Morgunblaðið - 30.08.2002, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 30.08.2002, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 2002 47 FYRRVERANDI forsprakki hljóm- sveitarinnar Verve, Richard Ash- croft, hefur nú sent frá sér nánari fregnir af væntanlegri sólóplötu sinni. Platan, sem mun bera heitið Human Condition, kemur á markað 21. október næstkomandi. Ashcroft hefur áður sent frá sér sólóplötuna Alone With Everybody. Platan væntanlega mun innihalda tíu lög og fær Ashcroft sér til liðsinnis í nokkr- um laganna ekki ómerkari menn en Brian Wilson úr Beach Boys og James Lavelle MoWax-leiðtoga. Í kjölfar útgáfunnar ætlar Ash- croft svo í tónleikaferðalag um Bandaríkin. Mannlegur Ashcroft www.regnboginn.is „Besta mynd ársins til þessa“ 1/2HÖJ Kvikmyndir.com „Ein besta mynd þessa árs. Fullkomlega ómissandi.“  SV Mbl  HK DV  Radíó X Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 10 ára The Sweetest Thing Sexý og Single i l Yfir 25.000 MANNS Yfir 35.000 MANNS Sýnd kl. 5, 8 og 10.50. B. i. 14. „meistaraverk sem lengi mun lifa“  ÓHT Rás 2 i t r r l i lif Hverfisgötu  551 9000 mikeMYERS beyoncé KNOWLES and michaelCAINE Sýnd kl. 6, 8.30 og 10.45. Sýnd kl. 6, 8 og 10. Yfir 15.000 MANNS  Radíó X 1/2Kvikmyndir.is Sýnd kl. 6. með íslensku tali. www.laugarasbio.is Sýnd kl. 4 og 6. með íslensku tali. Ben affleck Morgan Freeman  SK Radíó X  ÓHT Rás2 „Enginn ætti að missa af þessari,“ Kvikmyndir.is Sýnd kl. 8 og 10.10. Forsýnd kl 12.15 eftir miðnætti. Sýnd kl. 6 og 9. B. i. 14. Yfir 25.000 MANNS Yfir 15.000 MANNS  Radíó X 1/2Kvikmyndir.is mikeMYERS beyoncé KNOWLES and michaelCAINE Frá leikstjóra og framleiðanda THE FAST AND THE FURIOUS NÝ TEGUND TÖFFARA ATH! MIÐASALA OPNAR KL. 15.30. FORSÝNING POWERFORSÝNINGkl. 12.15 eftir miðnætti.Á STÆRSTA THX tJALDI LANDSINS Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. Hverfisgata 26 - Tel.: 511 3240 Matti & Skratti spila alla helgina sex fet undir Við erum best geymda um helgar Opið til kl. 5.30 GLEÐISVEITIN Sixties gaf ný- verið út sína sjöttu breiðskífu og til að fagna áfanganum mun sveit- in halda útgáfutónleika á Kaffi Reykjavík í kvöld. Nýja platan heitir Sumargleði og inniheldur sígild íslensk dægurlög, lög sem allir, já allir landsmenn ættu að þekkja og geta sungið með. „Sum- argleði inniheldur kassagítars- og partílög,“ skýrir Rúnar Örn Frið- riksson söngvari Sixties nánar er hann sat fyrir svörum ásamt Guð- mundi Gunnlaugssyni trommara, og á stundum söngvara.„Við tök- um gömul íslensk lög sem hafa verið sungin mikið í partíum, svona þekkta slagara, og klæðum þau í okkar búning.“ „Þetta er það sem fólk vill heyra held ég,“ bætir Guðmundur við. Þeir félagar eru á einu máli um að hlutverk Sixties sé númer eitt, tvö og þrjú að skemmta fólki. „Við höfum ekkert verið að leggja neitt sérstaklega mikið upp úr listrænu gildi heldur aðallega að skemmta, hvort sem er á böll- um, á plötum eða bara hvar sem er,“ segir Rúnar. „Það virkar best ef fólkið kann textana, þá er gaman á böllum. Fólk vill þekkja lögin og geta sungið með,“ segir Guðmundur og Rúnar upplýsir að þetta eigi við um alla aldurshópa enda hafa þeir félagar skemmt áhorfendum jafnt á grunnskólaaldri sem og eldri borgurum. Hættum við fermingu Þeir Rúnar og Guðmundur segja Sumargleðina ólíka öllu öðru sem þeir hafa gefið út að því leyti að hún er órafmögnuð. „Á hinum plötunum vorum við í rauninni að nútímafæra gömul lög en á þessari erum við að færa þau í einfaldari búning,“ segir Rúnar. Rúnar og Guðmundur segja mikið hafa verið að gera hjá sér við spilamennsku seinnipart sum- ars, eða frá því að platan kom út. „Það hefur verið alveg gríð- arlega mikið að gera hjá okkur og það stefnir í að svo verði áfram,“ segir Rúnar en bætir við: „Við höfum þó í raun aldrei verið endi- lega mikið sumarband. Það er jafn mikið að gera hjá okkur allt árið og ef eitthvað er þá tökum við okkur frí á sumrin á meðan hinir þeysast um landið.“ „Já árshátíðarnar og þorrablót- in eru í raun okkar vertíð,“ sam- sinnir Guðmundur. Sixties fagnar þessa dagana átta ára starfsafmæli sínu en sveitin var stofnuð í október ári 1994. „Hljómsveitin er þar með komin í annan bekk,“ grínar Rúnar. „Við stefnum að því að halda áfram fram að fermingu. Þegar búið er að ferma bandið þá förum við að hugsa okkar gang.“ Útgáfutónleikar vegna Sum- argleðinnar fara sem áður sagði fram í kvöld á Kaffi Reykjavík og hefjast klukkan 22. „Þetta verðum við ásamt að- stoðarmanninum Sigurði Sigurðs- syni munnhörpuleikara,“ segi Guðmundur. „Þetta verður örugg- lega mjög skemmtilegt og við vonum að sem flestir sjái sér fært að mæta.“ Sumargleði Sixties Sixties heldur útgáfutónleika á Kaffi Reykjavík birta@mbl.is Guðmundur Gunnlaugsson, Rúnar Örn Friðriksson, Björgvin Björgvinsson og Svavar Sigurðsson bjóða til sumargleði í kvöld.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.