetrardagskrá í salnum.
Allir velkomnir. Minnt
er á að vetrardagskrá
byrjar 2. sept. Þann dag
byrjar bókbandið. Leik-
fimin verður á miðvikud.
kl. 13 og á föstud. kl. 10.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
opin vinnustofa, m.a.
myndlist og rósamálun á
tré, kl. 9–17 hárgreiðsla,
kl. 9.30 gönguhópur, kl.
14 brids.
Gerðuberg, kl. 9–16.30
vinnustofur opnar, m.a
bútasaumur og fjöl-
breytt föndur, kl. 10
boccia, frá hádegi spila-
salur opinn, myndlist-
arsýning Huga Jóhann-
essonar stendur yfir,
opið laugar- og sunnu-
dag frá 13–16.30.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan opin
kl. 9.30–16. Leikfimi
hefst þriðjud. 3. sept.,
tveir hópar, annar kl.
9.05 og hinn kl. 9.55.
Miðvikud. 4. sept. kl. 14–
17 verður kynning og
skráning á væntanlegri
starfsemi í Gullsmára, í
vetur. Félag eldri borg-
ara í Kópavogi kynnir
fyrirhugaða starfsemi
sína. Frístundahópurinn
Hana-nú kynnir sína
starfsemi, t.d. bridshóp-
inn, veflistahópinn, jóga,
leirlistahópinn, sönghóp-
inn Gleðigjafana, pútt-
hópinn, glerlistahópinn,
einnig verður kynning
og sýning á hlutum og
munum sem unnið er
með á hinum ýmsu nám-
skeiðum.
Gullsmári, Gullsmára
13. Opið alla virka daga
kl. 9–17.
Hraunbær 105. Kl. 9–12
baðþjónusta, kl. 9–12.30
bútasaumur, kl. 9–17
hárgreiðsla, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 13–14
pútt.
Hvassaleiti 56–58. .
Fótaaðgerð, hársnyrt-
ing. Allir velkomnir.
Norðurbrún 1. Kl. 9–13
tréskurður, kl. 9–17,
hárgreiðsla kl. 10–11
boccia. Leirnámskeið
hefst 5. september,
skráning hjá Birnu í s.
568 6960.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15 handa-
vinna, kl. 14.30–16 dans-
að, kl.15 sýna nemendur
Sigvalda dans, vöfflur
með rjóma í kaffitím-
anum. Miðvikud. 18.
sept. kl. 13–16 byrjar
fyrsti tréskurðartími
vetrarins, skráning haf-
in. Tvímenningur í brids
verður á þriðjud. í vetur
frá kl. 13–16.30. Stjórn-
endur Bjarni Guð-
mundsson og Guð-
mundur Pálsson (einnig
verður frjáls spila-
mennska). Skráning í
síma 562 7077. Allir vel-
komnir.
Vitatorg. Kl. 9.30 bók-
band og morgunstund,
kl. 13.30 bingó.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Mánud. 2. sept.
byrjar félagsstarfið á
Hlaðhömrum kl. 13 og
verður í vetur á mánu-
og fimmtudögum í lok
starfs á mánud. verður
leikfimi kl. 16–16.30
Jógatímar verða tilk.
síðar. Bókbands-
námskeið byrjar laug-
ard. 7. sept. og verður á
laugard. kl. 10–12. Tré-
skurðarnámskeið byrjar
fimmtud. 5. sept. kl. 13.
Námskeið í postulíns-
málun byrjar 18. nóv. –
9. des. Bókavörður frá
Bókasafninu í Mos.
mætir á fimmtud. kl. 14
með bækur til útláns,
boðið verður uppá bóka-
spjall frá kl. 15–16 sama
dag. Línudans, tveggja
mán. námskeið byrjar
laugard. 5. okt. kl. 11.
Kór eldri borgara, Vor-
boðar, verður með kór-
æfingar á fimmtud. í
Damos kl. 17–19, fyrsta
æfing 5. sept. Nýir fé-
lagar velkomnir í kórinn.
Hægt er að panta hand-
og fótsnyrtingu á
Hlaðhömrum og einnig
hársnyrtingu.
