Morgunblaðið - 04.09.2002, Blaðsíða 15
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 2002 15
EKKI er gert ráð fyrir að Reykjanes-
bær muni sjálfur byggja upp eða reka
víkingaþorp sem áhugi er á að koma
upp við Stekkjarkot í Innri-Njarðvík í
tengslum við rekstur víkingaskipsins
Íslendings. Reykjanesbær hefur
samþykkt að leggja allt að 7 milljónir
til að fá skipið til bæjarins, annar
kostnaður er greiddur af fyrirtækjum
og ríkinu.
Á fundi bæjarstjórnar Reykjanes-
bæjar í gærkvöldi urðu miklar um-
ræður um kaup á víkingaskipinu Ís-
lendingi til bæjarins í kjölfar þess að
Árni Sigfússon bæjarstjóri lagði fram
svör við skriflegri fyrirspurn Guð-
brands Einarssonar, bæjarfulltrúa
Samfylkingarinnar. Fram kom í svör-
um bæjarstjóra að með samningum
við kröfuhafa og aðra tókst að lækka
áhvílandi skuldir og kostnað af Ís-
lendingi um rúmar 20 milljónir, úr
rúmum 63 milljónum í tæpar 43.
Greiðsla á þessari fjárhæð er jafn-
framt tryggð með staðfestum fram-
lögum fyrirtækja og ríkisissjóðs, á
næstu tveimur árum, auk framlags
Reykjanesbæjar, samtals 43 milljón-
um króna.
Áætlað er að rekstur skipsins
fyrsta árið verði í höndum formlegs
eiganda, Íslendings ehf., og og telur
bæjarstjóri unnt að láta tekjur af sölu
siglinga og kynningu standa undir
þeim kostnaði sem ekki er þegar tek-
inn með í stofnkostnaðartölur.
Reykjanesbær á um fimmtung í
einkahlutafélaginu. Eftir 1. septem-
ber á næsta ári tekur Reykjanesbær
við rekstrinum en gert er ráð fyrir að
hann verði leigður til fyrirhugaðs vík-
ingaþorps gegn gjaldi og að Reykja-
nesbær fái af honum tekjur sem renni
til frekari uppbyggingar ferðaþjón-
ustu og listastarfsemi í Reykjanesbæ.
Talað er um 300 krónur fyrir hvern
gest sem gengur í gegnum skipið.
Gætu tekjur bæjarins numið tugum
milljóna ef vel tekst til.
Árni Sigfússon sagði frá hugmynd-
um sínum um nýtingu á skipinu í þágu
ferðaþjónustu og menntunar. Talaði
um að skipið og uppbyggingu í
tengslum við það mætti kalla Sögu-
hliðið. Skipið gæti orðið aðalumgjörð
sögusafns með því að því yrði siglt inn
í safnhúsið. Víkingaþorpið yrði til
fræðslu, skemmtunar og til sölu varn-
ings. Í þriðja lagi gæti staðurinn verið
umgjörð kynningar á söguslóðum þar
sem kynntir yrðu aðrir sögufrægir
staðir landsins fyrir ferðafólki sem til
landsins kæmi.
Fram kom hjá Árna á fundinum að
ekki eru uppi áform um að Reykja-
nesbær kosti uppbyggingu víkinga-
þorpsins á Fitjum eða rekstur þess.
Hins vegar hafi komið í ljós að ýmis
fyrirtæki hafi mikinn áhuga á að
koma að þeirri uppbyggingu.
Á fundinum kom fram að kaup á
víkingaskipinu hefðu verið samþykkt
með atkvæðum allra fulltrúa í bæj-
arráði. Hins vegar kom fram gagn-
rýni fulltrúa Samfylkingarinnar og
Framsóknarflokksins á ýmis atriði í
málsmeðferð meirihluta Sjálfstæðis-
flokksins og fyrirspyrjandinn hafði
ýmsa fyrirvara um stuðning við áætl-
anir um frekari uppbyggingu. Sagðist
til dæmis ekki geta stutt áform um
víkingaþorp nema aðrir en Reykja-
nesbær kostuðu hana. Spunnust af
þessu nokkrar deilur milli fulltrúa
Sjálfstæðisflokksins og Samfylking-
arinnar.
Reiknað með að fyrirtæki kosti
uppbyggingu víkingaþorps
Reykjanesbær
BYRJAÐ er að rífa niður girð-
inguna sem lokað hefur svokölluðu
Neðra-Nikkelsvæði frá byggðinni í
Njarðvík og Keflavík. Niðurrif
girðingarinnar er lokaáfangi í um-
hverfisátaki Reykjanesbæjar þar
sem safnað er saman brotajárni.
