Morgunblaðið - 30.08.2002, Page 44
ÞEIR Atli Bollason og Leó Stefáns-
son ákváðu þetta sumarið að gefa frá
sér þrjá diska fyllta með frumsömdu
efni. Nú þegar hafa tveir þeirra,
Rósavín og Raftónlist og Alti og Leó
í Undralandi, litið dagsins ljós en sá
þriðji er væntanlegur í lok septem-
bermánaðar.
Þemalaust
„Við ákváðum að hafa diskana þrjá
þar sem sumarið telur þrjá mánuði.
Það átti nú reyndar fyrst að vera
einn diskur á mánuði en nú eru þeir á
um 6 vikna fresti,“ viðurkennir Atli.
„Maður er alltaf að búa til einhverja
tónlist og hún á sér engan vettvang.
Þarna söfnum við saman öllu sem við
gerum sama í hvernig stíl það er.“
„Já, við eigum í rauninni ekki efni í
heilan rokkdisk eða heilan „drum’n
bass“ disk. Þetta er meira svona sitt
af hvoru tagi, allt í bland,“ segir Leó.
Tvímenningarnir þvertaka fyrir
að hvern disk einkenni eitthvert
þema.
„Þeir eru með öllu þemalausir,“
fullyrðir Alti.
„Grunnurinn af því sem við spilum
er reyndar raftónlist en svo teygir
hún sig bara í allar áttir,“ segir Leó.
Þeir Atli og Leó stunda báðir pí-
anónám. Atli hefur numið í átta ár og
er á djassbraut í FÍH. Leó er hins
vegar að hefja nám í klassískum pí-
anóleik en hann hefur lært í tvö ár.
„Ég lem líka trommur á diskun-
um,“ segir Atli og Leó segist leika á
gítar í einhverjum lögum.
„Svo leikum við auðvitað báðir á
tölvur,“ bætir Atli við.
Auk þess að standa í útgáfustarf-
seminni eru þeir félagar liðsmenn í
tölvu-fönk hljómsveitinni Nortón.
„Það er okkar aðalverkefni þó að
við höfum ekkert verið neitt of dug-
legir að sinna því í sumar,“ segir Leó.
„Já, þessi útgáfa er í rauninni bara
hliðarverkefni okkar,“ samsinnir
Atli.
Þeir segja Nortón ekki enn hafa
gefið út neitt af sköpun sinni en full-
yrða að kynningareintök með lögum
sveitarinnar liggi hjá „háttsettum
mönnum úti í bæ.“
Raunveruleikatónlist
Talið berst aftur að afurðum sum-
arsins.
„Diskarnir þrír eru svona í anda
raunveruleikasjónvarps, þetta er
svona hálfgerð raunveruleikatón-
list,“ segir Atli og Leó er sama sinn-
is: „Já, við sleppun engu en bætum
heldur engu við. Þetta er bara það
sem við gerum.“
„Þetta er líka að mörgu leyti ókl-
árað hjá okkur. Við komumst ein-
faldlega ekkert lengra með sum lag-
anna og viljum endilega að fólk úti í
bæ taki sig til og endurhljóðblandi
eða klári lögin,“ segir Atli.
Hinar umræddu afurðir þeirra
Atla og Leós fást keyptar í verslun-
um Hljómalindar og 12 tóna og kosta
litlar 500 krónur. Upplagið er 30
diskar og segja tónlistarmennirnir
viðtökur hafa verið framar öllum
vonum.
Leó segir þá félaga þó efast um að
fleiri eintök verði gefin út af disk-
unum þremur og bætir Atli þá við að
þeir vonist til að hin upprunalegu
eintök seljist á þúsundir dollara á E-
Bay uppboðshaldaranum á Netinu í
framtíðinni.
Atli og Leó gefa út þrjár plötur í sumar
Atli og Leó í Undralandi.