Tekið á móti pöntunum í
síma 566 8060. Skrán-
ingar hjá Svanhildi í s.
586 8014 e.h. og 525 6714
f.h.
Bridsdeild FEBK Gjá-
bakka. Brids kl. 13.15 í
dag.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan
verður á morgun. Lagt
af stað frá Gjábakka,
Fannborg 8, kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára
13, kl. 10 á laug-
ardögum.
Ungt fólk með ungana
sína. Hitt húsið býður
ungum foreldrum (ca.
16–25 ára) að mæta með
börnin sín á laugard. kl.
15–17 á Geysi, Kakóbar,
Aðalstræti 2 (gengið inn
Vesturgötumegin). Opið
hús og kaffi á könnunni,
djús, leikföng og dýnur
fyrir börnin.
Tómstundastarf eldri
borgara í Reykjanesbæ
byrjar vetrarstarfið 1.
sept. Allir fastir liðir
eins og síðasta vetur
(stundaskrár liggja
frammi í Félagsmið-
stöðvunum Hvammi og
Selinu), nema leikfimin
sem verður á mánud. kl
10 og á fimmtud. kl.
11.15 í íþróttahúsinu við
Sunnubraut. Boðið verð-
ur upp á eftirtalin nám-
skeið ef næg þátttaka
fæst. Útsaumsnámskeið,
myndmennt (vatnslita-
málun), útskurð-
arnámskeið, tölvu-
námskeið, spænsku-
námskeið. Skráning í
síma 861 2085, Jóhanna.
Háteigskirkja, eldri
borgarar. Púttvöllurinn
opinn frá kl. 9–17.
Kvenfélagið Fjallkon-
urnar, farið verður í
ferðalagið laugardaginn
31. ágúst. Mæting
stundvíslega kl. 9 við
Fellaskóla.
Í dag er föstudagur 30. ágúst, 242.
dagur ársins 2002. Orð dagsins:
Vakið, standið stöðugir í trúnni,
verið karlmannlegir og styrkir.
Allt sé hjá yður í kærleika gjört.
(Kor. 16, 13–14.)
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 er leyft, 8 svæfill, 9
starfið, 10 gerist oft, 11
silungur, 13 koma í veg
fyrir, 15 gaffals, 18 vinn-
ingur, 21 glöð, 22 velta,
23 þátttaka, 24 íslenskur
foss.
LÓÐRÉTT:
2 bál, 3 digra, 4 sorg-
mædda, 5 steinar, 6 ryk, 7
elska, 12 kvendýr, 14
feyskja, 15 gamall, 16
suða, 17 fiskur, 18 vinna,
19 spjóts, 20 málrómur.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 skuld, 4 þokki, 7 játar, 8 örðum, 9 tóm, 11 lend,
13 álar, 14 úrill, 15 fann, 17 lost, 20 snæ, 22 gisin, 23 tem-
ur, 24 raust, 25 aðrar.
Lóðrétt: 1 skjal, 2 urtan, 3 durt, 4 þröm, 5 kaðal, 6 ilmur,
10 Óðinn, 12 dún, 13 áll, 15 fagur, 16 nísku, 18 ormur, 19
tærar, 20 snót, 21 ætla.
Á ÖRORKUSKÍRTEINI
mínu stendur að ég sé 75%
öryrki ævilangt, en þegar
ég náði 67 ára aldri var ég
látin á ellilífeyri og missti
örorkubæturnar sem voru
aðeins hærri. Stoðkerfis-
bilanir mínar sem valda ör-
orkunni bötnuðu ekki þeg-
ar ég varð 67 ára. Mig
langar að spyrjast fyrir um
rétt minn í þessu máli.
Þetta getur varla verið lög-
um samkvæmt þar sem ég
hef skírteini upp á það að
vera öryrki ævilangt. Ég
myndi vilja að löglærður
maður fræddi mig um rétt
minn og annarra, en ég
veit um marga sem eins er
komið fyrir.
María.
