Morgunblaðið - 01.10.2002, Qupperneq 2
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isLítt þekktur kylfingur hefur
slegið lengst allra/B3
Arnór Guðjohnsen útnefndur besti er-
lendi leikmaður allra tíma í Svíþjóð /B1
12 SÍÐUR48 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á ÞRIÐJUDÖGUM
FRÉTTIR
2 ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Morg-
unblaðinu í
dag fylgir
auglýs-
ingablað
Jazzhátíðar
Reykjavík-
ur. Blaðinu
verður
dreift um
Suðvest-
urland.
VÖRUFLUTNINGABIFREIÐ með
tengivagni valt á leið til Húsavíkur við
Voladal um klukkan 15 í gær. Að sögn
lögreglunnar á Húsavík var bílstjóri
hennar fluttur til rannsóknar á
Sjúkrahúsinu á Húsavík. Hann var
ekki talinn mikið slasaður. Bifreiðin
var að flytja stórgrýti í tengivagni og
að sögn lögreglu er líklegt að grjótið
hafi oltið til en bifreiðin valt í krappri
beygju í svokölluðum Bratta. Bifreið-
in er töluvert skemmd.
Bílvelta við Voladal
RÉTTU handtökin við aðhlynn-
ingu slasaðra voru æfð í Hval-
fjarðargöngunum í gærkvöldi, en
þar fór fram björgunaræfing á
vegum Slysavarnafélagsins
Landsbjargar.
Í æfingunni tóku þátt björg-
unarsveitir frá Akranesi og af
höfuðborgarsvæðinu.
Björgunarsveitarmenn gáfu sér
að hópslys hefði orðið og að
hjúkra þyrfti fjölda slasaðra og
koma þeim undir læknishendur.
Samkvæmt upplýsingum frá
Slysavarnafélaginu Landsbjörg
var um svokallaða sjúkraflokka-
æfingu að ræða, en reglulega fara
fram æfingar hjá öllum sveitum.
Björgunarsveitarmenn og -kon-
ur voru mjög einbeitt á svip á æf-
ingunni í gærkvöldi er ljósmynd-
ara Morgunblaðsins bar að garði
og spöruðu hvorki krafta né sára-
umbúðir við verkið, rétt eins og
um raunverulegt slys væri að
ræða.
Morgunblaðið/Sverrir
Björgun-
aræfing í
Hvalfjarð-
argöngum
SPARISJÓÐUR Reykjavíkur og
nágrennis keypti í gær alla hluti
Kaupþings banka hf. í Frjálsa fjár-
festingarbankanum hf. fyrir 3.844
milljónir króna. Samhliða sölu á
Frjálsa fjárfestingarbankanum til
SPRON hefur verið gerður samn-
ingur um að Kaupþing banki tryggi
sölu á um 12,5% eignarhlut
SPRON í bankanum á genginu
13,00. Forsenda þess samnings er
að SPRON nýti endurkaupsrétt
sinn samkvæmt samningi, dagsett-
um 28. júní 2002, um samtals
52.307.693 hluti í Kaupþingi banka.
Frá þessu var greint í fréttatil-
kynningu frá SPRON í gær.
Guðmundur Hauksson, spari-
sjóðsstjóri SPRON og stjórnarfor-
maður Kaupþings, segir að með
sölu SPRON á hlut sínum í Kaup-
þingi og kaupum á Frjálsa fjárfest-
ingarbankanum, sé verið að skýra
betur áherslur SPRON, sem séu að
þjóna einstaklingum og fyrirtækj-
um. Með því að leggja saman
krafta SPRON og Frjálsa fjárfest-
ingarbankans sé hægt að ná fram
öflugri starfsemi í báðum fyrir-
tækjunum.
Mikill fengur í honum
fyrir starfsemi SPRON
„Frjálsi fjárfestingarbankinn er
eftir umfangsmikla endurskipu-
lagningu í mjög góðum rekstri og
það er mikill fengur í honum fyrir
starfsemi SPRON og möguleika
sparisjóðsins til þess að veita ein-
staklingum og fyrirtækjum á
Reykjavíkursvæðinu fjölþættari og
betri þjónustu,“ segir Guðmundur.
Fram kemur í fréttatilkynning-
unni að það hafi komið fram af
hálfu stjórnenda SPRON síðastlið-
ið sumar að miklar vonir væru
bundnar við breytingu á rekstrar-
formi sparisjóðsins sem þá var ráð-
gerð. Sem hlutafélagi myndi
SPRON verða mun hægara að afla
eigin fjár á markaði og stefnt yrði
að skráningu í Kauphöll Íslands.
Einnig yrði á margan hátt auðveld-
ara fyrir SPRON að auka þjónustu
við viðskiptavini með nýjum
rekstri innan vébanda hlutafélags-
ins.
Hætt var við áformin um að
breyta SPRON í hlutafélag í kjöl-
far yfirtökutilboðs Búnaðarbanka
Íslands. Segir í tilkynningunni að
stjórnendur SPRON hafi af þess-
um ástæðum leitað annarra leiða
til þess að efla sparisjóðinn og
veita viðskiptavinum hans fjölþætt-
ari þjónustu.
