Morgunblaðið - 04.09.2002, Blaðsíða 12
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
12 MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÁFENGIS- og tóbaksverslun rík-
isins auglýsti um helgina eftir
leiguhúsnæði undir vínbúð á Sel-
tjarnarnesi eða á svæði 107 í
Reykjavík. Að sögn framkvæmda-
stjóra húsnæðissviðs ÁTVR stend-
ur til að breyta útliti verslunar-
innar til samræmis við nýrri búðir
fyrirtækisins.
ÁTVR hefur rekið áfengisversl-
un í húsnæði í kjallara Eiðistorgs
á Seltjarnarnesi og segir Jóhann
Steinsson, framkvæmdastjóri hús-
næðissviðs fyrirtækisins, það hús-
næði vera í eigu ÁTVR. „Við ætl-
um að reyna að koma okkur upp á
jörðina og lífga þetta aðeins við.
Það þarf að breyta búðinni þannig
að hún verði með þetta nýja útlit
okkar og því töldum við rétt að
skoða hvað okkur byðist á jarð-
hæðinni.“
Næsta búð
í Austurstræti
Í auglýsingunni kemur fram að í
búðinni eigi að selja áfengi í smá-
sölu og tóbak til endurseljenda og
er óskað eftir því að stærð hús-
næðisins sé um 300 fermetrar sem
Jóhann segir heldur minna en búð-
ina í kjallara Eiðistorgs. Þá er til-
greint að góður aðgangur þurfi að
vera að lager verslunarinnar
vegna vörumóttöku.
Helst af öllu vildum við vera ná-
lægt þessum stað, eða í hverfi
107,“ segir Jóhann. „Við þurfum
að dekka þetta svæði því næsta
búð okkar er í Austurstræti.“
Verði góð viðbrögð við auglýs-
ingunni segist Jóhann reikna með
að breytingarnar gangi í gegn á
næsta ári. Ef ekkert húsnæði bjóð-
ist verði búðinni breytt í því hús-
næði sem hún er nú í.
ÁTVR
hyggst
flytja
Seltjarnarnes
KOSTNAÐUR vegna viðbyggingar
við Valhúsaskóla fór í ár um 20 millj-
ónir fram úr upphaflegri áætlun. Er
kostnaðurinn til kominn vegna
breyttra forsendna frá því að kostn-
aðaráætlun var gerð.
Byggingin var tekin í notkun í
haust. Í greinargerð Jónmundar Guð-
marssonar bæjarstjóra, sem lögð var
fram á síðasta fundi bæjarstjórnar,
kemur fram að viðbyggingin, fjórar
kennslustofur og tengigangur, átti
upphaflega að vera 200–250 fermetr-
ar að stærð og var kostnaður á þessu
ári vegna þessa áætlaður 50 miljónir
króna. Stóð til að byggja þrjár til fjór-
ar kennslustofur sem yrðu 50 fer-
metrar hver auk gangsins.
Meðan á verkinu stóð kom hins
vegar í ljós að stofurnar voru undir
viðmiðunarmörkum, sem eru 60 fer-
metrar, en auk þess var sú ákvörðun
tekin að breyta stofunum í þrjár sér-
hæfðar stofur fyrir kennslu í eðlis- og
efnafræði, náttúrufræði og tölvu- og
upplýsingatækni og að auki er ein al-
menn kennslustofa.
Að auki var bætt við vinnuher-
bergi, ræstiklefa, salerni fyrir fatlaða,
tengigangi til viðbótar við þann sem
fyrir var og rúmgóðum gangi með
setustofu. „Samtals er stærð bygg-
ingarinnar því um 470 fermetrar,“
segir í greinargerðinni.
Kemur fram að breytingarnar hafi
einnig haft veruleg áhrif á annan
stofnkostnað þar sem stofnkostnaður
sérstofu er mun dýrari en almennra
kennslustofa. Þá hafi reynst nauðsyn-
legt að setja loftræstingu í bygg-
inguna vegna efna og búnaðar í raun-
greinastofunum og nam viðbótar-
kostnaður vegna hennar um 10
milljónum króna.
Húsnæðisþörfinni nú fullnægt
Segir í greinargerðinni að kostnað-
ur vegna framkvæmdarinnar hafi
verið 70 milljónir króna í ár í stað
þeirra 50 sem áður var áætlaður. Á
móti komi að félagsmálaráðuneytið
hafi fallist á umsókn bæjarins um
framlag úr Jöfnunarsjóði sveitarfé-
laga vegna nýbyggingarinnar sem
nemur um 6,5 milljónum króna. Í
fyrra voru um 35 milljónir ætlaðar til
eignabreytinga hjá Valhúsaskóla, að-
allega vegna nýbyggingarinnar en
nettóútgjöld ársins 2001 urðu hins
vegar tæpar 29. mkr. vegna framlags
frá Jöfnunarsjóðinum.
Að sögn Jónmundar Guðmarsson-
ar bæjarstjóra voru ákvarðanir er
vörðuðu breytingar á fyrri bygging-
aráætlun teknar af bygginganefnd
skólans. Hann bendir á að að auki hafi
gamli skólinn verið tekinn í gegn og
kostuðu þær framkvæmdir um 50
milljónir króna. Að hans sögn er hús-
næðisþörf skólans því fullnægt með
þessum framkvæmdum. „Það má
segja að við séum komin með glænýj-
an skóla sem annar okkar þörf um
fyrirsjáanlega framtíð.“
Forsendur viðbyggingar Valhúsa-
skóla breyttust á verktíma
Fór um 20 milljón-
ir fram úr áætlun
Seltjarnarnes
FYRIR rúmum fjörutíu árum
stóðu ellefu strákar og 22 stelpur í
stofu númer 1 í Breiðagerðisskóla
og afhentu
kennara sínum
minningabók í
kveðjuskyni. Í
bókinni voru
ljósmyndir af
krökkunum og
hverri þeirra
fylgdu falleg orð
til kennarans,
Brynhildar
Snædal Jósefs-
dóttur. Víst er
um að þeir sem skrifuðu hafa
vandað sig óskaplega enda var
Brynhildur þekkt fyrir fallega rit-
hönd sína og áherslu á vandaða
skrift og málfar.