Sammála
um brjóstagjafir
KONA skrifaði um
brjóstagjafir í Velvakanda
fyrri hluta ágúst. Við erum
innilega sammála þessari
konu. Starfsfólk á fæðing-
ardeildum leggur ofur-
áherslu á að börn séu höfð
á brjósti. Þetta er meira en
góðu hófi gegnir og getur
valdið konum skaða. Það
eru ekki allar konur færar
um að gefa brjóst og það á
ekki að ganga svo hart að
þeim í þessum efnum.
Starfsfólkið á fæðingar-
deildinni er vinsamlegast
beðið að hugsa sinn gang.
Sjómenn.
Ef einhverju er stolið
ÞAÐ FÆRIST í vöxt að
brotist er inn á heimili
fólks. Ég varð sjálf fyrir
þessu og bendi þeim sem
einnig hafa orðið eða munu
verða fyrir þessari ógæfu
að gera eins og ég og fylgj-
ast vel með fornmuna-
verslunum og listaverka-
uppboðum. Ég fór á
stúfana og fann muni úr
innbúi mínu til sölu. Ég
ráðlegg fólki einnig að
merkja hlutina sína, t.d.
aftan á strigann á málverk-
um eða á vissri blaðsíðu í
bókum sínum. Ef þjófun-
um er gert erfiðara fyrir að
selja munina vinnum við
sigur gegn afbrotum.
Lesandi.
Misbrestur
á menningarnótt
ÉG SÓTTI sýningu í
Listasafni Reykjavíkur á
menningarnótt. Í sýning-
arherbergjunum voru eng-
ir eftirlitsmenn heldur að-
eins vörður við innganginn.
Þarna fór einnig fram sala
á veitingum og gekk fólk
um með bjórglös innan um
viðkvæm verk. Ég vil biðja
aðstandendur listasafna að
setja næsta ár vaktfólk í
hvern sal, og tel hyggilegt
að fylgja fordæmi safna er-
lendis þar sem óheimilt er
að fara með veitingar inn í
sýningarsali.
Kona í vesturbænum.
Þekkirðu
börnin?
ÁTEKIN filma fannst í
Arnarstapa og var meðal
annars þessi mynd á film-
unni. Sá sem á myndirnar
má vitja þeirra í móttöku
Morgunblaðsins.
Góðir þættir
MÉR þóttu þættirnir
Hvernig sem viðrar alveg
frábærir. Mér þótti mjög
gaman að horfa á þættina
og sérlega áhugavert að
fylgjast með ferð krakk-
anna um landið.
Agatha.
Tapað/fundið
Týndur sími
SÍMI týndist fyrir röskri
viku, á leið milli Borgar-
spítala að Valsheimilinu.
Síminn er af Nokia gerð,
3310 og í grænni kápu með
mynd af Brútusi, óvini
Stjána bláa. Finnandi
hringi í síma 588 8155.
Dýrahald
Kisur vantar
nýtt heimili
VEGNA flutnings úr landi
vantar 2 kisur nýtt heimili.
Önnur er högni, geltur,
svartur að lit, mjög gæfur
og hin er 16 ára gömul
læða, mislit, lífleg og
skemmtileg. Kisurnar
þurfa ekki að fara á sama
heimili. Þeir sem hefðu
áhuga á að fóstra þessar
kisur vinsamlega hafi sam-
band við Höskuld í síma
692 7903 eða 691 3680.
Evítu vantar
heimili
EVÍTA er þriggja ára kisa,
svört með hvítan blett á
bringu. Hún er þrifin og
hvers manns hugljúfi.
Uppl. í síma 565 5935 og
691 1826.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Óréttlæti
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI veltir því stundumfyrir sér hvort að í nokkru öðru
landi séu jafnlíflegar umræður um
grænmeti og kjúklinga á jafnein-
kennilegum forsendum og á Íslandi.
Líklega hvergi. Hvar annars staðar
en á Íslandi hefur tekist að gera
kjúklinga að munaðarvöru sem oft er
skortur á? Hvar annars staðar er
skortur á algengum grænmetisteg-
undum um hásumar? Ekkert ríki
kemur upp í hugann.