Útlánastarfsemi er kjarninn í
starfsemi Frjálsa fjárfestingar-
bankans. Bankinn lánar gegn veði í
fasteignum og bifreiðum til ein-
staklinga og fyrirtækja, veitir
framkvæmdalán til bygginga á
fasteignum og kaupir kröfur, eink-
um raðgreiðslusamninga, af fyrir-
tækjum. Þá hefur Frjálsi fjárfest-
ingarbankinn lagt aukna áherslu á
lánveitingar til fjársterkra og milli-
stórra fyrirtækja.
Frjálsi fjárfestingarbankinn
verður áfram rekinn sjálfstætt
undir stjórn Kristins Bjarnasonar,
sem gegnt hefur stöðu fram-
kvæmdastjóra frá ársbyrjun 2001.
Hjá bankanum eru 22 starfsmenn.
Kaup SPRON á Frjálsa fjárfest-
ingarbankanum miðast við 1. júlí
síðastliðinn en þá nam eigið fé
Frjálsa fjárfestingarbankans 2,5
milljörðum króna og niðurstöðu-
tala efnahagsreiknings var 16
milljarðar króna. Fasteign Frjálsa
fjárfestingarbankans í Sóltúni 26 í
Reykjavík fylgir ekki með í kaup-
unum.
Unnið að sölu á hlut
SPRON í Kaupþingi
Hreiðar Már Sigurðsson, aðstoð-
arforstjóri Kaupþings banka, sagði
í samtali við Morgunblaðið í gær að
bankinn hefði þegar hafið samn-
ingaviðræður við fjárfesta um kaup
á umræddum 12,5% hlut SPRON í
bankanum.
Gert væri ráð fyrir að þeirri
stöðu yrði að fullu lokið í október-
mánuði en ekki væri hægt á þessu
stigi málsins að gefa upp hver eða
hverjir væntanlegir kaupendur
væru.
SPRON selur eignar-
hlut sinn í Kaupþingi
Hefur keypt
Frjálsa fjárfest-
ingarbankann
fyrir 3.844
milljónir króna
AF rúmlega 450 núverandi starfs-
mönnum Íslenskrar erfðagreining-
ar, ÍE, eru ríflega 300 manns starf-
andi hér á landi og tæplega 150 í
Bandaríkjunum hjá dótturfyrirtæk-
inu MediChem í Chicago og skrif-
stofu deCODE í Boston. Af þeim um
200 starfsmönnum sem hættu sl.
föstudag voru um 30 útlendingar.
Í tilkynningu sem Íslensk erfða-
greining sendi frá sér sl. föstudag
kom fram að þann dag hefðu upp-
sagnir um 200 starfsmanna tekið
gildi. Í samtali við Pál Magnússon,
framkvæmdastjóra samskipta- og
upplýsingasviðs ÍE, í gær kom hins
vegar fram að sl. föstudag hefðu um
130 starfsmenn fengið uppsagnar-
bréf þennan dag. Uppsagnir annarra
næstu mánuði þar á undan hefðu þá
til viðbótar komið til framkvæmda.
Aðspurður af hverju fréttatil-
kynningin hefði ekki verið orðuð
með nákvæmari hætti sagði Páll að
tilkynningin hefði ekki snúist um hve
mörgum hefði verið sagt upp heldur
að greina frá hagræðingaraðgerðum
í rekstri sem skiptu markaðinn, fjár-
festa og almenning máli. Ekki hefði
verið talið skipta máli að greina frá
nákvæmum dagsetningum og fjölda
uppsagna hverju sinni.
Íslensk erfðagreining hefur ekki
upplýst um hve margir Íslendingar
misstu vinnuna hjá fyrirtækinu. Páll
sagði fyrirtækið líta á starfsmenn
sína sem einstaklinga og þjóðerni
þeirra skipti ekki máli. Páll minnti á
að fram hefði komið að þeir starfs-
menn sem fengu uppsagnarbréf
hefðu endurspeglað þann hóp starfs-
manna sem eftir væri hvað varðaði
aldur, kyn og þjóðerni. Um 15%
starfsmanna þess hér á landi eru út-
lendingar. Starfsmenn Íslenskrar
erfðagreiningar voru rúmlega 700 á
síðasta ári og fram á þetta ár.
Starfsemi Íslenskrar erfðagreiningar eftir uppsagnir
300 starfa á Íslandi og
150 í Bandaríkjunum
130 starfsmenn fengu uppsagnarbréf sl. föstudag
VINNINGSHAFINN í lottói
helgarinnar hafði ekki enn gef-
ið sig fram við Íslenska getspá
í gær en hann verður tæplega
19,5 milljónum króna ríkari
þegar hann sækir vinninginn.
Hefur ekki vitjað
vinningsins ennþá
Hjá Íslenskri getspá fengust
þær upplýsingar að vinnings-
miðinn hafi verið seldur í
verslun KÁ á Hellu og það sé
engan veginn óalgengt að vinn-
ings sé ekki vitjað strax. Mörg
dæmi eru um að hans sé ekki
vitjað fyrr en löngu eftir út-
drátt.
Fjórir voru með fjórar tölur
réttar auk bónustölu og fá þeir
285 þúsund krónur hver.
Lottótölurnar voru 12, 16, 18,
20 og 37 og bónustalan var 4.
Fyrsti vinningur
í lottói tæpar
19,5 milljónir
Miðinn
seldur
á Hellu