Ástæða þessarar kveðjustundar
vorið 1961 var að nú var barna-
skólaprófið að baki og við tók al-
vara lífsins í gagnfræðaskólanum
sem framundan var.
12 ára bekkur F átti þó eftir að
hitta kennarann sinn oftar og síðar
minnast hans eftir andlát hans. Í
gærkvöldi heiðraði bekkurinn svo
aldarminningu Brynhildar með
listaverkagjöf til gamla skólans
síns.
Kunni á okkur þótt við
værum ólík innbyrðis
Að sögn Ingibjargar Ottesen,
sem var meðal þeirra sem rituðu í
minningarbókina forðum daga, var
Brynhildur alveg sérstök kona.
„Við komum af sitthvoru heimilinu
og hún kunni á okkur öll þótt við
værum ólík innbyrðis. Hún kenndi
okkur sérstaklega virðingu fyrir
öðru fólki og hélt að okkur gullnu
reglunni mjög: að gera öðrum það
sem við viljum að þeir geri okkur.
Hún var mjög róleg og yfirveguð
og þótt við værum öll misjöfn og
sum okkar kannski baldnari en
önnur að eðlisfari kunni hún alltaf
að stýra okkur.“
Ingibjörg segir veganestið sem
Brynhildur gaf bekknum því hafa
verið einstaklega gott og fyrir það
sé hann henni ævinlega þakklátur.
Bauð bekknum
í áttræðisafmælið
Hún segir bekkjarfélagana
þekkjast býsna vel. „Þegar Bryn-
hildur var áttræð bauð hún okkur
öllum í afmælið sitt og þá vorum
við nokkur sem tókum okkur sam-
an og fórum í afmælið. Þá end-
urhófust kynni sem voru svo góð
fyrir vegna þess að þetta var ákaf-
lega samheldinn hópur.“
Héldu upp á níræðisafmælið
Tíu árum síðar hélt bekkurinn
svo upp á níræðisafmæli Brynhild-
ar en hún var þá nýlátin. „Þá tók-
um við ákvörðun um að við mynd-
um hittast eigi síðar en að tíu
árum liðnum. Síðasta haust hitt-
umst við svo til að taka ákvörðun
um að við myndum gera eitthvað.“
Það var síðan í gærkvöld sem
gömlu bekkjarfélagarnir lögðu
hver af öðrum leið sína í gömlu
stofuna sína í Breiðagerðisskóla til
að afhenda skólanum myndverk
eftir Karólínu Lárusdóttur en það
var Guðbjörg Þórisdóttir skóla-
stjóri sem veitti því viðtöku. Þetta
var þeirra leið til að heiðra minn-
ingu gamla kennarans síns sem
gaf þeim svo margt annað en góða
handskrift.
Heiðruðu barnaskólakennarann sinn á aldarafmæli hans
Hélt að okkur
gullnu reglunni
Smáíbúðahverfi
Brynhildur
Snædal
Jósefsdóttir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gísli Einarsson, fyrrv. nemandi 12 ára bekkjar F, afhendir Guðbjörgu
Þórisdóttur, skólastjóra Breiðagerðisskóla, listaverk eftir Karólínu
Lárusdóttur til minningar um Brynhildi Snædal Jósefsdóttur.
GÖNGUBRÚ var komið fyrir yfir
Miklubraut á móts við Kringluna í
fyrrinótt eftir að hafa verið flutt
frá geymslustað sínum við Vík-
urgatnamót á Vesturlandsvegi.
Flutningur brúarinnar gekk vel
en alls tók verkið um tvo og hálf-
an tíma.
Að sögn Guðmundar Guðnason-
ar, byggingarverkfræðings hjá
Línuhönnun, eftirlitsaðila verks-
ins, var hafist handa við verkið
um ellefuleytið um kvöldið en því
var lokið laust eftir klukkan eitt.
Áður hafði brúin verið sett saman
og máluð á geymslustaðnum við
Víkurgatnamótin fyrir flutning-
inn.
Gangandi hleypt
á í næstu viku
Brúin er þó ekki komin í notkun
enn, því eftir er að setja upp hand-
riðsgrindur, ganga frá endum
hennar, tengja hellulögn og lag-
færa aðkomu að göngustígum
beggja vegna við hana. Segir Guð-
mundur enn svolítið í að formleg
opnun brúarinnar fari fram en
hægt verði að hleypa gangandi
umferð á hana eftir að handriðs-
grindurnar eru komnar upp. Býst
hann við að það verði í næstu viku.
Reykjavíkurborg og Vegagerð-
in kosta brúarsmíðina en verk-
takafyrirtækið Eldafl ehf. sá um
framkvæmdina. Er óhætt að segja
að mynd Miklubrautarinnar hafi
breyst við uppsetningu brúarinnar
eins og sést á þessum myndum,
sem teknar voru í gær fyrir flutn-
inginn og svo aftur í dag.
Göngu-
brú
breytir
götu-
mynd
Miklabraut
Morgunblaðið/Kristinn