Raftón-
list í all-
ar áttir
Morgunblaðið/Jim Smart
FÓLK Í FRÉTTUM
44 FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
.) 5%5
) 4%40
;) <5
<) 340
.
%
)
&/9
&
=% %
&/
&/40;4 $%
#%&% .
#
)
0;5
% &/&
% 9
&
=% %
- ,% 2
% 4340
%
&
) )
!
4540
Eva³
!"
#$
%
&'()'(
Vesturgötu 2, sími 551 8900
Sixties
í kvöld
Útgáfutónleikar
frá kl. 22Vesturgötu 2 sími 551 8900
Hádegisverðartilboð
Kvöldverðarhlaðborð
kr. 990
kr. 1.990
frá kl. 11.30-14.30
frá kl. 18-22
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
ÁSKRIFTARKORT VERTU MEÐ Í VETUR
Endurnýjun stendur yfir!
Stóra svið
MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM
e. Ray Cooney
Lau 31. ágúst kl 20
Ath: örfáar sýningar í haust
AND BJÖRK OF COURSE
e. Þorvald Þorsteinss.
Lau 31. ágúst kl 20
í Herðubreið, Seyðisfirði
Leikferð
ÞAÐ sem hrífur mann hvað mest
við Van Morrison – er hversu stað-
fastur hann er og tryggur sinni tón-
listarsannfæringu. Allar götur síðan
hann hóf feril sinn með hljómsveit-
inni Them á 7. áratugnum hefur
hann gefið stefnum og straumum í
tónlistarheiminum langt nef og búið
til þá tónlist sem hjarta hans liggur
næst, sígildan og sálarskotinn rytm-
ablús í bland við angurværar, ein-
lægar ballöður og einstaka hliðar-
spor þar sem hann
vottaði þjóðlaga-
hefðinni írsku virð-
ingu sína. Það er
einkum að þessi
fyrrum mikli efa-
semdamaður hafi
breytt ofurlítið um
áherslur er hann sá ljósið skæra á
himnum á níunda áratugnum því
upp frá því urðu gospel-áhrifin
ennþá áþreifanlegri en áður, sem
var vel.
Samkvæmt óvísindalegum út-
reikningum mínum er Down The
Road 31. plata Morrisons ef undan
eru skildar safnplöturnar. Enn er
hann samkvæmur sjálfum sér, bull-
andi rytmablús enda er þema plöt-
unnar viðkoma ferðalangsins
óþreytta – sígaunans sem Morrison
hefur gjarnan álitið sig í gegnum
tíðina – í uppsprettu blússins, New
Orleans og Chicago. Ferðalag
Morrisons er aftur í tímann, allt aft-
ur til æskuáranna er hann drakk í
sig blúsáhrifin. Og virðingin ein-
kennir hverja einustu nótu sem
sungin er og spiluð en einnig gleðin
og þakklæti fyrir að vera í þessari
aðstöðu eftir öll þessi ár, að geta
fengist við það sem hjartanu liggur
næst.
Þótt unaður sé að hlusta á ein-
læga blússtandardana þá eru það
hreint ótrúlega fallegar ballöðurnar
sem upp úr standa og „Steal My
Heart Away“ er einfaldlega eitt af
hans allra bestu lögum. Þótt Down
The Road höfði kannski einkum til
þeirra sem liðtækir eru fyrir í Morr-
ison-fræðunum. þá er hún samt
besta kynningin á þessum magnaða
tónlistarmanni síðan hann sendi frá
sér Avalon Sunset 1989. Tónlist
Flökku-
mannsins
blús
Van Morrison
Down The Road
Polydor
Enn ein platan frá írsku goðsögninni, enn
ein himnasendingin fyrir unnendur hans.
Skarphéðinn Guðmundsson
Lykillög: „Down The Road“, „Steal
My Heart Away“, The Beauty Of The
Days Gone By“
M O N S O O N
M A K E U P
litir sem lífga
Viltu léttast
um 1-4 kíló á viku
Símar 557 5446 og 892 1739