Girðingin um Nikkelsvæðið hef-
ur verið lýti á bæjarfélaginu og af
henni hefur staðið slysahætta. Nú
þegar hreinsun mengunar á Nikk-
elsvæðinu er lokið og varnarliðið
hefur skilað landinu til íslenska rík-
isins hefur verið hægt að fjarlægja
girðinguna. Við það er notuð stór
vél frá Hringrás og gengur verkið
vel. Starfsfólk umhverfis- og tækni-
sviðs Reykjanesbæjar og þjónustu-
miðstöðvar bæjarins fylgdist með
vélinni að störfum í gær.
Ríkið hefur ekki ráðstafað land-
inu en Viðar Már Aðalsteinsson,
forstöðumaður umhverfissviðsins
býst við að sáð verði í það næsta
vor og borinn á það áburður til að
græða það upp.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Nikkel-girðingin rifin
Njarðvík
BROS lék um varir barnanna í skóla-
görðum Reykjanesbæjar síðastlið-
inn laugardag þegar þau fóru að
vitja kartöfluuppskerunnar eftir
sumarið. Allflest gátu verið ánægð
með uppskeruna og mörg vildu strax
fara heim, koma kartöflunum í pott-
inn og borða með nýsoðinni ýsu.
Þjóðlegra og hollara gæti það nú
ekki verið.
Skólagarðar Reykjanesbæjar hóf-
ust 10. júní, strax og grunnskóla lauk
en starfsemin er fyrir börn á aldr-
inum 6 til 12 ára. Í sumar hafa börnin
lært að sá og hirða garðana sína svo
uppskeran yrði sem best.
Að sögn Katrínar Guðjónsdóttur,
annars af umsjónarmönnum skóla-
garðanna hefur sumarið verið mjög
skemmtilegt og lærdómsrík, sér-
staklega vegna þess hversu börnin
hafa verið áhugasöm og dugleg. Þau
hafi ekki látið veðrið spilla fyrir sér
en síðari hluta sumars hefur rignt
mikið. Veðrið hafi hins vegar leikið
við þau fyrstu vikurnar. Með Katr-
ínu starfaði Sigurbjörg Gunnars-
dóttir.
Veitt voru verðlaun fyrir bestu
ástundun í sumar, snyrtilegasta
garðinn og þyngsta grænmetið, en
grænmetisuppskerunnar vitjuðu
börnin um miðjan ágúst. Benjamín
Slater fékk verðlaun fyrir bestu
ástundun, Birna Helga Jóhannes-
dóttir átti snyrtilegasta garðinn en
Sara Lind Ingvarsdóttir uppskar
mesta grænmetið, rétt tæp 16 kíló.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Foreldrarnir voru ekki síður spenntir en börnin að vitja kartöfluupp-
skeru sumarsins enda ljóst að öll fjölskyldan mun njóta afrakstursins.
Nýuppteknar kart-
öflur beint í pottinn
Reykjanesbær
PAINTING Daisies, kanadísk
kvennarokksveit, leikur á N1-
bar í Keflavík föstudaginn 6.
september og eru tónleikarnir
liður í dagskrá Ljósanætur.
Hljómsveitin leikur einnig á
Gauk á Stöng á fimmtudags-
kvöld og Inghóli á Selfossi á
laugardagskvöld.
Kanadíska hljómsveitin
kemur hingað til lands í fyrra-
málið í boði Þúsund þjala ehf.
– umboðsskrifstofu lista-
manna, og dvelur fram á helgi.
Hljómsveitina skipa fjórar
stúlkur, Daisy Blue Groff,
Rachelle Van Zanten, Kim
Gryba og Carolyn Fortowsky,
allar frá Edmonton í Alberta-
ríki í Kanada. Í tilkynningu
frá Þúsund þjölum kemur
fram að hljómsveitin hafi getið
sér gott orð vestan hafs og
hlotið ýmsar viðurkenningar,
meðal annars verið útnefnd
skemmtikraftur ársins 2001 í
Kanada. Hljómsveitin er nú á
tónleikaferðalagi, meðal ann-
ars til Evrópu, og hefur við-
komu á Grænlandi og Íslandi.
Kanadísk
kvenna-
rokksveit
á Ljósa-
nótt
Keflavík