Vissulega verður stundum upp-
skerubrestur og einnig má finna
dæmi um það í gegnum söguna að
með pólitískum aðgerðum hafi tekist
að leggja frjósöm landbúnaðarhéruð
í eyði. Þannig tókst bolsévikkum að
koma á fæðuskorti í Úkraínu og
Rússlandi, sem áður höfðu verið
helstu matarforðabúr Evrópu.
Það er hins vegar engin ástæða til
þess að í ríki sem lítur á sig sem eitt
helsta velmegunarríki veraldar skuli
ekki vera hægt að ganga að algeng-
ustu tegundum grænmetis vísum.
Víkverji lendir hins vegar í því aftur
og aftur að ferðin í grænmetisborðið
er fýluferð. Stundum er það vegna
þess að gæði grænmetisins eru slík
að það er ekki mönnum bjóðandi.
Það lítur illa út og er í sumum til-
vikum komið langt fram yfir æski-
legan sölutíma. Oftar en ekki grunar
Víkverja að þetta grænmeti hafi
aldrei verið upp á marga fiska og
flutt sé inn grænmeti sem í öðrum
ríkjum myndi líklega flokkast undir
svínafóður. Að minnsta kosti myndi
enginn neytandi í Evrópu láta bjóða
sér vöru af þessu tagi.
Stundum fer Víkverji hins vegar
fýluferð vegna þess að það sem hann
vantar er hreinlega ekki til. Hugs-
anlega er þetta vegna þess að neysla
Víkverja og fjölskyldu hans byggist
á fleiri tegundum en þeim örfáu teg-
undum sem grænmetisúrvalið bygg-
ist á, þ.e. kartöflum, papriku, agúrk-
um, gulrótum, brokkólí, káli, kínakáli
og rófum. Að þessum tegundum er
hægt að ganga vísum í flestum versl-
unum árið um kring þótt gæðin séu
oft sorgleg þegar líður fram á vetur.
Hvað margar aðrar tegundir
grænmetis varðar (ekki síst ef þær
eru fluttar inn) virðist það vera eins
konar happdrætti hvort þær eru til
eða ekki. Salat er stundum til og
stundum ekki, stundum ferskt og
stundum ekki. Þegar leitað var að
kúrbít í nokkrum stórmörkuðum í
byrjun þessarar viku reyndist hann
ekki vera til nema í einni verslun sem
heimsótt var og þar var hann svo
gamall og linur að helmingur vör-
unnar endaði í ruslafötunni.
Víkverji er sannfærður um að
hann sé ekki eini Íslendingurinn sem
sættir sig við að geta gengið að fáu
öðru en kartöflum og rófum vísum.
Það er ótrúlegt að árið 2002 skuli
neytendum vera boðið upp þetta
hræðilega úrval. Að ekki sé nú
minnst á verðlag.
x x x
SEM betur fer stóð þó ekki til aðelda kjúkling með kúrbítnum,
þá hefði Víkverji lent í enn meiri
vandræðum. Kjúklingur er alls stað-
ar þar sem Víkverji þekkir til ein-
hver ódýrasta fæða sem völ er á.
Þegar hann var fátækur námsmaður
á meginlandi Evrópu fyrir mörgum
árum síðan voru kjúklingar oftar en
ekki ódýrasta lausnin. Þar kosta
kjúklingar brot af því sem þeir kosta
hér. Í Bandaríkjunum má fá stóran
kalkún fyrir sama verð og heimtað er
hér fyrir meðalkjúkling.
Einhvern veginn hefur okkur hins
vegar tekist að byggja upp kerfi þar
sem ekki er hægt að ganga að kjúk-
lingi vísum. Þegar kjúklingaborðið
er ekki tómt þessa dagana eru kjúk-
lingarnir sem í boði eru svo litlir að
það er vart hægt að nota þá í mat-
argerð. Fyrir nokkrum vikum voru í
gangi líflegar umræður um innflutn-
ing á kjúklingum og hugsanlegan
skort hér á landi á innlendum kjúk-
lingum. Getur verið að nú sé verið að
slátra allt of ungum kjúklingum til að
ekki verði sýnilegur skortur?
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16